Morgunblaðið - 31.10.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
21
Fordómar á kirkjuþingi
eftir Gunnar
Þorsteinsson
Flest virðist ætla að verða óláni
þjóðkirkjunnar að vopni þessa dag-
an. Nú síðast er það þingsályktun-
artillaga sem flutt var á kirkjuþingi
af Þórhalli Höskuldssyni, Gunnari
Kristjánssyni og Jóni Bjarman sem
meðflutningsmönnum.
Þingsályktunartillaga þessi átti
að vera til stuðnings við baráttuna
gegn áfengis- og vímuefnavandan-
um, en hefur snúist upp í and:
hverfu sína í höndum klerkanna. í
tillögu þessari er varað við þeirri
hættu sm kann að skapast við að
draga úr meðferðarúrræðum og
lýst yfir áhyggjum yfir áformum
heilbrigðisyfirvalda „að afhenda
þau meðferðarúrræði sem nú
standa til boða aðilum sem bjóða
upp á ódýrari lausnir“.
Ódýrari lausnir
Það kemur eflaust illa við menn
á þessum samdráttartímum að
prestar innan þjóðkirkjunnar skuli
boða „dýrar“ lausnir sem einu færu
leiðina í vímuefmavandamálum.
Þarna eru kirkjunnar menn að vísa
til þess, eins og fram kemur í grein-
argerð, að þeim aðilum sem hafa
sinnt þessum málum af hugsjón og
með fórnfúsu starfí á grunni krist-
innar siðfræði og náungakærleika
skuli settar skorður. Þetta hljómar
að vísu sem öfugmæli úr þessum
ranni, en engu að síður er þetta á
opinberu plaggi og stutt með grein-
argerð sem Olafur Jens Sigurðsson
hefur sett saman, en þau atriði er
hann tiltekur sem rök og snerta
okkur í Krossinum eru öll í besta
falli grófar rangfærslur.
Reyndar má benda á að sú lausn
sem við bendum á er dýr, hún var
greidd með lífi Drottins Jesú Krists,
en hún kostar ríkissjóð ekki neitt.
Yfirtaka meðferðarúrræða
í greinargerð Ólafs segir orð-
rétt: „Þá mun Krossinn í Kópavogi
ásamt Samhjálp hafa látið í ljósi
áhuga fyrir að yfirtaka heimilið á
Vífilsstöðum." Hvað okkur áhrærir
hér í Krossinum þá er þetta ekki
rétt. Við höfum ekki farið þess á
leit við yfirvöld að fá nokkurt hús-
næði hins opinbera til afnota til
slíks starfs. Ef einhveijar raddir
hafa heyrst í þá veru eru þær ekki
frá okkur, en aftur á móti er hug-
myndin ekki afleit og hugsanlegt
er að einhver hafí bent á að óþarfi
væri að loka stofnunum í niður-
skurðinum, það eru til leiðir til
rekstar sem eru fullt eins áhrifarík-
ar og mun ódýrari. Það sýna dæm-
in. Hvað varðar Samhjálp hvíta-
sunnumanna get ég ekki svarað
'im, en ég treysti þeim fyllilega til
ið reka stofnanir af þessu tagi af
Gunnar Þorsteinsson
„Höfundur greinarinn-
ar telur að hinum
kristnu söfnuðum
gangi illt eitt til í starfi
sínu.“
mikilli reisn án mikils tilkostnaðar.
Það sýna dæmin.
En vilji þessara þjóðkirkjumanna
er nokkuð óljós. Frekar skal loka
meðferðarmöguleikum en að menn
beiti kristnum meðferðarúrræðum
til að ná árangri.
Hugmyndafræðin
í greinargerðinni er vísað til
þess að hugmyndir okkar um eðli
og orsakir áfengissýki og vímu-
efnaneyslu séu í grundvallaratrið-
um ósamrýmanlegar þeim með-
ferðum sem stuðst er við í dag.
Þetta er ekki rétt nema að hluta
til. Það er rétt að við lítum á óhóf-
lega áfengisneyslu og vímuefna-
notkun sem synd, en ekki sjúkdóm.
Að vísu getur þessi synd leitt til
sjúklegs ástands og gerir það í
flestum tilfellum. En rót vandans
er synd. Maðurinn brýtur gegn
boðum Guðs og vanhelgar líkama
sinn með hörmulegum afleiðingum.
Við erum þar sömu skoðunaí og
þjóðkirkjan, ef hún tekur enn mark
á boðum Heilagrar ritningar.
Þessi misvísun í greiningu vand-
ans þýðir ekki að menn geti ekki
unnið saman að því að kveða niður
þennan ófögnuð. Við búum yfir því
umburðarlyndi að geta unnið með
fólki sem er annarrar skoðunar en
við og ég tel að þarna séu klerkarn-
ir á eyðumerkurgöngu í skoðunum
sínum.
