Morgunblaðið - 18.12.1992, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 18.12.1992, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 62 Krislján G. Jónas- son - Minning Fæddur 8. apríl 1918 Dáinn 29. nóvember 1992 Kristján frændi er látinn eftir langvinna baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Hann fæddist á Sléttu í Sléttuhreppi, Norður Ísaíjarðar- sýslu, sonur hjónanna Jónasar Dósóþeussonar og Þórunnar Brynj- ólfsdóttur. Fullu nafni hét hann Kristján Gunnar Sveinn. Afi og amma áttu auk Kristjáns fímm dætur; Siguijónu, Þorvaldínu, Fanneyju, Margréti og Brynhildi. Þótt dæturnar tækju einnig til hendinni við dæmigerð karlmanns- verk, þá lá það í hlutarins eðli að búsýslan yrði snar þáttur í störfum Kristjáns og hvíldi á hans herðum þegar foreldrarnir tóku að reskjast. Nú á tímum gera fáir sér grein fyrir stritinu við búskap á fyrri hluta aldarinnar. Orf, ljár, hrífa og klakk- ur voru tækin við heyskapinn. Síðan varð að treysta á guð og lukkuna hvort þannig áraði að gras sprytti og þurrkur yrði nægur svo að taðan næðist í hús. En stritið herti og stælti svo að undrum sætir. Náttúr- an, maðurinn, lífsbaráttan, þetta var þrenningin sem tilveran snerist i um og hún var ekki alltaf hættu- laus. Bam að aldri var Kristján einu sinni sendur eftir kindum sem farið höfðu upp í íjall girt klettabeltum. Þetta var að vori til og klaki ekki farinn úr jörðu. Skyndilega skreið jörðin undan fótum hans og hann rann með skriðunni niður hlíðina. Á klettabrúninni tókst honum að stöðva sig á grastó. Fyrir neðan var hengiflug. Þetta var lífsreynsla sem aldrei gleymdist en tilheyrði dag- legu lífi. . Auk náms sem hægt var að ' * stunda í Sléttuhreppi stundaði Kristján nám við Héraðsskólann á Núpi 1934-1936. Síðar fór hann í Bændaskólann á Hvanneyri og út- skrifaðist þaðan búfræðingur 1941. Hann var hreppstjóri í Sléttuhreppi 1945-1946, tók við því starfí af föður sínum, en 1947 flutti hann ásamt foreldmm sínum til ísafjarð- ar. Á þeim tíma voru engar bætur af neinu tagi fyrir að hætta bú- skap. Ævista.rfið var skilið eftir á Sléttu og á ísafirði var byrjað að nýju. Þar lærði Kristján trésmíði hjá Ragnari Bárðarsyni. Það nám var honum nærtækt, því að frá bernsku hafði hann handleikið sög, hamar og önnur smíðatól en á Sléttu voru smíðuð hús, húsgögn, bátar og hvaðeina sem til búsins þurfti. Kristján fékk meistararétt- indi í húsasmíðum 1956. Á ísafirði steig hann mikið gæfu- spor á árinu 1953 þegar hann kvongaðist eftirlifandi konu sinni, Þorgerði Ragnarsdóttur. Hún var þá vefnaðarkennari við Húsmæðra- skólann Ósk á ísafírði. Börnin urðu tvö: Þórhallur Jónas, bifvélavirki í Reykjavík, og Björg, sem starfar um þessar mundir sem læknir í Gautaborg. Barnabömin eru einnig tvö, Magnús Þór og Kristján Már, synir Bjargar og Hannesar Steph- ensens. Á Isafirði starfaði Kristján -^einkum við húsasmíðar og því hélt hann áfram eftir að hann fluttist með fjölskyldu sína suður til Reykjavíkur 1960. Síðustu starfsár sín starfaði hann fyrir Alþýðubank- ann en lét þar af sörfum fyrir ald- urs sakir í ársbyijun 1989. Kristján var með afbrigðum vandvirkur smiður. Þegar hann felldi fjöl að fjöl mátti vart sjá skil- in milli þeirra. Þessarar vandvirkni naut fjölskylda mín þegar hann vann við að innrétta hús okkar. Kristján lét sig miklu skipta velferð ^fjölskyldu sinnar og ættingja. Hann bjó fjölskyldu sinni fagurt heimili og ætíð var hann reiðubúinn til að hjálpa bæði