Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Alþjóðlega skeiðmeistaramótið í Weiden
Islendingar í miklum skeið-
Sigruðu í 5 greinum
Íslendingarnir röðuðu sér í þrjú efstu sætin í gæðingakeppninni.
Reynir og Höttur lengst til hægri í fyrsta sæti. Þá Sigurbjöm og
Skorri, Trausti Þór og sigurvegarinn Höskuldur á Lúkasi, Trausti
á Emi, Angantýr á Steingerði og Snorri Dal á Áli.
liam -
Hestar
Valdimar Kristinsson
íslendingar réðu lögum og lofum
í flestum keppnisgreinum á al-
þjóðlega skeiðmeistaramótinu
sem haldið var í bænum Weiden
i Þýskalandi sunnanverðu fyrir
skömmu. Sigur í 5 af 8 greinum
og verðlaunasæti i öllum grein-
um er árangur sem er mjög góð-
ur og sýnir að íslendingar standa
fremstir í skeiðgreinunum í dag.
Það voru tuttugu íslendingar sem
voru skráðir til leiks á mótinu og
virðist áhugi hérlendis fyrir því
stöðugt vera að aukast. Átta af
þessum tuttugu eru búsettir í
Þýskalandi en hinir komu allir að
heiman eða eru tímbundið í vinnu
ytra.
Angantýr Þórðarson sigraði í 150
metra skeiðinu á Steingerði frá
Skollagróf, Trausti Þór sigraði gæð-
ingaskeiðið á Emi frá Akureyri,
Reynir Aðalsteins sigraði í gæð-
ingakeppninni á Hetti, Höskuldur
bróðir hans vann 150 metra skeið-
meistarakeppnina og Jón Stein-
bjömsson varð stigahæstur kepp-
enda í samanlögðu.
Keppnin var eitilhörð og allt lagt
í sölumar fyrir sigur. Á stundum
bar keppnisgleðin skynsemina ofur-
liði og of mikið var lagt á suma
hestana. Mótið stóð yfír í þrjá daga
og sumir hestanna á fullu í öllum
greinum og enduðu svo í skeið-
meistarakeppninni þar sem famir
vom íjórir sprettir og mátti sjá á
sumum hestanna að langt var á
þrek þeirra gengið fyrir skeiðmeist-
arakeppnina. Skeiðmeistarakeppn-
in er mjög spennandi bæði fyrir
áhorfendur sem keppendur en segja
má að mesti glansinn fari ef þegar
verið er að þvæla útjöskuðum hest-
um í þessa erfíðu grein. Vantar
greinilega einhvern öryggisventil á
þetta mót þannig að tryggt verði
að ekki sé verið að ofgera hestum.
Hestakostur mótsins var all góður
og undirstrikar það ásamt snjallri
reiðmennsku flestra keppenda að
skeiðíþróttin er enn í mikilli upp-
sveiflu. Við vitum að við höfum
urmul góðra skeiðreiðarmanna hér
á íslandi en það er greinilegt að
þeim fjölgar einnig stöðugt á meg-
inlandinu. Búa margir erlendu
keppendanna yfír mikilli tækni og
notfæra sér það óspart í sýningun-
um með ýmiskonar látbragði sem
losar oft um alvarleikann sem ríkir
í spennandi keppni.
Gamli refurinn Reynir Aðal-
steinsson sýndi það og sannaði á
mótinu að hann á mikið eftir.
Keppnisgleðina á hann næga og
sigraði eins og áður sagði gæðinga-
keppnina af nokkru öryggi og hárs-
breidd frá sigri í skeiðmeistara-
keppninni. Virðist sem Reynir
magnist oft upp í keppni erlendis
og nái árangri sem enginn hafi sér-
staklega búist við fyrirfram. Er
þetta til að mynda annað árið í röð
sem hann sigrar í gæðingakeppni
skeiðmeistaramótsins. Aðrir íslend-
ingar sem ekki hefur verið getið
hér stóðu sig með miklum ágætum.
Ungur knapi, Snorri Dal, varð til
að mynda annar í 150 metra skeið-
inu á Áli frá Hellu og tryggði sér
þar með rétt til þátttöku í skeið-
meistarakeppninnni. Birgir Gunn-
arsson sem býr ytra varð annar í
töltinu og Rúna Einarsdóttir Zings-
heim þriðja.
