Morgunblaðið - 31.10.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
19
komst á laggirnar árið 1966 eftir
langvarandi einræðisstjóm, bylting-
ar og þjóðfélagsátök. Tíu ára valda-
tímabil Diegos Cólon, elzta sonar
Kristófers Kolumbusar, varð blóma-
skeið borgarinnar og voru þá reist-
ar veglegar byggingar, sem enn
standa, svo sem höll hans og virki,
Alcázar, fyrsta dómkirkja Ameríku,
fyrsti háskólinn og Audienzia, höll
spænsku krúnunnar, erkibiskups-
setrið o.fl. Eftir að ljóst varð að
meginland Ameríku bjó yfir meiri
auði í silfri og gulli en eyjar Karíba-
hafs fluttist stjómsýsla Spánvetja
smám saman þangað og Lima í
Perú varð aðsetur varakonungsins,
en Hispaniola varð einskonar brú
og alla tíð mikilvægur tengiliður í
samskiptum við hinn Nýja heim.
Gamla nýlenduborgin var kennd við
ísabellu drottningu og kölluð Nýja
ísabella og reis við höfnina og á
austurbakka Ozama-fljóts. Hér
gengu þeir allir um götur konkista-
dorarnir, landvinningamenn Nýja
heimsins, Hernán Cortes, Francisco
Pizarro og aðrir ribbaldar, sem lit-
uðu sögu Ameríku blóði, svo og
trúboðar eins og Bartolomé de las
Casas og Amerigo Vespucci, ítalinn
frá Flórens, sem var í skipshöfn
Kolumbusar og Ameríka er kennd
við. Á dögum Diegos Cólon um
1510 var íburðarmikið hirðlíf frægt
og umtalað og það er líkast að skó-
hljóðið bergmáli enn frá steinlögðu
stræti og veggjum húsanna við
Calle las Damas, Frúargötu, þar
sem kona hans, Dona María de
Toledo, spókaði sig með hirðmeyj-
um sínum og hefðarfrúm borgar-
innar. í Santo Domingo búa nú um
tvær og hálf milljón íbúa. Fyrir
utan stórmerk söfn um sögu og
landnám Nýja heimsins, listasöfn
og þjóðleikhús, er hún fræg fýrir
vindla, romm og litríkt næturlíf.
Playa Dorada og Puerto Plata
- Gullna ströndin og Silfurhöfn
Til skamms tíma var lýðveldið
Dominíka (Dominicana), sem er
tæplega helmingur íslands að stærð
(48.500 ferkm) með átta milljónir
íbúa, hálfgert hulduland, staður
sem Evrópubúar vissu naumast að
væri til eða höfðu af óljósar spum-
ir. Þetta er hin forna Hispaniola,
eini sögustaður Vestur-Indía, stað-
urinn þar sem ný saga Ameríku
hófst fyrir réttum 500 árum. Land-
ið er gullfagurt og feiknafijósamt,
spannar flestar tegundir gróðurs
hitabeltisins, en meira til í fjöllunum
vegna hæðarmunar. Nú er ferða-
þjónustan orðinn tekjupóstur númer
tvö í þjóðarbúskapnum, næst eftir
olíuvinnslunni, en auk þess er flutt
út ógrynni af ávöxtum, korni, sykri,
kaffí og rommi. Hinar fögru strend-
ur eru mestur segull á ferðamenn,
en ekki spillir sögufrægðin og lágt
verðlag, sem er aðeins um þriðjung-
ur þess sem dvölin kostar á flestum
öðrum eyjum Karíbahafs.
Robert Trent Jones-golfvöllurinn á Playa Dorada.
Heiðblár himinn, ylvolgur sjór og litríkt líf á pálmaströndunum.
Hitabeltisstemmning á ströndinni. 60% þjóðarinnar eru blandaðir,
múlattar, 11% svartir og rúm 25% af hvíta stofninum.
Landleiðin þvert yfir eyna frá
Santo Domingo til Puerto Plata er
230 km löng eftir góðum vegi og
tekur ferðin um þijár stundir. A
leiðinni skiptast á fjöll og dalir með
fegursta gróðri, þar sem aldinin
glitra á tijánum. Fjallið Pico Du-
arte er hæsta fjall á Karíbaeyjum,
3.175 m á hæð. Það er erfitt að
slíta augun af þessari fegurð, sem
alls staðar blasir við, og hrifning
Kolumbusar verður auðskilin.
Vagninn er troðfullur af þessu
elskulega, brosmilda fólki með húð-
lit sem minnir á kopar, kaffi eða
súkkulaði. Innfædd múlattastúlka,
hýr og hláturmild, situr við hlið
mér í rútunni og spyr margs um
Gamla heiminn milli þess sem hún
segir mér nöfn á hinu og þessu, er
Dóminíka á austurhluta eyjunnar Hispaniola - önnur stærsta eyja
Karíbahafs og hin sögufrægasta.
fyrir augu ber. Henni liggur mjög
á hjarta að vita, hvernig mér lítist
á land hennar og þjóð. Eg svara
til, að mér lítist bezt á landið og
þar næst á fólkið, sem er vingjam-
legt og ofbeldi næstum óþekkt.
