Morgunblaðið - 31.10.1992, Síða 22
2§SF------------------------------MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Mikið um innbrot og þjófnaði í fyrrínótt
Stal bankabók og
náði út 100 þúsundum
VERÐMÆTU mynt- og skjalasafni ásamt bankabók var stolið í inn-
broti I íbúð i húsi í Hafnarfirði í fyrrinótt og tókst þeim sem þar var
að verki að taka 100 þúsund krónur út úr bankabókinni áður en
þjófnaðurinn uppgötvaðist og bankanum var gert viðvart. Að sögn
lögreglu er ákveðinn síbrotamaður grunaður um innbrotið og talinn
hafa ritað á úttektarseðil í bankanum með sínu rétta nafni. Tals-
vert var um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.
í fyrradag var brotist inn í íbúðarhús í Tangahverfi í Mosfellsbæ
og ýmiss konar tækjum stolið.
Stolið var Pioneer-magnara,
geislaspilara og tónjafnara, tugum
geisladiska, tveimur Panasonic-
myndbandstækjum og 24 tomma
TEC-sjónvarpi. Talið er að farið
hafi verið inn um ólæstar dyr á
bílskúr hússins og þaðan í gegnum
millihurð inn í húsið. Unnið er að
rannsókn málsins.
Lögreglan í Hafnarfirði handtók
í fyrradag mann á fimmtugsaldri í
Garðabæ og hafði sá tvo stolna
farsíma undir höndum.
Morgunblaðið/RAX
í ráðhúsinu stendur yfir sýning á um 60 íþróttamyndum. Eldri myndirnar eru frá Ljósmyndasafni
Reykjavíkur en nýrri myndirnar eru úr myndasafni Morgunblaðsins.
íþróttamyndir í ráðhúsinu
í SALARKYNNUM ráðhúss
Reykjavíkur stendur nú yfir
sýning á gömlum og nýjum ýós-
myndum sem tengjast sögu
íþrótta hér á landi. Sýningin
var sett upp í tengslum við 61.
þing ÍSÍ sem haldið var um síð-
ustu helgi og 80 ára afmæli
íþróttasambandsins á þessu ári.
Sýningin stendur til 15. nóvem-
ber.
Ljósmyndirnar eru um 60 tals-
ins og þeim skipt niður eftir
íþróttagreinum. Ljósmyndasafn
Reykjavíkurborgar leggur til eldri
myndirnar en nýrri myndimar eru
teknar af ljósmyndurum Morgun-
blaðsins og eru fengnar úr mynda-
safni blaðsins.
Myndimar em stækkaðar í
40x50 cm stærð, innrammaðar
og settar upp á fleka með skýring-
artexta sem tengist hverri íþrótta-
grein.
Tillögnr um breytta skipan sveit-
arfélaga kynntar sveitarstj órnum
Kvótakerf-
ið valið frek-
ar en annað
UM 79% af þeim sem afstöðu
taka velja núverandi kvótakerfi,
um 18,5% velja heildarafla sem
skip geta keppt um og 2,5% velja
byggðakvóta, að því er fram
kemur í skoðanakönnun sem ÍM
Gallup gerði fyrir Sjávarfréttir
dagana 22. september til 3. októ-
ber.
Svarendur fengu að velja úr
þremur kostum, núverandi kvóta-
kerfi, kvótinn verði eign byggða-
laga eða fiskvinnslustöðva og í
þriðja lagi að ákveðinn verði heild-
arafli sem skip geti keppt um inn-
byrðis með einhveijum hætti. 1.200
manns vom í úrtakinu og svömðu
840 eða 70 og 790 tóku afstöðu.
Afstaða fólks á höfuðborgarsvæð-
inu og landsbyggðinni er svipuð en
meiri stuðningur er við kvótakerfíð
meðal kvenna en karla.
Sjvarfréttum hefur verið breytt
úr tímariti sem kom út fjórum sinn-
um á ári í bók sem kemur út í
upphafi hvers fískveiðiárs, að því
er fram kemur hjá ritstjóra.
