Morgunblaðið - 12.03.1993, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
Rothögg Keatings?
ÁSTRALIR ganga að kjörborði á morgun, laugardag, og kjósa nýtt
þing. Skoðanakannanir að undanfömu hafa bent til þess að afar
mjótt sé á munum milli Verkamannaflokksins annars vegar, en hann
fer með völdin, og stjómarandstöðu Frjálslynda flokksins og íhalds-
flokksins hins vegar. í gær vom birtar nýjar tölur um atvinnuleysi
sem hefur aukist og var talið að það kynni að ráða úrslitum og
kosta ríkisstjóm Pauls Keatings sigur. Ein milljón manna em án
atvinnu í Ástraiíu eða sem svarar 11,1% vinnufærra manna. Fregn-
in um aukið atvinnuleysi olli skjálfta á verðbréfamörkuðum í Ástral-
íu og var myndin tekin á einum slíkum í Sydney.
Boðar flug Rússa
með hjálpargögn
til Bosníu-Serba
Belgrad. Reuter.
RÚSSAR hafa ákveðið að taka þátt í flugi með hjálpar-
gögn til Bosníu en munu einvörðungu varpa þeim út yfir
sex byggðir Serba sem eru á svæðum á haldi músiima, að
því er Ratko Mladic, yfirmaður hersveita Bosníu-Serba
sagði í gær. Slobadan Milosevic, forseti Serbíu, neitaði í
gær að styðja friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna og Evrópu-
bandalagsins.
Mladic sagði ekki hvenær rúss-
neska hjálparflugið hæfíst en það
yrði þó á allra næstu dögum. Hann
hélt því fram að ekkert af birgðum
sem bandarískar flugvélar hefðu
varpað út yfír Bosníu undanfarna
10 daga hefði fallið til jarðar í
byggðum Serba.
Tvísýnt þótti um friðaráætlun
Owens lávarðar og Cyrus Vance,
milligöngumanna Evcrópubanda-
lagsins (EB) og Samienuðu þjóð-
anna (SÞ), í gær þar sem leiðtogar
tveggja deiluaðila af þremur lögðu
enn á ný til að skiptingu Bosníu í
stjórnsýslusvæði yrði breytt.
Átök urðu um friðartillögumar á
fundi stjómar Bosníu í Sarajevo í
gær og fyrradag. Alija Izetbegovic
forseti var sagður leggjast gegn
tillögunum óbreyttum. Þá sagði
Radovan Karadzic leiðtogi Bosníus-
erba að kortið um skiptingu Bosníu
væri það eina sem stæði í veg fyrir
því að friður næðist. Sagði hann
að tilraunir til að einangra sig og
knýja til undanlátsemi yrðu einung-
is til þess að ennþá róttækari öfl
tækju við forystu í röðum Serba.
Vance og Owen reyndu að fá
Slobodan Milosevic Serbíuforseta til
að þrýsta á Bosníu-Serba að gefa
eftir en hann neitaði því. Hann
kvað fylkingarnar þijár í Bosníu
ættu sjálfar að semja um frið í land-
inu.
------» » ♦-----
Stöðva lax-
innflutning
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgnnblaðsins.
Framkvæmdastj órn Evrópu-
bandalagsins (EB) hefur ákveðið
að banna innflutning á laxi frá
Noregi til aðildarríkjanna fram tdl
30. april.
Bannið er sett til að stemma stigu
við að sjúkdómurinn anaemia, sem
lýsir sér í súrefnisskorti í blóði, og
heijað hefur á norskan lax, breiðist
út til bandalagsins. Bannið verður
látið taka til óslægðra og lifandi laxa.
Talið er líklegt að bannið leiði til
aukins útflutnings frá Noregi á öðr-
um afurðum unnum úr Iaxi svo sem
flökum.
Nefnd leggur tíl róttækar breytingar á sænsku þjóðfélagi
Vilja bylta stjórnkerfinu og
draga úr sérhagsmunagæslu
NEFND undir forsæti hagfræðiprófessorsins Assars
Lindbecks, sem sænska ríkisstjórnin fól á síðasta ári finna
lausn á langtímavanda sænsks efnahagslífs, kynnti tillögur
sínar á blaðamannafundi í fyrradag. Nefndin leggur m.a. til
að þingmönnum verði fækkað um helming, kjörtímabilið lengt
í 4-5 ár og eyðslu ríkisins settar mjög strangar skorður.
Þinginu beri að samþykkja ákveðinn tekju- og útgjaldaramma
og ef einhver vill auka útgjöld verði hann samhliða að koma
með tillögur um að lækka eitthvað annað á móti.
Tillögnrnar kynntar
Hagfræðingamir Assar Lindbeck og Agnar Sandmo kynna skýrslu
um breytingar á sænsku samfélagi á blaðamannafundi á þriðjudag.
Nefndin leggur til að ríkisútgjöld
verði hamin á næstu fjórum til fímm
árum fyrst og fremst með því að
skera niður útgjöld. Telur hún rétt,
í ljósi hins bága efnahagsástands
nú, að meginniðurskurðurinn eigi
sér stað á árunum 1995-1997. Alls
telja nefndarmenn að bæta verði
stöðu ríkissjóðs um 600-700 millj-
arða ísienskra króna á þessu tíma-
bili umfram það sem þegar hefur
verið ákveðið.
