Morgunblaðið - 12.03.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
25
Verðlækkunin ytra er fyrst og
fremst á físki til frekari vinnslu
MIKILL órói er nú á fiskmörkuðunum í Evrópu og hefur
verð á ferskum fiski og heilfrystum til frekari vinnslu iækk-
að verulega. Skýringin er fyrst og fremst aukið framboð á
fiski frá Norðmönnum og Rússum, sem bjóða bæði ferskan
þorsk og heilfrystan á mjög lágu verði. Því hefur verð á
ferskum fiski á erlendum uppboðsmörkuðum lækkað og sömu-
leiðis er verð á fiskblokk til frekari vinnslu lækkandi.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
HJÖRTUR GÍSLASON
Ahrifa lágs fiskverðs ytra farið
að gæta hér heima
Verð hefur nýlega lækkað í
Bandaríkjunum í dollurum talið og
gætir þessara verðlækkana nokkuð
hér. Vinnslustöðin í Vestmannaeyj-
um hefur lækkað verð á fiski til
sjómanna og verð á fískmörkuðum
hér heima hefur lækkað, sérstak-
lega á netafiski. Netafískurinn hef-
ur að mestu farið í söltun, en hún
er nú með minnsta móti.
Blokkarnotkun minnkar
„Notkun á fiskafurðum úr
þorskblokk hefur farið gífurlega
minnkandi í Bandaríkjunum á síð-
ustu árum,“ segir Magnús B. Frið-
geirsson, forstjóri Iceland Seafood
Corp. í Bandaríkjunum. „Skýringin
er að miklu leyti sú, að Evrópa
hefur borgað betur fyrir þorskinn,
einkum blokkina og því hefur hún
leitað þangað. Þá hefur verð verið
full hátt og þrátt fyrir að verð
hafí lækkað úr 2,25 dollurum á
pundið síðstliðið sumar í 1,85 doll-
ara nú, tel ég stöðuna einn veika.
Það er gífurlega erfitt að endur-
vinna markaði, sérstaklega, þar
sem markaðurinn hér vestan hafs
hefur farið yfír í nýjar hvítfískteg-
undir. Stærstu notendurnir á hvít-
fiskblokk eru McDonalds og Long
John Silver’s, en þeir nota báðir
djúproðflett flök af Alaskaufsa í
verulegum mæli. Ætli menn að fá
þessa stóru aðila til að snúa sér
að þorski eins og áður var, verður
að lækka verðið á þorskblokkinni
niður í það sama og á ufsablokk-
inni, eða í um 1,60 dollara á pundið.
Aukning í flakasölu
Hvað varðar flakasöluna, vildum
við gjarnan selja meira af þeim.
Allnokkur aukning er í flakasölu,
en ekki eins mikil og ætla mætti
í ljósi þess, að framleiðsla Kanada-
manna hefur hrunið. Þar ræður
verðið aftur nokkru, en það hefur
á skömmum tíma lækkað úr 3,10
dollurum í 2,85 og er þá átt við
hinar algengu fimm punda pakkn-
ingar, en verð á sérpakkningum
lækkaði minna eða ekkert. Ætli
menn sér svo að keyra mikið magn
inn á Bandaríkin vegna lækkandi
verðs í Evrópu, er hefðin sú að
verðið leitar jafnvægis milli mark-
aða til langs tíma litið,“ segir
Magnús B. Friðgeirsson.
Lítil aukning í birgðum
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
segir að menn verði að leggja enn
meiri áherzlu á aukið vinnsluvirði
afurðanna til að reyna að forðast
verðlækkanir, en er hægt að auka
framleiðslu á Bandaríkin vegna
verðlækkananna í Evrópu? „Það
er um nokkra aukningu á fram-
leiðslu fyrir Bandaríkin hér heima,
að ræða en aukning í birgðum er
ekki teljandi að mínu mati. Hins
yegar tel ég fulla ástæðu til að
vera vel á varðbergi, hvað varðar
verð á þorski á erlendum mörkuð-
um. Það er mikill þrýstingur til
lækkunar á verðið og veldur þar
mestu að Norðmenn ráða ekki við
hið mikla framboð úr eigin veiði
og frá Rússum. Vinnslugeta þar
er takmörkuð og því leitar fiskurinn
í miklum mæli inn á ferskfiskmark-
aðina og síðan í söltun. Við það
lækkar verðið og það hefur líklega
áhrif til lækkunar á freðfiski, haldi
svo fram sem horfír.