Nokkra athygli vakti mótsstaður-
inn sem var æfingasvæði þýska
hersins og þar af leiðandi eingöngu
notað fyrir þetta eina mót. Enginn
hringvöllur var til staðar og brautin
vegspotti sem keppt var á rétt dugði
fyrir 250 metrana. Tölt og gæð-
ingakeppnin fór þannig fram að
keppendur riðu fram og til baka
eins og hefur reyndar tíðkast á
þessum mótum með gæðingakeppn-
ina. Það vaknar óneitanlega upp
spuming hversvegna mót í þessari
stærðar- og gæðagráðu er haldið á
svona bráðabirgðastað þegar til eru
margir mjög góðir mótsstaðir í
Þýskalandi. Það getur verið réttlæt-
anlegt að halda mót við ófullnægj-
andi aðstæður ef verið er að byggja
upp eitthvert framtíðarsvæði en
annars ekki. Segja má að aðstaðan
á mótsstað hafí sett mótsbraginn
nokkuð niður þótt ekki sé með því
gefíð í skyn að þetta hafí verið lé-
legt mót. Framkvæmdin gekk vel
fyrir sig og mátti sjá þess ýmis
merki að vel hafí verið að undirbún-
ingi staðið, hestamir góðir og knap-
ar lítt síðri í heildina séð. Nokkur
fjöldi íslendinga sótti mótið heim
og virðist alltaf talsverður áhugi
fyrir móti þessu hjá landanum. At-
hugandi væri fyrir Þjóðveija að
leggja meira í kynningu á mótinu
hérlendis en með því móti mætti
ætla að enn fleiri íslendingar leggðu
leið sína á það. Jafnhliða því þyrfti
að að tryggja að mótið sé haldið
við bestu hugsanlegar aðstæður.
Óhætt er að hrósa mótshöldumm
fyrir skráningu hrossanna en þar
var í ríkari mæli getið um fæðingar-
stað hrossanna en tíðkast hefur á
mótum erlendis og minna um vit-
leysur í nöfnum og bæjarnöfnum.
Urslit urðu annars sem hér segir:
A-flokkur 1. Höttur/Reynir Aðal-
Fyrrum Evrópumeistari í fimm-
gangi Peter Schröder sigraði
skeiðmeistarakeppnina á hryss-
unni Ástu eftir harða keppni við
Reyni Aðalsteinsson. Trausti Þór
sem sigraði í gæðingaskeiði af-
henti honum þennan eftirsótta
bikar.
steinsson, íslandi, 8,62. 2. Skorri
frá Efri-Brú/Sigurbjöm Bárðarson,
íslandi, 8,55. 3. Lautartungu/Uli
Reber, Þýskalandi, 8,46. 6.-7. Létt-
ir/Johann G. Johannesson, íslandi,
8,42. 6.-7. Fjalar frá Fossvöllum,
Hinrik Bragason, ísjandi, 8,42. 8.
Kolskeggur frá Ásmundarstöð-
um/Þórður Jónsson, íslandi, 8,39.
9. Brandur frá Runnum/Benedikt
Þorbjömsson, íslandi, 8,35. 10.
Feykir/Rúna Einarsdóttir Zings-
heim, íslandi, 8,32. Tölt 1:1 1. Jo-
hannes Hoyos, Austurríki, á Þorra
frá Meðalfelli, 8,59. 2. Rúna Einars-
dóttir Zingsheim, íslandi, 8,54. 3.
Birgir Gunnarsson, íslandi, á Eik
frá Hoftúnum, 8,45. 4. Martin Hell-
er, Sviss, á Svipi frá Hvalsá, 8,44.
5. Piet Hoyos, Austurríki, á Vaski
frá Birgissu, 8,42. 6. Sigurbjöm
Bárðarson, Islandi, á Fjalari frá
Fossvöllum, 8,39. 7. Karly Zings-
heim, Þýskalandi, á Fylki frá Roder-
ath, 8,31. 8. Hans Pfaffen, Sviss,
/íiíl ^ ~ - - 4»
Mrööur •-HJ . jpta*
f
a ttt nt^iYtttt 7l- J. •'
muiuuu v lii kaMB&g=J
1
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Allra heil-
agra messa. Látinna minnst. Ein-
söngur Anna Sigríður Helgadóttir.
Fiðluleikur Laufey Sigurðardóttir.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Minn-
ing látinna. Dómkórinn syngur. Ein-
söngur Ingólfur Helgason. Organleik-
ari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jakob
Á. Hjálmarsson. Barnastarf í safnað-
arheimilinu á sama tíma. Kirkjubíllinn
fer um Vesturbæinn. Messa kl. 17.00
á tónlistardögum Dómkirkjunnar.
Flutt verður nýtt tónverk eftir Hróðm-
ar Inga Sigurbjörnsson. Dómkórinn
syngur. Einsöngvari Ingólfur Helga-
son. Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Sr. Hjalti Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
*
Guðspjall dagsins: (Matt. 5). Josús
predikar um sælu.
Allra heilagra messa
usta kl. 10.00. Sr. Ólafur Jóhannsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Vngri börnin niðri og eldri
börnin uppi. Mikill söngur, fræðsla
og leikræn tjáning. Messa kl. 14.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti
Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Allra heilagra
messa. Fræðslusamvera kl. 10.
