Morgunblaðið - 18.12.1992, Side 15

Morgunblaðið - 18.12.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 í LÍFSINS ÓLGUSJÓ 15 Drauma jolagjöfin þeirra... Bókmenntir Skafti Þ. Halldórsson Guðjón Símonarson Stormur strýkur vanga Minningar Guðjóns Simonarsonar Ólafur Haukur Símonarson bjó til prentunar Forlagið 1992, 352 bls. Það geisar stornjur um síður ævi- sögu Guðjóns Símonarsonar sem réttnefnd er Stormur strýkur vanga. Þar segir ekki einungis frá stórviðr- um á hafi úti heldur einnig frá stormasamri ævi Guðjóns og ekki síst ólgunni í bijósti hans. Ólfur Haukur Símonarson rithöf- undur, sonarsonur Guðjóns, hefur búið söguna til prentunar. Hún er ekki ný .af nálinni. Líklegt er að Guðjón hafi byijað að rita hana í kringum 1950 og unnið að henni áratuginn næsta þar til hann féll frá 1962. Ég tel útgáfu þessa töluverðan feng. ólafur Haukur hefur unnið þarft verk við að koma á framfæri þessari lífssinfóníu afa síns. Saga Guðjóns er i hópi þeirra ævisagna alþýðu- og erfiðismanna sem í senn er lífssaga, aldarfarslýs- ing og menningarsaga. Hún leiðir hugann að bestu verkum greinarinn- ar, s.s. / verum eftir Theódór Frið- riksson og ævisögubók Tryggva Emilssonar þótt nokkuð standi hún þeim að baki. Að sönnu átti Guðjón ekki til stílsnilld Tryggva eða hrif- næmi og náttúruskynjun Theódórs. 1 Raunar er fremur dimmt yfir sögu hans. Hún er átakasaga. En sögu- maðurinn sjálfur hefur verið innst inní eldfjalli af manni, samkvæmt eigin lýsingu, þótt jökulhettan hafí hlaðist ofan á. Það eru því ekki lítil umbrot þegar tekur að loga og sú umbrotasaga er um margt áhrifa- mikil og stórbrotin. Saga Guðjóns er saga af harðri lífsbaráttu. I æsku bjó hann við fá- tækt og harðræði á Alftanesi, var oft sendur í vist þar sem hann mátti þola sult og jafnvel misþyrmingar. Ungur að aldri fer hann til Aust- íjarða í sjóróðra og verður fljótt for- maður á báti og aflakló. Gerir hann út frá Mjóafirði en síðar einkum frá Norðfirði þar sem hann býr lengi. Hann tekur þátt í þeirri atvinnulífs- byltingu sem verður þegar vélbátaút- gerð kemur til sögunnar og við kynn- umst ýmsu í samskiptum sjómanna, útgerðarmanna, yfirvalda og kaup- manna. Seinna á ævinni hverfur Guðjón aftur suður og rekur verslun í Reykjavík og í Höfnum. Inn í þessa frásögu fléttast sögur af stórviðrum, fólki sem verður úti, fundi á barnslíki, ást í meinum, sjó- róðrum, aflabrögðum og manntöpum en einnig skýrir Guðjón frá átökum við útgerðarmenn, upphafi verka- lýðshreyfingarinnar á Norðfírði og deilum við yfírvöld. Guðjón Símonarson var greindur alþýðumaður með ýmsar langanir og þrár sem hið snauða og harðneskju- lega samfélag 19. aldar og í upphafi þeirrar 20. átti erfitt með að með- taka og kæfði stundum af miskunn- arleysi forheimskunnar. Þetta hefur mótað Guðjón. En auk þess hefur hann verið baráttumaður að upplagi. Sem lítið bam lenti hann iðulega í vandræðum vegna menntunarþrár Guðjón Símonarson sinnar. Var hann jafnvel barinn til óbóta fyrir að vilja læra að lesa og skrifa. Hann gefst þó aldrei upp heldur berst um eins og nýfangað villidýr fullur af frelsisþrá, menntun- arvilja, hugrekki, einurð og stað- festu. Þannig nær hann að sanka að sér hinum og þessum þekkingar- molum. Hann lærir að draga til stafs, nemur skósmíðar, kynnir sér ýmis- legt í læknisfræði og aflar sér kunn- áttu í orgelleik. Við og við fáum við athyglisverða innsýn inn i hugarstríð Guðjóns í hnitmiðuðum texta. Það er ekki laust við að kenni beiskju í frásögu af fermingu en vegna fá- tæktar foreldra varð Guðjón að ferm- ast í lánsskóm: „Leitt þótti mér að fermast á lánsskóm, en það mun með öðru hafa verið orsök þess að ég lærði síðar skósmíðar; ég ætlaði ekki að láta mín börn fermast á lánsskóm.