Alls hefur nefíidin lagt fram 113
tillögur til breytinga á sænsku sam-
félagi og eru þær kynntar í skýrslu
sem er 200 blaðsíðna löng að við-
bættum 800 blaðsíðna greinargerð-
um. Meginmarkmið tillagnanna er
að leysa langtímavanda landsins en
þar sem nefndin telur mjög brýnt
að hefjast handa strax kynnti hún
einnig tillögur til lausnar á aðsteðj-
andi 'vanda.
„Efnahagskreppan er alvarlegri
en flestir gera sér grein fyrir og
það versta er ennþá framundan,
ekki síst þegar atvinnuleysið er
haft í huga,“ sagði Lindbeck á
blaðamannfundinum, þar sem til-
lögumar voru kynntar. Hann sagð-
ist telja nauðsynlegt að gera mjög
fljótlega grundvallarbreytingar á
efnahags- og stjórnmálakerfí Sví-
þjóðar til að forðast það allsheijar-
hrun sem annars blasti við.
Stjómmálafræðingurinn Olof
Petersson, sem sæti á í nefndinni,
sagði að efnahagskreppan væri
einnig pólitísk kreppa og stafaði
af því að sérhagsmunimir hefðu náð
tökum á þingi jafnt sem ríkisstjóm.
„Þingið sinnir ekki starfí sínu leng-
ur. Því tekst ekki að sinna kalli
hinna almennu samfélagshags-
muna og er í staðinn orðið að far-
vegi fyrir sérhagsmuni af mismun-
andi tagi,“ sagði Petersson á blaða-
mannafundinum. Fagráðuneytin
kallaði hann „sendiráð sérhagsmun-
anna .
Hann sagði að það væri líka al-
varlegt vandamál hversu menn
ættu erfítt með að sjá tíu ár fram
í tímann eða svo. Það væri vegna
þess að fjölmiðlar einblíndu á
skammtímaáhrif aðgerða og stjóm-
málamenn væru einfaldlega ófærir
um að hugsa til lengri tíma.
Carl Bildt forsætisráðherra hefur
fagnað tillögum nefndarinnar og
segir niðurstöðumar vera framar
öllum vonum. Hefur hann þegar
gefíð út þau fyrirmæli til ráðuneyta
að gerð verði úttekt á því hvað
þurfí að gera til að hrinda tillögum
nefndarinnar í framkvæmd.
*
Akvörðun
Clintons
ólögleg
DÓMSTÓLL í Bandaríkjunum
hefur ógilt eina af fyrstu
ákvörðunum Bill Clintons í for-
setaembætti og úrskurðað, að
það bijóti í bága við alríkislög,
að sérstakur starfshópur í heil-
brigðismálum skuli koma sam-
an fyrir luktum dyrum. Clinton
hafði aðeins verið forseti í fímm
daga þegar hann skipaði starfs-
hópinn og eiginkonu sína, Hill-
ary, útnefndi hann formann.
Fjöldamorð
Rauðra
khmera
SVEITIR Rauðra khmera undir
forystu illræmds einfætts for-
ingja, Ta Moks, myrtu að
minnsta kosti 34 óbreytta borg-
ara og særðu 29 skammt frá
borginni Siem Reap seint í
fyrrakvöld. Er það mesta ódæð-
isverk sem framið hefur verið
í lahdinu frá undirritun friðar-
samninga í október 1991. Flest
fómarlambanna voru konur og
böm sem voru á kvikmynda-
sýningu.
Parkinson
látínn
CYRIL Northcote Parkinson,
höfundur Parkinson-lögmálsins
sem §allar m.a. um það eðli
skrifræðisins til þess að vinda
upp á sig, er látinn á 84. aldurs-
ári. Lést hann á hjúkrunar-
heimili í heimaborg sinni, Kant-
araborg. Eftir hann liggja um
60 bækur um sögu, hagfræði
og misheppnuð mannanna
verk.
Aukinn
niðurskurður
fjárlaga
Fjárlaganefnd fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings afgreiddi í
fyrradag fímm ára fjárlagaá-
ætlun þar sem mun lengra er
gengið í niðurskurði og lækkun
fjárlagahalla en áætlanir Bills
Clintons forseta gera ráð fyrir.
Eru útgjöld skorin niður um
62 milljarða umfram tillögur
Clintons. Búist er við að þing-
deildin afgreiði frumvarpið í
næstu viku.
Clinton
fækkar her-
stöðvum
BÚIST er við, að Bandaríkja-
stjóm tilkynni bráðlega um
verulega fækkun bandarískra
herstöðva erlendis og aðallega
í Evrópu. Skýrði Leon Panetta,
fjárlagastjóri ríkisstjómarinn-
ar, frá þessu í gær og sagði,
að listi yfir herstöðvamar
myndi fylgja útgjaldaáætlunum
Pentagons, bandaríska her-
málaráðuneytisins. Auk þessa
verður herstöðvum í sjálfum
Bandaríkjunum fækkað, líklega
um 30 og umsvifin minnkuð í
allt að 150, en það getur haft
alvarleg áhrif á efnahag við-
komandi sveitarfélaga eða hér-
aða. Ætlar Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti að skýra frá því í
dag hvað gert verður þeim til
hjálpar. Pentagon rekur 481
stöð í Bandaríkjunum og 136
erlendis.