Morgunblaðið - 12.03.1993, Page 51
Stj óraar skrárbrot -
pólitískur harmleikur
Frá Friðjóni Guðmundssyni
Nú hafa þau ótíðindi gerst að
meirihluti Alþingis hefur samþykkt
samninginn um Evrópskt efnahags-
svæði og selt landið okkar án þess
að blikna. Auk þess brotið leikregl-
urnar með því að afgreiða málið
án þess að vera þingtækt sökum
breyttra viðhorfa úti í Evrópu eftir
að samningurinn, eða kannski öllu
heldur samningsuppkastið, var
gert. Án efa er þetta stjórnarskrár-
brot og í mínum huga er 100% vissa
að svo sé. 2. gr. stjórnarskrárinnar
kveður mjög skýrt á um að löggjaf-
arvald, framkvæmdavald og dóms-
vald skuli að öllu leyti vera í hönd-
um íslendinga sjálfra. En með
samningnum eru þessar þtjár meg-
instoðir fullveldisins fluttar að stór-
um hluta úr landi til erlendra vald-
hafa.
Pólitískir samningar —
viðskiptasamningar
Menn verða að kunna skil á aðal-
atriðum og gera skýran greinarmun
á pólitískum samningum og við-
skiptasamningum. Og við verðum
einnig að gera okkur fplla grein
fyrir því að við megum með engu
móti bijóta stjórnarskrána og gera
fullveldið að verslunarvöru. Það
væri öldungis óréttlætanlegt hátta-
lag og brigð við ættlandið. Það er
lýðum ljóst að stjórnarskránni er
ætlað að standa vörð um fullveldið.
Af þessum sökum verðum við að
binda okkur fast við tvíhliða samn-
inga við Evrópuþjóðir eins og aðrar
þjóðir veraldar og á jafnréttisgrund-
velli sem fijálsbornir menn. Það
hafa ekki komið fram nein fram-
bærileg rök, svo ég viti, sem sýna
fram á að ekki sé unnt að ná jafn-
góðum viðskiptalegum árangri í
tvíhliða viðskiptasamningum og
samningum sem eru blanda af við-
skiptum og pólitík, með fullveldisaf-
sali eins og EES-samningurinn er,
alveg tvímælalaust.
Ef Evrópuþjóðirnar ætla sér að
refsa íslendingum fyrir það eitt að
standa uppréttir í samskiptum sín-
um við þær eins og fijálsír menn
og kúga þá til pólitískrar undir-
gefni ber það ótvírætt vott um stór-
skerta réttlætiskennd, valdafíkn og
hroka. Og þá verðum við auðvitað
að halda okkur fyrir utan þeirra
pólitíska samfélag.
Það voru stórfelld mistök að láta
ekki reyna á tvíhliða viðskiptasamn-
inga við EB í stað EES-samnings-
ins. Af þeirri ástæðu var samning-
urinn um evrópska efnahagssvæðið
ótímabær uppgjöf af íslands hálfu.
Traðkað á stjórnarskrá
og lýðræði
Eins og áður er að vikið er ber-
sýnilegt að með EES-samningnum
er meirihluti Alþingis að leiða sjálfs-
forræði íslensku þjóðarinnar til
glötunar líkt og íslensku „höfðingj-
arnir“ gerðu á þrettándu öld. Með
sinni framkomu eru þessir menn
að traðka á stjórnarskránni og lýð-
ræðinu og troða þjóðinni undir er-
lend yfirráð að henni sjálfri for-
spurðri. Alþingi synjaði um þjóðar-
atkvæði þótt tugþúsundir manna
og fjöldi félaga og fyrirtækja hafi
krafist þess. Þetta er pólitísk
nauðgun. EES málið var ekki þing-
tækt þó svo væri látið heita. Samn-
ingurinn á eftir að breytast verði
hann að veruleika sem vonandi
verður aldrei. Það á aldrei að af-
greiða neina samninga, allra síst
svona afdrifaríka, áður en þeir eru
fullbúnir og vissa er fengin um inni-
hald þeirra. Það er fáránlegt og það
sæmir ekki Alþingi að föndra við
slíka hluti.
