Morgunblaðið - 20.10.1992, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
41
Konur, umhverfi og þróun
eftir Sigríði Lillý
Baldursdóttur
Á allra síðustu misserum hefur
orðið sú breyting á að umhverfis-
vernd er orðinn þáttur í umræðu um
alla skapa hluti. Að náttúran sé ein
heild og maðurinn hluti hennar er
skilningur sem hefur hlotið aukið
fylgi, enda virðist hann nauðsynleg-
ur til þess að bjarga okkur frá því
að tortímast af eigin völdum. Við
höfum verið hastarlega minnt á að
auðlindirnar eru endanlegar og að
jörðin er ekki stór og að umhverfis-
slysin virða ekki landamæri. Síðustu
tíðindi af samruna og sundrun ríkja
minna okkur einnig á að sú mann-
gerða skipan, sem heilu kynslóðirnar
ólust upp við að væri óumbreytan-
lega staðreynd lífsins var eins og
hver önnur hugmynd sem kom og
fór, en skildi svo sannárlega eftir
sig spor.
Það er ögrandi, spennandi en
skelfandi um leið að skynja það hve
allt er í heiminum hverfult. Það er
ögrandi og spennandi því það vekur
vonir um að hægt sé að hafa áhrif
á gang mála, en skelfandi um leið
því við þekkjum allt of mörg dæmi
um að menn hafi ekki séð fyrir af-
leiðingar gerða sinna eða þá að þeir
hafa litið framhjá þeim í stundarv-
ímu eigin hagsmuna.
Þessa dagana erum við vitni að
stórfelldri endurskoðun á gildandi
viðhorfum í heimspólitíkinni eftir
samruna austurs og vesturs. Endur-
skoðunar sem gæti ef við vöndum
okkur leitt til aukins lýðræðis. Á
sama tíma stöndum við frammi fyr-
ir slíkri stöðu í umhverfismálum að
sumir telja að fátt eða ekkert geti
komið okkur tii bjargar. En oft er
dimmast undir dögum. Ég er þeirrar
skoðunar að ef við förum rétt að þá
gæti staðan í umhverfismálunum
hrakið okkur til að byggja brýr skiln-
ings milli norðurs og suðurs nú þeg-
ar múramir á milli austurs og vest-
urs eru fallnir og í þeim gagnkvæma
skilningi gæti leynst sú lausn sem
við erum að leita að.
Meginniðurstaða umhverfisráð-
stefnunnar í Río de Janeró síðastlið-
ið vor var að til þess að tryggja
umhverfisbætur þyrfti að auka að-
stoð við þróunarlöndin, gera hana
markvissari og gæta þess að hafa
heimafók með í ráðum. Þá gerðu
menn sér grein fyrir að þróunarað-
stoð sem væri beint sérstaklega til
kvenna væri líklegri til að bera
árangur bæði í bráð og lengd og að
það væri sameiginlegt hagsmunamál
allra jarðarbúa þegar til lengri tíma
væri litið að íbúar þróunarlandanna
verði sjálfbjarga.
í þróunaraðstoð iðnríkjanna hefur
oft ekki verið tekið nægjanlegt tillit
til aðstæðna og menningar þar sem
aðstoðin er veitt. Okkur hættir öllum
til að halda að það sem viðgengst
hjá okkur sé viðtekin venja annars
staðar. Menningarblinda sem þessi
hefur skilið eftir sig mörg sár og
„hvíta fíla“ víða um þróunarlönd.
„Hvítir fflar“ eru þau mannvirki og
tæki kölluð sem hafa verið byggð í
þróunarlöndunum en hafa ekki nýst
innfæddum. Oft gerist þetta vegna
þess að aðstoðin kemur á skjön við
aðstæður, menn hafa ef til vill ekki
gert sér grein fyrir þeim reginmun
sem er á tækniþekkingu þar og hér,
að ég taii ekki um annan menningar-
legan og trúarlegan mun. Sum þró-
unarverkefni hafa jafnve! verið svo
illa unnin að þau hafa skilið fólkið
eftir verr sett en áður. Þekkt eru
dæmin um stóru vatnsbólin. sem
byggð voru af hugviti iðnvæddra
sem gleymdu því, hugfangnir af
þekkingu sinni og tæknivæðingu,
að með tilkomu þeira þornuðu mörg
lítil vatnsból á stóru svæði. Þetta
varð til þess að einnar stundar dag-
leg ganga hundruð kvenna varð að
fjögurra stunda daglegri martröð.
