Morgunblaðið - 17.09.1992, Side 30

Morgunblaðið - 17.09.1992, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 Bragi Krisijáns- son - Kveðjuorð Eftir því sem árin færast yfir verður það æ oftar eðli málsins sam- kvæmt sem kveðja þarf vini og sam- ferðamenn við brottför þeirra úr heimi hér. Að þessu sinni er það Bragi Krist- jánsson, fyrrv. forstjóri hjá Póst- og símamálastofnun, sem mig langar til að minnast með nokkrum orðum, en útför hans var gerð í gær, 15. september, frá Fríkirkjunni í Reykja- vík. Það eru nú liðin yfir 40 ár síðan ég kynntist Braga. Fyrir atbeina góðs manns var ég nýútskrifaður stúdent vorið 1951 ráðinn til sumar- vinnu hjá Fjárhagsráði. Bragi var þar skrifstofustjóri, aðeins 29 ára gamall, þótt mér fyndist aldursmun- ur okkar þá miklu meiri en sá ára- tugur sem skildi okkur að í aldri. Raunar hafði hann orðið skrifstofu- stjóri í Nýbyggingaráði þegar árið 1944. Hann tók mér, sumarmannin- um, með mikilli vinsemd eins og aðrir sem þama unnu, en þar var óvenjumikið úrval af gagnmenntuð- um og íjölfróðum mönnum. Sumir þeirra voru þá þegar kunnir að störf- um sínum í þágu lands og þjóðar, en aðrir urðu það síðar. Það var mikið lán fýrir mig ungan að verða aðnjótandi þeirrar lifandi akademíu sem þama hafði myndast. í þessum hópi naut Bragi óskoraðs trausts yfírmanna og virðingar samstarfs- manna og rækti starf sitt þannig að allra dómi að ekki varð á betra kosið. En öllu því ágæta fólki sem starf- aði við Fjárhagsráð og Innflutnings- skrifstofuna var ljóst að innan þeirra var ekki verið að vinna að raun- hæfri uppbyggingu íslensks þjóðfé- lags og að stofnanimar áttu ekki og máttu ekki starfa til frambúðar. Þegar þær voru svo lagðar niður, Fjárhagsráð árið 1954 og Innflutn- ingsskrifstofan 1960, fóru flestir starfsmennimir til starfa annars staðar hjá opinberum og hálfopin- berum stofnunum. Bragi Kristjáns- son var þannig strax ráðinn í mikið ábyrgðarstarf sem forstjóri rekstar- deildar Pósts og síma árið 1960 og frá árinu 1977 forstjóri viðskipta- deildar sömu stofnunar og gegndi því embætti þar til hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir um sl. áramót. Þegar ég réðist til starfa hjá sam- gönguráðuneytinu fyrir rúmum ald- arijórðungi tókum við Bragi aftur upp samstarf og að þessu sinni að póst- og símamálum og nú fann ég ekki lengur fyrir aldursmuni okkar. Lengst og mest samstarf áttum við að málefnum gíróþjónustunnar ásamt fleiru góðu fólki. Samskipti Braga við starfsfólk samgönguráðu- neytisins öfluðu honum virðingu og vina, sem kveðja hann með söknuði. ÖIl störf Braga einkenndust af lipurð og háttvísi. Hann átti afar auðvelt með að leysa og jafna ágreining og leiða menn til sátta, þegar um slíkt var að ræða. Hann var í stuttu máli sagt verulega vin- sæll og farsæll embættismaður. Auk umfangsmikilla embættisstarfa gaf hann sér tíma til fjölbreyttra starfa að félagsmálum en um það munu aðrir fjalla, sem betur þekkja til. Það sem mér hefur þó jafnan þótt vænst um er vinátta hans og Steinunnar konu hans við okkur hjónin. Fyrir það vil ég þakka á þessari stundu, svo og fyrir allt sam- starf okkar Braga í gegnum árin. Ég vil svo að lokum votta Stein- unni, bömum þeirra hjóna og öðrum aðstandendum innilega samúð okk- ar. Ólafur S. Valdimarsson. Það var sem skuggi færðist yfir við tíðindin um andlát Braga Krist- jánssonar. Við, vinir hans og sam- starfsmenn, höfðum gert ráð fyrir að hafa hann á meðal okkar um mörg ókomin ár, glaðan og reifan, hugsanlega að sýsla við eitthvað það, sem ekki hafði unnist tími til í annasömum störfum. Spurst hafði að vísu, að hann hefði nýlega kennt sér lasleika óg væri til læknisrann- sóknar, en ekki síst með hliðsjón af því, að á allri hans starfsævi mátti telja á fingrum annarrar handar