Morgunblaðið - 12.03.1993, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
59. tbl. 81. árg.
FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, átti í gær yfir höfði sér
auðmýkjandi ósigur fyrir andstæðingum sínum á fulltrúa-
þingi Rússlands. Þingið samþykkti í höfuðatriðum drög að
ályktun sem gerir andstæðingum forsetans kleift að draga
enn frekar úr völdum hans, auk þess sem hún bannar í raun
þjóðaratkvæðagreiðslu sem Jeltsín hafði boðað. „Meiriháttar
ógæfa vofir yfir,“ sagði einn embættismannanna í liði forset-
ans, „Útlitið er svo sannarlega mjög svart.“
Jeltsín virtist hafa egnt þingið til
reiði í 20 mínútna ræðu í gærmorg-
un þar sem hann sakaði það um
að hafa útilokað málamiðlunarsam-
komulag um valdaskiptinguna.
Hann varaði jafnframt við því að
Rússland myndi leysast upp líkt og
Sovétríkin ef deila hans við þingið
yrði ekki leyst. „Forsetinn er eini
þjóðkjörni leiðtoginn og eina tákn
rússneskrar einingar," sagði hann
og bætti við að Sovétríkin hefðu
ekki liðið undir lok ef Míkhaíl Gorb-
atsjov hefði fengið umboð þjóðar-
innar til að stjórna.
Tsjemomyrdín gagnrýndur
Helsti andstæðingur Jeltsíns,
Rúslan Khasbúlatov, forseti þings-
ins, brást ókvæða við ræðunni og
lýsti málamiðlunarsamkomulagi
þingsins og Jeltsíns frá því í desem-
ber sem „verki djöfulsins“ og heimt-
aði að því yrði rift. Hann lagði til
að launagreiðslum til ráðherra yrði
hætt og krafðist þess að utanríkis-
ráðherranum og einkavæðingarráð-
herranum yrði vikið frá. Þá fór
hann hörðum orðum um Viktor
Tsjemomyrdín forsætisráðherra,
sem ekki hefur verið talinn til rót-
tækra umbótasinna og var gerður
að forsætisráðherra gegn vilja
Jeltsíns á síðasta fundi þingsins í
desember.
Haldið áfram í dag
Fylgismenn Jeltsíns gerðu ör-
væntingarfulla tilraun til að breyta
ályktunardrögunum, sem samþykkt
voru í höfuðatriðum en þingið á
eftir að fara yfir þau lið fyrir lið.
Þeim tókst að knýja fram tvær
veigalitlar breytingar sem virtust
aðeins undirstrika erfiða stöðu for-
setans. Fundinum verður fram hald-
ið í dag og þá verða að öllum líkind-
Rækta svín til
hj artaflutning-a
Cambridge. Reuter, The Daily Telegr*aph.
SÉRFRÆÐINGAR við Cambridge-háskóla tilkynntu í gær að
þeir hefðu ræktað fyrstu svínin í heiminum sem hefðu genafræði-
legt „mannshjarta“.
Vísindamennirnir segja að dýrin
haldi öllum ytri einkennum svína
en genauppbyggingunni hafi verið
breytt þannig að unnt sé að flytja
hjörtun úr þeim í menn án þess
að hjartaþeginn hafni þeim strax.
Þeir segja þennan áfanga marka
þáttaskil i tilraunum þeirra til að
rækta dýr í því skyni að sjá mönn-
um fyrir líffærum. Þeir leggja þó
áherslu á að mörg ár líði þar til
svínshjörtu verði grædd í menn.
„Árlega fara um 20.000 líffæra-
flutningar fram út um allan heim.
Það er um 15% af þörfinni," sagði
einn vísindamannanna, dr. John
Wallwork.
Svínin eru tvö og geymd á leyni-
legum stað þar sem óttast er að
dýravemdarsinnar, sem hafa gert
aðsúg að heimilum vísindamann-
anna, reyni að frelsa þau.
Kommúnistar í baráttuhug
KONA á mótmælafundi kommúnista við þinghúsið í Moskvu í gær þegar fulltrúaþingið var þar á fundi.
Kommúnistar og þjóðernissinnar á þinginu gerðu þar harða atlögu að róttækum umbótasinnum.
Andstæðingum Rússlandsforseta á fulltrúaþinginu vex ásmegin
Framtíð stjórn-
ar Bildts ræðst
á miðvikudag
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins, Reuter.
MIKIL óvissa ríkir um framtíð ríkissljórnar Carls Bildts í
Svíþjóð eftir að stjórnin beið ósigur í atkvæðagreiðslu í
tengslum við fjárlögin á þinginu í fyrradag. Á miðvikudag
verða greidd atkvæði um efnahagsaðgerðir stjórnarinnar
og ætlar þá Bildt jafnframt að leggja fram tillögu um
traustsyfirlýsingu á stjórnina. Greiði meirihluti þingmanna
ekki atkvæði með henni ætlar hann að segja af sér emb-
ætti og boða til kosninga.
Stjómin hefur ekki hreinan meiri-
hluta á þinginu heldur treystir á
stuðning flokksins Nýs lýðræðis, sem
þykir fylgja hentistefnu og er á hægri
væng stjórnmálanna. Voru það þing-
menn hans sem greiddu atkvæði á
móti stjórninni.
Krefjast kosninga í júní
Jafnaðarmenn kröfðust þess í gær
að boðað yrði til kosninga í júní en
skoðanakannanir spá þeim töluverðri
fylgisaukningu verði kosið nú.
Bengt Westerberg, leiðtogi Þjóðar-
flokksins, sagði í viðtali í morgun-
þætti sjónvarpsstöðvarinnar TV-4,
að hann teldi „verulegar" líkur á að
kosið yrði fyrir september 1994, en
þá ber að halda næstu kosningar
lögum samkvæmt.
Auðmýkjandi ósigur
blasir við Borís Jeítsín
um einhveijar breytingar gerðar á
drögunum. Ennfremur er búist við
að þingið komi aftur saman seint í
apríl eða í bytjun maí til að halda
áfram þar sem frá var horfið.
Sjá fréttir á bls. 27.
Reuter
Bankamaður veldur ólgu í Belgrad
MIKIL ólga ríkti á meðal stjómmálamanna í Serbíu í gær þegar serb-
neski fjármálamaðurinn Jezdimir Vasiljevic hótaði að afhjúpa spillingu
innan stjórnkerfisins. Vasiljevic skipulagði skákeinvígi Bobby Fischers og
Borís Spasskís í fyrra og flúði til Israels á mánudag. Fólk sem á sparifé
í banka Vasiljevics, Jugoscandic, er einnig í öngum sínum vegna skyndi-
legrar brottfarar hans og myndin var tekin af sparifjáreigendum sem
reyndu að taka út fé af reikningum sínum.
Stríðið í Bosníu
Hermenn
í gíslingn
Baiya Koviljaca í Serbíu. Reuter.
REIÐIR múslimar héldu
breskum hermönnum í gisl-
ingu í gær eftir að þeir fylgdu
starfsmönnum Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna
til Kopjevic, umsetins héraðs
múslima í austurhluta Bosníu-
Herzegovínu.
2.000-6.000 múslimar um-
kringdu tvo breska brynvarða
herbíla og neituðu þeim að aka
í burtu. Starfsmenn Flótta-
mannahjálparinnar áttu að ná í
75 særða músiima, aðallega
karlmenn, en Bosníu-Serbar
sögðu að þeir mættu aðeins
flytja konur og börn þaðan. íbú-
ar héraðsins sögðu þá við starfs-
mennina að úr því þeir tækju
ekki allt særða fólkið með sér
færi enginn.