Morgunblaðið - 12.03.1993, Blaðsíða 12
XflAM .Sí HU0AQUT8Ö'') 3K3AJSMU0H0M
- MORGUWBLABIB- FOSreÐAOUR -THr-MARg- T398~
BLANDAÐIR DJÖFLAR
_________Leiklist
Hávar Sigurjónsson
Aristófanes FB sýnir: Djöfla eft-
ir Nigel Williams í þýðingu Ant-
ons Helga Jónssonar. Leikstjóri:
Hilmar Jónsson.
Þessa dagana leika enskir djöfl-
ar lausum hala í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti. Þar hafa hreiðrað
um sig sex unglingar úr fátækra-
hverfi í London, lagt undir sig eina
skólastofu og bíða árangurslaust
í tvo klukkutíma eftir að einhver
kennararæfill sé svo vitlaus að láta
sjá sig. Kennaramir vita betur og
ekkert verður úr neinni kennslu.
Uppruni persónanna er reyndar
dálítið blendinn þar sem leikstjór-
inn hefur tekið þá ákvörðun að
stinga undan öllum helstu forsend-
um verksins með því að breyta
leikritinu í þá veru að í stað sex
pilta er kynjaskiptingin jofn, þrír
strákar og þijár stelpur. Utaf fyrir
sig ekkert svo galin hugmynd og
vafalaust gert (vonandi) til að liðka
fyrir leikhópnum með hlutverk.
En ég hef samt sterklega á tilfmn-
ingunni að höfundurinn Nigel Will-
iams hafi haft sínar ástæður og
þær góðar til að fjalla eingöngu
um stráka í þessu leikriti. Og ég
er viss um að hann hefði skrifað
annars konar leikrit fyrir þrjá
stráka og þijár stelpur.
Þetta er kannski jafn gott tæki-
færi og hvað annað til að koma
því á hreint hvað felst í því að
gera leikgerð. Það þýðir nákvæm-
lega það sem orðið segir; að gera
leikrit úr. Þess vegna er fáránlegt
þegar menn reyna að telja sér og
öðrum trú um að það sé „leikgerð"
þegar hrært hefur verið í fullskrif-
uðu leikriti með yfirleitt misjöfnum
árangri. Það er ekki hægt að gera
„leikgerð" úr leikriti. Hér er verið
að mgla saman því sem kallast
má undirbúningsvinna leikstjóra,
þar sem hann vinnur sitt sérstaka
„sýningarhandrit" telji hann þörf
á slíku og hins vegar því að ein-
hver tekur ljóð, smásögu eða skáld-
sögu og færir í leikbúning; býr til
leikgerð.
Hilmar Jónsson leikstjóri hefur
reyndar lagt sig fram um að breyta
bakgmnni þeirra þriggja persóna
sem skipt hafa um kyn, gera bak-
gmnninn „kvenlegri" ef svo má
segja, en samskipti þeirra við
strákana þijá í leikritinu sjálfu
verða hálf einkennileg, þar sem
það fjahar ekki um þá tilfínninga-
legu togstreitu og kynferðislegu
spennu sem hlýtur að verða í þann-
ig samsettum hóp, heldur er efni
þessa leikrits átök um tilgangslaus
völd innan hóps af strákum, sem
eiga sér enga framtíð og eru rekn-
ir áfram af örvæntingu og ótta.
En Hilmar hefur greinilega haft
góð tök á hópnum og tekist að ná
þeim mjög jöfnum; þau em á svið-
inu alla sýninguna og standa öll
vel fyrir sínu. Ailt ber þetta með
sér að hópurinn hefur lagt sig fram
um að gera sýninguna sem besta.
Af leikendum mæðir mest á Ás-
geiri Emi Ásgeirssyni í hlutverki
Hjörra og tekst honum á köflum
að verða nokkuð ógnvekjandi en
síður að vekja samúð með persón-
unni. Raddbeitingin er einhæf og
slæmt fyrir hvern sem er, ekki síst
leikara, að öskra sig hásan kvöld
eftir kvöld. Þarna hefði leikstjórinn
átt að leggja sig betur fram um
að leiða Ásgeir Orn fyrstu skrefin
inn í þann biómagarð blæbrigða
sem mannsröddin býr yfir. Þá var
gaman að sjá að leikhópurinn hafði
fengið einn úr kennaraliði skólans
til liðs við sig og ná þannig að
skapa trúverðugri mynd af þessum
Lundúnaháskóla en ella.
Tríó Reykja-
víkur leikur
UM HELGINA
í Hafnarborg
ÞRIÐJU áskriftartónleikar Trí-
ós Reykjavíkur og Hafnarborg-
ar verða sunnudaginn 14. mars
kl. 20 í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar.
