Morgunblaðið - 12.03.1993, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞROTTIR
FOSTUDAGUR 12. MARZ 1993
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
FRJALSAR
Loks sigur
gegn Lakers
PATRICK Ewing skoraði 34 stig
fyrir New York Knicks og átti
stóran þátt í 110:104 sigri gegn
Los Angeles Lakers í fyrrinótt.
Þetta var fyrsti heimasigur
Knicks gegn Lakers í níu ár.
Knicks hefur ekki tapað á Madi-
son Square Garden síðan 28.
janúar s.l., hefur sigrað í 10 heima-
leikjum í röð og 27 alls á tímabilinu
en tapað fjórum. Charles Smith
skoraði 18 stig fyrir heimamenn,
en stigahæstir hjá Lakers voru A.C.
Green með 22 stig og Sedale Thre-
att með 20 stig.
Denver fagnaði fímmta útisigri
tímabilsins, vann Washington
126:112. Dikembe Mutombo og
LaPhonso Ellis gerðu sín 20 stigin
hvor og Reggie Williams skoraði
18 stig fyrir gestina. Tom Gugliotta
skoraði 26 stig og tók 10 fráköst
fyrir heimamenn, en Larry Stewart
var með 20 stig. Þetta var fímmti
tapleikur Washington í röð.
Reggie Lewis, sem gerði alls 22
stig, skoraði úr fjórum vítaskotum
á síðustu 30 sekúndunum í Phila-
delphia og tryggði Boston 104:100
sigur. Xavier McDaniel skoraði 23
stig fyrir gestina, sem hafa sigrað
í sjö af síðustu átta leikjum. Jeff
Homacek var stigahæstur hjá
heimamönnum með -24 stig, en
Philadelphia hefur tapað 15 af síð-
ustu 18 leikjum.
Dallas setti félagsmet, tapaði 16.
leiknum í röð, 124:96 á heimavelli
gegn Portland. Terry Porter skoraði
24 stig og Cliff Robinson 18 fyrir
gestina, en Randy White var stiga-
hæstur heimamanna með 31 stig.
Charles Barkley skoraði 16 af
30 stigum sínum í fyrsta leikhluta,
þegar Phoenix vann Golden State
í 16. sinn í röð á heimavelli, 111:100
að þessu sinni. Dan Majerle skoraði
28 stig fyrir heimamenn, sem eiga
25 heimasigra að baki og aðeins
tvö töp. Staðan var 58:44 í hálfleik
og Phoenix náði mest 21 stiga for-
skoti í þriðja leikhluta. Latrell
Sprewell var stigahæstur hjá Gold-
en State með 22 stig.
Rumeal Robinson, sem tók stöðu
Kenny Andersons í byijunarliði
New Jersey Nets, skoraði 21 stig
í Los Angeles, þar sem Nets vann
Clippers 109:98. Derrick Coleman
skoraði 20 stig.
Shaquille O’Neal skoraði 26 stig
og Tom Tolbert var með 22 í
119:106 sigri Orlando gegn Indi-
ana. Reggie Miller skoraði 32 stig
fyrir gestina og Detlef Schrempf
22, en þetta var þriðji ósigur Indi-
ana í síðustu 10 leikjum.
Orlando, Indiana og Atlanta beij-
ast um tvö sæti í úrslitakeppni
Austurdeildar og stendur Orlando
best að vígi.
Bolvíkingar hættu
Bolvíkingar gáfu síðustu tvo leiki sína í 1. deild karla í körfuknatt-
leik sem þeir áttu að leika við Þór og UMF Akureyrar á Akur-
eyri um síðustu helgi. Sögðust ekki geta fjármagnað ferðina til Akur-
eyrar.
Samkvæmt reglum KKÍ á Bolungarvíkurliðið yfír höfði sér sekt og
þarf að hefja þátttoku í neðstu deild ef þeir hyggjast taka þátt í ís-
landsmótinu næsta keppnistímabil. Allir leikir liðsins þurkast út af
stöðutöflunni.
íviorguimiaoio/iíiinar raiur
Ewing óstöðvandi
Patrick Ewing skoraði 34 stig fyrir New York Knicks og átti stóran þátt í
110:104 sigri gegn Los Angeles Lakers í fyrrinótt. Á myndinni skorar hann
gegn Utah á dögunum án þess að Antony Corbin og Mike Brown komi vömum
við.
Jackson
öflugur í
grinda-
hlaupinu
BRETINN Colin Jackson hitaði
upp fyrir heimsmeistaramótið
innanhúss, sem fram fer íTór-
ontó í Kanada um helgina, með
því að jaf na besta tíma ársins
í 60 m grindahlaupi, sem hann
átti sjálfur. Jackson hljóp á 7,44
sek. og sigraði m.a. Ólympíu-
meistarann Mark McKoy frá
Kanada.
lackson, sem er 26 ára Wales-
búi, varð fyrir miklum von-
brigðum á Ólympíuleikunum í
Barcelona í fyrra en hefur staðið
sig prýðilega á innanhússmótum í
vetur. Hann fór verr af stað en
McKoy í grindahlaupinu um helg-
ina á móti í Karlsruhe í Þýska-
landi, en hljóp frábærlega síðustu
20 metrana og stakk sér fram úr
Kanadamanninum á marklínunni.
McKoy varð annar á 7,46 sek.
og Sergej Usov, Hvíta-Rússlandi,
þriðji á 7,58.