nær- og fjarskyldum þegar erfiðleikar steðjuðu að. Um- hyggja hans fyrir ættingjunum kom mjög í Ijós við endurreisn íbúðar- hússins á Sléttu. Níræð tók amma þá ákvörðun að stofna hlutafélag Lum jörðina. Markmið þess er að nýta hana til leyfísdvalar. Hluthaf- amir skyldu vera hennar nánustu. Að auki lagði hún fram nokkra fjár- hæð til efniskaupa, en húsið hafði brunnið 1956. Kristján hafði for- göngu um endurgerð hússins. Hann varði mörgum sumarleyfum til smíði þess. Aðrir liðsinntu eftir föngum og ber þar sérstaklega að þakka þátt Herberts Ámasonar, fóstursonar afa og ömmu. Á síðasta sumri var farin ferð að Sléttu til að skipta um þak og klæða gafl. Kristján skipulagði framkvæmdina en var orðinn of veikur til að ferð- ast. Slétta var honum hugleikin til hins síðasta. Hugulsemin, hjálpsemin og ein- lægnin vom samofnir eðlisþættir í skaphöfn Kristjáns Jónassonar. Kannski er það þess vegna sem hann var ætíð kallaður Kristján frændi. Þannig eiga frændur að vera. Blessuð veri minning hans og megi sá er öllu ræður styrkja Þor- gerði konu hans, böm og bamaböm í djúpri sorg þeirra. Brynjólfur Sigurðsson. Það var síðla árs 1987 að §öl- margir hófust handa við að byggja sér hús í Digraneshlíðum Kópa- vogs. Á móti okkur í Hlíðarhjallan- um hóf byggingu húss á sama tíma og við önnur fjölskylda. Tókum við eftir að þama var um roskinn mann að ræða. Fljótlega urðum við þess vör að þarna fór einstakur maður, sem ávallt var kátur og brosandi. Vakti athygli þeirra sem fylgdust með að sonur hans, Þórhallur, var oftst með hon- um við vinnu. Vandvirknin og snyrtimennskan var slík að unun var að sjá. Allt þurfti að vera í röð og reglu og ekkert drasl var á bygg- ingarsvæði þeirra feðga. Fyrir sunnan húsið var stór hóll, efni sem Kristján hafði ætlað að geyma til að nota i fyllingu á lóð sinni. Sóttu bömin mikið í þennan hól til að leika sér á. Var hóllinn kallaður af börnunum „Kristjáns hóll“. Þessi brosandi og viðmótshlýi maður lað- aði til sín bömin í hverfinu og öllum sem hann kynntist þótti vænt um þennan dugmikla mann og bám virðingu fyrir honum. Er húsið var risið hjá þeim var það fljótlega málað og tekið til við að hanna og gera lóðina umhverfís það. Skyndilega fór heilsu Kristjáns að hraka vegna illkynja sjúkdóms sem hann var með. Þrátt fyrir það var hann öllum stundum að laga og bæta hús sitt og lóðina umhverf- is það. Hlúð var að plöntum og tijám fyrir veturinn. Ekki er langt síðan að við sáum Kristján úti í garði að setja striga utan um tré til vemdar. Það var ekki laust við að ungu mennimir, við nágrannar hans, fyndum til skammar hve hann tók okkur flestum fram um snyrti- mennsku og dugnað í vinnu sinni við hús sitt. Kristján var lífsglaður maður og vilji hans og lífsgleði leiddu hann áfram þrátt fyrir að hann væri mjög veikur. Það er mikið lán að hafa kynnst Kristjáni og fjölskyldu hans. Hann var fulltrúi þeirrar kynslóðar sem hjartahlýja og fagurt mannlíf ein- kennir. Það er eftirsjá í slíkum manni úr litla hverfinu okkar í Hlíð- arhjallanum. Við biðum góðan Guð að blessa minningu hans og veita eiginkonu hans, Þorgerði, börnum hans og bamabömum styrk í þeirra mikla missi. Hafi góður vinur þökk fyrir allt og allt. Fjölskyldan Híðarhjalla 17. Nú er Kristján móðurbróðir minn allur. Hann hefði helst viljað fresta för, honum fannst hann eiga svo margt ógert. En hann vissi að það þýddi ekki að mögla, brottför var ákveðin og þá var um að gera að nýta hveija stund sem