Morgunblaðið - 16.09.1992, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Tækifæri til að
rífa okkur upp
- segir Atli Helgason, fyrirliði Víkings
VÍKINGUR og ZSKA Moskva mætast í Evropukeppni meistaraliða
á Laugardalsvelli ídag og hefst leikurinn klukkan 17.30. „Við
ætlum að selja okkur dýrt,“ sagði Atli Helgason, fyrirliði Víkings.
„Þungu fargi er af okkur létt og þetta er tækifærið til að rífa
okkur upp.“
á færri mörkum gerðum á útivelli.
Atli sagði að Víkingar vissu nán-
ast ekkert um liðið. „Við höfum séð
á myndbandi að þeir eru eldfljótir
og með leiknina í lagi, láta boltann
ganga, spila upp kantana og eru
með einn sókndjarfan miðjumann,
en eftir því sem okkur er sagt er
ekki um reynslumikið lið að ræða.
Möguleikar okkar felast ef til vill í
líkamsstyrknum og við reynum að
notfæra okkur hann eftir megni.“
Atli sagði að áhersla yrði lögð á
að menn gleymdu sér ekki í varnar-
leiknum og leikur Framara í gær
væri víti til varnaðar. „Við höfum
allt að vinna og förum ekki út á
völl til að tapa. Við vitum að á bratt-
ann verður að sækja, en leggjum
okkur alla fram. Þetta verður fyrsta
skrefið í undirbúningnum fyrir
næsta tímabil og tími er kominn til
að rétta úr kútnum."
ÚRSLIT
Evrópukeppni bikarhafa
StoJ<khólmur:
AIK - Árhus (Danmörku).............3:3
Pascal Simpson (51.), Peter Hellström (56.),
Vadim Yevtuchenko (85.) - Stig Tosting
(15.), Torben Christiansen 2 (36., 54.).
3.976
Bremen:
Werder Brcmen - Hannover...........3:1
Wynton Rufer 2 (19., 28.), Rune Bratseth
(45.) - Roman Wojcicki (26. - vítasp.).
17.000
Airdrei, Skotlandi:
Airdrieonians — Sparta Prag (Tékk.)..0:l
- Sopko (88.). 7.000.
Lurgan, N-írlandi:
Glenavon — Antwerpen (Belgíu)......1:1
Smith (45.) - Lehnhoff (46.).
UEFA-keppnin
Köln:
Köln - Celtic......................2:0
Jan Jensen (24.), Frank Ordenewitz (82.).
15.000
Malta:
Floriana (Möltu) - Dortmund.......0:1
Michael Rummenigge (21.). 5.000
Neuchatel:
Neuchatel (Sviss) - Frem (Danm.)...2:2
Sutter (50.), Manfreda (52.) - Mikkelsen
(17.), Henchoz (21. - sjálfsm.). 8.000
Edinborg:
Hibs (Skotl.) - Anderlecht.........2:2
Beaumont (4.), McGinley (80. - De Gryse
(39. - vítasp.), Van Vossen (67.). 14.213
Caen, Frakklandi:
Caen - Real Zaragoza (Spáni).......3:2
Xavier Gravelaine (7., 14.), Paille (37.) -
Garcia Sanjuan (37.), Miguel Pardeza (79.).
7.000.
England
Úrvalsdeild:
Blackburn - Everton.............2:3
(Shearer vsp. - 12., 74.) - (Cottee 22., 81.,
Ebbrell 39.). 19.563.
íslandsmótið, 2. deild:
Víðir - Þróttur............... 3:1
Sævar Leifsson 2, Brynjar Jóhannesson -
Ingvar Ólafsson.
Akureyrarmótið
Þór- KA..........................4:2
Kristján Kristjánsson, Halldór Áskelsson,
Sveinbjörn Hákonarson, Bjarni Sveinbjörns-
son - Pavel Vandas, Þórhallur Hinriksson.
■ KA komst i 2:0 en staðari f hálfleik var
2:1.
Fjáröflunarleikur
ÍA - „Útlendingahersveitin.........2:1
Firmakeppni
Firmakeppni Víkings í knattspyrnu innan-
húss fer fram í Víkinni n.k. sunnudag. Þátt-
taka tilkynnist fyrir föstudag, en nánari
upplýsingar í síma 813245 og 687755.