En það er alveg ljóst að með
þessu háttemi er ríkisstjórnin bara
að negla stjórnarliðið á Alþingi við
samninginn fyrirfram til þess eins
að koma málinu í gegn með ofríki
eða réttara sagt valdníðslu, ef til
þess kæmi að samningurinn yrði
einhvern tímann að veruleika.
Áróðurinn -
Stijálsbýlisþingmenn bregðast
Jón Baldvin, Björn Bjarnason,
Davíð Oddsson og undirtyllur þeirra
í þessu máli á Alþingi hafa með
dyggum stuðningi fréttamanna
ýmissa fjölmiðla lagt á það ofur-
kapp að heilaþvo landsmenn með
blóðugum og linnulausum áróðri
sínum fyrir inngöngu í EES. Þessir
menn hafa reynst skaðvaldar í ís-
lensku þjóðlífi og þar ýmsir frétta-
menn t.d. útvarps og sjónvarps ekki
undanskildir, vegna dæmalausrar
hlutdrægni. En þessum mönnum
hefur ekki, sem betur fer, tekist
að heilaþvo fólkið í sveitum lands-
ins. Þar hefur verið og er andstaðan
gegn EES hvað mest. Þar hafa
menn ekki glatað þjóðernisvitund-
inni og þjóðarstoltinu. Þar hafa
menn óbilaða tilfinningu fyrir gildi
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Skór fundust í leigubíl
SVARTIR vandaðir kvenmanns-
lakkskór fundust í leigubíl frá
Hreyfli fyrir u.þ.b. mánuði. Þeir
fundust þegar leigubílstjórinn
var að hætta akstri um morgun-
inn þannig hann veit ekki í
hvaða ferð skórnir voru skildir
eftir. Upplýsingar í síma 45530.
Óskilamunir í dansskóla
HJÁ Dagnýju Björk danskenn-
ara á Smiðjuvegi 1 í Kópavogi
er mikið af óskilamunum; svo
sem úlpur, vettlingar, skór,
skartgripir og margt fleira. Það
sem ekki verður sótt að vetrar-
starfi loknu verður gefið til líkn-
armála. Vinsamlega hafið sam-
band við dansskólann á opnun-
artíma. Sími 642535.
Gleraugu fundust
GLERAUGU í dökkri umgjörð,
með mjög þykkum gleijum,
fundust fyrir utan verslunina
Formhúsgögn, Suðurlandsbraut
16, sl. miðvikudag. Eigandinn
má vitja þeirra í versluninnni
eða hringja í síma 687080.
Leitað að bílstjóra
Flutningabílstjórinn sem ók
grænum bíl með hvítu húsi og
ók á gulan labradorhund á Kjal-
arnesi er vinsamlega beðinn að
hafa aftur samand við Baldur,
eiganda hundsins, i síma
666029.
Innkaupapoki týndist
RAUÐRONDÓTTUR innkaupa-
poki tapaðist innst á Grettisgötu
og yfir Rauðarárstíginn sl.
þriðjudag. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 21536.
Á NEMENDAMÓTI Verslunar-
skóla íslands, 15. febrúar sl.,
var síð dökkblá ullarkápa tekin
eða afhent í misgripum. Sá sem
fékk kápuna er vinsamlega beð-
inn um að hafa samband í síma
74533 eða fara með hana á
Hótel ísland.
GÆLUDÝR
Týndur kettlingur
GRÁR kettlingur, læða, tapaðist
frá Heiðarseli 6 sl. þriðjudag.
Hún er ómerkt. Allar upplýs-
ingar eru vel þegnar í síma
78422.
fullveldis og þjóðernislegum verð-
mætum. Þar býr fullveldistilfínn-
ingin innra með fólkinu sjálfu. Þar
sjá menn í gegnum blekkingarvef-
inn. Þar er mönnum heitt í hamsi.
