Morgunblaðið - 16.09.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992
Þorgerður Þórarins
dóttir - Kveðja
Fædd 30. nóvember 1918
Dáin 30. ágiist 1992
Verðlaunagrip stolið
Nú ertu lagður
lágt í moldu
ið brennheita bijóstið kalt.
Vonar-stjama
vandamanna
hvarf í dauðadjúp -
en drottinn ræður.
(J.H.)
Jónas Hallgrímsson var uppá-
haldsskáld minnar kæru móður, Þor-
gerðar Þórarinsdóttur frá Gottorp.
Mér þykir því viðeigandi að kveðju-
orð mín hefjist á erindi eftir þetta
ástsæla ljóðskáld. Ég hefi lengi búið
erlendis en verið í tíðu og innilegu
bréfa- og talsambandi við mömmu.
Það er mér því sérstakt gleðiefni að
hafa nýverið dvalið hjá henni í þijár
vikur og vonandi verið henni til ein-
hverrar huggunar nú þegar hún fann
að endalokin voru skammt undan.
Ólæknandi sjúkdómur gerði henni
ævikvöldið þungbært. Eg hringdi
ekki oftar í hana, en el með mér þá
von, að hún megni að koma boðum
til mín frá hinum nýju heimkynnum
sínum.
Við vorum mjög nánar mæðgur
og vinir og ég finn hjá mér ríka
þörf að skrifa þessi kveðjuorð til
móður minnar. Það gleddi hana mjög
ef við systurnar: Kolbrún, Auður og
ég héldum áfram góðum vinskap og
samráði eins og hingað til. í virðing-
arskyni við minningu mömmu mun-
um við rækja þessa skyldu svo hún
á himnum megi gleðjast vegna okk-
ar. Þessum línum fylgir hinsta
kveðja frá Níu.
Ásdís Inga.
STÓRUM bikar sem fylgir nafn-
bótinni akstursíþróttamaður árs-
ins var stolið úr bíl við Laugardals-
völl í gærdag, þegar verið var að
vinna að kynningu kjörsins. Bikar-
inn ber áletrunina „3T Bikarinn,
akstursíþróttamaður ársins“ og er
tæplega metri á hæð og silfursleg-
inn.
„Það var verið að kynna kjörið
og torfæru um helgina, þegar bik-
arnum var stolið úr bíl sem var
við útkeyrsluna við Laugardals-
völlinn. Það er ótrúlegt að einhver
telji sig geta notað merktan bikar,
en hann er gefinn til minningar
um rallökumanninn Jón S. Hall-
dórsson og því sérstaklega sárt
að vita til þess að einhver hafi
hann undir höndum. Sá sem tók
bikarinn eða einhver sem getur
vísað á hann er lofað greiðslu kom-
ist bikarinn til skila á einn eða
annan hátt. Það á að nota hann í
kynningu um helgina og því fyrr
sem hann kemst í okkar hendur
því betra,“ sagði Gunnlaugur
Rögnvaldsson sem stendur að
kjörinu ásamt fleirum.
ÆVWMÉMWMMAUGL YSINGAR
Hárgreiðslufólk
Við viljum ráða nú þegar svein eða meistara
á nýja og glæsilega hárgreiðslustofu í miðbæ'
Kópavogs.
Mikil vinna, góður andi, faglegur metnaður!
Upplýsingar á staðnum í dag og á morgun
kl. 18-19.
HÁRGREIÐSLUSTOFA • HAMRABQRG 7 • SÍMI 41500
Dagmar Agnarsdóttir • Linda ASalgeirsdóttir
Óskum eftir að ráða í hálfa stöðu
starfsmann
með kennarapróf
Starfið er aðallega fólgið í einstaklingsbund-
inni ráðgjöf og vinnu með nemendum á
skólaskyldualdri.
Upplýsingar í síma 629795 eða 627065.
Námsefnisráðgjöfin,
Tjarnargötu 12,
Reykjavík.
Kvikmyndagerð
Myndbær hf. óskar eftir að ráða kvikmynda-
gerðarmann til starfa við upptökur og klipp-
ingar. Óskað er eftir skriflegum umsóknum.
Myndbær hf. er fjölmiðlunarfyrirtæki sem
starfar við kvikmynda- og myndbandagerð á
sviði heimildar-, fræðslu-, kynningar-, og
auglýsingamynda. Fyrirtækið er með um-
fangsmikla útgáfustarfsemi, bæði hvað varð-
ar fréttablöð, kynningarbæklinga og mynd-
bönd.
Lögfræðingur
Stéttarfélag óskar að ráða lögfræðing í hluta-
starf. Skrifstofa félagsins er vel staðsett.
Lögfræðingurinn getur einnig fengið aðstöðu
til sjálfstæðrar starfsemi.
Upplýsingar eru gefnar í síma 26040 frá
kl. 15.00-17.00 virka daga.
Borarar
Viljum ráða nú þegar borara til afleysinga.
Upplýsingar í síma 686885, Elín/Jón.
ISTAK
Myndbær hf. hefur ennfremur umsjón með
kynningarmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
mvndbærhf
Suðurlandsbraut 20.
