Morgunblaðið - 12.03.1993, Side 42
Minning
Elísabet Böðvarsdóttir
kaupkona, Hafnarfirði
Fædd 20. apríl 1896
Dáin 3. mars 1993
í dag verður jarðsungin frá Þjóð-
kirkjunni í Hafnarfírði amma mín,
Elísabet Böðvarsdóttir, kaupkona.
Ég varð svo lánsöm að kynnast
henni mjög vel og eftir því sem ég
kynntist henni betur fannst mér
meira til hennar koma.
Hún fæddist í Drangshlíð undir
Eyjafjöllum 20. apríl 1896. Árið
1902 fluttist hún til Hafnarfjarðar
með föður sínum, Böðvari Böðvars-
syni, fósturmóður sinni, Guðnýju
Jónsdóttur, og bróður sínum, Jónasi
Böðvarssyni, síðar skipstjóra. En
þau tvö komust á legg af sex systk-
inum.
Móðir þeirra, Sigríður Jónasdótt-
ir, lést árið 1900 og kom Guðný
þá til hjálpar og varð svo seinna
kona Böðvars. Reyndist hún þeim
systkinum eins og besta móðir.
Eina uppeldissystur átti amma,
Sigríði Eyjólfsdóttir, og ráku þær
saman verslun í Hafnarfírði í fjölda-
mörg ár. Sigríður lést 19. júlí 1990.
Voru þær vel þekktar af öllum
bæjarbúum.
Amma var vel að sér um allt og
hugsandi kona. Sem dæmi sagði
hún eitt sinn við mig: Beta mín,
konur börðust harðri baráttu fyrir
kosningarétti sínum. Við skulum
bera virðingu fyrir þeirri baráttu
og mæta á kjörstað þótt við skilum
auðu, þetta eru svo mikil mannrétt-
indi.
Mér fínnst ég ríkari eftir að hafa
kynnst henni og þakka innilega all-
ar okkar samverustundir. Ég veit
að hún er fegin að vera loksins
komin heim. Hún hélt sinni reisn
til hinstu stundar.
Blessuð sé minning hennar.
Elísabet Valgeirsdóttir.
Elísabet amma mín kvaddi þenn-
an heim að morgni 3. mars, tæpum
tveimur mánuðum fyrir 97. afmæl-
isdaginn sinn. Hún fæddist 20. apríl
1896 að Steinum undir Eyjafjöllum.
Foreldrar hennar voru Böðvar
Böðvarsson, bakari í Hafnarfirði,
og Sigríður Jónasdóttir frá Drangs-
hlíð. Sigríður var af gömlu Skóga-
ættinni, en Böðvar var afkomandi
Þorvalds Böðvarssonar prests og
sálmaskálds. Amma ólst fyrstu árin
upp í Drangshlíð þar sem faðir
hennar stundaði bústörf. Seinna
fluttust þau til Hafnarfjarðar en
þar hóf faðir hennar rekstur brauð-
gerðar. Amma átti einn bróður sem
lést fyrir nokkur árum. Hann hét
Jónas Böðvarsson og var skipstjóri
hjá Eimskipafélagi íslands í ára-
tugi. Hann var kvæntur Huldu
Haraldsdóttur frá Álftanesi á Mýr-
um. Hún lifír mann sinn í hárri elii.
Sigríður móðir ömmu lést 35 ára
gömul. Guðný systir hennar kom
þá inn á heimilið til að sjá um heim-
ilishaldið. Guðný og Böðvar gengu
seinna í hjónaband, en þeim varð
ekki bama auðið. Það er sagt að
maður eigi að gleðjast þegar gam-
alt fólk kveður þennan heim, það
er sjálfsagt rétt, en þrátt fyrir tæp-
lega hálfrar aldar aldursmun fannst
mér amma aldrei vera gömul. Lífíð
var ekki alltaf dans á rósum hjá
fólki sem var að ala upp börn á
kreppuárunum. Hún fór ekki var-
hluta af því. Hún giftist afa mínum
18 ára gömul, Sigurði Sigurðssyni
bílstjóra. Hann var af Bollagarða-
ætt. Þau slitu samvistir 1922. Þau
eignuðust saman sex böm: Böðvar
B. Sigurðsson, bóksala í Hafnar-
fírði, f. 19. maí 1915; Hrefnu, hús-
móður í Reykjavík, f. 2. júní 1916;
Sigfús Bergmann, bifvélavirkja og
kennara við Iðnskólann í Reykjavík,
f. 18. júlí 1918; Sigurð, fréttamann
hjá Ríkisútvarpinu, f. 27. janúar
1920; Guðnýju Sigríði, húsmóður í
Reykjavík, f. 4. mars 1921; Bryn-
dísi Elsu, húsmóður í Hafnarfirði,
f. 12. nóvember 1922.
