Morgunblaðið - 20.10.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
17
Jón Þorsteinsson
__________Tónlist
Jón Ásgeirsson
Jón Þorsteinsson hélt sína fyrstu
sjáifstæðu tónleika í Reykjavík sl.
laugardag á vegum Styrktarfélags
íslensku óperunnar. Ólíkt mörgum
söngvurum „debúterar" Jón hér
heima eftir að hafa starfað erlendis
í mörg ár, meðal annars 'við Ríkis-
óperuna í Amsterdam. Samleikari
hans var Gerrit Schuil, píanóleikari
og hljómsveitarstjóri. Schuil lærði
hjá Gerald Moore, John Lill, Perlem-
uter og hljómsveitarstjórn hjá
rússneska hljómsveitarstjórnanum
Kiril Kondrashin.
Efnisskrá tónleikanna er nokkuð
frábrugðin því sem tónleikagestir
eiga að venjast, sérstaklega vegna
þess að Jón hefur um árabil sungið
í óperum, vakið athygli fyrir flutn-
ing nútímaverka og unnið m.a. til
fyrstu verðlauna í kirkjutónlistar-
keppni í Hollandi 1981, svo að úr
því safni margbreytilegra viðfangs-
efna, sem hann hefur fengist við,
hefði hann efalaust getað sett sam-
an viðamikla og metnaðarfulla efn-
isskrá. Jón velur þau íslensku lög
sem hvað mest hafa verið sungin
af íslenskum söngvurum og nor-
rænu lögin eru flest nærri óþekkt
hér á landi.
Þetta leiðir hugann að því, að
ungir listamenn hafa sterka þörf
fyrir að sanna dug sinn og það er
ekki fyrr en við áfangaskil, þegar
áð er, að menn skilja það, að leitað
hefur verið langt yfír skammt að
fegurðinni, því hana er alls staðar
að finna og sérlega þó í þeim fín-
gerðu blómum, sem kölluðu menn
upphaflega til ferðar. Jón Þorsteins-
son lokar hér hringnum og syngur
þá söngva sem fyrst vöktu söng-
þörf hans og í listrænu tilliti marka
þessir tónleikar heimkomu hans.
íslensku lögin eru eftir Sigfús
Einarsson, Pál ísólfsson, Eyþór
Stefánsson, Karl 0. Runólfsson,
Emil Thoroddsen og undirritaðan.
Frá Norðurlöndunum söng Jón lög
eftir Heise, Sibelíus, Rangström og
Alnæs. Það sem vakti athygli varð-
andi túlkun Jóns var að hann legg-
ur áherslu á fínlegan flutning og
skýran textaframburð og náði oft
Stuðningnr við
Listagilið á Akureyri
GILFÉLAGINU hefur borist bréf
frá menntamálaráðherra, þar
sem hann tilkynnir fjárstuðning
til félagsins upp á kr. 500.000.
Eitt meginverkefni féiagsins er
að afla ijár til að ljúka við fram-
kvæmdir við rými í Kaupvangs-
stræti 23. Þar hyggst félagið koma
upp tilraunasal og þjónustumiðstöð
fyrir menningarstarfsemi og gesta-
vinnustofu. Hönnun- er lokið og
framkvæmdir hafnar. Sá velvilji og
stuðningur sem kemur fram í bréfi
menntamálaráðherra, Ólafs G. Ein-
arssonar, er mikil hvatning fyrir
stjórn félagsins.
Auk fyrrgreinds framlags, hefur
félagið fengið þijár milljónir króna
frá Akureýrarbæ. Tekjur félagsins
af leigu á vinnustofum renna einnig
til framkvæmdanna. Félagsmenn
hafa líka lagt fram sjálfboðavinnu.
En ennþá vantar upp á. Því hefur
verið leitað til íslenskra myndlistar-
manna, að þeir gefi myndverk til
stuðnings átakinu.
Undirtektir voru mjög góðar.
Fjöldi myndverka hefur safnast og
félagið naut aðstoðar listamanna í
Reykjavík og skrifstofu Sambands
íslenskra myndlistamanna við söfn-
unina.
Þeir listamenn sem ekki hefur
náðst í, en vilja styðja uppbygging-
una, geta snúið sér til félagsins í
síma 96-27906 eða sent framlag
til Gilfélagsins í pósthólf 594, 602
Akureyri, eigi síðar en 15. nóvem-
ber.
