Morgunblaðið - 24.11.1992, Síða 13

Morgunblaðið - 24.11.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1992 — —i ■ V/ i.i |;, i . r 1—' j.' ‘ ' I V'T ;V< v< Hamrahlíð og Flensborg Leiklist Hávar Sigurjónsson Leikfélög framhaldsskólanna eru kornin á fullan skrið í vet- ur. Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð og Leikfélag Flens- borgar frumsýndu bæði nú und- ir helgina; í Hátíðarsal Hamra- hlíðarskólans sýna nemendur Sex persónur leita höfundar eft- ir Luigi Pirandello og Flens- borgarar sýna í Bæjarbíó Sköll- óttu söngkonuna eftir Eugene Ionesco. Til að færa nokkur rök fyrir því hvers vegna fjallað er um sýning- amar saman í þessum pistli, má segja að hugmyndin að því hafi ekki kviknað fyrr en eftir að horft hafði verið á þær báðar. Skyldleiki verkanna er óumdeilanlegur; Sex persónur leita höfundarer kannski það leikrit - og Pirandello sá höf- undur - sem hvað sterkast tilkall geta gert til þess að eiga undirstöð- uraar í „absúrd" leikhúsi 6. ára- tugarins. Þar er rúmensk-franski höfundurinn Ionesco einna þekkt- astur og Sköllótta söngkonan eitt af hans þekktustu og oftast sýndu leikritum. Hér væri hægt að fara út í langt mál um tengsl þessara verka í gegnum bókmennta- og hug- myndafræði, þeirra nær fjögurra áratuga, sem liggja á milli tilurðar þeirra. Ýmsir „ismar“ koma þar við sögu og þeirra helstir súrreal- ismi og existensíalismi, en skoð- anabræður súrrealista á Ítalíu kenndu sig við fútúrisma og leituðu nokkuð fanga í verk Pirandellos eftir innblæstri. Kannski skiptir þetta engu máli nema þá því að súrrealisminn kemur fram í báðum verkum í umgjörð þeirra og at- burðarás - eða mjög meðvituðum skorti á henni - existensíalisminn birtist í hugmyndafræði höfund- anna um stöðu mannskepnunnar í veröldinni, tilgangi eða tilgangs- leysi, einsemdinni og þeirri óstöðv- andi þörf okkar allra til að eiga einhvers konar tjáskipti þó það sé tilgangslaust; tungumálið heftir tilfinningamar, það getur enginn annar skilið fullkomlega hvaða hugsun býr að baki orðum okkar og stundum eru samræður okkar meiningarlausar með öllu, aðeins aðferð til að fylla upp í hina eilífu yfirþyrmandi þögn sem umlykur okkur á þessari jörð. Og þó að Sartre hafí ekki sett fram kenning- ar sínar um existensíalismann fyrr en á 5. áratugnum og Pirandello, hafí skrifað verk sfn 20 árum fyrr þá breytir það engu; skáld og heim- spekingar höfðu löngu fyrr lagt homsteina að hugmyndum Sar- tres. Þá eru „praktískar" aðstæður beggja þessara sýninga mjög áþekkar, skólanemar standa að þeim svo leikur og kunnátta á því sviði er ámóta mikil - eða lítil - eftir atvikum. Þá eru leikstjórar beggja sýninganna að þreyta fmmraun sína í leikstjóm en koma til verks með nokkuð ólíkan bak- gmnn. Halldór Magnússon leik- stjóri Flensborgara er áhugamaður sem starfað hefur um nokkurra ára skeið með Leikfélagi Hafnar- fjarðar og lært af þeirri reynslu; Asdís Þórhallsdóttir stundar nám í leikstjórn við Listaháskólann í Pétursborg (Leningrad) og er þetta hið fyrsta sem við sjáum til hennar sem leikstjóra. Bæði skila þau ágætu verki, hvort á sinn hátt og þótt verkin geri á ýmsan hátt ólík- ar kröfur til leikenda og leikstjóra. Sex persónur leita höfundar Sex persónur... er viðamikið og margslungið verk sem á sínum tíma vakti mikil og sterk viðbrögð; það braut hefðir í leikhúsi og vís- aði nýja leið. Byijun verksins hlýt- ur út af fyrir sig að hafa verið áfall fyrir áhorfendur. Þegar geng- ið er í salinn blasir við hálfkömð leikmynd á sviðinu, vinnuljós em uppi og leikmunavörður dyttar að einhverju með hamri og nöglum. Síðan byija leikendur að tínast inn á sviðið, leikstjórinn birtist von bráðar og æfíng á væntanlegu leik- riti hefst. Þá tínist inn einkennileg hersing af fólki, fjölskylda, eigin- maður, eiginkona, uppkomin sonur og dóttir, tvö