Morgunblaðið - 12.03.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
33
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar og Co. úrskurðuð gjaldþrota
Fundir um
Um 7 0 starfsmenn í
vinnu hjá fyrirtækinu
stöðu sjáv-
arútvegs
STAFNBÚI, félag sjávarútvegs-
fræðinema við Háskólann á Ak-
ureyri, efnir til funda á Norður-
og Austurlandi vegna hinnar al-
varlegrar stöðu sjávarútvegs
landsmanna. Fyrsti fundurinn
verður í Víkurröst á Dalvík á
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsonar og Co. var úrskiu'ð-
uð gjaldþrota hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær
að beiðni stjórnar félagsins. Fyrirtækið hefur átt í mikl-
um rekstrarerfiðleikum undanfarið og var tap af rekstr-
inum á síðasta ári um 100 miiyónir króna og var eigið
fé þess neikvætt um 25 milljónir króna í lok síðasta
árs. Fyrirtækinu var neitað um afurðalán vegna grá-
sleppuhrognakaupa og þá átti það yfir höfði sér kröfur
vegna meintra vangoldinna tolla, þannig að stjórn fé-
lagsins taldi möguleika á fjármagna reksturinn ekki
lengur fyrir hendi og var því óskað eftir gjaldþrotaskipt-
um. Um 70 manns unnu hjá fyrirtækinu.
Fyrirtækið hefur átt í veruleg-
um rekstrarörðugleikum um skeið,
sem m.a. stafa af hækkandi til-
kostnaði á sama tíma og afurða-
verð hefur staðið í stað eða lækk-
að og þá hafa háir vextir valdið
fyrirtækinu erfíðleikum. Ekki
þóttu lengur möguleikar á að fjár-
magna reksturinn, fyrirtækið var
komið í greiðsluþrot og samþykkti
stjórn þess samhljóða á fundi í gær
að óska eftir gjaldþrotaskiptum til
að firra lánardrottna frekara tjóni.
Neitað um afurðalán
Síðustu fímm ár hefur gengið á
eigið fé fyrirtækisins og var það
neikvætt um 25 milljónir um síð-
ustu áramót. Fyrirsjáanlegt þótti
að félagið gæti ekki staðið í skilum
eftir að viðskiptabanki þess,
Landsbanki íslands, neitaði félag-
inu um afurðalán, allt að 200 millj-
ónum króna, vegna grásleppu-
hrognakaupa, en vinnsla þeirra
nánast ein skilaði hagnaði síðast-
liðin ár. Félagið gat ekki sjálft fjár-
magnað kaupin svo og yfírvofandi
kröfur vegna meintra vangoldinna
tolla að upphæð um 150-200
milljónir króna og því var ekki
lengur rekstrargrundvöllur fyrir
félagið.
Bókfært verð eigna Niðursuðu-
verksmiðju K. Jónssonar sam-
kvæmt ársreikningi 1992 er 797,6
milljónir króna, en skuldir félags-
ins nema samtals 822,5 milljónum
króna, þar af eru skammtíma-
skuldir 629,5 milljónir króna og
langtímaskuldir 193 milljónir
króna. Tap af rekstrinum var um
100 milljónir króna á síðasta ári,
eða 10,35% af veltu og hreint
rekstrarfé er neikvætt um tæplega
190 milljónir.
Markaðurinn lokaðist
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
son og Co var stofnuð 13. nóvem-
ber árið 1947, en félagið hefur frá
upphafí framleitt niðursuðuvörur
bæði fyrir innanlandsmarkað og
til útflutnings, en einnig hefur á
síðustu árum verið framleidd fros-
in rækja og kavíar úr grásleppu-
hrognum hjá félaginu. Mikilvæg-
asti markaðurinn fyrir afurðir fyr-
irtækisins var í Sovétríkjunum, en
sá markaður lokaðist fyrir þremur
árum. Stærsti markaðurinn að
undanfömu hefur verið á Englandi
auk Frakklands, Þýskalands og á
Norðurlöndum.
Fyrirtækið hafði yfir að ráða
um 8.000 fermetra húsnæði og
frystigeymslur upp á 6.200 fer-
metra. Auk framleiðslunnar var
rekin hjá fyrirtækinu rannsóknar-
stofa og þá var það með eigin
söluskrifstofu.
K. Jónsson og Co var í eigu
Kristjáns Jónssonar og bama hans
auk fyrirtækjanna Samheija á
Akureyri og Sæplasts á Dalvík.
Ólafur Birgir Ámason hrl. var
skipaður skiptastjóri búsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tómlegt
LÍTIÐ líf var á athafnasvæði K. Jónssonar eftir
að fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í gær. Á
innfelldu myndinni sést Kristján Jónsson, stofnandi
og aðaleigandi fyrirtækisins.
morgun og hefst klukkan 14.30.
Á fundinum verður rætt um stöðu
smærri útgerða og framtíð þeirra.