íbúi í húsi við Barónsstíg varð
var við skarkala á jarðhæð hússins
þar sem er sölutum. Hann fór niður
og sá þá hvar maður var að reyna
að bijóta sér leið inn í söluturninn
vopnaður kúbeini og gyrtur verk-
færasvuntu trésmiðs. Þegar inn-
brotsþjófurinn varð mannsins var
sneri hann sér ógnandi að honum
með kúbeinið á lofti. Maðurinn flúði
undan og hringdi á lögreglu en
þegar hún kom á vettvang var inn-
brotsþjófurinn horfínn.
Um svipað leyti vom fjórir ung-
lingspiltar og unglingsstúlka hand-
tekin í bíl við Skúlagötu vegna
gmns um tilraun til innbrots. I bíl
þeirra fundust nokkrar bílahljóm-
tækjasamstæður sem taldar em
stolnar.
Domier-vélin verður almenningi
til sýnis í dag í Vestmannaeyjum.
Um helgina verður hún til sýnis á
Flateyri ef veður leyfír og síðan á
öðmm áætlunarstöðum koll af kolli.
Verður hún komin í fulla notkun
eftir um viku.
færri íbúar í hveiju sveitarfélagi
en 1000, þar sem það er hægt, en
færri ef það markmið næst ekki
annars að samfélagið verði heild-
stætt. Nefndin hefur ekki tekið af-
stöðu til tillagna um sameiningu
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu, sem spanna frá minni breyting-
um upp í að allt höfuðborgarsvæðið
verði eitt sveitarfélag.
í tillögum nefndarinnar um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga er lagt til að verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga gerist í tveim-
ur áföngum, þeim fyrri 1994 og
þeim síðari 1999. I fyrri áfanga
verði verkefni ríkisins í gmnnskól-
anum færð til sveitarfélaga 1. ág-
úst 1994, en heilsugæsla og öldmn-
Hjá íslandsflugi starfa 40 manns
en félagið heldur uppi áætlunar-
ferðum til átta staða í öllum
landshlutum. Flutti félagið um
36.000 farþega í fyrra og vömflutn-
ingar nema einu tonni á degi hveij-
um.
arþjónusta 1. janúar 1995. Önnur
verkefni, málefni fatlaðra, skipu-
lagsmál, aukin hlutdeild sveitarfé-
laga í hafnamálum og félagslegum
húsnæðismálum, yrðu færð til sveit-
arfélaga 1. janúar 1999.
{tillögum um tekjustofna kemur
m.a. fram að tekjur sveitarfélaga
byggi sem mest á staðbundnum
sköttum og þjónustugjöldum og
hafí sveitarstjórnir vald til að
ákveða upphæð þeirra. Kostnaðar-
auka vegna yfírtöku gmnnskóla og
heilsugæslu verði mætt með hærra
útsvari.
Lagt er til að vissum fjölda sveit-
arfélaga verði veitt staða reynslu-
sveitarfélaga árið 1994. Verkefni
þeirra verði að taka í tilraunaskyni
við nýjum verkefnum, svo reynsla
fáist á það hvaða verkefni sé skyn-
samlegt að flytja til sveitafélaganna
1. janúar 1999, til viðbótar við þau
sem flutt verða 1994 og 1995.
í máli Jóhönnu Sigurðardóttur,
félagsmálaráðherra, kom fram að
ríkissjóður mun greiða um 200
milljónir á ári næstu fimm árin, til
að greiða fyrir sameiningu sveitar-
félaga. Þá myndi 600 milljón króna
framlag, sem annars rynni í lána-
sjóð sveitarfélaga, renna til jöfnun-
arsjóðs þeirra, eða samtals 1,6 millj-
arður á fimm ára tímabili.
Sveitarfélög landsins eru nú 197
og þar af eru 107 þeirra með færri
íbúa en 200. Miðað við tillögur
nefndarinnar yrðu sveitarfélögin
25-28 talsins.
------------------
Afmælistónleik-
ar kórs Laug-
arneskirkju
KÓR Laugarneskirkju heldur
upp á fímmtíu ára afmæli um
þessar mundir. Af þvi tilefni efn-
ir kórinn til tónleika í kirkjunni
sunnudaginn 1. nóvember kl. 17.
Á efnisskránni eru verk eftir
Gabriel Fauré og Gunnar Reyni
Sveinsson, flutt af kór, einsöngvur-
um og kammersveit. Flutt verða
verkin Missa Piccola og Gloria eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og Requi-
em eftir Gabriel Fauré. Einsöngvar-
ar eru Laufey Geirlaugsdóttir, Dúfa
S. Einarsdóttir, Guðlaugur Viktors-
son og Michael Jón Clarke.