Annars virðist ýmislegt líkt með
Dóminíkum og Islendingum, þrátt
fyrir ólíkan uppruna og lifnaðar-
hætti, það örlar á sama smáborg-
arahættinum. Ég veitti því athygli
við komuna á flugvöll í Santo Dom-
ingo að allir innfæddir um borð í
flugvélinni frá Miami virtust vera
að koma úr kaupstaðarferð, hlaðnir
pinklum og pappakössum með alit
upp í sex ferðatöskur á mann. Það
minnti óneitanlega á ferðamáta
fjölda íslendinga þessa dagana.
Vissulega telst Dóminíka enn til
þróunarlandanna þrátt fyrir 500
ára búsetu hvíta mannsins í landinu.
Það mun sanni nær, að Hispani-
ola hin foma hafi furðu lítið breyzt
í 500 ár frá komu Kolumbusar.
Fjöllin og strendumar eru hin sömu
og ásýnd landsins að mestu, landið
þaulræktað og aldinin glóa á tiján-
um, þar til þau em tínd, og undan
þeim svigna borð gestanna í öll
mál. Steiktir bananar em ekki að-
eins eftirréttur á kvöldin, þeir em
líka á morgunverðarhlaðborðinu
ásamt öllum fersku ávöxtunum.
Fyrir hinn staðbundna íbúa norð-
ursins er Dóminíka í dag engu minni
uppgötvun en Hispanioia var Kol-
umbusi á sinni tíð. í nágrenni Pu-
erto Plata em vinsælustu ferða-
nýlendur þessa fagra eylands. Flug-
vélamar renna sér hver af annarri
niður á flugvöllinn milli Silfurhafn-
ar og Sosua, þéttsetnar fölum
ferðalöngum frá meginlandi Evrópu
og Bretlandseyjum, norðurríkjum
Bandaríkjanna og Kanada í leit að
sól, hvíld og fegurð á gullnum
ströndum, böðuðum tæmm sjó með
litríka neðansjávarveröld á kóralrif-
unum skammt fyrir utan.
Paradísarvist fyrir 3000
krónur á dag — og allt innifalið
Á Gullnu ströndinni — Playa
Dorada — bjóða 14 fyrsta flokks
hótel gesti Gamla heimsins vel-
komna með alúðlegu viðmóti og
hinu bezta atlæti. Alit svæðið er
sem blómstrandi aldingarður og úr
þeirri Eden gengurðu beint á drif-
hvíta ströndina, þar sem hnetutré
og kókospálmar blakta fyrir léttum
andvara. Hvergi hef ég séð fegurri
golfvöll en á Playa Dorada og er
kenndur við sjálfan Robert Trent
Jones, sem hannaði völlinn. Hér rík-
ir eilíft vor eða sumar, tré og mnn-
ar blómstra árið um kring og hita-
stigið á bilinu 23-29° C.
Margar eyjar Karíbahafs eru
unaðsreitir, sem þreytt og stressað
fólk dreymir um að komast til, sér
til hvíldar, endumæringar og
skemmtunar. Fegurð Dóminíku
stendur engu að baki á þessum
eyjum sólskins og sældarlífs, en
verðlagið er ennþá miklu lægra en
annars staðar. I stað þess að borga
10-20 þúsund krónur á dag á
mörgum eyjanna stendur gisting til
boða í Puerto Plata á fyrsta flokks
gististað fyrir aðeins um 3.000
krónur á dag með öllu inniföldu;
gistingu, fullu fæði, þátttöku í hvers
kyns sporti og skemmtun, víni með
máltíðum, bjór og öllum innlendum
drykkjum, meira að segja tóbakið
er innifalið, en héðan barst það
fyrst til Evrópu.
Með hagstæðum flugfargjöldum
þarf ferð til Dóminíku ekki að vera
miklu dýrari en til Kanaríeyja og
raunar mun ódýrari ef öll eyðsla
er reiknuð með í dæminu, en flestir
munu komast að raun um að um-
hverfið sé áhugaverðara og meira
spennandi. Nýir ferðamöguleikar
frá íslandi í þessa heillandi Para-
dís, 500 árum eftir Kolumbusi,
verða kynntir á ferðakynningu og
myndasýningu Heimsklúbbsins á
Hótel Sögu næstkomandi sunnu-
dag, 1. nóvember
Höfundur er ferðamilafrömuður.
Panasonic SC CHll
Meiriháttar feréatdi með geislaspilara,
kassettutdi og sjálfsögðu einnig með útvarpi.
Draumatdi unglingsins
SJPURMIJVG JVjR. 3
Hm á fslandi farðu geisladiska á Glasgow-verði 1
fullkomnum geislaspilara, tvöföldu
kassettutdi, 5 banda equaliser digital sterio
útvarpi, fjarstýringu og hátölurum
JAPISS
BRAUTARHOLTI 2
KRINGLUNNI
SÍMI 62 52 00