Ekki gat amma haft öll bömin
sín hjá sér. Kreppan fór hörðum
höndum um föður hennar. Systk-
inahópnum varð að sundra. Sigurð-
ur afi minn tók nafna sinn og kom
honum í fóstur hjá góðu fólki. Sig-
fús ólst upp að hluta til hjá frænd-
fólki ömmu. Amma fluttist síðan út
í Óseyri til föður síns og Guðnýjar.
Þrátt fyrir þessi erfiðu örlög fann
maður aldrei fyrir biturð hjá ömmu,
hún sagði aldrei hnjóðsyrði um
nokkurn mann.
Hún vann í mörg ár í vefnaðar-
vöruverslun Jacobsens til að sjá
fyrir sér og sínum. Seinna settu hún
og Sigríður Eyjólfsdóttir uppeldis-
systir hennar á stofn vefnaðarvöm-
verslun í Hafnarfirði. Nefndist hún
Hjá Siggu og Betu. Þangað var
gott að koma, þær lumuðu alltaf á
einhverju góðgæti í kompunni á bak
við. Ýmist var það trékassi fullur
af stómm rúsínum með steinum eða
dós með kóngabijóstsykri. Var þá
vafíð kramarhús úr pappír og
skenkt af rausnarskap. Þarna versl-
uðu þessar sómakonur í áratugi og
vom orðnar háaldraðar þegar þær
lögðu verslunina niður. Sigga dó
fyrir fáeinum ámm.
Amma var pólitísk og hafði gam-
an af að ræða um stjórnmál. Hún
tók virkan þátt í starfí Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði um árabil.
Þegar við hittumst fyrir skömmu
þá ræddi hún stjórnmálaástandið
og vissi greinilega margt betur en
þeir sem yngri em. Hún var trú
sinni sannfæringu til dauðadags.
Núna þegar amma er farin er
eitthvert tómarúm í tilverunni. Ég
var ekki aðeins að sjá eftir henni
ömmu minni háaldraðri, ég var líka
að missa minn besta vin. Svipaða
tilfínningu hefur Jenný sem vill
kveðja hana með söknuðu og þakk-
læti fyrir sérlega yndisleg kynni.
Guð blessi minningu ömmu og megi
hún hvfla í friði.
Sigurður Björgvinsson,
Skarði.
Sjá tíminn er liðinn sem tórði í gær
og tíminn á morgun nú færist oss nær
já einn er að fæðast er annar burt fer
því að eilíf nýjungin er.
Það tekur því ekki að tiyliast og þreytast
tímamir líða og breytast
(Bob Dylan/Hörður Zophaníasson)
Langri og viðburðaríkri ævi er
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KARLJ. MAGNÚSSON
rafeindavirkjameistari,
lést á heimili sínu 9. mars.
Ólöf Elrfksdóttir,
Magnús Karlsson, Ingibjörg Gísladóttir,
Sæunn E. Karlsdóttir, Palle S. Pedersen,
Eirikur S. Karlsson,
Sigrún S. Karlsdóttir,
Karl J. Karlsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN JÓNSDÓTTIR
frá Ólafshúsum,
Eyjahrauni 5,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 13. mars kl. 14.00.
Erla Þorvarftardóttir,
Hilmir Þorvarftarson,
Sigrfftur Þórðardóttir,
Þorvarftur Þórðarson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓHANN BALDVINSSON,
Hafnargötu 77,
Keflavík,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn
9. mars, verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju þriðjudaginn 16. mars
kl. 14.00.
Guðríður Eirfksdóttir,
Björn Jóhannsson, Hrönn Sigmundsdóttir,
Sigrfður Jóhannsdóttir, Roy Ólafsson,
barnabörn og langafabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VALGERÐUR RAGNARS,
lést aðfaranótt 11. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragna Halldórsdóttir,
Haukur Halldórsson,
Halldór Gunnar,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
ÁGÚST SIGURÐSSON,
Stykkishólmi,
lést mánudaginn 8. mars.