Þar eru menn hneykslaðir á þeirri
evrópsku villutrú sem stjórnvöld
hafa tileinkað sér og framkomu
þeirra í þessu máli. Þar sjá menn
að það er verið að hleypa EB-ríkjum
inn í landhelgina með því að rétta
þeim litla fíngurinn. Þar sjá menn
að EB ætlar sér annað og meira
síðar, þ.e. stóran hlut í auðlindum
hafsins á EES-svæðinu. Og þar sjá
menn að innsti hugur stjórnarliðsins
stefnir inn í EB. EES er bara áfangi
á þeirri leið. Það á bara að sinna
ímynduðum peningalegum stundar-
hagsmunum og rugla saman reyt-
unum, en ekki horfa til framtíðar.
Það hefur því komið mér mjög á
óvart og valdið sárum vonbrigðum,
hversu glámskyggnir sumir stijáls-
býlisþingmenn hafa reynst í þessu
máli eða líklega öllu heldur undir-
gefnir og kjarklausir gagnvart of-
ríki flokksagans.
Pálmi á Akri og Egill á Seljavöll-
um höfðu ekki einu sinni kjark til
þess að styðja frávísunartillögu
Jóns Helgasonar þegar afgreiðsla
EES málsins var á dagskrá. Tillögu
sem einungis fól í sér að Alþingi
virti leikreglur. Þegar ég horfði á
þetta var mér nóg boðið. Þarna
voru tveir sveitaþingmenn úr röðum
bænda sem gátu með stuðningi sín-
um komið frávísunartillögunni í
gegn en létu það undir höfuð leggj-
ast. Mér ofbauð. Það er kominn tími
til að gefa svona mönnum frí frá
þingstörfum og kannski hinum líka
sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
um EES-samninginn. Það er afleitt
að geta í hvorugan fótinn stigið í
svona afdrifaríku máli. Það er ekki
trúverðugt. Ég get ekki varist þeirri
hugsun að ýmsir þingmenn séu að
misbjóða samvisku sinni í þessu
máli. Og kannski hafa sumir iðrast
eftir á líkt og Bolli forðum eftir að
hann var búinn að vega Kjartan.
FRIÐJÓN GUÐMUNDSSON,
Sandi, Aðaldal.
Pennavinir
Ellefu ára þýsk stúlka með áhuga
á borðtennis, tónlist, dansi og hand-
knattleik. Vill skrifast á við 10-15
ára krakka:
Nadine Bertschat,
Lindenstrasse 30,
2447 Heiligenhafen,
Germany.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúdent
með áhuga á íþróttum, tónlist og
landbúnaði:
Robert Takyi Mensah,
P.O. Box 459,
Tema,
Ghana.
Tékkneskur kennari með áhuga
á tungumálum og ferðalögum:
Radek Danel,
Smetanova 611,
394 68 Zirovnice,
Czechoslovakia.
Þrettán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist:
Yoriko Aizawa,
2-20-22 Nishimachi Suzur-
andai,
Kitaku Kobeshi,
Hyogo 651-11,
Japan.
Ghanastúlka, 22 ára, með áhuga
á tónlist, tískunni, dýrum o.fl.:
Joyce Tachie-Menson,
P.O. box 1093,
Oguaa State,
Cape Coast,
Ghana.
með .frönskum og sósu
=995.-
TAKIÐMEÐ
■ tilboð!
TAKIDMEÐ
-tilboð!
JarUnn
Qmöatún
- í ykkar hverfi!
ÓDÝRT
í helgarmatinn!
Lambahryggir
499 ^ #5$*
-----
Hrossabjúgu
K.Þ.
399a
Nóatúni 17 - S. 617000 Hamraborg 14, Kóp.- S. 43888
Rofabæ 39 - S. 671200 Þverholti 6, Mos. - S. 666656
Laugavegi 116 - S.23456 Furugrund 3, Kóp.- S.42062