Morgunblaðið - 12.03.1993, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTHR FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ
Morgunblaðið/Ólafur Auðunsson
Fögnuöur í Gautaborg...Gunnar Gunnarsson, Geir Sveinsson, Sigurður Sveinsson, Einar Gunnar Sigurðsson og Héðinn Gilsson
ganga af leikvelli, eftir spennuleikinn gegn Ungveijum í gær.
Gunnar skoradi
700. HM-
mark íslands
Gunnar Gunnarsson skoraði 700. mark íslands í
lokakeppni HM, er hann gerði níunda mark ís-
lands, og kom liðinu í 9:6, gegn Ungveijum í gær.
Gunnar skoraði markið eftir fallegt gegnumbrot. Þar
með hefur hann skráð nafn sitt í hóp þekktra kappa,
sem hafa skorað tímamótamörk fyrir Island í HM.
Gunnlaugur Hjálmarsson skoraði fyrsta mark ís-
lands í heimsmeistarakeppninni - í leik gegn Tékkó-
slóvakíu, 17:12, í Magdeburg í A-Þýskalandi 1958 og
hann skoraði einnig 100. mark íslands. Það var í leik
gegn Frökkum, 20:13, í Homburg í Þýskalandi 1961.
Sigurbergur Sigsteinsson skoraði 200. mark ís-
lands í leik gegn Pólvenum, 21:18, í Metz í Frakk-
landi 1970.
Axel Axelsson skoraði 300. mark íslands, er hann
skoraði gegn Dönum, 17:19, í Ehrfurt í A-Þýskalandi
1974.
Kristján Arason skoraði 400. markið í leik gegn
Tékkóslóvakíu, 19:18, í HM í Sviss 1986 og í sömu
keppni skoraði Atli Hilmarsson 500. markið í leik
gegn Svíum, 23:27, í Bem.
Guðmundur Guðmundsson skoraði 600. markið í
leik gegn Sovétríkjunum, 19:27, í Bratislava í Tékkó-
slóvakíu 1990.
■ BERGSVEINN Bergsveins-
son, markvörður, sá um að reka
endahnútinn á að krúnuraka höfuð
þeirra Sigurðar Bjarnasonar og
Patreks Jóhannessonar, en þeir
ganga nú undir nöfnunum „Siggi
Jordan“ og „Patti Barkley".
■ /SLK/VSK[/leikmennirnir fóru
strax að leik loknum gegn Ung-
verjum í kvikmyndahús. Ef þeir
hefðu tapað leiknum, átti að refsa
þeim með því að horfa á leik
Bandaríkjamanna og Svía.
■ KONRÁÐ Olavson hélt upp á
25 ára afmælisdag sinn í gær, með
því að vera upp í áhorfendabekkj-
um.
■ KONRÁÐ fékk skeyti frá ís-
landi í tilefni dagsins. Það var frá
Hauki í homi, sem er stuðnings-
mannafélag Hauka, en Konráð
mun leika með Haukum í úrslita-
keppninni um Islandsmeistaratit-
ilinn.
■ KONRÁÐ fékk einnig blóm
og kort, sem á stóð KR-ingur.
Konráð lék með KR áður en hann
Serðist leikmaður með Dortmund.
I GUNNAR Gunnarsson geng-
ur um með stórt hljómflutnings-
tæki, eins og bandarískir blökku-
menn eru þekktir fyrir. íslenska
liðið hitaði upp undir íslenskri tón-
list þar til tuttugu mínútur voru
til leiks, en þá tók lúðrahljómsveit
hússins við og yfirgnæfði tónlist-
ina, sem barst frá tæki Gunnars.
■ TÍU þúsund sjálfboðaliðar eru
í vinnu í sambandi við heimsmeist-
arakeppnina.
■ STÓR hluti aðgöngumiða sem
seldir voru fyrir leik Islands og
Ungverjalands, var með ranga
tímasetningu. Þar stóð að leikurinn
hæfist kl. 19, en ekki 18 - sem
var réttur leiktími.
I ENGINN leikmaður íslenska
liðsins var tekinn í lyfjapróf eftir
leikinn gegn Ungverjum. Sigurð-
ur Sveinsson var tekinn í lyfjapróf
eftir leikinn gegn Svíum og sögðu
félagar hans í landsliðinu, að þar
,sem hann fékk aðeins léttöl, hafi
prufan sem tekin var hjá honum,
verið hrein og tær eins og úr korna-
bami.