yngri börn. Þetta em sex persónur komnar í leikhúsið til að leita höfundar er vildi taka að sér að klára það verk sem höf- undur persónanna henti frá sér hálfköruðu. Persónumar sex vilja semsagt fá að ljúka því leikriti sem þær vom skapaðar til að vera í. Leikstjórinn og leikarar hans vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið en fallast þó á með semingi að hlýða á sögu persónanna og vita hvort úr verður gert nothæft leik- rit. Viðfangsefni Pirandellos er margslungið en þó má kannski segja að spumingin sem lögð er fyrir áhorfendur sé þessi; hver er hinn eiginlegi raunvemleiki hlut- anna í tilvem okkar? Vandi þessa verks gagnvart nútímaáhorfendum er kannski sá helstur að fátt kemur þeim á óvart lengur. Ásdís ieikstjóri leggur upp með hefðbundna byijun á verkinu; hefðbundnari en höfundur sjálfur leggur til, með því að myrkva sal- inn og heQa síðan leikinn á „ljósum upp“. Uppmnalegur „fáránleiki" þessa verks felst í þeirri andstæðu sem skapast milli fullkomlega þekkjanlegs umhverfis - gamal- dags leikhúss þar sem hefðbundin leikæfing er að hefjast - og þeirrar undarlegu uppákomu sem verður þegar sex persónur ráfa inn í sal- inn,. í leit að höfundi. Stílfærsla Ásdísar virðist mér draga úr þess- ari mótsögn og gerir ótrúlega at- burðarásina á vissan hátt trúverð- ugri. Á hinn bóginn er leikstjóm Ás- dísar mjög markviss og sá stíll sem hún velur sýningunni er samkvæm- ur sjálfum sér og heldur sér allt til loka. En stíll er aldrei annað en yfirbragð og getur reynst fjötur um fót ef hann er mótaður sem rammi er leikritið á síðan að falla í, hvort sem því líkar betur eða ver. í leik- riti af þessari lengd og með slíka breidd, er alveg óhætt að bijóta upp stílinn - gefa nýja innspýtingu - af meðvituðu kæmleysi. Leikendur standa sig eftir atvik- um vel; hér er mikið lagt á sig, textinn orðmargur og á köflum efnislega þungur en skilaði sér engu að síður. Sigurður Guð- mundsson, Ásta Björg Stefáns- dóttir og Njörður Siguijónsson áttu þar stærstan hlut og stóðu sig vel. Sköllótta söngkonan Efni þessa einþáttungs er f sjálfu sér einfalt, þ.e. klisjukennt innihaldsleysi þeirra samtala sem fólk lætur sér um munn fara við flest tækifæri. Textinn er saminn af nöpm háði, endurtekningar em notaðar til að undirstrika hugsun- arleysi persónanna sem eru ekkert annað en stórlega ýktir fulltrúar smáborgaranna. Þetta er á margan hátt vandmeðfarið verk og fyndni þess liggur ekki á lausu, heldur í hámákvæmri og vandlegri vinnu Ieikara og leikstjóra við smávægi- legustu áherslubreytingar í textan- um og útfærslu svipbrigða. Það kom mér hreinlega töluvert á óvart hversu langt leikstjórinn, Halldór Magnússon, hefur náð með leik- endum sínum í þessa átt. Þarna hefur greinilega verið unnið af alúð og samviskusemi, og niðurstaðan er sú að margt smátt gerir eitt stórt. Peter Tompkins, óbóleikari, Helga Ingólfsdóttír, semballeikari og Örnólfur Kristjánsson, sellóleikari. Barokktónlist á fjórðu Há- skólatónleikum vetrarins FJÓRÐU Háskólatónleikar vetr- arins verða miðvikudaginn 25. nóvember í Norræna húsinu og hefjast kl. 12.30. Flytjendur tón- listar verða Helga Ingólfsdóttír, semballeikari; Peter Tompkins, óbóleikari og Ömólfur Krislj- ánsson, sellóleikari. Á efnisskrá verða barokkverk eftir Tele- mann, Sammartini og Hándel. Flutt verður sónata í a-moll úr „Der getreue Musikmeister" eftir Telemann, sem var eitt afkasta- mesta tónskáld barokktímans. Tónlist hans þótti fjölbreytt og sónatan býður upp á líflegan og ferskan andblæ fremur en tækni- legt sýnispil. Það var þessi ferski andblær sem Telemann kynnti í þýskri tónlist og færði honum mest lof, segir í fréttatilkynningu. Sammartini var ítalskur óbóleik- ari og tónsmiður. Hann flutti til London árið 1728 og átti mikilli velgengni að fagna. Eftir hann verður flutt sónata