Gunnar J. Gunnarsson. Trúarbrögð
mannkyns. Fjölskyldumessa kl.
11.00. Altarisgaga. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Barnastarf á sama tíma.
Kl. 17. Minningar- og þakkarguðs-
þjónusta. Minnst látinna.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl.
10. Sr. Tómas Sveinsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
um Hlíðar og Suðurhlíðar á undan
og eftir messu. Hámessa kl. 14. Sr.
Arngrímur Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón
Stefánsson. Tónlistarflutningur á
vegum Minningarsjóðs Guðlaugar
Bjargar Pálsdóttur. Málmblásarak-
vintett leikur með fullskipuðum kór
Langholtskirkju. Barnastarf á sama
tíma. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Allra heilagra
messa. Messa kl. 11. Altarisganga.
Sr. Jón D. Hróbjartsson. Organisti
Ronald Turner. Drengjakór Laugar-
neskirkju syngur. Barnastarf á sama
tíma undir stjórn Þórarins Björnsson-
ar. Drengjakór Laugarneskirkju syng-
ur frá kl. 10.45. Heitt á könnunni
eftir messu.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Munið kirkjubílinn. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Laugardag:
Flautudeildin í safnaðarheimilinu kl.
14 og starf eldri barnanna kl. 15.
Sunnudag: Kl. 11 barnaguðsþjón-
usta, kl. 14 guðsþjónusta, ræðumað-
ur: Ólafur Sverrisson frá Gídeon-
félaginu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Organisti Hákon Leifs-
son. Barnastarf á sama tíma í umsjá
Eirnýjar, Báru og Erlu. Fundur með
foreldrum fermingarbarna eftir
messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Allra heilagra
messa. Guðsþjónusta kl. 11. Barna-
kór Árbæjarkirkju syngur við guðs-
þjónustuna. Organisti Sigrún Stein-
grímsdóttir. Sunnudagaskóli Árbæj-
arsafnaðar kl. 11 í Ártúnsskóla, Se-
lásskóla og safnaðarheimili Árbæjar-
kirkju.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Organisti Daníel Jónasson.
Kaffisala kirkjukórsins að messu lok-
inni. Kl. 20.30 samkoma á vegum
„Ungs fólks með hlutverk". Sr. Gísli
Jónasson. Ræðumaður Friðrik
Schram.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón Sigfús-
ar og Guðrúnar. Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Prestarnir.
GRAFARVOGSPREST AKALL:
Bamaguðsþjónusta kl. 11 í Félags-
miðstöðinni Fjörgyn. Guðfræðinem-
arnir Elínborg og Guðmunda að-
stoða. Allra heilagra messa. Guðs-
þjónusta kl. 14. Predikun: sr. Birgir
Ásgeirsson sjúkrahúsprestur. Ein-
leikur á þverflautu: Guðlaug Ásgeirs-
dóttir. Einsöngur: Þóra Einarsdóttir.
Organisti Sigurþjörg Helgadóttir.
Kaffisala til ágóða fyrir Líknarsjóð
Grafarvogssóknar eftir guðsþjón-
ustuna. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAPRESTAKALL:Messusalur
Hjallasóknar Digranesskóla. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Foreldrar eru
hvattir til þátttöku í guðsþjónustunni
með börnum sínum. Organisti Oddný
Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barnastarf
í safnaðarheimilinu Borgum sunnu-
dag kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Organisti Stefán R.
Gíslason. Vænst er þátttöku ferming-
arbarna og foreldra þeirra. Fundur
með fermingarbörnum og foreldrum
í Borgum að lokinni guðsþjónustu.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Barnakór
Seljakirkju syngur í guðsþjónustunni.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. ValgeirÁstr-
áðsson pródikar. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Molasopi eftir guðs-
þjónustuna. Frímerkjasýning á veg-
um Frímerkjaklúbbs kirkjunnar opin
í safnaðarsal. Sóknarprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Ingunn Guðmunds-
dóttir. Kaffi eftir messu. Þorsteinn
Ragnarsson safnaðarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK: Almenn samkoma
í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58 kl. 20.30. Dóra Guðrún Guð-
mundsdóttir hefur upphafsorð og
ræðumaður verður Hildur Sigurðard-
ótctir. Bænastund kl. 19.45.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardaga messa kl. 14.
Fimmtudaga messa kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfia:
Brauðsprottning kl. 11. Ræðumaður:
Haraldur Guöjónsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaöur: Svanur
Magnússon. Barnagæsla. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgunar-
samkoma kl. 11. Sunnudagaskóli kl.
14. Hjálpræðissamkoma kl. 20. Fé-
lagar frá Gídeon taka þátt í samkom-
unni. Geir Jón Þórisson syngur og
prédikar.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma sunnudag kl. 17. Ræðu-