Bikarkeppnin:
FH-ingar
til Eyja
Dregið var í 1. umferð bikar-
keppni HSÍ í gær. Það er ljóst
að þijú 1. deildarlið falla úr eftir
fyrstu umferð þar sem þau lenda
saman. Það eru Stjarnan - Selfoss,
Fram - Þór og ÍBV - FH. Leikirnir
fara fram sunnudaginn 25. októ-
ber. Eftirtalin lið drógust saman,
heimalið nefnt á undan:
Stjarnan - Selfoss, KR - Haukar, Hauk-
ar-B - Afturelding, Valur-B - KA, HKN
- Valur, Grótta - Fylkir, UBK - ÍH-B,
Fjölnir - ÍR, Fram - Þór, Ármann - Vík-
ingur, Leiftri - HK, Ögri - ÍR-B, ÍBV -
FH, FH-B - Ármann-B og ÍBV-B - ÍH.
B-lið Fram situr yfir í 1. umferð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyjamenn færðu Víkingum uppstoppaðan lunda sem þakklætisvott fyrir hjálpina, en í síðustu viku æfðu nokkrir
leikmenn ÍBV með Víkingum fyrir lokaumferð íslandsmótsins, auk þess sem Víkingur sigraði Breiðablik á sunnudag,
sigur sem kom ÍBV mjög til góða. Á myndinni eru frá vinstri Eyjamaðurinn Ingi Sigurðsson og Víkingarnir Þorsteinn
Þorsteinsson, Ólafur Árnason, áður ÍBV, Janni Zilnik, og Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Rússneska liðið vann Rostov 4:0
í þriðju umferð deildarinnar
ytra, en leikurinn fór fram s.l.
fimmtudag. Framheijinn og lands-
liðsmaðurinn Sergeev var með
þrennu í leiknum, en í síðustu níu
leikjum hefur liðið gert 17 mörk
og fengið á sig 12, sigrað í þrem-
ur, gert þrjú jafntefli og tapað
þremur leikjum. Liðið mætti Roma
frá Ítalíu í 1. umferð Evrópukeppni
bikarhafa í fyrra, tapaði 2:1 heima
en vann 1:0 úti og féll því úr keppni
Val spáð meistaratitlinum
ÍSLANDSMÓTIÐ íhandknatt-
leik hefst í kvöld með sex leikj-
um í 1. deild. Fimm hefjast kl.
20:00, en einn kl. 20:30. Búist
er við spennandi keppni.
Keppnisfyrirkomulag er með
sama sniði og í fyrra þar sem
liðin tólf keppast um að kom-
ast í úrslitakeppni átta efstu
liða.
Erfitt er að spá um styrkleika lið-
anna í vetur þar sem töluvert
hefur verið um mannabreytingar hjá
liðunum frá síðasta vetri. Sam-
kvæmt spá forráðamanna 1. deild-
arliðanna, sem birt var á blaða-
mannafundi í gær er Val og ís-
lands- og bikarmeisturum FH spáð
bestu gengi. Valsmenn hlutu 102
stig af 120 mögulegum. FH kom
rétt á eftir með 100 stig. Samkvæmt
spánni munu ÍBV og ÍR verma
neðstu tvö sæti deildarinnar.
Á blaðamannafundinup, i gær
kom fram að enn ætti eftir að ganga
frá félagaskiptum 25 leikmanna.
Forráðamenn félaganna sögðust
vera að ræða málin og vonuðust til
að flest þeirra yrðu leyst áður en
flautað yrði til leiks í kvöld. Þeir
töldu þó að líklega yrðu fimm til tíu
félagaskipti erfiðari viðfangs en önn-
ur og óvíst hvort um semdist fyrir
kvöldið.
Átta efstu liðin eftir undankeppn-
ina leika í sérstakri úrslitakeppni
sem hefst 16. apríl. Lið númer 9 og
10 í forkeppninni verða um kyrrt í
deildinni en tvö neðstu liðin falla í
2. deild.