Sem betur fer hefur skilningur
manna sem vinna að þróunaraðstoð
farið vaxandi á því að þar þurfti að
fara varlega. Til þess að um varan-
lega aðstoð verði að ræða þarf hún
að falla að aðstæðum á hveijum stað
og það er í andstöðu við eðlilegan
skilning á því hvað aðstoð merkir
að með henni verði þeir sem hana
þiggja háðir þeim sem veita. Aðstoð-
in kemur öllum betur ef hún leiðir
til varanlegra framfara, eða eins og
það hefur verið kallað eftir að
Brundtiand-skýrslan kom út, „sjálf-
berandi þróunar" (sustainable deve-
lopment).
Þróunaraðstoð sem miðar að sjálf-
berandi þróun gerir miklar kröfur
til þekkingar og gagnkvæms skiln-
ings og trausts. Hún býður í raun
upp á alveg nýjar aðferðir. Bæði
hvað umfang verkefna og gerð varð-
ar en ekki síður býður hún okkur
að nálgast þjóðir þróunarlandanna
Sigríður Lillý Baldursdóttir
„Stuðningur sjóðsins
varir í takmarkaðan
tíma, venjulega einung-
is í 2 til 3 ár, enda er
stefnan sú að gera kon-
ur sjálfbjarga en ekki
háðar aðstoðinni. Verk-
efnin eru margskonar;
á sviði matvælafram-
leiðslu, tengd heilsu-
gæslu og framleiðslu á
ýmsum varningi, að
ógleymdum störfum að
umhverfis vernd. “
með öðrum hætti.
Það hefur sýnt sig að það gerir
sig betur að hafa verkefnin lítil eða
skipta stærri verkefnum upp í minni
undirverk. Þá hafa augu manna
opnast fyrir því að í vel heppnuðum
þróunarverkefnum gegna konur oft-
ast lykilhlutverki. Ef markmiðið er
að ná til barnanna þá er besta leiðin
að beina aðstoðinni til mæðra þeirra
og ef vilji er fyrir því að aðstoðin
leiði til umhverfisverndar þá hefur
það gefið góða raun að hafa konurn-
ar með í ráðum, því þær finna það
á eigin skrokki ef eldiviðinn þarf að
sækja um sífellt lengri veg eða ef
vatnsbólið spillist. Fátækt þeirra,
tímaskortur og stundum fáfræði
kemur hins vegar oft í veg fyrir að
þær geti sinnt ræktun og umhverfis-
vernd. Ekki spillir að oft þarf ekki
nema fáeinar krónur til að gera
kraftaverk í lífí þessara kvenna og
þá um leið lífí barna þeirra og í
umhverfisvernd, eða með öðrum orð-
um í betri framtíðarhorfum. Þróun-
araðstoð til kvenna leiðir því oftast,
eðli máls samkvæmt, til svokallaðrar
sjálfberandi þróunar.
Sérstök kvennaverkefni í þróun-
araðstoð voru nánast óþekkt fyrir-
bæri árið 1976 þegar UNIFEM-þró-
unarsjóðurinn fyrir konur var stofn-
aður á Allsheijarþingi Sameinuðu
þjóðanna. Mörgum þótti þetta und-
arlegt athæfi eins og svo oft vill
verða, en nú sextán árum síðar hef-
ur sjóðurinn svo sannarlega sannað
gildi sitt og nú er svo komið að
ýmsar „gamlar, grónar og virtar“
stofnanir í þróunaraðstoðinni leita í
smiðju UNIFEM.
UNIFEM er sjálfstæður sjóður
sem starfar í nánum tengslum við
þróunarsjóð Sameinuðu þjóðanna
(UNDP). Sjóðurinn hefur tvö megin-
markmið:
- Að styðja konur í þróunarlöndun-
um, bæði fjárhagslega og tæknilega,
til ýmissa verkefna.
- Áð gæta þess að konur séu hafð-
ar í huga þeg-. • ;.:óunarverkefni
UNDP eru skilgreinu.