best. í þau skipti sem ég heimsótti hann í sum- ar leyndi sér ekki hversu sjúkur hann var, en alltaf þegar ég kom var hann að vinna. Ljúka við, lag- færa, betrumbæta, skilja við allt í eins góðu horfi og unnt væri. Hon- um var í blóð borin vinnusemin og skylduræknin sem einkenndu hann fram á síðustu stund. Við sem áttum góða bemsku verður hún hugleiknari eftir því sem árin færast yfir. Minni bemsku tengdust móðursystkini mín í ríkum mæli. Siguijóna móðir mín (d. 9. september 1954) var elsta systir Kristjáns. Á heimili hennar og föður míns, Guðmundar Kr. Guðmunds- sonar, dvöldu systkinin þegar þau komu til ísafjarðar, stundum til hjálpar, stundum aðeins til áningar, vinnu eða bara til gamans. Pabbi minn var skipstjóri á einum sam- vinnubátanna og fór á síld hvert sumar. Oftast nær skilaði hann mömmu og okkur krökkunum norð- ur á Sléttu til afa og ömmu á leið sinni í síldina. Stundum tók hann okkur svo þegar hann kom til baka, stundum fórum við heim til ísa- fjarðar eitthvað fyrr. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fara norður á Sléttu til afa og ömmu. Þar var mikið unnið og mik- il regla en þar var líka hlýja og glaðværð. Móðursystkinin, Þorvald- ína, Fanney, Margrét, Kristján og Brynhildur, létu ekki önn dagsins bæla sig, heldur göntuðust hvert við annað og okkur krakkana, hlógu og struku hlýrri hönd um barnskinn eða -koll. Þau voru ung og hraust, tilbúin að takast á við lífíð. Sumarið sem ég varð fimmtán ára fékk ég að fara með Binnu og Kristjáni á sveitaball. Og hvílík upplifun. Fyrst riðum við inn að Hesteyri seinnipart laugardags. Þar hittist hópur af ungu fólki frá Aðal- vík — Fljóti — Sléttu og Hesteyri. Á Hesteyri beið okkar lítill bátur sem flutti hópinn þvert yfir Jökul- fírði að Flæðareyri þar sem ballið var. Veðrið var yndislegt, logn og blíða, fegurðin allt um kring. I bjartri sumarnóttunni var dansað fram eftir nóttu og síðan hófst sama leið til baka. Heim komum við um sjöleytið að morgni sunnudags og systkinin komin til vinnu uppúr kl. 9. Það var þurrkur. Sú regla gilti hjá afa og ömmu að á sunnudegi voru einungis unnin brýnustu verk eins og mjaltir og matseld, nema það væri þurrkur og hey sem þurfti að þurrka. Það var líka regla að hlusta ævinlega á útvarpsmessu kl. 11. Þess vegna þurfti að breiða heyið, mjólka og setja upp matinn fyrir þann tíma. Þá settust allir inn í útvarpsher- bergið, hver með sína sálmabók, og tóku þátt í messunni. Áttu sam- an helgistund. Blíðum sunnudögum á Sléttu tengist önnur mynd. Móðursystkin- in og ungviðið flatmagandi úti á túnbala, Kristján að spila á munn- hörpu og við hin að syngja með. Tíminn leið. Kristján, afi og amma brugðu búi og fluttu til ísa- fjarðar árið 1947. Þar kynntist Kristján ungri konu, Þorgerði Ragnarsdóttur, vefnaðarkennara við Húsmæðraskólann Ósk á ísafirði. Þau giftu sig 10. maí 1953 og það var mikið gæfuspor fyrir Kristján. Þorgerður reyndist honum einstök kona og samstiga gengu þau þessi fjörutíu ár sem þau áttu saman. Á heimili þeirra var gott að koma, þar mætti manni gagn- kvæm virðing húsráðenda, alúð og ljúfar veitingar. Kristján og Þorgerður eignuðust tvö böm, Þórhall Jónas og Björgu, og tvo dóttursyni, Magnús og Krist- ján. Litiu drengimir voru mikið hjá afa sínum og ömmu, nú síðast í sumar, og Kristján gladdist yfír hverri samverustund með þeim. Hann var stoltur af börnum sínum og bamabörnum. Stuttu áður en Kristján dó heim- sótti ég hann á sjúkrahúsið. Við fórum að rifja upp veturinn sem hann var í skóla á ísafirði og bjó hjá pabba og mömmu (1930-31). Við minnumst lokrekkjunnar sem hann svaf í og hversu ég og Sigga vinkona mín sóttumst eftir að fá að fara með honum í mjólkurferð- imar og hvað við vorum þungar í taumi í ófærð og snjókomu. Ég spurði hann þá hveijir hefðu verið aðal vinimir á staðnum. Þá hló hann drengjalega og sagði: „Það vom mestu prakkararnir í bænum.