Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 10

Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993 Tónlistarhátíð í Kópavogskirkju TÓNLISTARHÁTIÐ á vegum Kársnessóknar hófst í Kópavogskirlqu sl. mánudag. Fjölbreytt tónleikahald verður í kirkjunni alla daga vik- unnar fram til sunnudagsins 25. apríl nk. Í dag, sumardaginn fyrsta, verða tvennir tónleikar í Kópavogskirkju. Kl. 17 koma fram um tvö hundruð grunnskólanemendur úr sókninni í Skólakór Kársness, Stóra kór og Litla kór, undir stjóm Þórunnar Bjömsdóttur. Undirleikari verður Marteinn H. Friðriksson. Klukkan 20.00 verður í kirkjunni samsöngur Hljómkórsins en það er nýr sönghópur úrvals söngvara sem einkum starfa við kirkjulegar athafn- ir. Stjómandi og undirleikari að þessu sinni verður Stefán R. Gísla- son. Á tónleikunum verður einnig upplestur í umsjá Valdimars Lárus- sonar leikara. Á föstudagskvöldið kl. 20 heldur Kirkjukór Kópavogskirkju, undir stjóm Stefáns R. Gíslasonar, tónleika í kirkjunni. Sungin verða veraldleg og andleg lög. Fyrri hluti tónleikanna samanstendur af lögum eftir Guð- mund Gilsson, Sigvalda Kaldalóns, Jón Nordal, Eyþór Stefánsson. Ge- orge Stebbins, Karl Clausen og Felix Mendelssohn. Eftir hlé syngur kórinn hina frægu þýsku messu eftir Franz Schubert. Einsöngvari með kórnum verður Eiríkur Hreinn Helgason og undirleikari Reynir Jónasson. Þessir tónleikar verða endurteknir sunnudaginn 25. apríl kl. 17. Laugardaginn 24. apríl kl. 16 verður samsöngur Samkórs Kópa- vogs undir stjóm Stefáns Guðmunds- sonar. Sungin verða íslensk lög, sænsk, rússnesk, norsk og þýsk. Ein- söngvarar em Katrín Sigurðardóttir, sópran, og Tómas Tómasson, bari- ton. Undirleik annast Ólafur Vignir Albertsson. Tónlistarhátíð í Kópavogskirkju lýkur á sunnudaginn 25. apríl kl. 17 með því að endurteknir verða tþnleik- ar Kirkjukórs Kópavogskirkju frá föstudeginum 23. apríl. Aðgangur er ókeypis á alla tón- leikana og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. f frétt blaðsins í gær féll niður hluti þess, sem hér hefur verið skýrt frá. Beðist er velvirðingar á því. Hrísmóar - Garðabær - endaíbúð - gott útsýni Afar vönduð og falleg 153 fm íbúð í litlu fjölbýli ásamt bílskúr. Hátt til lofts. 40 fm sjónvarpsloft. Fallegur viðar- stigi. íbúðin er að stórum hluta viðarklædd. Parket og flísar. Arinstæði. Vandaðar innréttingar. Tvennar svalir. Áhv. 2,4 millj. Hagstætt verð. Einkasala. 4101. Hæðargarður Vorum að fá í sölu óvenju glæsilega 114 fm íbúð í ný- legu fallegu húsi við Hæðargarð. Sérinngangur. íbúðin er með óvenju vönduðum innréttingum og öll hin glæsi- legasta. Arinstæði í stofu. 2622. Langamýri - Garðabæ Stórglæsilegt áhugavert endaraðhús á þremur hæðum. Alls 306 fm. Vandaðar innréttingar. 4 svefnherb. Park- et. Innbyggður tvöfaldur bílskúr. Einnig góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Áhv. veðdeild 5,0 millj. og lífeyrissjóð- ur 2,5 millj. Allt sér. Eign í sérflokki. Laus fljótlega. 6165. ígfcZH'ASTEIGNA l bfl MIÐSTÖÐIN UBHII30 SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290 01Q7H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I IvU'Llw/U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteionasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Ný endurbyggð - vinsæll staður 4ra herb. glæsileg íbúð á 3. hæð 86 fm nettó við Álftamýri. Nýtt eld- hús. Nýtt bað. Nýtt gler. Nýl. gólfefni. Góðir ofnar, Danfoss-kerfi. Bílsk- réttur. Losun samkomulag. í suðurenda við Hjarðarhaga Glæsileg 4ra herb. íbúð 108 fm nettó í kjallara. Sérhiti. 