Á tónleikunum verður fmmflutt
píanótríó eftir Atla Heimi Sveins-
son. Tríóið var samið árið 1985 í
tilefni 60 ára afmælis Thors Vil-
hjálmssoar og tileinkað skáldinu.
Ennfremur verður flutt tríó í Es-
dúr op. 1 nr. 1 eftir L. van Beet-
hoven og tríó í c-moll nr. 2 op.
66 eftir F. Mendelsohn en það
verk hefur ekki heyrst lengi á tón-
leikum hériendis.
Tríó Reykjavíkur skipa: Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari,
Gunnar Kvaran sellóleikari og
Halldór Haraldsson píanóleikari.
Aðgöngumiðar að tónleikunum
verða sendir við innganginn. Sér-
stakur afsláttur er veittur nem-
endum og eldri borgurum.
(Fréttatilkynning)
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fHrogttstMaMfe
Myndlist
Rut Rebekka í
FIM-salnum
Á morgun, laugardaginn 13. mars,
kl. 14, opnar Rut Rebekka Sigurjóns-
dóttir sýningu_ á olfu- og þurrpastel-
myndum í FÍM-salnum við Garða-
stræti. Eru þetta litlar landslagsmynd-
ir, en Rut er þekktust fyrir myndir
sínar af fólki, einkum ungum hljóð-
færaleikurum. Litir landsins hafa þó
ávallt verið uppsprettan í litameðferð
hennar. Rut Rebekka stundaði nám
við Kennaraháskóla Islands, Hjúkrun-
arskóla Islands, Myndlistarskóla
Reykjavíkur og lauk síðan námi frá
MHÍ árið 1982. Hún hefur haldið átta
einkasýningar og auk þess tekið þátt
í fjölda samsýninga, bæði hér og er-
lendis. Sýningin í FÍM-salnum stendur
til 28. mars. *
Listaverkagjöf Elíasar
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnafjarðar, barst nýverið
vegleg listaverkagjöf frá Elíasi B.
Halldórssyni; 68 tré- og dúkristur eftir
myndlistarmanninn. Myndimar spanna
30 ára tímabil frá árinu 1963, og eru
sumar þeirra unnar sem myndskreyt-
ingar við sögur. Þær eru nú sýndar í
Hafnarborg.
Gunnlaugur Stefán
sýnir í Fold
Á morgun, laugardaginn 13. mars,
opnar Gunnlaugur Stefán Gíslason
sýningu á vatnslitamyndum sínum í
Gallerf Fold. Gunnlaugur Stefán er
Hafnfirðingur, fæddur árið 1944. Hann
stundaði nám við MHÍ og hefur kennt
myndlist um árabil, auk þess að halda
fjölda einkasýninga og hafa tekið þátt
í samsýningum. Vatnslitamyndimar
sem hann sýnir í Gallerí Fold em allar
unnar á síðustu mánuðum. Sýningin
stendur til 27. mars.
Magnús Pétur Þorgrímsson
Leirlist í Stöðlakoti
Á morgun, laugardaginn 13. mars,
kl. 16 opnar Magnús Pétur Þorgríms-
son sýningu á verkum unnum í stein-
leir í Gallerí Stöðlakoti við Bókhlöðu-
stíg. Þetta er fyrsta einkasýning Magn-
úsar, en hann lauk námi frá leirlista-
deild MHÍ síðasta vor. Sýningin stend-
ur til 21. mars.
Tónlist
Sungið á myndlistar-
sýningu
Á morgun, laugardaginn 13. mars,
kl. 17 syngur söng- og skemmtifélagið
Samstilling á myndlistarsýningu
Björgvins Björgvinssonar í Portinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Meðlimir
• •
Orninn
ÖRNINN (Adler á
þýsku) er þekjulita-
mynd eftir þýska list-
málarann Georg Base-
litz sem boðin verður
upp hjá Sotheby’s í
London, ásamt fjölda
annarra listaverka.
Uppboð hjá Sotheby’s í London
Verk meistaraima
hafa mörg stór-
lækkað í verði
SOTHEBY’S í London heldur
uppboð þann 24. mars næstkom-
andi, þar sem verk eftir heims-
þekkta listamenn verða til sölu,
við verði sem Sigríður Ingvars-
dóttir, fulltrúi Sothebys á Islandi
segir að hafi aldrei verið lægra,
en um þessar mundir. Verkin eru
metin á allt frá 90 þúsund krón-
um upp í 30 milljónir króna.
Samstillingar hafa komið saman og
sungið á hveiju mánudagskvöldi sl. 10
ár, aðallega sjálfum sér til skemmtun-
ar. En einstöku sinnum er sungið opin-
berlega, eins og nú á síðustu sýningar-
helgi myndlistarsýningar Björgvins í
Portinu.