Geir Sveinsson er aftur kominn í raðir Valsmanna.
íslenska útvarpsfélagið
helsti styrktaraðilinn
Samtök 1. deildar félaga og
íslenska útvarpsfélagið
komust að samkomulagi í gær
þess efnis að fyrirtækið yrði helsti
styrktaraðili íslandsmótsins í vet-
ur og keppnin í 1. deild karla yrði
nefnd Stöðvar 2 mótið.
Sigurður I. Tómasson, talsmað-
ur samtakanna, sagði á frétta-
mannafundi að samningurinn
væri mjög góður, „einn sá besti
peningalega." Aðspurður um inni-
hald samingsins sagði Sigurður
að ekki kæmi til greina að segja
frá efni hans, fjölmiðlum kæmi
það ekki við og það yrði ekki
gefið út!
Svörin féllu í grýttan jarðveg
og svo^fór að fulltrúi Islesnka
útvarpsfélagsins sagði samning-
inn ekkert leyndarmál og sárs-
aukalaust væri af hálfu fyrirtæk-
isins að nefna upphæðir, en færð-
ist undan að svara beinum spurn-
ingum þess efnis. Hann sagði að
landsliðið hefði verið landi og þjóð
til sóma og heiður væri að styrkja
hreyfinguna. Fram kom í máli
hans að Stöð 2 hefði keypt nafnið
á mótinu en hefði ekki einkarétt
á útsendingum heldur forgangs-
rétt á beinum útsendingum. Að-
spurður sagði hann ennfremur að
útsendingar yrðu sjálfsagt bæði í
opinni og læstri dagskrá.
Samtökin sáu að sér
Eftir að fréttamannafundinum
lauk sendu samtökin fjölmiðlum
símbréf, þar sem kom fram auk
ofanritaðs að íslenska útvarpsfé-
lagið hefði forgang að aðstöðu á
keppnisstöðum og samningurinn
væri metinn á þrjár milljónir. Þar
af væru beinar peningagreiðslur
til samtakanna 1,5 millj. króna/
en hinn helmingurinn væri í formi
auglýsinga.
Spáin
Forráðamenn 1. deildarfélag-
anna spáðu um úrslit íslands-
mótsins og fer spái þeirra hér á eftir:
1. Valur 102
2. FH 100
3. Stjarnan 89
4. Selfoss 82
5.KA 48
6. HK -. 47
6. Fram 47
8. Víkingur 45
9. Haukar 40
10. Þór 24
ll.ÍBV 20
12. ÍR 16
HANDKNATTLEiKUR / ISLANDSMOTIÐ
J
Frjálsíþróttaþiálfari
Héraóssambandið Skarphéðinn óskar eftir aó ráða
frjálsíþróttaþjálfara fyrir komandi æfinga-
og keppnistímabil.
Umsóknir berist á skrifstofu HSK, Engjavegi 44,
Selfossi, fyrir 25. september nk.
Nánari upplýsingar í síma 98-21 1 89.
V
r
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Víðismenn kuöddu med sigri
Víðismenn kvöddu 2. deild með 3:1 sigri Þrótturum í gærkvöldi. Þróttarar
voru betri í fyrri hálfleik og fengu nokkur ákjósanleg færi til að setja
mörk. Víðismenn komu sterkir til leiks eftir hlé. Það var Sævar Leifsson sem
setti fyrsta mark Víðis á 63. mínútu eftir góðan undirbúning Hlyns Jóhannsson-
ar. Sævar bæti síðan við öðru marki á 84. mínútu, en Þróttarar gáfust ekki upp
og þeir náðu að minka muninn með marki Ingvars Ólafssonar tveim mínútum
fyrir leikslok, en mínútu síðar gulltryggði Brynjar Jóhannesson sigur Víðis-
manna. B.B.
í kvöld
Knattspyrna
Víkingur - ZSKA Moskva......18.30
Handknattleikur
1. deild karla
Akureyri, Þór- Fram.........20.30
Digranes, HK - Víkingur........20
Selfoss, Selfoss - Stjarnan....20
Seljaskóli, ÍR - FH............20
Strandgata, Haukar - ÍBV.......20
Valsheimili, Valur - KA........20