Morgunblaðið - 18.12.1992, Page 30
ko
MÖRGÚNBLAÐÍÍE)' FbétuBAbÖR' 18.4
JDMOK
1992
íslenska þjóðin arð-
rænd í sextíu ár
eftirJóhönnu Trygg-
vadóttur Bjarnason
Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
er nú verið að flytja mál gegn við-
skipta- og utanríkisráðherra svo
og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
vegna synjunar á beiðni á útflutn-
ingi á sjö þúsund tonnum af blaut-
verkuðum saltfíski til Portúgals að
andvirði 20 millj. Bandaríkjadala
árið 1980 og einnig vegna synjunar
á útflutningi á 10-20 þús. tonnum
af flöttum, blautverkuðum saltfíski
til Grikklands 1981 á 2.300 banda-
ríkjadali tonnið.
Kröfur stefnanda eru:
1) Að staðfestur verði með dómi
Héraðsdóms Reykavíkur réttur
stefnanda, Jóhönnu Tryggvadóttur
Bjarnason f.h. umboðssölu sinnar,
til að flytja út saltfísk héðan til
Grikklands að fullnægðum glögg-
um, lögákveðnum, efnislegum skil-
yrðum um kaup, framleiðslu og
sölu saltfísks.
2) Að staðfest verði með dómi
Héraðsdóms að beiting ákvæða 13.
gr. laga nr. 63/1979 um skipan
gjaldeyris- og viðskiptamála til að
synja um leyfí til útflutnings salt-
físks brjóti gegn ákvæðum 69. gr.
stjómarskrárinnar, nr. 33/1944, og
sé synjun um útflutningsleyfí
byggð á því ógild.
Akvæði 13. gr. hljóðar þannig:
„Ráðuneytinu er heimilt að ákveða
að ekki megi bjóða, selja eða flytja
út vörur til útlanda nema að fengnu
leyfí. Útflutningsleyfi getur ráðu-
neyti bundið skilyrðum sem nauð-
synleg þykja. Útflytjendur eru
skyldugir til að veita ráðuneytinu
þær upplýsingar sem það óskar um
allt er varðar sölu og útflutning
vara sem seljast eiga til útlanda."
„Bráðabirgðalög
um heimild fyrir ríkisstjórnina til
íhlutunar um sölu og útflutning á
fískframleiðslu ársins 1933.
Vér Christian hinn 10, af guðs
náð konungur íslands og Danmerk-
ur, Vinda og Gauta, hertogi í Slés-
vík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þétt-
merski, Láenborg og Aldinborg,
Gjörum kunnugt: Dóms- og út-
vegsmálaráðherra Vor hefír tjáð
Oss, að nauðsynlegt sé, að ríkis-
stjórnin fái heimild til þess fyrst
um sinn að hafa íhlutun um sölu
og útflutning á fískframleiðslu árs-
ins 1933, í því skyni að tryggja og
festa það samstarf útvegsmanna,
er hófst á þessu ári og leiddi til
stofnunar Sölusambands íslenskra
fískframleiðenda. Sé sala og út-
flutningur nýju fískframleiðslunnar
ÍSLANDSBANKI
Hluthafafundur
Hluthafafundur í íslandsbanka h.f. verður
haldinn mánudaginn 21. desember n.k.
í Átthagasal Hótels Sögu og hefst kl. 16:00.
Fundarefni
1. Tillaga um sameiningu Eignar-
haldsfélagsins Iðnaðarbankinn
hf. og Eignarhaldsfélags Versl-
unarbankans h.f við Islands-
banka hf
2. Tillögur um breytingar á sam-
þykktum félagsins:
a) Að enginn hluthafi geti farið
með fleiri atkvœði á hluthafa-
fundum en sem nemur 20% af
atkvœðum í bankanum.
b) Að ákvörðun um breytingu á
samþykktum bankans þurfi að
hljóta samþykki 213 hluta
greiddra atkvœða og samþykki
hluthafa sem ráða yfir minnst
213 hlutum þess hlutafjár sem
farið er með atkvœði fyrir á
hluthafafundi.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir í íslandsbanka h.f., Bankastræti 5
(4. hæð), Reykjavík, 18. desember sem og á
fundardegi.
Dagskrá fundarins og tillögur liggja frammi á
sama stað.