Stjórn Gilfélagsins vill koma á
framfæri þakklæti til allra sem
hafa aðstoðað við þennan fyrsta
áfanga, einnig til þeirra listamanna
sem gefið hafa myndverk.
Stjórnin segir það trú sína að
Listagilið verði að veruleika fyrir
það hve einstaklingar, ríki og bær
standa vel saman um framkvæmd-
ir. Og ekki síður fyrir þá einstöku
samstöðu sem listamenn annars-
staðar á landinu sýna.
I byijun desember mun Gilfélagið
halda Désembervöku. Þá verður
sölusýning á þeim verkum sem fé-
laginu hafa borist. Þá gefst tæki-
færi til að slá tvær flugur í einu
höggi, að styðja uppbyggingu
Listagilsins og eignast myndverk
eftir fremstu listamenn þjóðarinnar.
Fréttatilkynning
-----» ■*■■ ■*-
Háskóla-
tónleikar
Fyrstu háskóla-
tónleikar
vetrarins verða
i Noræna hús-
inu miðviku-
daginn 21.
október
kl.12.30. Þá
leikur banda-
ríski píanó-
leikarinn
Brady Millican verk Jóhannesar
Brahms, Tilbrigði og fúgu um
stef eftir Handel.
Brady Millican hefur haldið tón-
leika vítt og breitt um Bandaríkin
og fer reglulega í tónleikaferðir til
Evrópu. Hann er að koma úr einni
slíkri ferð. Brady Millican er eftir-
sóttur kennari og prófessor við
Eastern Nazarene College í Boston
og hefur fengið lof gagnrýnenda
fyrir skáldlega og hugmyndaríka
túlkun.
Brady Millican
Spádómar Biblíunnar
Daníelsbók
Námskeið um hrífandi spádóma Biblíunnar hefst þriðjudag-
inn 20. október kl. 20 á Hótel Hoiiday Inn, Sigtúni 38,
Reykjavík. Efni spádómsbókar Daníels verður sérstaklega
tekið til meðferðar.
ÞÁTTTAKA ER ÓKEYPIS, einnig öll námsgögnin.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson.
Ótrúlegir atburðir gerast á okkar dögum, og hafa spádóm-
ar Biblíunnar mikið að segja um þá. Þessir spádómar
boða að stórkostlegir atburðir eigi enn eftir að gerast,
jafnvel á okkar dögum.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 67 92 70 á skrifstofu-
tíma og í síma 68 09 89 utan skrifstofutíma.
Gerrit Schuil Jón Þorsteinsson
að gæða lögin sérstæðum „sjarma",
sem kom hvað best fram í Drauma-
landinu og Sofnar lóa eftir Sigfús,
Söknuði eftir Pál, Lindinni eftir
Eyþór, og í Fjarlægð eftir Karl.
Jóni lætur og vel að túlka gaman-
semi, eins og í Sáuð þið hana syst-
ur mína og Litla kvæðið um litlu
hjónin (Páll) og í Búðarvísum Em-
ils, sem hann bæði lék og söng af
glæsibrag og með fullum hljómi.
Af skandínavísku lögunum var
söngur Jóns bestur í Den första
kyssen eftir Sibelíus, Flickan frán
ljárran eftir Rangström og Sidste
reis og Várlængsler eftir Anæs. Þar
naut sín vel framburðartækni hans
og textatúlkun, sem hann og lék
meistaralega vel með í sérkennilegu
lagi, Lasse liten, eftir Sibelíus.
í heild voru tónleikarnir bornir
uppi af listfengi og þar átti samleik-
ari Jóns, Gerrit Schuil, stóran hlut
að, því leikur hans var í einu orði
sagt frábær, hvort sem hann glímdi
við erfitt tónferli eða lék með fínleg
og tæknilega auðveld viðfangsefni.
Allt varð að list í höndum þessa
frábæra píanóleikara. Óvenjuleg og
fínleg túlkun var aðalsmerki þess-
ara tónleika, þar sem útfærsla og
samleikur var eins og af einum
huga mótaður.
Á 15 iriM.
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR
LÍKA NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað .
Þú setur frosið brauðið í bökunarpokanum í ofninn og lýkur bakstrinum
á fimmtán mínútum. Afraksturinn er nýbakað, mjúkt
og ilmandi hvítlauksbrauð.
I