Morgunblaðið - 22.04.1993, Qupperneq 4
St’GJ JIHHA ,SS JuOAGUTMMl'-l <JIGAJaKUöíl()M
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. 'APRÍL 1993
Símtöl til útlanda
lækka um 5-9 %
SÍMTÖL til útlanda lækka um 5-9% um næstu mánaðamót.
Lækkunin er í flestum tilfellum 5%, en mest er hún á símtöl
til Þýskalands, eða 9%. Tekjuminnkun Pósts og síma vegna
lækkunarinnar mun nema á bilinu 50-60 milljónir kr. á ári.
Guðmundur Björnsson, aðstoðarsímamálasljóri, segir að
verið sé að samræma taxta símgjalda frá íslandi við taxta
frá útlöndum til íslands.
Guðmundur sagði að tilefni
lækkunarinnar væri af tvennum
toga. „í fyrsta lagi höfum við lengi
stefnt að því að lækka símtöl til
útlanda og höfum reyndar verið
að því undanfarin ár. Sums staðar
er nú orðið jafndýrt eða ódýrara
að hringja héðan. Það er stefnt að
því að lækka gjöld fyrir þessi símt-
öl á næstu árum svo þau verði sem
næst því sem er á símtölum hing-
að,“ sagði Guðmundur.
Stóraukin samkeppni með
inngöngu í EES
Guðmundur sagði að búast
3-4 tilboð
í Dagrúnu
ÞROTABÚ Einars Guðfmnssonar hf.
í Bolungarvík hefur fengið þrjú tilboð
í togarann Dagrúnu IS, til viðbótar
tilboði Ósvarar hf. sem bauð í báða
togara búsins, og bústjóri átti í gær
von á fímmta tilboðinu. Stefán Páls-
son bústjóri sagðist ekki geta gefíð
upplýsingar um tilboðin fyrr en þau
hefðu verið kynnt veðkröfuhöfum
næstkomandi mánudag.
VEÐUR
I DAG kl. 12.00
Heimíld: Veðutstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gœr)
VEÐURHORFUR í DAG, 22. APRÍL
YFIRLIT: Milli (slands og Noregs er 985 mb lágþrýstisvæöi sem þokast
norðaustur og 983 mb lægð um 400 km suður af Vestmannaeyjum
hreyfist austnorðaustur. Yfir Grænlandi er 1012 mb hæð.
SPA: Norðaustan gola eða kaldi. Smáól eða skúrir við norðaustur- og
austurströndina, en viðast bjart veður annars staðar. Hiti 0 til 7 stig,
hlýjast sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðaustlæg átt, nokkur
strekkingur og rigning eða slydda austanlands og él á annesjum norðan-
lands en hægari og víðast bjart veður um landið vestanvert. Hiti 2 til 7
stig að deginum, hlýjast suðvestan tll, en nálægt frostmarki að nóttunni.
HORFUR A SUNNUDAG: Hæg norðan og síðar breytileg átt. El norðaust-
an til í fvrstu en annars þurrt og bjart veður. Heldur hlýnandi.
Nvir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
Ö
▼
Heiðskirt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V 'v' v
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaSrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
s Þoka
stig..
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 í gær)
Vegir á landinu eru víðast greiðfærir. Austanlands er orðið fært á Mý-
vatns- og Möðrudalsöræfum en Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði eru
ófærar. Víða eru í gildi öxulþungatakmarkanir vegna aurbleytu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
á grænni iínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tfma
hiti veður
Akureyrl 2 alskýjaö
Reykjavfk 4 úrk. Igrennd.
Bergen 8 rigning og súld
Helsinki 4 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Narssaresuaq *2 8njók.ásíð.klst.
Nuuk *7 snjókoma
Osló 6 rigning
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 6 súld
Algarve 18 háffskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Barcelona 17 þokumóða
Berlín 21 skýjað
Chicago 0 skýjsð
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 23 léttskýjað
London 16 skýjað
LosAngeles 16 léttskýjað
túxemborg 19 léttskýjað
Madrtd 13 skúr á sið.klst.
Malaga 18 þokumóða
Mallorca 21 heiðskírt
Montreal 2 þoka
NewYork vantar
Ortando 19 alskýjað
París 20 skýjað
Madelra 18 hálfskýjað
Róm 18 léttskýjað
Vín 16 skýjað
Washlngton 17 alskýjað
Winnipeg 1 léttskýjað
Smubrunar víða á Suðurlandi
mætti við stóraukinni samkeppni
á næstu árum með inngöngu í EES
og auknum tækninýjungum. „Það
þýðir ekki bjóða upp á símtöl sem
eru dýrari frá íslandi en frá útlönd-
um hingað. Það hefði í för með sér
að símtöl myndu hefjast í útlöndum
fremur en hérlendis,“ sagði Guð-
mundur.
