Morgunblaðið - 12.03.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
27
Sættirnar
rofnar
BORÍS Jeltsín forseti Rússlands
hélt tuttugu mínútna ræðu í gær-
morgun á fulltrúaþinginu sem
sjónvarpað var um landið. Þar
sagði hann að vegna framferðis
þingmanan stæði ekki steinn yfír
steini í samkomulaginu sem hann
gerði við þingið í desember síðast-
liðnum. Rúslan Khasbúlatov, hér
til hliðar, sem gerði umræddan
samning, sagði að þar hefði verið
um djöfullegan gerning að ræða.
Bandaríkjaforseti heitir Jeltsín fullum stuðningi
Rætt um „öryggisnet“
fyrir bágstadda Rússa
Washington. Reuter.
BILL Clinton forseti Bandaríkjanna hét því í fyrrakvöld að gera
hvað hann gæti til að hjálpa Borís Jeltsín forseta Rússlands. Kvaðst
Clinton þeirrar hyggju að Jeltsín myndi verða ofan á í valdabarátt-
unni þótt margar spár væru svartsýnar. Bandarísk stjómvöld til-
kynntu í gær að eining væri að skapast meðal sjö helstu iðnríkja
heims (G-7 hópsins svokallaða) að halda fund sem fyrst um aðstoð við
Rússa.
„Hann er enn aðaltalsmaður lýð-
ræðis, framfara og markaðsumbóta,"
sagði Clinton á fréttamannafundi í
Hvíta húsinu. „Hann þarf einungis
smá aðstoð til að tryggja að þeir
geti sýnt að þetta gangi upp. Við
ætlum að gera hvað við getum.“
Jeltsín og Clinton hafa ákveðið leið-
Dollarínn
hækkar
London. Reuter.
ALMENNAR áhyggjur af sljóra-
málaástandinu í Rússlandi leiddu
til þess að dollarinn hækkaði tvo
undanfama daga og hefur hann
ekki verið hærri gagnvart þýska
markinu í ellefu mánuði.
„Það getur vel verið að ótti mark-
aðanna sé ástæðulaus og óskynsam-
legur en þama gefst gott tilefni til
viðskipta á annars viðburðalausum
degi,“ sagði Gerald Holtham hag-
fræðingur hjá Shearson Lehman í
samtali við Reuters-fréttastofuna.
Að sögn kaupsýslumanna varð þýska
markið fyrir barðinu á fréttunum frá
Rússlandi vegna nálægðar Þýska-
lands við Rússland og hugsanlegrar
flóðbylgju flóttamanna þaðan.
togafund 3.-4. apríl í Vancouver.
Hefur Bandaríkjaforseti heitið því
að vera með frumlegar tillögur í far-
teskinu um skyndiaðstoð við Rúss-
land.
Samkvæmt bandaríska dagblað-
inu Washington Post fela væntanleg-
ar tillögur í sér að stofnaður verði
sjóður til að greiða atvinnulausum
Rússum og ellilífeyrisþegum bætur
og opinberum starfsmönnum eins og
hermönnum, lögreglu, kennurum og
tollgæslumönnum launauppbót. Litið
yrði á þennan sjóð sem öryggisnet
fyrir Rússa sem eiga nú við óðaverð-
bólgu að stríða á meðan efnahags-
umbyltingin fer fram. Hugmyndir
eru um að slíkur sjóður réði yfír
milprðum dala og myndu öll helstu
iðnríki heims greiða í hann. Michael
Mandelbaum frá John Hopkins skóla,
sem var einn helsti ráðgjafí Clintons
í málefnum Rússlands í kosningabar-
áttunni, segist þó hafa efasemdir um
að hægt sé að fá svona róttækar til-
lögur samþykktar í Bandaríkjunum
eins og pólitísku andrúmslofti þar
er háttað.