“ Hvort þetta hefur verið rétt mat veit ég ekki, en hitt veit ég að ekki tókst þeim að spilla honum frænda mínum. Hann reyndist góður og skyldurækinn. sonur, umhyggju- samur bróðir og glaður frændi. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir kynni okkar Krist- jáns. Blessuð sé minning hans. Guðrún Sæmundsen. í dag fer fram frá Fossvogs- kirkju útför Kristjáns G. Jónasson- ar, móðurbróður míns. Með honum er genginn mikill öndvegismaður sem naut virðingar og trausts allra samferðamanna er honum kynnt- ust. Kristján Gunnar Sveinn, en svo hét hann fullu nafni, fæddist á Sléttu í Sléttuhreppi í Norður-lsa- flarðarsýslu 8. apríl 1918. Hann var næstyngstur barna Þómnnar Brynjólfsdóttur og Jónasar Dósóþe- ussonar hreppstjóra. Þórunn var dóttir Brynjólfs Þorsteinssonar og Ingibjargar Hermannsdóttur Sig- urðssonar bónda á Sléttu og Jónas var sonur Margrétar Sturludóttur og Dósóþeusar Hermannssonar Sigurðarsonar. Þannig að segja má að rætur Kristjáns hafí staðið sterk- ar á þeim stað er síðar hlaut þau örlög að leggjast í eyði. Afí Kristjáns, Brynjólfur Þor- steinsson, bjó á Sléttu frá 1887 til æviloka og bjó lengst af félagsbúi með félaga sínum, Guðna Hjálmars- syni, en þeir fengust jafnframt við útgerð. Fannst mér heillandi frá- sögn af því hvernig þeir bjuggu hvor á sínum bænum, heyjuðu tún hvor um sig eða saman og skiptu til helminga afrakstrinum, rera til fiskjar hvor á sínum báti og skiptu til helminga aflanum. Móðir mín, Siguijóna, sem lést 1954, var elsta systir Kristjáns en aðrar systur hans eru Þorvaldína, fædd 1906, Fanney, fædd 1913, Margrét, fædd 1915 og Brynhildur ljósmóðir, fædd 1920. A Slettu ólst jafnframt upp Herbert Þ. Ámason, lögregluþjónn í Keflavík, og Mar- grét systir mín til 8 ára aldurs. Kristján naut góðs atlætis á upp- vaxtarámm sínum og það var reisn yfir heimilinu á Sléttu og þar var regla á hlutunum. Ef til vill hefur veganestið þaðan átt sinn þátt í hvert einstakt snyrtimenni Kristján frændi var en það, auk þess hver hagleiksmaður hann var til allra verka, var ekki síst hans aðals- merki. Árið 1947 flutti hann með for- eldrum sínum til ísafjarðar. Vom þá fáir ábúendur eftir í Sléttu- hreppi en síðustu ábúendur fluttu þaðan 1952. Kristján stundaði nám við Núpsskóla, 1934-1936, stundaði í tvo vetur nám við Bændaskólann á Hvanneyri og varð búfræðingur þaðan 1941. Eftir að fjölskyldan flutti til ísafjarðar lærði hann tré- smíðar og öðlaðist meistararéttindi árið 1956. Hann starfaði við húsa- smíðar fyrst á ísafirði og síðar hér fyrir sunnan, allt þar til hann hóf störf hjá Alþýðubankanum síðla árs 1982 en þar starfaði hann uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir í árslok 1988. Á ísasfirði lét Kristján sig bæjarmál varða og var varafull- trúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1954- 1958. Eftirlifandi kona Kristjáns er Þorgerður Ragnarsdóttir. Þau giftu sig 10. maí 1953 og eiga að baki tæp 40 gæfusöm ár nú þegar kom- ið er að kveðjustund. Þorgerður og Kristján bjuggu á ísafirði til 1960 