SVEITARFÉLAGANEFND hefur skilað tillögum um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga, umdæmi og tekjustofna þeirra og aðgerðir
rikisvaldsins vegna sameiningar sveitarfélaga. Tillögurnar verða
kynntar sveitarfélögum og landshlutasamtökum á næstunni og full-
trúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallar um þær nú
í nóvember. Lokaskýrsla sveitarfélaganefndar á svo að liggja fyrir
í byijun næsta árs. Skömmu síðar verður lagt fram frumvarp á
Alþingi um skiptingu landsins í sveitarfélög og reynslusveitarfélög.
Áfangaskýrsla sveitarfélaga-
nefndar, þar sem tillögur hennar
eru tíundaðar, var kynnt á fundi
félagsmálaráðherra með blaða-
mönnum í gær. Þar kemur m.a.
fram, að nefndin leggur til að fé-
lagsmálaráðherra leggi fram á Al-
þingi frumvarp til breytinga á sveit-
arstjórnarlögum í ársbyijun 1993
og lögð verði áhersla á að það verði
samþykkt frá Alþingi næsta vor.
Síðari hluta ársins fari svo fram
skoðanakannanir og kosningar
meðal íbúanna, þannig að útfærsla
á framtíðarskiptingu landsins í
sveitarfélög liggi fyrir á fyrri hluta
árs 1994. Þar sem sameining hefur
verið samþykkt skal henni komið í
framkvæmd fyrir 1. janúar 1998.
Stefnt skal að því að ekki verði
íslandsflug tekur skrúfuþotu í notkun
Flugtími á leið-
um Islandsflugs
styttist verulega
FYRSTA áætlunarferðin verður farin í dag á nýrri 19 farþega Dorni-
er-228 skrúfuþotu sem íslandsflug hefur fest kaup á. Flogið verður
til Vestmannaeyja en flugvélin verður notuð á öllum áætlunarleiðum
félagsins og til leiguverkefna.
„Þessi flugvél hefur verið á óska-
lista íslandsflugs frá upphafí. For-
veri okkar, Amarflug, notaði vél
af þessari tegund tvö sumur og lík-
aði hún mjög vel. Allir báru lof á
hana hvar sem borið var niður,“
sagði Gunnar Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs í gær.
Domier-vélin leysir af hólmi
Twin Otter flugvél íslandsflugs en
með tilkomu nýju flugvélarínnar
styttist flugtími á leiðum félagsins
vemlega. Flughraði Domierins er
220 sjómílur eða 407 km/klst. Flug-
vélin er búin fullkomnustu flugleið-
sögutækjum, þ.m.t. staðsetningar-
tæki sem notast við gervitungl.
Einnig er fullkomin litaratsjá og
sjálfstýring í henni. Ávallt fljúga
tveir menn henni.
Að sögn Gunnars hefur Dornier-
skrúfuþotan einstaka flugeiginleika
vegna nýrrar vængtegundar.
Vænglögunin gerði það að verkum
að flugvélin gæti ýmist flogið mjög
hægt en einnig hratt. Sakir þess
gæti Domierinn notað allar flug-
brautir landsins, einnig þær stystu,
og athafnað sig í þröngum fjörðum.
Markaðsverð Dornier-flugvélar
íslandsflugs er á bilini 120-140
milljónir króna. Flugvélin var tekin
( notkun um áramótin 1988/89 en
hefur verið sparlega notuð eða sem
svarar liðlega ársnotkun. Að sögn
íslandsflugsmanna er flugþol flug-
vélarinnar allt að 8 klukkustundir.
Hægt er að taka sætin úr á hálftíma
og þannig búin getur hún tekið 19
rúmmetra af vörum en flugvélar
af þessari tegund eru m.a. nokkuð
notaðar til vöruflugs.
Gengið
borði í
Taldir frá
vinstri Gunnar
Þorvaldsson,
Birgir Ágústs-
son og Gísli
Baldur Garð-
arsson.
Morgunblaðið/RAX
Nýja vélin á flugi yfir Reykjavík.