3 svefnherb., innb. skápar. Nýtt parket. Ágæt sameign. Langtímalán kr. 4 millj. Lítið raðhús í Mosfellsbæ Glæsilegt sérbýli við Brattholt í Mosfellsbæ. Raðhús í suðurenda um 65 x 2 fm með rúmg. 3ja herb. ib. á hæð og í kj. Ágæt innr. Sólver- önd. Trjágarður. Skipti æskileg á 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð í borginni. Skammt frá Menntask. í Hamrahlíð Glæsileg endurbyggð sérhæð með góðum bílskúr. 3 svefnherb. og bað í svefnálmu. Forstofuherb. með sérsnyrtingu. Stórt geymslu- og föndur- herb. í kj. Góður bílskúr. Ágæt sameign. í vesturenda á 1. hæð 4ra herb. ibúð um 100 fm við Stóragerði. Nýl. eldhúsinnr. Sérhiti. Tvennar svalir. Mikil og góð lán. Tilboð óskast. Með miklu útsýni - laus nú þegar 3ja herb. stpr og góð íbúð við Fellsmúla. Sérhiti. Rúmgóðar sólsvalir. Vel með farin sameign. í Vogum eða nágrenni óskast til kaups einbýlishús eða raðhús með 2—3 svefnherb. í skiptum fyrir stærra einbýlishús í hverfinu. • • • Opið í dag, sumardaginn fyrsta, frá kl. 10.00-12.00. Gleðilegt sumar, ___________________________ þökkum fyrir veturinn. LAUGAVEG118 SlMAR 21150-21370 AIMENNA FASTEIGNASALAN Svava Björnsdóttir Daði Guðbjörnsson Sæmundur Valdimarsson Linda Vilhjálmsdóttir Fjórar sýningar á Kjarvalsstöðum Ljóð, mynd og skúlptúr í AUSTURSAL Kjarvalsstaða verður opnuð nk. laugardag, 24. apríl, sýning á verkum eftir Svövu Björnsdóttur. Á sýningunni eru pappírsskúlptúrar sem unnir eru á undanförnum árum. Svava er fædd í Reykjavík árið 1952 og nam myndlist við École Nationale Supérieure des Beaux Arts í París og Akademie der Bildende Kunste í Múnchen. Svava hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir list sína bæði hér heima og erlendis, m.a. hlaut hún fagurlistaverðlaun Múnchen- borgar 1985 og 1990 var Svava útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur. Hún hefur haldið margar einka- sýningar á íslandi og í Evrópu og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Daði Guðbjörnsson 24. apríl verður opnuð í Vestur- sal Kjarvalsstaða sýningá verkum Daða Guðbjömssonar. Á sýning- unni verða málverk frá undan- fömum ámm. Daði fæddist í Reykjavík 1954 og nam við Myndlistar- og hand- íðaskóla íslands 1976-1980 og við Rijksakademi van Beldende Kunsten í Amsterdam 1983- 1984. Daði hefur haldið meir en 20 einkasýningar hér heima og er- lendis og einnig tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum. Jafnframt sýningunni hefur verið gefin út vönduð sýningar- skrá með inngangi eftir Gunnar J. Ámason, listfræðing. Sæmundur Valdimarsson 24. apríl verður opnuð á Kjarv- alsstöðum sýning á höggmyndum eftir Sæmund Valdimarsson. Sæmundur fæddist árið 1918 að Krossi á Barðaströnd, en flutt- ist árið 1948 til Reykjavíkur. Sæmundur vann vaktavinnu í Áburðaverksmiðjunni í Gufunesi, en hefur síðan 1988 eingöngu unnið að listsköpun sinni. Fyrstu verk Sæmundar vom sýnd í Gall- erí SÚM 1974 og fyrstu einkasýn- ingu sína hélt hann 1983 og eru einkasýningar hans nú orðnar 11 talsins, þar af ein í Osló 1989. Verk Sæmundar hafa vakið athygli bæði innlendra og erlendra listunnenda og um þau hefur ver- ið skrifað í blöðum og virtum tímaritum. Linda Vilhjálmsdóttir Sýning á ljóðum eftir Lindu Vilhjálmsdóttur verður opnuð á Kjarvalsstöðum, laugardaginn 24. apríl. Linda Vilhjálmsdóttir, fædd 1958, birti fyrstu ljóð sín á síð- asta áratug og hafa komið út tvær ljóðabækur frá hennar hendi: hin fyrri, Bláþráður 1990, og Klaka- börnin 1992. Náttúrulýsingar og sviðsmynd- ir í Ijóðum Lindu em oftast litrík- ar og gjarnan með ýkjum og ævintýrabrag. Mannfólkinu er of- ið inn í náttúrufyrirbærin þannig að úr verður yfirnáttúruleg til- verumynd. í mörgum ljóðum fjallar Linda um samskipti fólks og þá ekki síst ástina. Form ljóðanna er margvíslegt, oftast knappt en nokkur þeirra em prósaljóð og Linda er eitt þeirra fáu ungu skálda sem bregða fyrir sig hátt- bundnum brageinkennum. Mynd- mál hennar er oft líflegt og með ferskleikablæ; táknmyndir og orð- færi í ljóðunum vísa stundum til bókmennta og sögu fyrri tíma. Jörvaarleði í Dölum Búðardalur. ^ ^ JÖRVAGLEÐI Dalamanna verð- ur haldin dagana 22.