Fyrirlesarar verða þeir Sveinn Hjört-
ur Hjartarson, Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, Öm Pálsson,
Landssambandi smábátaeigenda,
Valdimar Kjartansson, útgerðarmað-
ur á Hauganesi, Hálfdán Kristjáns-
son, bæjarstjóri í Ólafsfirði, Jón Her-
mann Óskarsson, Stafnbúa, og
Skarphéðinn Jósepsson, Stafnbúa.
♦ ♦ ♦--------
■ MÁLÞING um heimspeki-
kennslu í gmnn- og framhaldsskól-
um verður haldið i Háskólanum á
Akureyri á laugardag, 13. mars
nk., og stendur það frá kl. 14 til
17.30. Það er Félag áhugafólks um
heimspeki á Akureyri sem efnir til
málþingsins. Þeir sem flytja fyrir-
lestra eru dr. Hreinn Pálsson, Atli
Harðarson MA og dr. Kristján
Kristjánsson, en í fyrirlestrunum
verður fjallað um heimspeki sem
þátt í uppeldi og kennslu í skólum
landsins. Allt áhugafólk er velkomið
á málþingið og er aðgangur ókeypis.
Þrotabú Híbýla hf. afhendi
bæjarsjóði kaupleiguíbúðir
ÞROTABÚ Híbýla hf. hefur verið dæmt til að
afhenda bæjarsjóði Akureyrar 15 íbúðir í fjölbýl-
ishúsi við Helgamagrastræti 53. Umræddar íbúð-
ir eru kaupleiguíbúðir á vegum Akureyrarbæj-
ar, en Híbýli var með húsið í byggingu er fyrir-
tækið varð gjaldþrota. Dómur féll í málinu í
Hæstarétti í gær, en því var áfrýjað í ágúst 1990.
í kjölfar gjaldþrots byggingafyrirtækisins Híbýla hf.
reis m.a. skiptaréttarmál á milli þrotabús Híbýla og
bæjarsjóðs Akureyrar, sem snerist um hvort búinu bæri
að afhenda bæjarsjóði til fullrar og kvaðalausrar eignar
15 íbúðir í húsinu við Helgamagrastræti 53. Lagði Akur-
eyrarbær fram gögn í málinu er byggðust á því að um
verksamning milli aðila væri að ræða og bærinn sem
verkkaupi hafi eignast mannvirkið um leið og það reis.
Fulltrúar þrotabúsins töldu að um kaupsamning hafi
verið að ræða og fyrirtækinu úthlutað lóðinni kvaða-
laust og öll mannvirki sem á henni hafí verið reist því
eign þrotabúsins.
Sérstakur setuskiptaráðandi, Margrét Heinreksdóttir,
úrskurðaði í málinu árið 1990 á þá leið að viðurkenndur
var óskilyrtur eignarréttur Akureyrarbæjar á íbúðunum
og þrotabúinu því gert að afhenda bæjarsjóði þær utan
skuldaraðar.
Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar og var dómur í
málinu kveðinn upp í gær og var hann samhljóða fyrri
úrskurði að öðru leiti en varðaði málskostnað, en þrotabú
Hfbýla var gert að greiða bæjarsjóði Akureyrar 300
þúsund krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar að ágreiningslaust
var að Híbýli fékk úthlutað leigulóð frá Akureyrarbæ
til að byggja á fjölbýlishús. Akureyrarbær var og er
eigandi lóðarinnar og úthlutaði verktakanum henni á
leigu til byggingar fjölbýlishúss og ekkert hafi verið því
til fyrirstöðu að bærinn gerði verksamninga við lóðar-
hafa um byggingu íbúðanna, eins og gert var. Sem að-
ili að verksamningnum hafi bærinn orðið eigandi að íbúð-
unum við það að efna greiðslur samkvæmt þeim.
Ni er meiro spunnið í símann pinn en |>ú heldur
Vakning/áminning*
efhann er tengdur stafrœna símakerfinu
*Þessi þjónusta ertil staðar hjá öllum notendum stafræna símakerfisins.
Að sjálfsögðu getur þú einnig hringt í 02 eins og áður og látið vekja þig.
Notaðu símann þinn; hann gerir meira gagn en þig grunar. Til að fá nánari upplýsingar
um sérþjónustu stafræna sfmakerfisins getur þú hringt í númer 99-6363 á skrifstofu-
tíma (sama gjald fyrir alla landsmenn), á söludeild Pósts og síma eða á næstu póst- og símstöð.
Vakning/áminning kostar 5 skref eða kr. 16.60.
Þú getur látið símann þinn vekja þig eða minna þig á áríðandi stefnumót
hvenær sólarhringsins sem er. Ef þú þarft að vakna snemma, til
dæmis klukkan 4.00 vegna ferðalags til útlanda, er gott að geta
treyst á að síminn veki þig. Þegar þú pantar vakninguna tekur
þú upp símatólið og eftir að sónninn kemur ýtir þú á
E355Qvakningartímann 0400 03
Ef þú hættir við að láta símann vekja þig, ýtir þú á
£355 Qvakningartímann 0400 £3
SÉRÞJÓNUSTA
SÍMANS