“ (59.) Hann er heldur aldrei sáttur við þau uppeldisskilyrði sem hann bjó við og segir um for- eldra sína að honum hafí oft sárnað við þá „af því mér virtist þau áhuga- laus um framtíð mína“. (96.) En hann viðurkennir þó að hans versti óvinur hafí verið „fátæktin og hefðin sem sagði að fátæklingamir ættu ekki að vera að sperra sig.“ (96.) Baráttuþrek Guðjóns, kapp hans og bitur reynsla æskuáranna gerir hann einnig harðan í lund og ef til vill kemur sú harða lund í veg fyrir að hæfíleikar hans á ýmsum sviðum fái notið sín til fulls. Skapbrestir hans yfírgnæfa studnum mannkost- ina. Oft verður þannig texti bókar- 'innar heiftúðugur og dómharður. Guðjón hikar ekki við að nefna menn „erkisvikara". (326) eða tala um „mannorðsmorðingjann Begga fína“ (346), þann ómerkilega lygalaup. Gætir stundum fordóma í þessum skrifum. Um léleg vinnubrögð í Ís- húsinu í Höfnum kemst hann svo að orði: „Mér var næst að halda að starfsmennirnir hafi flestir verið Reykvíkingar, þvílík óttaleg letiblóð voru þeir.“ (345.) Og um íbúa í Höfn- um yfirleitt segir hann: „Því lengur sem ég dvaldi í Höfnum því meira leiddist mér fólkið." (346.) Langræk- inn hefur Guðjón einnig verið svo að það náði jafnvel út yfír gröf og dauða. Hann átti löngum í útistöðum við bræðuma frá Brekku í Mjóafirði, Ólafur Haukur Símonarson þá Vilhjálm Hjálmarsson, hrepp- stjóra, og Konráð bróður hans, kaup- mann enda beittu þeir hann ýmiss konar órétti. Samkvæmt Guðjóni lét Konráð menn sína einu sinni fara aðför að honum, í þetta skiptið eða annað og vísaði honum á annan stað: „Ég vísaði honum á þá leið og biðja Guð fyrirgefningar, þangað hefði ég sjálfur snúið mér á erfiðum stundum í lífí mínu.“ (193.) Þjóðlífslýsingar eru allnokkrar í bókinni. Beiskja höfundar er ekki ástæðulaus. Ótrúlegri grimmd í garð smælingja er lýst, áhrifum vist- arbands, barnaþrælkun og annars konar kúgun. Guðjón er einn af brautryðjendum verkalýðshreyfing- arinnar á Norðfirði en hann missir fljótlega trú á henni enda virðist hann vera vegna skaphafnar sinnar og ævireynslu af hugsjón og upplagi og sem slíkur dæmdur til ósigurs. Einnig var Guðjón frumkvöðull hvað varðar söng og tónmenntir þarna eystra og hefur tónlistin verið honum mikill gleðigjafí. Stíllinn á bókinni er fremur eins- leitur. Setningaskipan er jafnan ein- föld og málfarið óbrotið og alþýð- legt. Oft eru setningar hnitmiðaðar en sjaldan sjáum við skáldlegt flug. Málfarið gæti virst landkröbbum í hinni lötu Reykjavík framandlegt. Það er oft á tíðum tækniorðaskotið sjómannamál og málsniðið eftir því. Frásagnirnar eru margar hveijar mergjaðar og halda oft athygli les- anda vel en stundum verða þó sögur af útróðrum og aflabrögðum full keimlíkar. Guðjón dregur oftast eigin taum í frásögninni svo að lesandi verður að beita eigin dómgreind og vega og meta hana. Frágangur bókarinnar er góður að mestu leyti og rit- og prentvillur ekki áberandi. Bókinni fylgir nafna- skrá. Stormur strýkur vanga er með athygliverðustu ævisagnaritum síð- ari ára. Hún er saga átaka og mann- dómsrauna en jafnframt saga biturr- ar lífsreynslu. Hún fegrar ekki en segir okkur sannleikann um eymd, fátækt og grimmd þjóðfélags 19. aldarinnar og baráttu stétta og ein- staklinga í upphafí þerrar 20. Hún er í senn saga eisntaklinga og samfé- lags. SKÓVERSLUN, BORGARKRINGLUNNI, SÁNti 677267 NYJAR BÆKUR ejjtiblív.inAcela UöjfUnéa; Theresa Charles Barbara Cartland ErikNeriöe SKUCCS)Á BÓKABÚD OUVERS STEINS SF.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.