George Stephanopoulos, talsmað-
ur Bandaríkjaforseta, sagði í fyrra-
kvöld að Clinton hefði ekki ástæðu
til að ætla annað en Jeltsín yrði enn
við völd þegar að leiðtogafundinum
kæmi.
Hverjum
heilsaði
forsetinn?
TALSMAÐUR Borís Jeltsíns
forseta Rússlands hefur vak-
ið athygli fyrir skorinorð
ummæli um valdabaráttuna í
landinu. I gær vakti hann
athygli fréttamanna á því
hveijum forsetinn heilsaði
fyrst er hann gekk í þingsal-
inn.
Fréttamenn spurðu tals-
manninn, Vjatsjeslav Kostikov,
hvað Jeltsín gæti gert ef full-
trúaþingið héidi áfram að gefa
honum langt nef. „Það eru
mörg öflug vopn í vopnabúri
forsetans. Eg myndi vilja vekja
athygli ykkar á smáatriði sem
kynni að hafa farið fram hjá
ykkur. Þegar forsetinn kom í
fundarsalinn í dag heilsaði hann
fyrst Gratsjev, Barannikov og
Jerin. Herrar mínir, ég ætla
ekki að tjá mig um þetta atvik,
e.t.v. má rekja þessa kveðju tií
tilviljunar og geðshræringar."
Svo vill til að mennimir þrír sem
Jeltsín heilsaði fyrst eru vamar-
málaráðherra, öryggismálaráð-
herra og innanríkisráðherra
Rússlands.
CUU MIÐINN TRYCCIR GÆÐIN!
í frumskógi vítamína og bætiefna getur veriö erfitt að velja rétta glasið.
Glösin með gula miðanum tryggja að þú fáir vönduð, náttúruleg bætiefni sem sett eru saman
með tilliti til íslenskra aðstæöna og samþykkt til sölu af lyfjanefnd.
Heiti bætiefnis
I hæsto gæðoflokki,
fromleitt of Heilsu hf.
Hárnókvæm opptolning
hinno nðttúrolegu bætiefno
ouk upplýsingo om mogn
hvers fjörefnis I töflu.
Við leggjum ofurðherslu ð oð
noto rioeins örugg og óskoðleg
fyllingor og binoiefni.
Öll bætiefni frð Heilsu hf. eru
lous við óæskileg oukoefni svo
sem rotvornor og litorefni e
tilbúin btogðefni.
Nðnori
inniholdslýsing.
Vítomln og bætiefni
Heilsu hf. eru fromleidd
úr nðttðrulegom
hrðefnum.
Við höldum uppi
ströngu gæðoeftirliti.
Fromleiðslunúmer
(Botch. nr.) er einn
liður I þvl.
Innsigloð lok sem oðeins
verðut rofið einu sinni.
Hvert glos er innsigloð
sérstoklego.
Mogn og/eðo styrkleiki bætiefnis.
Vítamín og ttnnur bætiefni meb gula
Acidophilus töflur
Bantamín súper
B-3 vítamín
B-5 vítamín
B-6 vítamín
B-súper
B-stress
Barnavít
Beta carotene
C-500 mg
C-1000 mg
Dolomite
E-vítomín 200 ae
E-vitomín 500 ae
Echinaforce töflur
Hvitlaukshylki
Hveitikímsolía
Jórntöflur
Kalk
Lecitin hylki
Mini grape
Eplið i húsinu er gæðostimpillinn
sem tryggir oð þú hofir hðgæðc
nðttúrulego vöru I höndunum.
mibanum:
Multi mineral
Multi vit
Prostasan
Rubiaforce töflur
Þaratöflur
Sínk
Vítamín Heilsu hf. fást í
Heilsuhúsinu Skólavörbustíg og
Kringlunni, öbrum heilsubúbum,
apótekum og heilsuhilium
matvöruverslana.
Éh
eilsuhúsið
Kringlan s: 689266. Skólavördustíg s: 22966