Morgunblaðið - 24.11.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1992
17
Hugo Simberg: Kartöflustúlkan. Olía á striga, 1901.
asti stjómmálaleiðtogi þeirra og fyrr-
verandi forseti hafi verið ómerkilegur
Rússadindill. Á slíkum tímum hefur
þjóðin enn meiri þörf en áður fyrir
hetjur úr sögu sinni, og því má ætla
að „gullöldin" í myndlist Finna og
þeir listamenn og þjóðemissinnar,
sem hæst bar á þeim tíma, verði enn
mikilvægari en fyrr.
Sýningin „Finnsk aidamótalist" í
Listasafni íslands við Fríkirkjuveg
stendur til sunnudagsins 13. desem-
ber og er rétt að hvetja alia listunn-
endur til að nota vel þetta tækifæri
til að sjá nokkur helstu verk þeirra
myndlistarmanna, sem átti dijúgan
þátt í að skapa þjóðarvitund og frels-
isþrá frændþjóðar okkar.
Husavík
Jeppi á Fjalli frumsýndur
Húsavík.
LEIKFLOKKUR Framhaldsskól-
ans á Húsavík, sem kallar sig
Piramus og Pispa, frumsýndi í
Samkomuhúsinu hinn gamal-
kunna gamanleik, Jeppa á Fjalli,
sl. fimmtudagskvöld fyrir fullu
húsi og við mjög góðar undirtekt-
ir áheyrenda enda hefur mjög
verið vandað til þessarar sýning-
ar.
Leikstjóri er Sigurður Hallmars-
son sem jafnframt leikur aðalhlut-
verkið og er hann uppistaðan í þess-
ari góðu sýningu og veitir hinum
ungu leikumm mikinn styrk. Mörg
þeirra leysa hlutverk sitt vel af.
hendi og sem áður er góður for-
Nýjar bækur
Skáldsaga
eftir Krist-
ínu Omars-
dóttur
ÚT ER komin skáldsagan Svart-
ir brúðarkjólar eftir Kristínu
Ómarsdóttur.
I kynningu útgefanda segirm.a.:
„Sagan fjallar um ástina í öllum
sínum myndum, grimma, ljúfa,
ljóta, fallega, grófa, fínlega og
fyndna. Ótal persónur koma við
sögu, hver með sinn uppruna, hver
með sína þrá og leitin að ástinni
leiðir þær saman og sundur og
sundur og saman.
Kristín Ómarsdóttir hefur áður
samið leikþætti og sent frá sér
eina ljóðabók og tvær sögubækur.
Svartir brúðarkjólar er fyrsta
skáldsagna og geymir þó öll form
skóli fyrir frekarar starf hjá Leikfé-
lagi Húsavíkur. Sviðsmynd er gerð
af leikstjóranum Sigurði og Birgi
Steingrímssyni.
Jeppi á Fjalli var sýnduur hér í
sumar af dönskum leikflokki og
áður var leikurinn sýndur hér á
sviði fyrir um 70 árum og lék þá
afi Sigurðar, Helgi Flóventsson, tit-
ilhlutverkið en Helgi þótti þá einn
besti og skemmtilegasti leikari síns
tíma á Húsavík.
Væntanlega verður sýning þessa
unga fólks vel sótt, því hér er um
góða skemmtun að ræða.
- Fréttaritari.
Kristín Ómarsdóttir
sem hún hefur áður fengist við.“
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 255 bls., prentuð í G.
Ben. prentstofu hf. og kostar
2.480 krónur.
Guðbergur Bergsson og Þóra
Kristín Asgeirsdóttir.
Viðtalsbók
við Guðberg
Bergsson
ÚT ER komin bókin Guðbergur
Bergsson metsölubók. Þóra Krist-
ín Ásgeirsdóttir ræðir við skáldið.
í kynningu útgefanda segir:
„Þetta er engin ævisaga, og þó ..."
segir Guðbergur. Engu að' síður
kemur hann víða við og lýsir á
ógleymanlegan hátt reynslu bernsk-
unnar í Grindavík, trúr þeirri skoðun
sinni að það landslag og umhverfi
sem maðurinn elst upp við í æsku
verði að hugarfylgsni, skapgerð og
þankagangi hans síðar á ævi. Hann
rekur síðan veru sína í Reykjavík
og á Spáni, lýsir kynnum sínum af
spænskum bókmenntum og menn-
ingu, leiðinni til skáldskapar og ör-
læti listarinnar, og fjallar tæpit-
ungulaust um muninn á heimsmenn-
ingu og heimóttarskap. Bókin geym-
ir einnig merkar heimildir um SUM-
félagsskapinn og þann tíðaranda
sem ríkti á íslandi er fyrstu skáld-
sögur Guðbergs komu út.“
Útgefandi er Forlagið. Guð-
bergur Bergsson metsölubók er
227 bls., prýdd miklum fjölda
mynda. Jón Ásgeir Hreinsson
hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði. Verð 2.980 krónur.
...BÆTA TM TRYGGINGAR TJÓNIÐ!
Tryggingamiðstöðin hefur starfað
á íslenskum vátryggingamarkaði í
áratugi og er nú þriðja stærsta vá-
tryggingafélag landsins. Félagið er
leiðandi í fiskiskipatryggingum
landsmanna, en býður einnig allar
almennar vátryggingar fyrir .
einstaklinga svo sem bifreiða-,
fasteigna- og fjölskyldutryggingar.
í nýlegri könnun kom fram sterk
staða Tryggingamiðstöðvarinnar í
allri þjónustu við viðskiptavini
sína, t.d. símaþjónustu, upplýsinga-
gjöf og persónulegri þjónustu.
Við erum sveigjanleg í samningum,
bjóðum góð greiðslukjör og sann-
gjarna verðlagningu.
Hafðu samband við sölumenn
Tryggingamiðstöðvarinnar í nýjum
húsakynnum í Aðalstræti 8,
sími 91-26466 eða næsta umboðs-
mann og kynntu þér góð kjör á
TM tryggingum.
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
Aöalstræti 6-8, sími 91-26466