Leiklist
Þrusk framlengl
Vegna ágætrar aðsóknar verður
sýningum Leynileikhússins á Þruski
haldið áfram á efri hæð Café Sólons
íslandus. Að sýningunni standa þrír
ungir listamenn sem allir hafa stundað
nám í leiklist erlendis, þau Jóhanna
Jónas, Vijhjálmur Hjálmarsson og leik-
stjórinn Ásdís Þórhallsdóttir. Sýningin
Þrusk er sett saman úr tveimur einræð-
um og broti úr Galdra-Lofti eftir Jó-
hann Siguijónsson. Einræðumar eru
annars vegar úr Mávinum eftir Tsjekh-
ov og hins vegar fengnar frá Shake-
speare, Steini Steinar, Jóni lærða, Sig-
fúsi Daðasyni og Arnoid Schwartzen-
egger. Sýningar verða sunnudag 14.
mars, mánudag 16. mars, laugardag
20. mars og sunnudag 21. mars.
Plógur og stjörnur í
S-Þingeyjarsýslu
Leikfélagið Búkolla var stofnað á
síðasta ári i Suður-Þingeyjarsýslu, og
setti þá strax á svið sitt fýrsta verk,
Biðla og brjóstahöld. Félagið saman-
stendur af fólki úr fjórum sveitarfélög-
um í sýslunni. Um þessar mundir sýn-
ir Búkolla í Ýdölum leikritið Plóg og
stjömur eftir Sean O’Casey í leikstjöm
Sigurðar Hallmarssonar. Alls standa
um 40 manns að þessari uppfærslu,
þar af 17 leikarar. Verkið er umfangs-
mikið og krefst mikils í sviðsmyndum,
ljósabúnaði og leikhljóðum. Uppsetn-
ingin hefur hlotið mjög góða dóma, en
sýningum fer nú fækkandi og er áætl-
að að sýna verkið I kvöld, föstudags-
kvöld, og á sunnudag.
Listaverk eftir listamenn eins og
David Hockney, Leon Kossoff,
A.R. Penk, George Baselitz,
Lucio Fontana, Karel Appel,
Jean Dubuffet, Picasso og Ándre
Masson verða seld á uppboðinu.
Sigríður segir að verðið á lista-
verkunum nú endurspegli það
kreppuástand sem hafi að undan-
fömu verið í heiminum. Meðal ann-
ars hafí verk ýmissa imperession-
ista fallið frá 40 til 60% á undan-
förnum tveimur árum. „Efnahags-
ástandið í heiminum hefur tvímæla-
laust haft áhrif til lækkunar á allan
listaverkamarkaðinn. Þar erum við
engin undantekning. Japanir sem
hafa verið svo stórir á þessum
markaði, hafa nánast horfið," sagði
Sigríður í samtali við Morgunblaðið.
Sigríður bendir á að á tímum sem
þessum hafi stærstu söfn heimsins
oft orðið til, „þannig að segja má
að á hveiju dökku skýi sé silfur-
brydding," segir Sigríður. Hún
nefnir sem dæmi að mörg af mál-
verkum gömlu meistaranna sem eru
í Thyssensafninu sem nýkomið er
til Madrid, hafi verið keypt til safns-
ins í heimskreppunni miklu.
Tími til að líta í kringum sig
„Þetta er kannski sá tími, sem
íslendingar sem eiga einhveija pen-
inga, ættu að líta í kringum sig,
ef þeir hafa á annað borð áhuga á
að fjárfesta í list heimsþekktra
listamanna á alþjóðlegum mark-
aði,“_ segir Sigríður.
„Á þessu uppboði er hægt að
gera virkilega góð kaup. Til dæmis
verður þarna verk eftir Georg Base-
litz, sem er einn frægasti listmálari
Þýskalands. Matsverð á verki hans
er 6 til 8 þúsund bresk pund. Þama
verða einnig verk eftir Wilhelm de
Kooning, Frank Auerbach og fleiri
heimsþekkta listamenn," segir Sig-
ríður.
Sigríður segist ekki gera sér í
hugarlund hvort áhugamenn um
listir muni gera sér sérstaka ferð
til London til þess að vera viðstadd-
ir uppboðið. En þeir sem hafi áhuga
á að kynna sér verkin og verð þeirra
geti að sjálfsögðu snúið sér til
umboðsskrifstofu Sotheby’s hér á
landi.
Full búð af
nýjum, ítölskum
vor- og
sumarfatnaði
staðgreiðslu-
afsláttur
næstu daga
Sc benelíon
K r I n g I u n n i