Morgunblaðið - 01.10.1992, Side 5

Morgunblaðið - 01.10.1992, Side 5
5 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1992 Ovenjuleg auglýsing Við vegfarendum sem aka um Sæbrautina hefur undanfarið blasað óvenjuleg auglýsing, með yfirskriftinni „Friður sé með þér“. Auglýsing þessi er á vegum Lang- holtskirkju. Þórunn Arnardóttir, safnaðarkennari Langholtskirkju, sagði að kirkjan hefði ákveðna upphæð á ári hverju til að ráð- stafa í auglýsingar, s.s. messutil- kynningar. „Við vildum reyna nýjar leiðir og ákváðum að hafa auglýsingu frá kirkjunni á þessu flettiskilti í einn mánuð. í stað þess að minna á messur eða ann- að starf innan kirkjunnar ákváð- um við að minna vegfarendur á Arnarfjörður Skutu mink á skarfaveiðum Bílðudal. BRÆÐURNIR Hilmar og Grétar Haukssynir fóru á skarfaveiðar í blíðviðri á dögunum að Langa- nesi. Eftir tvo tíma voru þeir komnir með níu skarfa og einn mink. Það er'skrítin aflasamsetning að sögn Grétars, því yfirleitt eru svart- fuglar skotnir með til að drýgja aflann. En þegar bræðurnir brugðu sér í land á Langanesi til að gera að fuglunum sáu þeir mink bregða fyrir. Var hann umsvifalaust skot- inn. Annar minkur sást taka á sprett á sama stað og slapp hann með skrekkinn. R. Schmidt. Veðböndum létt af Elínu „ÞAÐ verður búið að létta veð- böndum af Elínu Þorbjarnar- dóttur áður en Orfirisey kemur til hafnar,“ sagði Jón Páll Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans á ísafirði. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu fyrir nokkru leit út fyrir að veiðileyfi skips Granda hf., Örfiriseyjar RE, yrði afturkallað þegar skipið kemur til hafnar á mánudag, þar sem veðböndum hafði ekki verið létt af togaranum Elínu Þorbjarnardóttur. Grandi keypti skipið í maí af Norðurtang- anum og Frosta á Súðavík og átti að afhenda það veðbandalaust í lok ágúst. Grandi ætlaði að úrelda skipið, ásamt tveimur öðrum, eftir að fyrirtækið keypti Örfirisey frá Færeyjum. Ætlunin er að selja Elínu Þorbjarnardóttur úr landi eða leggja skipið fram sem hlutafé Granda hf. í útgerðarfyrirtæki í Chile. „Við höfum verið að vinna í þessu máli og það verður búið að létta veðböndum af Elínu áður en Örfirisey kemur til hafnar,“ sagði Jón Páll Halldórsson. Hann vildi ekki gefa upp hvernig fyrirtækið stæði að því. Byggðastofnun var stærsti veðhafi í skipinu, sem hef- ur legið bundið við bryggju eftir að ríkissjóður lét innsigla það vegna skulda. ----♦ ♦ ♦--- Opinber heim- sókn frá Græn- höfðaejrjum SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Grænhöfðaeyja, frú Helena Vi- eira Samedo, kom ásamt fylgd- arliði í opinbera heimsókn hing- að til lands í gær í boði Þor- steins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra, en heimsókninni lýk- ur 4. október. Frú Samedo mun eiga fund með Þorsteini Pálssyni og ræða við Þróunarsamvinnustofnun íslands, en nú er í undirbúningi fimm ára áætlun um alhliða uppbyggingu sjávarútvegs Grænhöfðaeyja, og vinnur Þróunarsamvinnustofnun með heimamönnum að þeim undir- búningi. Þá mun hún heimsækja Hafrannsóknastofnun og Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins, og eiga fund með forsvarsmönnum Fiskveiðasjóðs og heimsækja Sjó- mannaskólann. Einnig fer hún til Hafnarfjarðar og heimsækir Fisk- markaðinn, bátagerðina Trefjar og Fiskvinnsluskólann. Þá mun ráðherrann halda til Akureyrar og heimsækja Slippstöðina og útgerð- arfélag Ákureyringa ásamt því að fara í skoðunarferð til Dalvíkur og heimsækja verksmiðjuna Sæ- plast. ISLENSKUR VIUI IÐNAÐUR IVERKI Flestlr íslendlngar kjósa fremur íslenska framlelðslu en erlenda. Vörugæðl og vandvlrknl eru því höfð í fyrlrrúml. Samt þarf að treysta betur stöðuna á helmamarkaði. í Iðnaðl eru margvísleglr mögulelkar á nýsköpun. Tll að nýta mögulelkana þurfa ráðamenn að sýna vlljann í verkl. Veljum íslenska framlelðslu og eflum íslenskt atvlnnulíf. ÍSLAND ÞARFNAST IÐNAÐAR. LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA Samtok atvlnnurekenda í IðnaBI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.