þá daga, sem hann var fjarverandi vegna veikinda, vildi enginn trúa því að þau væru alvarleg. En enginn má sköpum renna og eftir stendur minningin um góðan dreng. Kynni okkar Braga hófust er hann í júnímánuði 1960 kom til Pósts og síma, þar sem hann hafði verið skip- aður forstöðumaður símarekstrar- deildar landssímans. Minnist ég þess, að mönnum þótti mikill fengur í því að fá til starfa svo reyndan mann úr opinberri stjómsýslu, sem raun bar vitni, en Bragi hafði þá hátt á annan áratug verið einn af stjómendum umsvifamikilla opin- berra stofnana, sem í umboði ríkis- stjórnar var falin forsjá í uppbygg- ingu atvinnuvega í stríðslok og skipulagning og eftirlit með fjárfest- ingum landsmanna og innflutningi. Auk þess hafði hann þá þegar haft á hendi fjölmörg trúnaðarstörf fýrir íþróttahreyfinguna, verið í Ólympíu- nefnd og formaður Frjálsíþróttasam- bandsins svo dæmi séu tekin. Hann náði undrafljótt tökukm á hinu nýja starfí, var fljótur að átta sig á innviðum stofnunarinnar og fjölþættum rekstri. Eftir að rekstr- ardeildir Pósts og síma höfðu verið sameinaðar í kjölfar reglugerðar, sem þáverandi póst- og símamála- stjóri, Gunnlaugur Briem, átti frum- kvæði að og tók gildi 1. janúar 1961 varð Bragi forstjóri rekstursdeildar pósts og síma. Urðu kynni okkar þá enn nánari og upphófst nú ára- Iangt samstarf, sem stóð þar til Bragi lét af störfum fyrir aldurs sakir um síðustu áramót. Þessa sam- starfs sem og allra samskipta við Braga hlýt ég að minnast með virð- ihgu og þökk. Undir forstjóra rekstursdeildar pósts og síma heyrði hinn marg- þætti rekstur póst- og símstöðva landsins, þjónusta við viðskiptavini Pósts og síma og ennfremur aðal- bókhald og aðalfjárhirsla. Á sjöunda áratugnum urðu miklar breytingar og framfarir í þjónustu, handvirk símaafgreiðsla vék smám saman fyrir sjálfvirkri símaþjónustu, ný póst- og símahús voru byggð og sjálfvirkar símstöðvar settar upp. Állt var þetta fjármagnað af eigin aflafé og þurfti því oft talsverða útsjónarsemi til þess að endar næðu Fædd 16. september 1909 Dáin 18. júlí 1992 Amma mín hefði orðið 101 árs í gær, en hún lést 18. júlí síðastlið- inn. Mér þótti afar vænt um ömmu, þrátt fyrir háan aldur þá sakna ég hennar og finn fyrir tómarúmi. Það var alltaf gott að leita til ömmu þegar eitthvað amaði að. Hún hafði alltaf eitthvað gott til málanna að leggja. Eg sagði við hana er hún dvaldi á Dalbraut 27, ég ætla að reyna að verða alveg eins og þú er árin færast yfir mig, sem sagt að sjá björtu hliðarnar í amstri dagsins og leggja þær dökku til hliðar. Hún sagði þá við mig: „Hildur mín, það bætir engan að vera alltaf að kvarta og draga sjálfan sig niður, reyna ávallt að horfa uppá við og komast þannig upp brattann." Þetta er að sjálfsögðu alveg rétt en stundum erfitt að framfylgja því. Amma var afar góð leikkona, lék hún í mörg ár með Leikfélagi Akur- eyrar, oft aðalhlutverkin, ég man þá hvað ég var stolt af henni. Aldr- ei kom þetta niður á heimilinu því að hún fór alltaf mjög snemma á fætur. Mikið fannst okkur systrum gott að koma niður í eldhús á morgnana er hún var að enda við að steikja kleinur og parta. Við vorum allar í Gagnfræðaskóla Akureyrar, afi var þá skólastjóri skólans. Við vorum alla Qóra vetuma til húsa hjá þeim í París, en það hét húsið þeirra. Að vísu var önnur systir mín alin upp þjá þeim. Það var alltaf allt í röð og reglu hjá þeim, alveg sér- staklega mikil snyrtimennska, enda mátti spegla sig í gólfunum þau voru svo glansbónuð. Þau voru yfir- leitt mjög heppin með allar þær stúlkur sem þau réðu til sín til hús- hjálpar. Við vorum yfirleitt 10-12 í heimili og því oft glatt á hjalla. Matarborð var alltaf dekkað í borð- saman og sjálfum rekstrinum væri ekki stefnt í voða. Þá var einnig unnið markvisst að