Morgunblaðið - 22.04.1993, Síða 9
)
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993 9
Fallegur
sumar-
fatnaður
Kirkjuhvoli ■ sími 20160
feýwwUi' itre^xÁ^i
Verö frá kr.
Flugsæti til Alicante
Verð frá kr.
Verð f. manninn, m.v. hjón
með 2 börn, 2 - 11 ára, I4. júlí.
Beint leiguflug í sumar í samvinnu viðTuravia, eina staerstu
ferðaskrifstofu Spánar. Glæsilegur aðbúnaður í nýjum
íbúðarhótelum á Benidorm og íslensk fararstjórn.
Flugvallarskattar:
Flugvallarskattar og forfallatrygging eru kr. 3.510,- fyrir fullorðinn og
2.285 fyrir börn yngri en I2 ára.
ITURAUIA
air europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
34.900
29.900
Valkoscir og kostnaðui
wíö endurnýjun og
viðHald húsa
Til að veita húseigendum upplýs-
ingar um viðhaldsmarkaðinn heldur
verkfræðistofan Verkvangur hf.
fræðslu- og kynningarfund
föstudaginn 23. apríl n.k.
Fja!!að verður um:
Ástandskannanir, kostnaðaráætlanir,
klæðningar, steypuviðgerðir, þök,
útveggi, hitakerfi, orkusparnað, útboð,
eftirlit, verkáætlanir og ábyrgðir.
Fundurinn verður haldinn
í húsnæði Verkvangs að Nethyl 2,
2. hæð, kl. 16:00.
Fundurinn er öllum opinn á meðan
húsrúm leyfir.
VERKVAIMBUR h.f.
VERKFRÆÐISTOFA
Nelhyl 2 • IIO Reykjavík
Sírni: 91- 67 76 90 • Fax: 91-67 76 91
Niðurskurður
Síðustu vikurnar hefur
mátt lesa fréttir í Morg-
unblaðinu um ráðstafanir
nýrra valdhafa í Banda-
ríkjunum og Frakklandi
til að draga úr bruðli
ráðherra og annara hátt-
settra embættismanna á
almannafé. í báðum lönd-
unum hafa heimildir
þeirra til að ferðast um
i þotum á kostnað rikisins
verið skomar niður, svo
og notkun á lúxusbílum
og risna. Æðstu menn
verða nú að ferðast á al-
mennum fargjöldum
flugfélaga í stað lúxus-
klassa.
Almenningur liður það
einfaidlega ekki lengur,
að starfsmenn hans lifi í
vellystingum praktug-
lega og sendi síðan reikn-
inginn til greiðslu hjá
þeim, sem þurfa að þola
áhrif efnahagssamdrátt-
arins með minnkandi
vinnu og versnandi kjör-
um.
Fráleitar
tekjur
Undanfarin misseri
hafa hluthafar i almenn-
ingsfyrirtækjum í Banda-
ríkjunum snúizt gegn
himinháum tekjum
stjómenda þeirra og hef-
ur það m.«. leitt af sér
uppreisnir hluthafa á að-
alfundum. Þá hafa stjórn-
málamenn og sljómvöld
Vítxandi áhyggjur af
þeirri græðgi, sem marg-
ir sljómendur fyrirtælga
gera sig seka um, og em
undir þrýstingi um að
ráða hér bót á með lög-
gjöf.
I nýjasta tölublaði
bandariska tímaritsins
Business Week er gerð
úttekt á tekjum stjórn-
ÍIGHTECHSSS5T KOREASSK,..,, STRATEGIESU
J v k wy'x- >•'•:■. íj |. •:•>••■; V: ■
EXECUTIVE
Laun og umbun
stjórnenda
í efnahagssamdrættinum, sem gengur
yfir fjölmörg lönd, hafa komið fram há-
værar raddir um afnám hvers konar for-
réttinda og bruðls, sem viðgengist hefur
meðal ráðamanna, embættismanna og
forstöðumanna opinberra stofnana og
fyrirtækja. Þykir slíkt ekki við hæfi þegar
almenningur býr við minnkandi tekjur og
atvinnuleysi fer vaxandi.,Athyglin beinist
einnig að óhemju tekjum stjórnenda
margra fyrirtækja, ekki sízt í Bandaríkjun-
um, og nú einnig hjá Volvo-verksmiðjun-
um í Svíþjóð, sem með engum hætti
geta talizt eðlilegar.
enda fyrirtækja þar í
landi. Keraur í ljós, að
umræðan mn tekjur for-
stjóranna hefur ekki enn
leitt til raunverulegra
breytinga. Sá tekjuhæsti
hafði á niunda milljarð
króna fyrir störf sín í
eitt ár.
Ritstjórum Business
Week, sem er eitt helzta
tímarit í viðskiptaheimin-
um vestanhafs, blöskrar
svo niðurstaðan í úttekt-
inni, að þeir rita forustu-
grein um málið og segja
m.a. að tölumar um for-
stjóralauuin séu einfald-
lega ótrúlegar. Þá segir
m.a.:
„Mestum áhyggjum
veldur munurinn á laun-
um forstjóranna og þvi
sem allir aðrir lands-
menn fá fyrir vinnu sína.
Þessi miUjónadollara
uppskera forstjóranna er
ekki aðeins óviðeigandi,
heldur sýnir hroka
þeirra. Þetta gerist á
sama tíma og tekjur 90%
starfsmanna einkafyrir-
tækjanna hækka nær
ekkert þótt vinnuálagið
aukist dag frá degi og
hættan á atvinnumissi er
stöðug. I þessu felst, að
enginn annar en forstjór-
inn eigi heiðurinn af
góðri afkomu fyrirtækis-
ins - ekki verkafólkið,
ekki sölumennimir, ekki
aðrir stjómendur eða
skrifstofufólkið. Það er
móðgandi fyrir starfs-
mennina, sem er sagt að
þeir ráði úrslitum í
rekstri fyrirtækisins, að
sjá síðan einn mann
hljóta óeðUlegan hluta
afrakstursins.
Launamunur
I ritstjómargreininni
kemur m.a. fram, að
launamunur hafi farið
vaxandi og þótt ótrúlegt
sé fái stjómendur fyrir-
tækja að meðaltali 157
sinnum hærri laun en iðn-
verkamaðurinn og 66
sinnum hærri en tækni-
fræðingurinn. Launabilið
hafí aukizt vemlega frá
1960, þegar forstjórinn
hafði 41 sinni hærri laun
en iðnverkamaðurinn og
19 sinnum hærri en
tæknifræðingurinn.
Business Week segir
að þessi launamunur sé
ekki réttlætanlegur og
almenningur kunni innan
tiðar að þrýsta á stjóm-
málamennina til að ráða
hér bót á, ef stjómendur
fyrirtækja í Bandaríkjun-
um haldi ekki aftur af sér
við ákvörðun eigin launa.
Ef þú nauðhemlar eða
dregur snögglega úr hraða bif-
reiðarinnar, án tilefnis vegna
umferðar, og ekið er aftan á
bifreið þína er óvíst að þú fáir
tjón þitt að fullu bætt.
Samkvæmt 2. málsgrein
17. greinar umferðarlaga skal
sá, sem dregur snögglega úr
hraða ökutækis eða stansar,
gæta þess að það skapi ekki
hættu eða óþarfa óþægindi
fyrir aðra.
Tillitssemi í umferðinni
er allra mál.
S
|
<
cn
TE
52
=>
<
SJOVAodALIVIENNAR