og eignuðust þar börnin sín tvö, Þórhall Jónas, f. 1954, og Björgu, f. 1956. Þórhallur er bifvélavirki og Björg læknir. Hún er búsett í Svíþjóð og á tvo unga syni. Fyrstu árin fyrir sunnan bjuggu Gerða og Kristján í Reykjavík, en árið 1962 fluttu þau í Kópavog þar sem þau byggðu sér glæsilegt heim- ili í Hlaðbrekku 18. Fyrir nokkmm ámm byggðu Kristján og Þórhallur sonur hans saman hús að Hlíðar- hjalla 37. Eins og annað sem Krist- ján frændi lagði hönd á er nýja heimilið glæsilegur vitnisburður um haga hönd, vandvirkni og alúð. Þrátt fyrir að fljótlega eftir að ný- bygging hófst yrði vart þess sjúk- dóms sem nú hefur lagt frænda minn að velli lét hann aldrei deigan síga, upptekinn af því sem ein- kenndi hann ávallt, að ljúka því verki er hann hófst handa við. Síð- sumars leit ég inn í Hlíðarhjalla og var hann þá að leggja síðustu hönd á framkvæmdir við lóðina. Kristján frændi var fagurkeri og þau Gerða sameinuðust um að búa bömum sínum gott og fagurt heimili. Þang- að var ávallt gott að koma og mót- tökur glæsilegar. Kristján var eini bróðirinn í systrahópi og þeim afar kær. Þegar árin liðu, systur hans urðu ekkjur og heilsa þeirra fór að gefa sig, varð hann þeim jafnframt mikil stoð og stytta. Áð þeim frænkum mínum er því eins og Gerðu og börnunum mikill harmur kveðinn nú. Leiðir okkar Kristjáns og Gerðu lágu á vissan hátt saman á ný í Kópavogi og þó við umgengumst ekki mikið þykir mér vænt um þennan tíma og að hafa átt með þeim svo góð kynni. Kristján frændi fékk ásamt Her- bert Ámasyni og Brynjólfi systur- syni sínum nýtt hlutverk þegar hafist var handa við að endur- byggja húsið á Sléttu. Öll sú fram- kvæmd var unnin undir styrkri stjóm hans eftir að eitt hinsta verk Þórunnar ömmu var að mynda hlutafélag afkomenda sinna um Sléttu og tryggja endurbyggingu hússins og aðild allrar fjölskyldunn- ar að því. Við yngra fólkið í fjöl- skyldunni uppgötvuðum nýja og heillandi tilvem þegar farið var í framkvæmda- og sumarferðir til Sléttu. Þá var skrapað og málað og barist endalausri baráttu við mannhæðar háa hvönnina sem lagt hefur undir sig horfín tún. Undir leiðsögn hagleikssmiðsins var unnt að leggja hönd á plóg við það verk sem honum var svo kært — að byggja upp æskuheimilið. Það var líka gengið yfir á Hesteyri og yfir í Aðalvík og í slíkum ferðum fann maður í frásögnum og hvíslandi vindblæ andrúmsloft þess sem var forðum. í einni ferðinni kom hita- bylgja yfir landið og við lékum okk- ur á hvítri ströndinni í víkinni við vitann og syntum í sjónum. Ég minnist þess hve þetta var stór upplifun og hvað okkur þótti merki- legt þegar Kristján frændi sagði: „Hér fæddist ég og ólst upp en aldr- ei hélt ég að ég ætti eftir að upp- lifa það að synda hér í sjónum.“ Ég trúi að hans verði oft minnst í framtíðinni við dvöl á Sléttu. Það er erfitt að finna rétt orð á kveðjustund. Hann Kristján frændi var einn af þessum máttarstólpum í sínu umhverfí. Maður sem ekki fór mikið fyrir en var svo fallegur og glæsilegur á velli og hvers manns hugljúfi, alltaf svo stutt í geislandi brosið. Hann bar veikindi sín vel og vann sín verk, bjó sem best í haginn fyrir þá sem hann var að yfirgefa. Þeirrar gerðar var Kristján frændi minn. Að leiðarlokum bið ég góðan guð að styrkja Gerðu, Þórhall, Björgu og frænkurnar mínar öldnu og flyt þeim innilegar kveðjur fjölskyldu minnar. Megi minningin lifa um dreng góðan. Rannveig Guðmundsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.