Stuðningur sjóðsins varir í tak-
markaðan tíma, venjulega einungis
í 2 til 3 ár, enda er stefnan sú að
gera konur sjálfbjarga en ekki háðar
aðstoðinni. Verkefnin eru margskon-
ar; á sviði matvælaframleiðslu,
tengd heilsugæslu og framleiðslu á
ýmsum varningi, að ógleymdum
störfum að umhverfisvernd. Mikil
áhersla er lögð á að aðstoðin henti
konum, reynslu þeirra og menningu,
þær eru því hafðar með í ráðum frá
fyrstu stundu. Yfirbygging sjóðsins
er með aiminnsta móti og það ér
stefna hans að halda henni í skefj-
um. Þegar þörf þykir er frekar leitað
aðstoðar annarra deilda Sameinuðu
þjóðanna, en að byggja upp eigin
umsvif.
UNIFEM-sjóðurinn er ekki rekinn
með föstum framlögum frá Samein-
uðu þjóðunum, heldur með fijálsum
styrkjum frá aðildarlöndum Samein-
uðu þjóðanna, frá
UNIFEM-félögunum og ýmsum fé-
lögum svo sem Soroptimistum og
Zonta. Síðan 1989 hefur verið starf-
rækt UNIFEM-félag á íslandi.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa
grein núna er sú að ég vil vekja
athygli á að 24. október næstkom-
andi, á stofndegi Sameinuðu þjóð-
anna, verður UNIFEM á íslandi með
árvissan morgunverðarfund sinn á
Hótel Holiday Inn þar sem flutt
verða erindi og skipst á skoðunum
um þróunarmál. Fundurinn hefst
klukkan 9.30, stendur í eina og hálfa
klukkustund og er öllum opinn.
Höfundur er lektor og formaður
UNIFEMá íslandi.
Skátar halda átta-
vitanámskeið
HJÁLPARSVEIT skáta í Reykja-
vík heldur áttavitanámskeið fyrir
rjúpnaskyttur og þá sem stunda
útiveru.
Hættulegast hveijum ferðamanni
eru miklar breytingar á veðri og
skert skyggni á mjög skömmum
tíma, jafnvel svo skyndilega að við-
komandi hefur ekki tök á að komast
til byggða eða á öruggan stað. Það
öryggistæki sem getur veitt okkur
aðstoð til að komast á réttan stað
er áttavitinn sem er lítið einfalt og
ódýrt tæki. Til að hægt sé að nota
hana þarf að hafa lært helstu atriði
áttavitanotkunar áður en lagt er af
stað til fjalla. Það er ekki nægilegt
að hafa áttavitann meðferðis, kunn-
áttan verður einnig að vera til stað-
ar.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
heldur tvö áttavitanámskeið í októ-
ber sem standa í tvö kvöld hvort,
fyrra kvöldið er bóklegt en hið seinna
verklegt. Fyrra námskeiðið verður
21. og 22. október og seinna nám-
skeiðið verður 28. og 29. október.
Námskeiðin verða haldin á Snorra-
braut 60, jarðhæð, og hefjast kl. 20.
(Úr fréttatilkynningu)
--------» ♦ «---------
■ KYNNINGARKVÖLD Contro-
versy á íslandi verður haldið á efri
hæð veitingahússins Hard Rock
Café fimmtudagskvöldið 22. októ-
ber. Öllum sem einhvern áhuga hafa
á Prince er boðið að koma og kynna
sér starfsemi aðdáendasamtakanna.
Kvöldið hefst um kl. 18.30 með því
að þeir sem vilja fá sér af matseðlin-
um borða saman en eiginleg dagskrá
kvöldsins hefst svo kl. 20.00. Allt
kvöldið verður sýnt fáséð efni af
myndböndum með Prince, bæði
gamalt og glænýtt. Aðgangur er
ókeypis og allir áhugasamir eru
hvattir til að mæta og kynna sér
starfsemi Contraversy á íslandi.
(Fréttatilkynning)
✓
i- l v j I
^LANTI^v
...þessi með betri hliðarnar
- btllinn sem ber af
• 4 dvra stallbakur
• 114 hestafla vél.
• 16 ventla.
• Tölvustýrð fjölinnspýting.
• 5 gíra beinslupting eða 4 þrepa
tölvustýrð sjálfskipting.
• Rafdrifnar rúður og samlæsing á hurðum.
• Hvarfakútur.
HYUnOPI
...til framtíðar
Verð frá:
1.049.000,-kr.
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13. SÍMI: 68 12 00
AUGLÝSING
Spurningin
Meö hverju finnst þér
mjólkin best?
Þorvaldur Ól
Þórdís Þorbergi
Kristján Sigurðsson
VJS / OISQH VIJAH