bættri póstþjón- ustu um landið með endurskipulagn- ingu póstflutninga og póstdreifing- ar. Vannst með því oft tvennt í senn, bætt þjónusta og ódýrari rekstur. En póst- og símaþjónusta er ekki einskorðuð við landið eitt, hún nær til allra landa, tengir lönd og þjóðir. Eðli málsins samkvæmt eru því náin samskipti milli póst- og símastjóma, þær eru aðilar að alþjóðastofnunum, sem hafa það að markmiði að sjá til þess, að þjónustan svari hveiju sinni kröfum tímans og að rekstur hennar gangi snurðulaust um víða veröld, greiðslum og reikningsskil- um sé fyrir komið á réttan og eðlileg- an hátt. Bragi gerði sér ljóst mikilvægi þess, að taka þátt í alþjóðlegu sam- starfi og var fulltrúi íslands á fjölda ráðstefna, bæði á sviði pósts og fjar- skipta, á vegum Alþjóðapóstsam- bandsins, Alþjóðafjarskiptasam- bandsins, Evrópusambands pósts og síma, CEPT, Póstsambands Norður- landa, Nordpost og Fjarskiptasam- bands Norðurlanda, Nordtel. Undir þetta var hann raunar prýðilega búinn, því að hann var með afbrigð- um góður málamaður. Eignaðist hann fljótt marga góða vini meðal erlendra samstarfsmanna. Með nýjum lögum um stjóm og skipulag Póst- óg símamálstofnunar árið 1977, var ákveðið að skilja bet- ur en áður milli stjórnunar og stefnu- mörkunar annars vegar og reksturs hins vegar. Varð Bragi fram- kvæmdastjóri viðskiptadeildar Pósts og síma, en undir hana komu mál- efni er vörðuðu stefnumörkun varð- andi þjónustu við viðskiptavini Pósts og síma, í almennri póstþjónustu, póstgíróþjónustu, símaþjónustu og ennfremur almenn markaðsmál, upplýsingastarfsemi o.fl. Við skipu- lagsbreytingar í maí 1991 varð Bragi svo framkvæmdastjóri Póstmála- sviðs. stofunni, en aftur á móti oftast drukkið morgun og miðdegiskaffí í eldhúsinu. Það var mjög gestkvæmt hjá þeim, enda þau mjög skemmti- leg heim að sækja. Eg hefði ekki fyrir nokkum mun viljað missa af að kynnast ömmu og afa. Ég held að þau börn sem ekki fá tækifæri til að kynnast afa sínum og ömmu fari á mis við mikið, því að margt má af eldra fólkinu læra. Afí var t.d. einn af stofnendum Stórstúku íslands og voru þau bæði í stúk- unni Fjallkonunni ísafold á Akur- eyri. Þau hvöttu mig til að ganga í stúkuna sem ég og gerði og tel ég það vera mitt lán í dag að ég hef hvorki neitt áfengis né tóbaks. Ég drakk hvert orð í mig sem fram fór á fundunum og þroskaðist ég mjög mikið við að umgangast allt það fullorðna fólk sem var í stúk- unni. Það gaf mér gott veganesti. Eins og áður segir þá dvaldi amma á Dalbraut 27 í mörg ár, þar hafði hún litla og yndislega íbúð, það var afar gaman að heimsækja hana þangað. Hún sagðist una hag sínum vel „þó að hún væri vön stór- um húsakynnum" og væri ánægð með sitt hlutskipti í lífínu, og sagði Guð hefur verið mér svo góður, gefíð mér 12 heilbrigð börn, hvað er hægt að hugsa sér það betra, ég get ekki ætlast til að halda öllu. Þegar hún sagði þetta var hún nærri því orðin blind, heymin orðin skert og lasburða í fótum. En þó sagðist hún ætla að lifa í 100 ár, hún væri búin að lofa bömunum sínum því og eftir 100 ára afmælið mætti kallið koma sem fyrst. Henni varð að ósk sinni. Mér finnst undra- vert hvað hún var alltaf falleg þó að árin væm mörg að baki og sér- staklega var húð hennar mjúk og slétt. Amma hafði hlýja og hljómfagra rödd, alltaf glaðleg, gerði oft að gamni sínu, þá var nú mikið hlegið, hún átti gott með að koma öllum í gott skap. + Faðir okkar, EINAR ÁRNASON lögfræðingur, lést í Landspítalanum 15. september. Bergljót Sigríður Einarsdóttir, Páil Ltíðvík Einarsson, Svanbjörg Hróðný Einarsdóttir. t Bróðir okkar, JÓN E. MAGNÚSSON húsasmíðameistari, Háaleitisbraut 1S3, andaðist þriðjudaginn 15. september. Guðný Magnúsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir. Sigwjóna Jakobs- dóttir - Kveðjuorð Óþarft er að fjölyrða um þær breytingar og þá þróun, sem orðið hefur í póst- og símamálum undan- farna áratugi. Vöxtur hefur verið á öllum sviðum, nýjungar hafa haldið innreið sína, nýjar þjónustugreinar hafa komið til og sívaxandi sam- keppni. Það getur á stundum verið ærinn starfi að fylgjast með því sem er að gerast og ekki síður að halda áttum, láta ekki glepjast af nýjung- um. Bragi var sem betur fer þannig, að hann gaf lítið fyrir nýjungar nýj- unganna vegna og hikaði ekki við að biðja menn að fara sér hægar, þætti honum fullgeyst farið og af lítilli forsjá. Fyndist honum á hinn bóginn mál þess virði, var hann fljót- ur að taka af skarið og hikaði hvergi. Við ákvarðanatöku naut hann þess hve gott minni hans var og hversu víðtæka þekkingu hann hafði á þjóð- félaginu, mönnum og málefnum. Það er margs að minnast frá umliðnum árum og allt eru það ljúf- ar minningar og fallegar. Það var gott að vera samvistum við Braga, hann sagði kannski ekki alltaf mik- ið, en það var oft eins og hann léti þögnina tala eða fasið. Það var hins vegar gott að ganga í smiðju til hans, því að þekking hans á þjóðfé- lagsmálum og atvinnulífi og ekki síst á tónlist var víðtæk. Ég varð þess fljótt áskynja, að hvers konar framapot var honum mjög ógeðfellt og kallaði hann það „eftirsókn eftir vindi“. Það segir hins vegar sína sögu, að allir virtust vilja njóta hans krafta og skipa honum í forystu- sveit ýmissa samtaka. Það, sem átti þó hug hans mestan var fj'ölskyldan, eiginkona, börn, bamaböm og tengdabörn. Um- hyggja hans fyrir fjölskyldunni fór ekki fram hjá neinum, gleði hans yfír velgengni bama og barnabarna var djúp og einlæg. Blessuð sé minning Braga Krist- jánssonar. Rafn Júlíusson. Amma hélt upp á níræðisafmælið sitt á Egilsstöðum, hún hafði lengi haft í huga að komast á Austurland- ið en þaðan átti hún margar góðar endurminningar, þó sérstaklega frá Borgarfirði eystra. Hún hálfkveið fyrir ferðalaginu en var samt svo ákveðin á að gera sér glaðan dag. Ferðin gekk eins og best verður á kosið og kom hún alsæl og himin glöð til baka eftir vel heppnað og ógleymanlegt níræðisafmæli. Amma var mjög músíkölsk, var í mörg ár í Kantötukór Akureyrar ásamt syni sínum Jakob (pabba mínum), þau tóku oft lagið saman, var unun að hlusta á þau. Afí var mikill bókasafnari, hjálpaði amma honum við að koma bókunum vel fyrir og má með sanni segja að það hafí verið bækur í flestum vistarver- um í París nema í eldhúsi og for- stofu, mér leið mjgö vel innan um allar þessar bækur. Fyrsta veturinn sem ég var í Gagnfræðaskóla Akureyrar þá svaf ég á skrifstofunni hans afa, hún var hlaðin bókum frá gólfí og upp í loft, svei mér þá, mér fannst eins og bækumar hefðu sál svo vel leið mér innan um þær. Afí hafði bund- ið flestar sínar bækur sjálfur. Ef bækumar vora illa famar sem hann keypti á uppboðum eða fomsölum þá tók hann þær allar í sundur, þvoði þær í baðkarinu og bætti þær svo með sérstökum pappír og graut- arlími sem amma bjó til, afí sagði að enginn byggi til betra lím en amma. Blöðin í gömlu bókunum vora ipjög vandmeðfarin og þurfti hann að nota gúmmíhanska er hann þvoði bækumar enda sá lögur sem hann notaði við hreinsunina rpjög sterkur. Ég gat setið stundunum saman við að horfa á afa bæta bækur, hann gerði þetta svo lista vel. Amma sagði að fáum dytti til hugar að leggja slíka vinnu í bækur eins og afí gerði en það væri þess virði, svona hældu þau hvort öðra og báru fyllstu virðingu hvort fyrir öðra. Ef þetta er ekki gott vega- nesti fyrir óharðnaðan ungling að alast upp við slíkar aðstæður þá veit ég ekki hvað er gott veganesti. Blessuð sé minning ömmu minnar. Ég veit að afí hefur tekið vel á móti henni. Hildur Krístín Jakobsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.