Bankaráð íslandsbanka hf.
með öllu fijáls, eru líkur til að það
valdi verðlækkun á eldri fískbirgð-
um, en einkum þó á nýju framleiðsl-
unni. Mundi slíkt verðfall færa yfír
Sölusambandið utan og innan að
komandi hættur, sem sennilega
mundu ríða þessum þörfu samtök-
um að fullu, og á þann hátt stór-
skaða íslenzka framleiðendur, bæði
þá er eiga fiskbirgðir liggjandi hér
í landinu, en þó aðallega væntan-
lega eigendur nýju framleiðslunn-
ar.
Þar sem nú svo er ástatt, sem
að framan greinir, teljum Vér
brýna nauðsyn bera til þess að
gefa út bráðabirgðalög um þetta
efni, samkvæmt 23. gr. stjórnar-
skrárinnar frá 18. maí 1920.
Fyrir því bjóðum Vér og skipum
þannig:
1. gr.
Ráðherra er heimilt að skipa svo
fyrir, að á tímabilinu frá 1. janúar
til 1. apríl 1933 megi ekki, nema
með samþykki Sölusambands ís-
lenskra fískframleiðenda, flytja eða
selja til útlanda saltaðan fisk, hvort
sem hann er verkaður eða óverkað-
ur, ef hann er lagður á land eftir
1. janúar 1933.
2. gr.
Brot gegn banni, sem út er gef-
ið samkvæmt 1. gr., varðar sekt
allt að 25 kr. fyrir hvert skippund
físks, sem út hefír verið flutt eða
selt.
Með brot gegn lögum þessum
skal farið sem almenn lögreglumál.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Eftir þessu eiga allir hlutaðeig-
endur sér að hegða.
Gjört á Christiansborg, 5. desember
1932.
Undir Vor konunglega hönd og
innsigli
Christian R.
(L.S.)
Olafur Thors“
Bráðabirgðarlög þessi hafa verið
gefin út að beiðni ríkisstjómar
Jóhanna Tryggvadóttir Bjarna-
son
„Afleiðing undirboðs
SIF var sú fyrir Islend-
inga í sjávarútvegi að
möguleg 50% launa-
hækkun til sjómanna á
fiskiskipum og 20%
launahækkun til fisk-
verkafólks var eyðilögð
en sá var grunnurinn í
samningum Umboðs-
sölu JTB, bæði við Port-
úgali og Grikki.“
Ásgeirs Ásgeirssonar 1932 er Ólaf-
ur heitinn Thors var dóms- og út-
vegsráðherra.
EFTA
Sem betur fer náðu íslendingar
sér á strik eftir síðari heimsstyij-
öldina og með nýjum skipum og
EFTA var löngu orðið tímabært
að gefa Islendingum frelsi í útflutn-
ingi. Þegar umboðssala JTB yfírtók
ísportó-samningana við Portúgali
að beiðni Svavars Gestssonar, þáv.
ráðherra, og stóð í samningum við
Grikki, var bæði ísland og Portúg-
al í EFTA og því markaðsfrelsi
milli landanna. Viðskiptaráðuneyt-
ið vann þá vítavert skemmdarverk
á viðskiptahagsmunum þjóðarinnar
með synjun á útflutningsleyfí Um-
boðssölu JTB þangað.
Þetta hefði verið fyrirgefanlegt
sem gildir út desember!
Slípivélar - borvélar!
Slípi- og bónvél TXE150
Verð áður: 20.774 kr.
Verð nú: 16.498 kr.
Juðari VS-230
Verð áður: 10.416 kr.
Verð nú: 7.998 kr.
Borvél SBE 500 R
Borhamar PHE 20RL-N
Verð áður:9.562 kr. Verð áður:30.353 kr.
Verð nú: 7.998 kr. Verð nú: 25.498 kr.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8-9. Sími 38820
hefði vanþekkingu verið um að
kenna, en þegar ráðuneytið fjallaði
um útflutningsbeiðnir okkar þá var
SÍF haft með í ráðum í samræmi
við ofangreind bráðabirgðalög nr.
90 frá 1932, er gilda áttu í þijá
mánuði frá 1. jan. til 1. aprfl 1933.
Ef þetta væri ekki svona alvarlegt
mál þá væri þetta stórkostlegur
brandari.