Verður að auka vöruþróun
Oróinn á fiskmörkuðunum stafar
af þessu mikla framboði á ódýrum
físki, því við það lækkar verð til
sjómanna og útgerðar, en staða
vinnslunnar batnar að sama skapi.
Verði þessir erfíðleikar í Evrópu
síðan til þess að menn fari í miklum
mæli með fískinn inn á Bandaríkin
er svipuð hætta fyrir hendi. Það
eru tveir aðalmarkaðir fyrir hvít-
fisk í heiminum, Bandaríkin og
Vestur-Evrópa og tengslin milli
þeirra eru mikii. Því verðum við,
ætlum við okkur að halda velli, að
auka vöruþróun áfram, bæta gæði
og sinna þeim mörkuðum og kaup-
endum, sem gefa bezt og eru til-
búnir til að greiða hátt verð fyrir
gæðavöru,11 segir Friðrik Pálsson.
Lítil lækkun til neytenda
Svo virðist, að heildarneyzla og
eftirspurn eftir físki til neyzlu sé
ekki að minnka, en einhvers við-
náms gætir við háu verði á dýrustu
fískafurðunum. Verðlækkunin
kemur fyrst og fremst fram á fiski
til vinnslu, bæði ferskum og heil-
frystum. Þá hefur Rússafískurinn
í Noregi verið saltaður í miklum
mæli og einnig fluttur beint inn til
Portúgal, þar sem hann hefur verið
flattur og saltaður. Fyrir vikið
minnkar eftirspurn eftir saltfíski
og sömuleiðis minnar eftirspurn og
verð lækkar á þeim físki, sem helzt
hefur verið saltaður. Það er neta-
fiskinum.
Verð á netafiski lækkar
Grétar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðsins i
Hafnarfirði, segir að verð á flestum
físktegundum sé nokkuð hátt, en
að öllu jöfnu sé nokkurt samræmi
milli verðs á físki hér heima og
ytra. Þá hafí verð á netafíski og
óslægðum físki lækkað nokkuð, en
þess beri að gæta, að nú sé tölu-
vert framboð á netafiski eftir að
menn hættu á línu um síðustu
mánaðamót og fóru yfir á netin.
Grétar bendir til dæmis á það, að
verð á ýsu sé mjög gott, jafnvel
hærra en ytra. í gær hafí til dæm-
is um 4 tonn alls farið á 150 krón-
ur kílóið. Annars ráði framboð og
eftirspurn hér heima mestu um
verðið. Nú sé framboð nokkuð mik-
ið, en eftirspurn lítil af ýmsum
ástæðum og því lækki verðið líka.
Því virðist sú leið öruggust, þeg-
ar til lengri tíma er litið, að leggja
áherzlu á aukið vinnsluvirði og
komast eins nálægt neytendum
eins og unnt er. Þannig verður
hættan á verðlækkunum minni en
ella. Séu menn um of háðir útflutn-
ingi á hráefni til vinnslu, svo sem
ísuðum físki, heilfrystum fiski eða
iðnaðarblokk, er hættan á áföllum
miklu meiri eins og nú er að koma
í ljós.
Einn best útbúni bíllinn
í sínum flokki.
Framhjóladrifinn og öflugur.
Leitið nánari upplýsinga
og reynsluakið
þessum skemmtilega bíl.
OPIÐ LAUGARDAG 10-14
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. • ARMÚLA 13, SÍMl: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
VERÐ RÐEINS
FRA KR.
784.000