Milljarður tekinn að láni
erlendis
Að sögn Guðmundar skilaði
Póstur og sími 1.420 milljóna kr.
hagnaði á síðasta ári. Þar af runnu
940 milljónir kr. beint í ríkissjóð.
Greiðslustaðan á síðasta ári var
engu að síður neikvæð um 180
millj. kr., þar sem fjárfestingar
voru meiri en afskriftir. A þessu
ári hefur stofnunin tekið um 960
milljóna kr. erlent lán til að styrkja
greiðslustöðuna.
jí*"4K
;■.
Sina brennd
Morgunblaðið/RAX
REYK úr sinueldi lagði yfir þennan bæ í Flóanum í fyrradag. Víða
var verið að brenna sinu þar um slóðir þegar Ijósmyndarinn flaug yfir.
Sýslumaður hefur
veitt 5-10 leyfi
REYKUR frá sinueldum hef-
ur sést víða á Suðurlandi
undanfarna daga. Sinu-
brennur eru nú algerlega
bannaðar, nema í sveitum
og þá með leyfi sýslumanns.
Lítið hefur verið um leyfis-
veitingar í vor, til dæmis
hefur sýslumaðurinn á Sel-
fossi aðeins veitt 5-10 leyfi
það sem af er vori.
Þórir Haraldsson, fulltrúi sýslu-
mannsins á Selfossi, segir að eftir-
lit með sinubrennum í sveitum sé
erfitt vegna þess hve reglugerð
um framkvæmd banns við sinu-
brennum var gefín seint út í vor.
Slysahætta
Þórir segir að jörð sé afar þurr
þessa dagana og breiðist eldarnir
því fljótt út. Þórir segir að þó eftir-
litið sé ekki komið í fastar skorður
sé tekið jafn hart og áður á sinu-
brennum í nágrenni þéttbýlis og
við umferðaræðar vegna slysa-
hættu. Nefnir hann sem dæmi um
það eldana sem kviknuðu í gróðri
við Sjúkrahús Selfoss í fyrradag
vegna þess að maður fór gáleysis-
lega með sígarettu og umferðaró-
höpp sem urðu fyrir nokkrum
árum á þjóðveginum vegna reyks
sem lagði yfir veginn.
Tívolí í
Hljóinskála-
garðinum?
JÖRUNDUR Guðmunds-
son hefur óskað eftir
heimild borgaryfirvalda
til að reka Tívolí í Hljóm-
skálagarðinum dagana 7.
júlí til 26. júlí í sumar.
Síðastliðið sumar rak sama
fyrirtæki Tívolí á Bakkastæð-
inu í Reykjavík en vegna gatna-
framkvæmda þar í sumar verð-
ur því ekki við komið. í erindi
Jörundar til borgarráðs kemur
fram, að forsenda þess að Tí-
volí geti þrifist er að það sé í
göngufæri frá miðborginni og
að Hljómskálagarðurinn sé eina
lausa svæðið. Ef um skemmdir
yrðu að ræða á gróðri yrðu þær
bættar. Þá er tekið fram að
sérstakar undirstöður eru á
tækjunum þegar þau standa á
grasi.
Borgarráð vísaði erindinu til
umsagnar Borgarskipulags.
Ráðherra breytir áfengisreglugerð
Vínveitmgar heimilar
á milli kl 14.30 og 18
FRÁ og með þriðjudeginum var heimilt að afgreiða áfengi
á veitingastöðum á milli kl. 14.30 og 18. Þetta var nýlega
akveðið í dómsmálaráðuneytinu með breytingu á reglu-
gerð sem felur í sér afnám banns við sölu áfengis á veit-
ingastöðum á þessum tíma dags en fram til þess hefur
aðeins verið heimilt að selja áfenga drykki frá kl. 12 til
14.30 og svo aftur eftir kl. 18.
Að sögn Ara Edwald, aðstoðar-
manns dómsmálaráðherra, er
ástæða breytingarinnar sú að ekki
þóttu lengur nægilega haldbær rök
fyrir að banna áfengisveitingar á
þessum tíma dags en það hefði
valdið ýmsum vanræðum, meðal
annars í þjónustu við ferðamenn.
Umsagna ekki leitað
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
þingmaður Kvennalista, spurði
dómsmálaráðherra á Alþingi á
þriðjudag um þessa breytingu og
hvort eðlilegt væri að taka svo veig-
amikla ákvörðun með reglugerðar-
breytingu, án þess að álits væri
leitað út fyrir ráðuneytið. Þorsteinn
Pálsson svaraði að lögum sam-
kvæmt bæri dómsmálaráðherra að
ákveða slíkar breytingar og hann
teldi það vera eðlilega skipun mála.