Verkunaraðferð stolið
Þar sem okkur hafði verið gert
skylt að leggja fram með ofan-
nefndum leyfísumsóknum verkun-
araðferð okkar á blautverkuðum
saltfíski, komst SÍF yfír verkunar-
aðferðina og kallaði hana síðan
tandurfisk. Verkunaraðferðinni
stálu þeir frá okkur á sama hátt
og bankaræningjar stela fé úr
banka.
SÍF hafði tekið sér einkaleyfí á
útflutningi saltfísks til Portúgals í
krafti téðra bráðabirgðalaga og
hélt því í sextíu ár án nokkurrar
heimildar í lögum nema fyrstu þijá
mánuði ársins 1933.
Vegna mikilla tafa í afgreiðslu
umsóknar Umboðssölu JTB um
útflutning á téðri vöru til Portúg-
als, settist ég upp í Viðskiptaráðu-
neytið með svefnpoka og nesti, al-
búin að bíða þess að málið yrði
afgreitt. Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri og Stefán Gunn-
laugsson deildarstjóri reyndu að
reka mig út en Tómas Árnason
ráðherra leyfði mér að vera. Var
ég því vitni að því er öll stjóm SÍF
kom til fundar við ráðherra til að
ljalla um umsókn okkar. Er það
hið undarlegasta mál og skýrir þau
tök sem SÍF hafði á ráðuneytinu.
Undirboð SÍF
Eftir nefndan fund var ég aðvör-
uð um undirboð SÍF í Portúgal. 7.
ágúst 1980 fékk það útflutnings-
leyfi frá Viðskiptaráðuneytinu hér
fyrir 800 tonnum af saltfíski á
miklu lægra verði en okkar samn-
ingar sögðu til um og var það við-
bót við 20 þúsund tonna leyfi sem
það hafði fengið 18. apríl sama ár
og fullnýtt. 12. ágúst sendi ég að-
vörunartelex frá Portúgal til fímm
ráðherra í ríkisstjórn Ólafs Jóhann-
essonar um undirboðið. í votta við-
urvist reif Þórhallur Ásgeirsson
telex-skeytið úr vélinni og það
hvarf. Fengu ráðherrarnir það ekki
í hendur fýrr en eftir heimkomu
mína er ég afhenti þeim afrit af
því en þá var það orðið of seint.
Telst það refsivert athæfí að taka
skjöl ráðherra í ríkisstjórn og eyði-
leggja þau eða fela.
Rétt stjómvöld í Portúgal vom
orðlaus yfír framferði SÍF og Við-
skiptaráðuneytisins þar sem aukið
frelsi í saltfiskinnflutningi til lands-
ins hafði verið veitt aðilum er til
þess höfðu unnið með útflutningi
frá Portúgal, en slíku leyfí höfðu
viðsemjendur okkar áunnið sér.
Möguleg launahækkun til
sjómanna og fiskverkafólks
eyðilögð með undirboði
Afleiðing undirboðs SÍF var sú
fyrir Islendinga í sjávarútvegi að
möguleg 50% launahækkun til sjó-
manna á fískiskipum og 20% launa-
hækkun til fiskverkafólks var eyði-
lögð en sá var grunnurinn í samn-
ingum Umboðssölu JTB, bæði við
Portúgali og Grikki. Allir útreikn-
ingar þar að lútandi vom unnir af
fagmönnum (rekstrartæknifræð-
ingum) í fullu samráði við okkur
og viðsemjendur okkar. Sjómenn
hafa nú þegar í gegnum fískmark-
aði fengið sína kauphækkun. Eftir
er að ná fram 20% kauphækkun
til fískverkafólks sem á að vera
hægur vandi með góðum samning-
um og stuðningi réttsýnna stjórn-
valda.
Útflutningsbeiðnir til Portúgals
hljóðuðu upp á 1% umboðslaun til
umboðsmanna. Margir hafa tjáð
mér að SÍF hafí á þessum tíma
yfírfært 2% umboðslaun. Helming-
inn hafí Leif Dundas, umboðsmað-
ur SÍF í Portúgal, fengið, allt að
einni milljón dala á ári. Hvert fór
hitt eitt prósentið? Þetta fékk ég
upplýst hjá gjaldeyrisdeild Seðla-
bankans 1980. Mér er tjáð að vegna
bankaleyndar þyrfti dómur að