■ ÞAÐ vakti ekki mikla hrifn-
ingu hjá sænsku blaðamönnunum,
þegar Gunnar Gunnarsson sagði
eftir leikinn gegn Ungveijum, að
hann vonaði að Ungverjar myndu
leggja Svía að velli.
Sýndu mikinn styrk
ISLENDINGAR eru komnirá blað íheimsmeistarakeppninni íhand-
knattleik því í gær unnu þeir Ungverja 25:21 f spennandi leik sem
hefði getað farið illa því Ungverjar voru með eins marks forskot
þegar 11 mínútur voru eftir. En á lokakaflanum gerðu íslendingar
8 mörk gegn 3 og sigruðu með fjögurra marka mun. íslendingar
léku vel lengst af en á smákafla í síðari hálfleik, þar sem allt var
á móti liðinu, og þá sérstaklega pólsku dómararnir, misstu þeir
niður einbeitinguna. Það þarf mikinn styrk til að rífa sig upp eftir
mótlætið en isiensku strákarnir höfðu þann styrk í gær.
Fyrsta mark leiksins kom eftir sjö
mínútur og tvær sekúndur og
það voru Ungveijar sem gerðu það.
■■H íslendingar skoruðu
Skúli Unnar ekki fyrr en eftir 8
Sveinsson mínútur og 13 sek-
úndur og það var ein-
mitt leikmaður núm-
er 13, Sigurður Sveinsson, sem reið
á vaðið. Hann átti eftir að koma
meira við sögu því kappinn gerði 10
mörk og var talsvert annað að sjá
til hans nú en í leiknum gegn Svíum.
Þáttur Guðmundar
íslendingar náðu eftir þetta væn-
legri stöðu, höfðu þriggja marka for-
skot í leikhléi og byijuðu með tveim-
ur mörkum úr hraðaupphlaupum í
þeim síðari. En þrátt fyrir að allt
útlit væri fyrir stórsigur íslendinga
komust Ungveijar aftur inní leikinn
og komust einu marki yfir, 17:18,
og aftur 18:19 þegar 10 mínútur
voru eftir. Þá hófst Guðmundar þátt-
ur Hrafnkelssonar. Hann varði fímm
skot á stuttum tíma og lagði þannig
grunninn að sigrinum. Sigrinum sem
gerir það að verkum að við komumst
í milliriðil og getum ekki orðið neðar
en í 12. sæti þó svo liðið tapi öllum
leikjunum sem eftir eru.
Vamir liðanna voru geysisterkar
framan af og sú íslenska reyndar
allan tímann. Sóknarleikurinn var
einnig ágætur lengst af og sérstak-
lega var hægri vængurinn beittari
en á móti Svíum. Samt kom ekki
mikið út úr homamönnunum hægra
megin, þeim Valdimar og Bjarka.
Bjarki átti reyndar mjög góðan
„endasprett" eftir að Sigurður, sem
var tekinn úr umferð snemma í síð-
ari hálfleik, færði sig niður í homið.
A-RIÐILL
SPÁNN - AUSTURRÍKI .22:15
TÉKKÓSL. - EGYPTALAND ... .20: 21
Fj. leikja U J T Mörk Stig |
SPÁNN 1 1 0 0 22: 15 ?P
EGYPTALAND 1 1 0 0 21: 20 2I
TÉKKÓSL. 1 0 0 1 20: 21 °l
AUSTURRÍKI 1 0 0 1 15: 22 J
í DAG: Austurríki - Tékkðslóvakía og
Egyptaland - Spánn.
Þá losnaði um Bjarka, sem hafði
verið einn og einmana úti í hominu.
íslenska liðið sýndi mjög mikinn
styrk með því að sigra í þessum leik.
Þetta var leikurinn sem skipti öllu
máli og það vissu strákamir og því
spenna í loftinu. Eftir tæplega 7
mínútna leik meiddist Héðinn og
varð að fara útaf. En hrakfarimar
urðu fleiri. Dómaramir virtust leggja
þá Júlíus og Geir í einelti, veittu
þeim tiltal fyrir ekkert og ráku þá
síðan útaf í tíma og ótíma. Þetta
endaði auðvitað með ósköpum. Júlíus
fékk tvívegis að hvíla í fyrri hálf-
leiknum og þegar 16 mínútur voru
eftir og staðan 16:14 fékk hann
þriðju borttvísunina og rautt. Þar
með voru Héðinn og Júlíus úr leik
og Geir búinn að hvíla tvívegis.