í G-dúr, op. 13 nr. 4. Síðasta verkið á efnisskránni er sónata í F-dúr, op. 1 nr. 5 eftir Hándel. Verkið var gefíð út í Lond- on árið 1730. Aðgangur er kr. 300 en kr. 250 fyrir handhafa stúdentaskírteinis. Bókhlöðustígur Til sölu neðri sérhæð á Laufásvegi 47, Reykjavík, sem er um 172 fm. íbúðin er 2 svefnherb., bókaherb., saml. stofur, skáli, garðstofa, þvottah. og sérgeymsla í.kj. Lögmannsstofan sf., Síðumúla 1, sími 688444. Hafsteinn Hafsteinsson, hrl., Guðný Björnsdóttir hdl. Hrund Hafsteinsdóttir, hdl. Um 188 fm einbýlishús, endurbyggt og í góðu standi. Húsið er steyptur kjallari og 2 hæðir. Fagrabrekka - Kóp. Einbýlishús, íbúðarhæð um 133 fm og í kj. eru 90 fm, 24 fm bílsk. Upphituð innkeyrsla. Skipti möguleg. Ofanleiti 23 Vönduð og falleg 4ra herb. endaíbúð, 104 fm á 3. hæð. Bílskúr og tvennar svalir. Áhv. byggingarsjóðslán um 6,0 millj. Fossvogur - Snæland Einstaklingsíb. á jarðh. um 30 fm. íb. er laus. Æ FASTEIGNASALAN |rf= HTClTITnif 2ja herb. Leifsgata: Falleg, snyrtil. 41 ! fm einstaklíb. á 1. hæð í góðu steinh. | Góðarinnr. Parket. Laus strax. V. 3,4 m. | Melabraut: Mjög snotur | | 2ja herb. risíb. á 2. hæð. Nýl. eldhinnr. Parket. Suðursvalir. Áhv. 2,5 millj. I hagst. lán. Verð 4,7 millj. Safamýri - góð lán: Góð 50 fm kjíb. í fjölb. Sórlnng. Fráb. I staðsetn. Áhv. byggsj. 3,4 millj. Verð | 5,2 millj. Blikahólar: Falleg 55 fm íb. í góðu lyftuh. Falleg sameign og lóð. I Verð aðeins 4,7 millj. 3ja herb. Þórsgata: Snotur 62 fm íb. I á götuhæð með sérinng. Talsv. endurn. Verö aðeins 4,8 millj. | Vesturgata: Rúmgóö 95 fm íb. á 1. hæð i steyptu I , uppgerðu fjölbhúsi. Áhv. byggsj. 4,7 | millj. til 40 ára. Verð 7,5 millj. Lyngmóar - Gbæ: I Glæsil. og vönduð 76 fm ib. á 3. hæð I (efstu) ásamt góðum bílskúr. Stórar | suðursv. Sameign í góðu standi. Áhv. | húsbr. 3,8 millj. Austurströnd: Gullfalleg I j 3ja herb. íb. í lyftuh. Stórar svalir. Upp- | j hitað bílskýli. Þvottah. á hæðinni. Áhv. | byggingarsj. 2,1 millj. Kleppsvegur: Falleg og I | björt 3ja-4ra herb. 89 fm ib. á 1. hæð. Nýjar sérsmíðaðar innr. í eldhúsi og [ svefnherb. Parket á stofu. Suðursv. f Laus strax. Verð aðeins 6,6 millj. Sörlaskjól - stór I bílskúr: Góð ca 85 fm hæð í [ þríb. á þessum rólega stað ásamt 60 fm bílskúr. Áhv. byggsj. 4,5 millj. Laus fljótl. Verð 8,7 millj. 4ra-6 herb. Maríubakki: Falleg og I | talsv. endurn. íb. á 1. hæð. Svalir í suð- vestur. Þvottah. og geymsla i íb. Góð sameign. Áhv. byggsj. 2,4 millj. Verð | | 7,6 millj. Boðagrandi: Falleg og | j rúmg. 95 fm íb. á 1. hæö. Tvennar sval- ir. Góð sameign. Húsvörður. Bílskýli. | | Áhv. hagst. lán ca 3,2 millj. Verð 8,9 m. Leirubakki: Falleg og rúmg. I I 4ra-5 herb. íb. 121 fm ásamt ca 25 fm I góðu herb. í kj. Skiptist m.a. í hol, stofu | og 3 góð herb. Þvottah. og geymsla i I j íb. Áhv. hagst. lán kr. 2,6 millj. Laus strax. Verð 8,7 millj. Eiðistorg: Góð 130 fm íb. á I 4. hæö í góðu lyftuh. Laus fljótl. Skipti | | möguleg á 3ja herb. íb. Áhv. byggsj. 1,0 millj. Verð 9,9 millj. Keilugrandi: Gullfalleg ca I 125 fm „penthouse“-íb. á 2. og 3. hæð | (endaíb.). Neðri hæð: Stofur, 2 svefn- | herb., eldhús og bað. Efri hæð: Svefn- | herb., sjónvstofa og baöherb. Sór!. I vandaðar innr. Flisar, parket. Bílskýli. Verð 10,8 millj. Stærri eignir Þingholtin: storgiæsii. 192 I fm íb. á tveimur hæðum i góðu steinh. I í hjarta borgarinnar. Vandaðar innr. og gólfefni. Þrennar svalir. Sauna. Þvottah. j i ib. Mikil geymslurými í kj. Sérbílast. Laus strax. Áhv. 7 millj. langtl. [ Seltjarnarnes: Glæsil. I 205 fm raðh. á tveimur hæðum m. innb. ! bílsk. Sólstofa. Suöursv. Heitur pottur I í garði. Vönduð eign. Verð 14,9 millj. [ RUNÓLFUR GUNNLAUGSSON, rekstrartiagfr. | KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, viSskiptafr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.