Morgunblaðið - 31.10.1992, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Ævintýraferð á slóðir forfeðranna
Frá Ingibjörgu Ragnarsdóttur:
Fyrsta dag þessa mánaðar vaknaði
ég snemma því til stóð að skreppa
frá Akureyri út fyrir landsteinana.
Farmiðinn hafði verið keyptur á
ferðaskrifstofu Samvinnuferða-
Landsýnar á Akureyri skömmu áð-
ur. Þetta varð sannkölluð ævintýra-
ferð.
Þegar ég kom á flugvöilinn
fannst mér undarlega margir komn-
ir á undan mér og dáðist ég að
stundvísi samferðamannanna. Fyrir
tilviljun komst ég svo að því að
brottför hafði verið flýtt, en láðst
hafði að láta mig vita. Það gerði
ekkert til, því einn maður var látinn
sjá um vopnaleit hjá 170 farþegum
og því seinkaði brottför um klukku-
tíma.
Skömmu eftir flugtak sagði auð-
mjúk flugfreyja frá því að þar sem
vélin hefði komið beint frá Bret-
landseyjum væru þjónustugögn af
skornum skammti. Voru farþegar
vinsamlegast beðnir að gæta glasa
sinna vel, því aðeins yrði útbýtt einu
á mann. í þau var heldur ekki
hægt að fá ís, kók eða vodka enda
alveg ágætt því hver þarf á því að
halda í svona ferð? Þá hafði ég
verið upplýst um að tollfijáls sala
færi fram á leiðinni. Ekkert varð
af henni af sömu ástæðum enda
ágætt því ekki eyddi ég aurunum
mínum á meðan.
í Dublin hafði ég nóg að gera
og leið vel. Notfærði ég mér meðal
annars ágæta skoðunarferð um
borgina en var svo hagsýn að
ákveða að biðja bílstjórann að
' hleypa mér út í miðborginni að ferð
lokinni. Þá komst ég að því mér til
ánægju en því miður, ekki hinum
1 farþegunum, að ákveðið hafði verið
að enda ferðina í miðbænum. Þurftu
þeir sumir að suða áður en þeim
var ekið með þjósti á hótelið. Þar
var ég heppin.
í ferðinni var talsvert af fullorðnu
fólki, þ.e. fólki sem komið er yfir
miðjan aldur. Margt af því notfærði
sér skoðunarferð um sveitir írlands
á sunnudeginum en allar ferðir voru
auglýstar með íslenskri fararstjórn.
Hvort starfsmenn SL hafi ákveðið
á eigin spýtur að kanna tungumála-
kunnáttu landans skal ósagt látið,
en helmingur hópsins þurfti að
sætta sig við enskumælandi farar-
stjóra í ferðinni. Höfðu þau ekki
( bara gott af því að æfa sig í ensk-
unni? Spyr sá sem ekki veit.
Nú var komið að heimferð. Eitt-
) hvað fannst mér fararstjórarnir
fljótir að kveðja okkur á vellinum
enda kom brátt í ljós að ferðinni
I heim var seinkað um þrjá tíma.
Auðvitað var þetta alveg kjörið fyr-
ir landann til að eyða síðustu krón-
unum sínum og meiru til í fríhöfn
flugvallarins. Þegar leið að brottför
klukkan tíu komu skilaboð um
tveggja tíma seinkun til viðbótar
svo þá var bara að draga upp kort-
ið og eyða meiri peningum í fríhöfn-
inni!
Þegar loksins var haldið af stað
til íslands vorum við búin að bíða
í flughöfninni í átta klukkustundir.
Sumir spiluðu brids, aðrir hlustuðu
á undurfagran söng nokkurra
breskra karlakórsfélaga sem voru
í sömu aðstöðu og við á flugvellin-
um. Aðrir reyndu að halla sér enda
eins gott því flestir áttu að mæta
í vinnu morguninn eftir. Sumir
kvörtuðu yfír því að fá ekki að vita
hver ástæða seinkunarinnar var, en
ég spyr bara, hvað kom okkur það
við?
Þegar út í vél kom mátti víða
heyra mikið gamagaul í farþegum
sem aðeins hafði verið boðið upp á
eina samloku og kaffíbolla í átta
tíma. Ég segi bara að þeir hafi
ekki haft gott af meiru því þeir
hafa örugglega verið búnir að fá
meira en nóg af góðum írskum mat
í ferðinni. Þetta var því upplagt
tækifæri til að losna við
aukagrömmin.
Að lokum vil ég þakka Sam-
vinnuferðum-Landsýn fyrir þessa
„ævintýraferð". Mér fínnst alltaf
svo spennandi þegar ég veit ekki
hvað gerist næst. Annars mætti
halda að SL stæði á sama um far-
þegana þegar ferðin hefur verið
greidd, enda hvers vegna ætti þeim
að vera annt um þá? Skyldu þeir
koma aftur?
INGIBJÖRG RAGNARSDÓTTIR
Hraungerði 7, Akureyri.