-25. aprjl. Þessi hátíð mun vera sú 9. í röð- inni. Hin forna Jörvagleði er í minnum höfð sem mikil gleði þó oft að endemum. Jörvagleði hin nýja er hins vegar mikil menn- ingarhátíð þar sem Dalamenn leggja sig fram um að kynna það sem er að gerast í menningarlífi heima og í héraði. Jörvagleðin hefst í dag, fimmtu- daginn 22. apríl, með messu í Garðaholtskirkju þar sem sr. Ingi- berg Hannesson prófastur predikar en sr. Jens H. Níelssen þjónar fyrir altari. Á Jörvagleðinni koma fram bæði gestir og heimamenn. Opnuð verður sýning á fimmtudaginn í Grunn- skóla Búðardals á listaverkum sem verða grunnur að Listasafni Dala- sýslu. Listaverkin eru öll eftir lista- menn sem á einhvem hátt tengjast Dölunum og hafa þeir ákveðið að gefa Listasafninu verkin. Einnig verður sýning á gömlum ljósmynd- um frá feðgunum Jóni Guðmunds- syni og Guðmundi Jónssyni frá Ljárskógum. Ingibjörg Guðjóns- dóttir frá Akranesi mun sýna muni gerða með bútasaumi. Á vegum Þjóðskjalasafnins verða sýnd gömul skjöl úr Dalasýslu. Tónlist og leiklist Tónlistarflutningur er á fímmtu- dagskvöldið og þá syngur Þorrakór- inn undir stjórn Halldórs Þórðarson og harmonikufélagið Nikulína leik- ur. Einnig leika nemendur úr Tón- listarskóla Dalasýslu og stúlknakór Laugarskóla syngur undir stjóm Björns D. Guðmundssonar. Á fimmtudagskvöldið verður dagskrá um skáldið Jón frá Ljár- skógum og Bjöm Guðmundsson mun fara mep lausavísur. Leikfélag Ólafsvíkur verður með leiksýningu á föstudagskvöldið og sýnir gaman- og spennuleikinn Frú Alvís eftir Jack Poppelwell. Leik- stjóri er Ragnhildur Steingrímsdótt- ir. Á föstudaginn verður unglinga- dansleikur í Dalabúð þar sem hljóm- sveitin frá Varmalandi leikur. Á laugardaginn verður skák- keppni milli heimamanna og burt- fluttra Dalamanna og síðan kvöld- skemmtun um kvöldið í Dalabúð. Á fyrri skemmtun mun Árni Björns- son flytja sveitakynningu um Lax- árdalshrepp. En það hefur verið venja á Jörvagleði að kynna einn hrepp í sýslunni. Karlakór Keflavík- ur heldur söngskemmtun og síðan er stór dansleikur með hljómsveit- inni Upplyftingu. Sú nýbreytni er í þessari Jörva- gleði að fenginn var gestakokkur sem matreiðir Ijúffenga rétti úr heimafengnu hráefni m.a. sjávar- réttum úr Hvammsfírði. Formaður Jörvagleðinefndar er Trausti Bjarnason. Jörvagleðinni lýkur formlega á laugardagskvöld en á sunnudaginn verða kvik- myndasýning í Dalabúð og hrað- skákmót í Afurðastöðinni í Búðar- dal. - Krisljana. ------♦-------- Innbrot í 4 verslanir TUTTUGU og fímm ára gamall maður var handtekinn þegar hann reyndi að bijótast inn í matvöru- verslun við Baldursgötu snemma á þriðjudagsmorgun. Þá um nóttina höfðu verið framin þrjú innbrot í verslanir við nálægar götur en ekki lá fyrir í gær hvort maður þessi, sem er að sögn lögreglu þekktur innbrotsþjófur, bar ábyrgð á þeim. Víðar voru framin innbrot í fyrri- nótt, m.a. var tíu áfengisflöskum stolið úr veitingahúsinu Feita dvergnum. Grafarvogur - Vesturfold 1 Til sölu glæsilegt einbýlishús í Grafarvogi, 210 fm, með 1 tvöföldum bílskúr. Upplýsingar í símum 676433 og 681144, Þorsteinn. Þjónustuíbúð Hæðargarði 35 Til sölu glæsileg 2ja herb. 65 fm íbúð á 1. hæð. Innan- gengt í þjónustumiðstöð. Verð ca 7,5-7,6 millj. Upplýsingar í símum 45186 og 75894.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.