AUGL YSINGAR
YMISLEGT
Meðalfellsvatn
Til sölu er lóð með byrjunarframkvæmdum
undir sumarbústað ásamt bátaskýli og bát
við Meðalfellsvatn. Hér er um sérstakt tæki-
færi að ræða. í fyrsta lagi vegna þess að
hér er um mjög góða staðsetningu að ræða.
Einnig vegna þess að seljandi tók fjármunina
uppí önnur stærri viðskipti fyrir 1500 þúsund
en er tilbúinn að selja strax fyrir 1190 þús-
und gegn staðgreiðslu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
812300 frá kl. 9.00-16.00.
Teikningar á staðnum.
TILKYNNINGAR
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Keflavík skorar hér með á
gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöld-
um, sem voru álögð 1990, 1991 og 1992
og féllu í gjalddaga fyrir 5. september 1992
og eru til innheimtu hjá ofangreindum inn-
heimtumanni, að greiða þau nú þegar og
ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: Launaskattur, bifreiða-
skattur, slysatryggingagjald ökumanna,
þungaskattur samkvæmt ökumæli, viðbótar-
og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tíma-
bila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðis-
aukaskattur af skemmtunum, vinnueftirlits-
gjald, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld,
skipagjöld, vitagjöld og skipulagsgjöld.
Fjárnárrvs verður krafist án frekari fyrirvara
fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að
liðnum 15 dögum frá dagsetningu áskorunar
þessarar.
Keflavík, 14. septemer 1992.
Sýslumaðurinn í Keflavík.
Gjaldendur
fasteignagjalda athugið
í ágústmánuði voru gjaldendum, sem áttu
ógreidd fasteignagjöld, send áskorunarbréf,
þar sem veittur var 15 daga frestur til
greiðslu þeirra áður en beðið væri um nauð-
ungarsölu. Nú hefur verið ákveðið að beðið
verði um nauðungarsölu hafi gjöldin ekki
verið greidd fyrir 25. september nk.
Fellur þá um leié til aukinn kostnaður vegna
innheimtuaðgerða, m.a. vegna nauðungar-
sölugjalds, í ríkissjóð kr. 9.000,00.
Selfossi, 14. september 1992.
Innheimta bæjarsjóðs Selfoss.
hpimimm.uk
Fundur um
dagvistarmál
F U S
Heimdallur efnir til
kvöldfundar um dag-
vistarmál fimmtu-
daginn 17. septem-
ber kl. 21.00.
Á fundinum mun
Anna K. Jónsdóttir,
borgarfulltrúi og for-
maður stjórnar Dag-
vistar barna, kynna
nýjungar í dagvistar-
málum, en Eiríkur Ingólfsson, formaður Foreldrasamtakanna, kynna
sjónarmið samtakanna í þessum málaflokki. Fundurinn verður í Val-
höll, Háaleitisbraut 1, og er hann öllum opinn.
Foreldrar ath.l Leikaðstaða fyrir börn á staðnum.
FUNDIR ~~ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Átthagafélags Sandara
verður haldinn á Holiday Inn fimmtudaginn
24. september nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Félagsfundur
verður haldinn í Vörubílstjórafélaginu Þrótti
fimmtudaginn 17. september kl. 20.00 í húsi
félagsins í Borgartúni 33.
Fundarefni:
1. Atvinnumál.
2. Önnur mál. Stjórnin.
I.O.O.F. 7 = 1749168A = R.
I.O.O.F. 9 = 1749168'A =
REGLA MUSTERISRIDDARA
SIK, Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Ræðumaður Benedikt
Arnkelsson.
Þú ert velkomin(n).
RMHekla
16.9. VS.
Hörgshlíð 12 s
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
_ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • Sl'MI 68253’
Helgarferð
19.-20. september:
Þórsmörk - haustlitaferð
Litadýrð Þórsmerkur á haustin
gleður augað. Mlssið ekki af
haustlitaferð Ferðafélagsins.
Gist i Skagfjörðsskála/Langadal,
notaleg gistiaðstaða, upphitað
sæluhús, öll þægindi sem þarf.
Brottför kl. 08.00 laugardag.
Farmiðar og upplýsingar á skrif-
stofu Fl, Mörkinni 6.
Sæluhúsið í Landmannalaug-
um er fullbókað 18.-20. sept.
25.-27. sept. Landmanna-
laugar- Jökulgil.
Ferðafélag Islands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Farfuglar
áft
Haustferð í Valaból
Eldri og yngri Farfuglar!
Förum i Valaból laugardaginn
19. sept. kl. 13.30. Hittumst við
Kaldárbotna kl. 13.30.
Heitt kakó á staðnum.
Farfuglar.
KENNSLA
Gítarkennsla
Get tekið nemendur í einkatíma,
bæði byrjendur og lengra
komna.
Kristinn H. Árnason,
sími 10314.
Ljósheimar
íslenska heilunarfélagið
Kynningarfundur vegna vetr-
arnámskeiðsins verður haldinn
fimmtudaginn 17. september kl.
20 á Hverfisgötu 105, 2. hæð.
Innritun í símum 624464 og
674373.