Jarðsett verður frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. mars
kl. 16.00.
Sætaferðir verða frá BSÍ þann dag kl. 12.00.
Rakel Olsen.
t
Eiginmaður minn,
AÐALSTEINN SÍMONARSON,
Laufskálum,
sem lést 8. mars sl., verður jarðsunginn frá Síðumúlakirkju
laugardaginn 13. mars kl. 14.00.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 10.30.
Fyrir hönd sona okkar, tengdadætra, barnabarna og barnabarna-
barna,
Sigurbjörg Pálsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar,
JÓHANN HERGILS STEINÞÓRSSON,
Skólastíg 18,
Stykkishólmi,
sem lést í Landakotsspítala mánudaginn 8. mars, verður jarðsung-
inn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. mars kl. 14.00.
Börn hins látna.
lokið. Látin er í Hafnarfirði á 97.
aldursári Eiísabet Böðvarsdóttir
kaupkona. Elskuleg mamma, amma
langamma og langalangamma sem
hefur á langri og viðburðaríkri ævi
sinni gefíð okkur svo mikið af sjáifri
sér. Lífíð var ekki alltaf auðvelt,
en það var sama hvað á gekk, ró-
semin, góðmennskan og hjálpsemin
var ætíð til staðar hjá henni, hún
átti alltaf eitthvað afgangs til að
miðla öðrum. Já, lífið var henni
ömmu okkar strangt á stundum,
en jafnframt gjöfult. Oftar en ekki
hafði hún orð á því hversu lífíð
hefði leikið við hana um ævina.
Gæfuleg börn eignaðist hún og yfír
120 afkomendur hennar eru allir á
lífi, heilir og heilbrigðir.
Oft sagði hún við mig: „Það er
ótrúlegt en satt, að af öllum þessum
flölda í kringum mig er ekki svo
mikið sem litli fíngur snúinn á nein-
um.“ Og svo bætti hún við: „Það
er merkilegt hvað þið eruð öll góð
við mig.“ Og maður svaraði að
bragði: „Það er eðlilegt, amma mín,
að við gjöldum gott með góðu.“
Jákvæðari og yndislegri manneslqa
hefur tæpast verið hér undir sól-
inni. Hún gaf svo mikið af sér með
hlýja viðmótinu sínu og okkar mikla
lán var að við fengum að njóta
hennar svo lengi. Mikið megum við
vera þakklát forsjóninni fyrir að
hafa gefið okkur hana ömmu í öll
þessi ár. En það vorum ekki bara
við: starfsfólkið á Sólvangi þar sem
amma dvaldist síðustu æviárin sín
hafði oft orð á því hversu þakklát
og góð hún væri og amma átti held-
ur ekki nógu sterk orð til þess að
lýsa því hve starfsfólkið væri gott
við hana. Já, hún gaf ríkulega af
sér allt það góða sem í henni bjó
og þeir sem umgengust hana áttu
ekki annarra kosta völ en launa
gott og blítt viðmót hennar með
góðu.
Og nú hefur hún fengið lang-
þráða hvíld. Dauðinn kom til henn-
ar hægum og mildum skrefum og
hún fékk notið andlegrar heilsu
fram á síðasta dag. Örugglega sá
endir sem hún helst hefði kosið
sér. Nú er hún horfín á fjarlægar
brautir, en eftir lifa yndislegar
minningar og gott veganesti fyrir
okkur öll er hana þekktum og um-
gengumst í lifanda lífi.
Elsku amma, þakka þér fyrir allt
og ailt. Það var okkar mikla lán í
lífínu að fá að eiga þig að og njóta
leiðsagnar þinnar svona lengi. Og
fyrir það þökkum við af heilum
hug. Um alla framtíð mun björt og
falleg minning um þig lifa í hugum
okkar sem eftir erum. Bömin okkar
munu njóta leiðsagnir þinnar, því
að okkar sem eftir erum er að miðla
reynslunni áfram. Megi allt það
besta í heimi þessum fylgja þér hér
eftir sem hingað til. Þú varst yndis-
lega góð amma.
Steinþór Einarsson
og fjölskylda.
MUNIfl!
Minningarkort Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna
Seld í Garðsapóteki,
sími 680990.
Upplýsingar einnig veittar
í síma 676020.
Sérfræðingar
í hlóiiiaskroytiiiguni
við »11 lækilirri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaóastrætis,
sími 19090