Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
11
Dómkórinn að syngja í Háskólabíói í fyrra,
! ’M
Sjf Pni . 1 i i
vísnanna, tekið úr handriti sem Jón
Samsonarson hefur búið til útgáfu“.
Og Hróðmar segir tónverkið
samanstanda af fjórum sálmum og
sé einskonar óður til gamallar
kirkjutónlistar og vinnuaðferða
gömlu meistaranna.
Dómkórinn mun frumflytja kór-
verkið sunnudaginn 1. nóvember
kl. 17.00 undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar, organleikara Dóm-
kirkjunnar. En í tilefni íslenska tón-
listardagsins, verður hluti af verk-
inu frumfluttur í hádegisútvarpi
laugardaginn 31. október.
Miðvikudaginn 4. nóvember kl.
20.30 verða orgeltónleikar í Dóm-
kirkjunni. Þá mun Hörður Áskels-
son, organisti Hallgrímskirkju, sitja
við Dómkirkjuorgelið og spila verk
eftir J.S. Bach, Jón Nordal og fleiri.
Föstudaginn 6. nóvember kl.
20.30 verða kórtónleikar í Landa-
kotskirkju. Á efnisskrá verður ensk
kórtónlist og enski kórstjórinn,
Arthur Robson, mun stjórna Dóm-
kórnum. Arthur Robson er þekktur
í Evrópu og oft beðinn að starfa
þar á stærri kórmótum.
„Það er alltaf viss lífsreynsla að
afhenda öðrum manni kórinn," seg-
ir stjórnandi Dómkórsins, Marteinn
H. Friðriksson, „en auðvitað er
mjög gott fyrir kórinn að kynnast
öðrum stjórnanda. Við byijum á
verki eftir Britten; flytjum einnig
verk eftir Byrd, Stanford og Wesl-
ey.“ Einsöngvari á tónleikunum
verður Margrét Bóasdóttir og Mar-
teinn verður við orgelið.
Laugardaginn 7. nóvember verða
síðan kórtónleikar í Dómkirkjunni,
dagskrá gestanna, kirkjukórsins á
Dalvík. Verkið „Requiem" eftir G.
Fauré sem tekur hálftíma í flutn-
ingi mun setja mestan svip á tón-
leikana. Stjórnandi kórsins er Hlín
Torfadóttir.
Marteinn segir að hann og Dóm-
kórinn séu mjög ánægð með að
kirkjukór Dalvíkur skuli leggja upp
í langferð og syngja hér. Dómkórinn
hélt tónleika á Dalvík í sumar. Og
Marteinn segir að þá hafí myndast
vináttusamband og þau séu að end-
urgjalda heimsóknina, auk þess sé
stjórnandi Dalvíkurkórsins fyrrver-
andi kórfélagi í Dómkómum.
Að sögn Marteins tekur alltaf
árið að undirbúa tónlistardagana.
Hafa þurfi samband við tónskáld,
ákveða hvaða gestum eigi að bjóða
og hvaða tónverk eigi að flytja.
Tónskáld næsta árs verður Hjálmar
H. Ragnarsson. Árið_ 1993 er líka
100 ára ártíð Páls ísólfssonar og
Dómkórinn er þegar farinn að und-
irbúa sig til að minnast þess.
Leikbrúðuland
Bannað að hlæja
Sýningar hafa legið niðri í Leikbrúðulandi í sumar og haust
vegna leikferða en hefjast nú um helgina að nýju. Teknar verða
upp sýningar á brúðuleiknum Bannað að hlæja eftir Hallveigu
Thorlacius.
Leikstjóri er Þórhallur Sig-
urðsson, tónlist eftir Eyþór Arn-
alds og leikendur eru Bára L.
Magnúsdóttir, Bryndís Gunnars-
dóttir, Ema Guðmarsdóttir, Hall-
veig Thorlacius ög Helga Arn-
alds.
Hér fléttast ævintýrið um
drenginn Búa og hvalinn Bægsla
inn í ævintýri gömlu goðafræð-
innar. Sýningin er ætluð fyrir
alla fjölskylduna, nema kannski
þau allra minnstu.
í sumar var Bannað að hlæja
sýnt á listahátíð í Bergen og á
alþjóðlegum brúðuleikhúshátíð-
um í Ljubljana og Zagreb, þar
sem sýningin vann tvenn verð-
laun. Onnur voru veitt af alþjóð-
legri dómnefnd leikhúsgagnrýn-
enda og hin af barnadómnefnd.
í anddyri leikhússins verða nú
sýndar gamlar brúður úr safni
Leikbrúðulands.
Sýningar em kl. 15.00 á laug-
ardag og sunnudag. Miðasala er
opin frá kl. 13.00 sýningardag-
ana.
Leikendur í Bannað að hlæja: Bryndís, Hallveig, Helga, Erna og
Bára.
22.0KT - 1.N0V
Verslanir Borgarkringlunnar bjóða nú breskar vörur á
vildarkjörum. Þú þarft ekki að fara lengra en í Borgarkringluna til
að komast í breska stemmingu og fá breska vöru á einstöku verði!
Mikill fjöldi breskra og íslenskra listamanna mun skemmta gestum dag hvern
ITELEPHl
• Skoski sekkjapípuleikarinn Robert MacKintosh
• Gordon Rimes sýnir stórfengleg flóttaatriði,
auk þess að skemmta börnunum ítrúðagerfi sínu
• Listakonan Helen Cooper málar á silki
• Lafði Christobel og einkaþjónn hennar,
vafasamir fulltrúar breska aðalsins!
• Grínleikarinn Adrian Kay sem meðal annars leikur
Charlie Chaplin fyrir gesti Borgarkringlunnar
Tveggja hæða Lundúna-
strætisvagn með áætlunarferðir
^ í Borgarkringluna
- Ókeypis fyrir alla
Vagninn ekur um götur Reykjavíkur
og verður á hálftíma fresti í Borgar-
kringlunni. Við tökum farþega við
Arnarhól 15 mín. yfir heila tímann
og í Mjódd 15 mín. fyrir heila tímann
Munið að skilafrestur
í Sherlock Holmes
Opið Laugardag kl. 10.00 -16.00 og
sunnudag kl. 13.00 -17.00. Jm
Catlislebu!
Meðal gesta okkarfrá Bretlandi eru
OijOs'.'l
IjWteío*!
IRTQN RARfv
AL0983B