Gangráður talaðra orða
Frá Heimi Steinssyni:
Þriðjudaginn 27. október birtist í
blöðum ályktun stjómar íslenzkrar
málnefndar um Ríkisútvarpið. Til-
efni ályktunarinnar er tvær útsend-
ingar frá Bandaríkjunum, en þar
þreyttu frambjóðendur í forseta-
kjöri kappræðu í sjónvarpssal á
dögunum. Nú þykir rétt að láta
þess getið, er hér fer á eftir:
Það er ofmælt, þegar íslenzk
málnefnd kveður Ríkisútvarpið hafa
sent út erlendar stjórnmálaumræð-
ur „skýringar- og textalaust“. Hið
rétta er, að skýringar fóru á undan
fyrri útsendingunni. í síðara skiptið
var umræða til skýringar í upphafi
og einnig við lok útsendingar.
í annan stað em umræddir sjón-
varpsþættir alls óskyldir þeim „dag-
legu útsendingum", sem íslenzk
málnefnd getur um í orðsendingu
sinni. Forsetakosningamar í
Bandaríkjunum em sjaldgæf stór-
tiðindi. Eðlilegt virðist að bregðast
við þeim með óvenjulegum hætti.
Hér var aukinheldur um að ræða
útsendingu, sem hófst síðla kvölds
og ekki rakst á dagskrá sjónvarps-
ins.
„Allt orkar tvímælis, þá er gert
er.“ Svo var einnig um útsendingar
þessar. Áður en í þær var ráðizt,
leitaði Ríkisútvarpið því álits
menntamálaráðuneytis og fékk
samþykki þess í bréfí. Föstudaginn
23. október var málið borið form-
lega undir útvarpsráð. Lýsti ráðið
stuðningi við Ríkisútvarpið í
greindu efni.
í Útvarpslögum nr. 68/1985 seg-
ir á þessa leið: „Ríkisútvarpið skal
leggja rækt við íslenzka tungu,
sögu þjóðarinnar og menningararf-
leifð".
Þetta ákvæði er einn af horn-
steinum Ríkisútvarpsins, enda hef-
ur Ríkisútvarpið verið gangráður
talaðra orða á íslandi í meira en
sex tugi ára. Stofnunin kappkostar
að rækja hlutverk sitt í þessu efni,
og svo mun enn verða á komandi
tíma. Ríkisútvarpið og íslenzk mál-
nefnd eru því samheijar. Góðs er
að vænta af gagnkvæmum stuðn-
ingi hér eftir sem hingað til.
HEIMIR STEINSSON
útvarpsstjóri.
LEIÐRÉTTIN G AR
GSM-kerfi en
ekki GMS
í blaðinu á föstudag (c-blaði) var
missagt að Þorvarður Jónsson væri
framkvæmdastjóri Pósts og síma.
Hið rétta er að hann er framkvæmda-
stjóri fjarskiptasviðs Pósts og síma.
Þá var tala um GMS-kerfi en átti
að vera GSM-kerfí. Blaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistöðum.
Hallbjörg
Bjarnadóttir
syngur ekki
í tilkynningu Ríkisútvarpsins, sem
birtist í síðasta dagskrárblaði um
íslenskan tónlistardag var sagt að
meðal þeirra sem kæmu fram væri
Hallbjörg Bjarnadóttir. Hún er hins
vegar illa kvefur og getur því ekki
sungið.
Bestu þakkir til þeirra, sem glöddu mig meÖ
nœrveru sinni, gjöfum og heillaskeytum d
80 ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Sigvaldadóttir,
Hóli, BjarnafirÖi,
Strandasýslu.
MUNIÐ
Manor House Hotel
HÓTELREKSTUR ERLENDIS
Stofnun hlutafélags um hótelrekstur erlendis.
Þátttökueyðublöð og upplýsingar hjá
Gulli og Silfri hf., Laugavegi 35,
símar 22013 og 20620 og
Manor House hótel
í síma 90 44 803 605164.
DVELJIÐ Á EIGIN HÓTELUM ERLENDIS.
Skilafrestur er til 1. nóvember 1992.
Skilafrestur
framlengdur til
30. nóvember
Vegna fjölda áskorana hefur skilafrestur í sam-
keppni um verðlaunabók Verðlaunasjóðs íslenskra
bamabóka verið framlengdur til 30. nóvember 1992.
íslensku bamabókaverðlaunin 1993 nema 200.000
krónum, auk þess sem höfundur verðlaunabókarinnar
fær greidd höfundarlaun fyrir verkið samkvæmt
samningi Rithöfundasambands íslands og Félags
íslenskra bókaútgefenda.
Sögumar skulu merktar dulnefni en rétt nafn
höfundar látið fylgja í lokuðu umslagi. Allar nánari
upplýsingar eru veittar í síma (91) 688 300.
Utanáskriftin er:
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Vaka-Helgafeli
Síðumúia 6
108 Reykjavík