Altt gott sem endar vel
En allt er gott sem endar vel og
það gerði það svo sannarlega í
Scandinavium höllinni hér í Gauta-
borg í gærkveldi. Allir í íslenska lið-
inu léku vel. Guðmundur tók 18 skot
í markinu, Sigurður Sveinsson var í
stuði og nafni hans Bjamason kom
sterkur inná eftir að Júlíusi hafði
verið vikið af velli. Geir var með
100% nýtingu á línunni. Bjarki átti
góðan leik þegar virkilega þurfti á
því að halda og Gunnar Gunnarsson
stjómaði af öryggi og lék félaga sína
vel uppi, átti meðal annars fjórar
stoðsendingar og fékk tvö víti. í vöm-
inni mæddi mikið á Júlíusi, Einari
Gunnari, Geir og Gunnari Gunnars-
syni sem tók stöðu Héðins þegar
hann meiddist. Þrátt fyrir að Ung-
veijar hafi gert 14 af mörkum sínum
með langskotum var vöm okkar góð.
B-RIÐILL
RÚMENlA- NOREGUR...........15:15
FRAKKLAND- SVISS...........24:26
Fj. leikja u J T Mörk Stig
SVISS 1 1 0 0 26: 24 2
NOREGUR 1 0 1 0 15: 15 1
RÚMENÍA 1 0 1 0 15: 15 1
FRAKKLAND 1 0 0 1 24: 26 0
f DAG: Sviss - Rúmenía og Noregur
Frakkland.
Morgunblaðið/Ólafur Auðunsson
Það er svo undarlegt með unga menn...Sigurður Bjamason mætti til
leiks með „nýja hárgreiðslu", lokkaði ungversku vömina fram og skoraði þijú
gullfalleg mörk.
ísland - Ungvevjaland 25:21
Scandinavium - íþróttahöllin i Gautaborg í Svíþjðð, heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik, 2. umferð í c-riðli, fimmtudaginn 11. mars 1993.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:2, 4:2, 7:4, 9:6, 11:8, 13:8, 14:9, 14:12, 16:12, 17:15,
17:18, 18:19, 19:19, 22:19, 24:20, 25.21.
Mörk fslands: Sigurður Sveinsson 10/5, Geir Sveinsson 3, Bjarki Sigurðsson 3,
Sigurður Bjamason 3, Gunnar Gunnarsson 2, Júlíus Jónasson 2, Gunnar Beinteins-
son 1, Einar G. Sigurðsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 18 (þaraf fimm til mótheija).
Aðrir leikmenn: Bergsveinn Bergsveinsson, Valdimar Grímsson, Héðinn Gilsson.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Ungveijalands: József Elez 6/1, János Gyurka 5, Lásló Sótonyi 5, Attila
Horváth 2, Attila Borsos 1, Richárd Mezei 1, István Péztor 1.
Varin skot: Róbert Fekete 8 (þar af eitt til mótheija). Imre Biró 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Marek Szajna og Jazek Wroblewski frá Póllandi. Voru á afskaplega
lágu plani.
Áhorfendur: 6.391.
C-RIÐILL IID-RIÐILL
SVlÞJÓÐ- [SLAND..............21:16
BANDARÍKIN- UNGVERJAL........18:33
[SLAND- UNGVERJAL............25:21
SVlÞJÓÐ- BANDARÍKIN..........32:16
FJ. leikja U J T Mörk Stíg
SVlÞJÓÐ 2 2 0 0 53: 32 4
UNGVERJAL. 2 1 O 1 54: 43 2
ISLAND 2 1 0 1 41: 42 2
BANDARlKIN 2 0 0 2 34: 65 0
Á MORGUN: ísland - Bandaríkin og Svf-
þjóð - Ungveijaland.
RÚSSLAND- KÓREA.............33:18
ÞÝSKALAND- DANMÖRK..........20:20
RÚSSLAND- KÓREA.............33:18
ÞÝSKALAND- DANMÖRK..........20:20
Fj. leikja u J T Mörk Stig
RÚSSLAND 1 1 0 0 33: 18 2
DANMÖRK 1 0 1 0 20: 20 1
ÞÝSKALAND 1 0 1 0 20: 20 1
S-KÓREA 1 0 0 1 18: 33 0
f DAG: Danmörk - Rússland og S-K6rea -
Þýskaiand.