Jackson var í sjöunda himni eft-
ir sigurinn á keppinaut sínum og
æfíngafélaga. „Mark hefur sýnt
að hann er í mjög góðri æfingu og
á annan besta tíma vetrarins. Það
er gott að vinna hann eins oft og
mögulegt er,“ sagði Wales-búinn.
íjóðveijinn Jens-Peter Herold
náði öðrum besta tíma frá upphafí
í 2.000 m hlaupi innanhúss;
.4:56,23. Aðeins Eamonn Coghlan
frá írlandi á betri tíma. Hann hljóp
vegalengdina á 4:54,07 árið 1987,
en sjaldan er keppt í þessari grein.
Mark McKoy sýndi hve sprett-
harður hann er með því að vinna
60 m hlaup á 6,49 sek. Annar
varð Talal Mansour frá Qatar á
6,51 og Joel Asasi, Kúbu, varð
þriðji á 6,55.
ISHOKKI
SAburst-
aði SR úti
Skautafélag Akureyrar burstaði
Skautafélag Reykjavíkur, 19:5,
í leik liðanna á íslandsmótinu í ís-
hokkí á skautasvellinu í Laugardal á
sunnudaginn. Þessi lið leika í sér-
stakri úrslitakeppni um íslandsmeist-
aratitilinn þar sem það lið sem fyrr
vinnur þijá leiki hampar titlinum.
Mörk SR: Geir B. Geirsson, Eggert Rúnars-
son,_Kristján Óskarsson, Jonni Tormannen
og Ámi Bergþórsson eitt mark hver.
Mörk SA: Pekka Santanen 6, Patrik Virtan-
en 6, Heiðar I. Ágústsson 3, Héðinn Bjöms-
son 1, Heiðar Smárason 1, Sigurgeir Har-
aldsson 1 og Magnús Finnsson 1.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
New York Knicks- LA Lakers..110:104
Orlando - Indiana...........119:106
Philadelphia - Boston.......100:104
Washington - Denver.........112:126
Dallas - Portland...........96 :124
Phoenix - Golden State......111:100
LAClippers-NewJersey........98 :109
FjöLVÍTAMÍN FRAMTtDARINNAR
FYRIR NÚTÍMAFÓLK.
HiHwnr
Vígalegir
Markverðir liðanna, Timo Lehtonen (SR) og Pekka Lunden (SA), ásamt dómar-
anum, Lars Tangren frá Svíþjóð, eftir leikinn á sunnudaginn. Tangren hefur
verið með dómaranámskeið hér á landi að undanfömu.
B SERGEJ Bubka, úkraínski
heimsmethafinn í stangarstökki,
verður ekki með á heimsmeistara-
mótinu innanhúss sem fram fer í
Tórontó um helgina.
■ BUBKA er meiddur á hæl, að
sögn talsmanns alþjóða fijáls-
íþróttasambandsins í gær. Bubka
setti heimsmet í 34. sinn í febrúar,
er hann stökk 6,15 m á innanhúss-
móti í heimalandi sínu. í byijun
þessa mánaðar stökk hann hins
vegar aðeins 5,91 m á móti á Spáni.
■ BEN Johnson, kanadíski
spretthlauparinn sem dæmdur hef-
ur verið í ævilangt keppnisbann í
fijálsíþróttum vegna ólöglegrar
lyfjanotkunar, segist jafnvel taka
tilboði um að gerast leikmaður í
ruðningi, amerískum fótbolta.
■ JOHNSON sagði í gær að fél-
agið Canadian Tiger Cats frá
Hamilton hefði gert sér tilboð um
samning. „Þeir hafa viljað fá mig
í fímm ár. Eg reikna með að taka
tilboðinu," sagði hann í gær, í við-
tali við austurríska blaðið Kurier.
KNATTSPYRNA
Firma- og hópakeppni
Breiöabiiks
Firma- og hópakeppni knattspymudeildar
Breiðabliks í knattspymu verður haldin
sunnudagana 21. og 28. mars á gervigra-
svellinum f Kópavogi. Þátttöku skal tilkynna
í síðasta lagi 18. mars, en nánari upplýs-
ingar í sfma 43699 (Steinar) og 641990
(Jón Ingi).
Drechsler ekki með
Heike Henkel, helsta von Þjóð-
veija á heimsmeistaramótinu, sigr-
aði í hástökki kvenna — fór yfír
1,97 m.
Landa hennar, Heike Drechsler,
gullverðlaunahafi frá því í Barce-
lona, sigraði í langstökki; stökk
6,99 m. Hún verður ekki með á
HM í Tórontó; kaus heldur að miða
æfíngar við heimsmeistaramótið
utanhúss sem fram fer í Stuttgart
í sumar.
SKOTFIMI
Ólafur sigraði
á meistaramóti
í Uppsölum
Olafur P. Jakobsson hefur tekið
þátt í nokkrum mótum í
skotfimi í Sviþjóð undanfarið og
gengið vel.
Hann keppti sem gestur á móti
þar sem gerð var úttekt á sænska
landsliðinu í loftskambyssu og
lenti í 10. til 15. sæti með 566
stig af 600 mögulegum. í fyrsta
sæti varð Per-Erik Persson með
577 stig.
A svæðamóti í loftskambyssu í
Uppsölum varð Ólafur í öðru sæti
með 565 stig en sigurvegari varð
Peter Fredriksson með 577. Um
helgina keppti Ólafur svo á meist-
aramóti í loftskambyssu í Uppsöl-
um og sigraði, hlaut 564 stig.
Ólafur verður meðal keppenda
á Islandsmótinu í maí, en hann
keppir fyrir Skotfélag Kópavogs.
Or fréttatilkynningu.