Að vísu höfum við því miður
haft spurnir af því að mönnum
hafi verið gert að kasta trú sinni
til að ná árangri í meðferð hjá SÁÁ
og ég fæ ekki séð hvernig prestar
þjóðkirkjunnar telja sér fært að
taka undir slíkt.
Innlimun
Höfundur greinarinnar telur að
hinu kristnu söfnuðum gangi illt
eitt til í starfi sínu og að hvatinn
sé sá að „innlima andlega illa fyrir-
kallaða einstaklinga inn í viðkom-
andi söfnuð“. Ekki veit ég hvaða
dimma myrkursins hefur heijað á
höfund greinarinnar er hann setti
þessi orð á blað — og þó, en þess-
ar órökstuddu aðdróttanir eru ekki
sæmandi manni sem vill kenna sig
við þjónustu sannleikans. Hann
veit sem er að við beijumst hart
gegn þeim vinnubrögðum sem hann
er sjáfur fulltrúi fyrir, að innlima
fólk sem er í einhvers konar „með-
vitundarleysisástandi" sakir æsku
og ómegðar, með barnaskírninni.
Ólafur Jens nefnir einnig að
„sjúklingum sé ráðlagt að leita
ekki lækninga á geðdeildum eða
meðfarðarstöðvum við áfengis-
sýki“. Þessari alvarlegu ásökun
verð ég að_ vísa til föðurhúsanna
og áminna Ólaf um sannsögli. Ólaf-
ur Jens og flutningsmenn tillög-
unnar hefðu getað leitað sannleik-
ans í þessu máli með því að bijóta
Líknarsjóður stofnað-
ur í Grafarvogssókn
STOFNAÐUR verður líknarsjóð-
ur í Grafarvogssókn næstkom-
andi sunnudag. Þessi sjóður var
stofnaður í Reykjavíkurprófasts-
dæmi af Gísla Sigurbjörnssyni
forstjóra. Hlutverk sjóðsins er
að styrkja fjölskyldur sem eiga
í erfiðleikum vegna slysa eða
atvinnumissis.
Eftir guðsþjónustuna kl. 14 á
allra heilagra messu fer fram kaffi-
sala en ágóði af henni mun renna
í líknarsjóð sóknarinnar.
odd af oflæti sínu og hringja eitt
símtal, ef þjónusta við sannleikann
hefur þá verið markmiðið.
Lokaorð
Við þingsályktunartillögu kirkju-
þings er skeytt undarlegri athuga-
semd frá Jóhanni Bergsveinssyni
og Þórarni Tyrfingssyni þar sem
þeir lýsa sig í meginatriðum sam-
mála þeim röksemdum sem fram
koma í greinargerðinni. Það er með
ólíkindum að þessir menn skuli
setja nafn sitt undir „röksemdir"
sem þeir kunna nánast engin skil
á og eru ekki í neinu samræmi við
veruleikann. Er það í stíl við annað
sem fram kemur á þessu maka-
lausa plaggi þar sem Heródes og
Pílatus fallast í faðma á kirkju-
þingi.
I þeirri umræðu sem verið hefur
í fjölmiðlum í framhaldi af þessari
tillögu hefur mörgum undarlegum
flötum verið velt upp, en ljósi
punkturinn voru ummæli heilbrigð-
isráðherra, Sighvats Björgvinsson-
ar, í kvöldverðarfréttum Ríkisút-
varpsins þar sem fram kom að
þessar sjónhverfingar klerkanna
með andlegan stuðning forkólfa
SÁÁ að bakhjarli munu ekki hafa
áhrif á stefnu stjórnvalda.
Höfundur er forstöðumaður
Krossins í Kópavogi.
Við guðsþjónustuna á sunnudag
predikar séra Birgir Ásgeirsson
sjúkrahúsprestur. Þóra Einarsdóttir
syngur einsöng, Guðlaug Ásgeirs-
dóttir leikur einleik á flautu. Eldri
borgurum er sérstaklega boðið til
þessarar guðsþjónustu, en ekki þarf
að taka það fram að allir eru boðn-
ir velkomnir.
Vigfús Þór Arnason
sóknarprestur.
GOODfÝEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
GOODWYEAR
'jr
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
E1
HEKLA
FOSSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363
BÓKAMÁRKÁDURINN
ÞÚSUNDIR
Allt frá nýjustu erlendum metsölubókum upp í
Encyclopaedia Britannica. Ótrúlegt verð!!!!!!!!!
IÐUNN IÐUNN, forlagsverslun, Bræðraborgarstíg 16