Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993
53
UOflOM
ljosmyndasamkeppnÍ
Stúlkur í verðlaunasætunum
Helga Kjartansdóttir nemandi í
10. bekk Hagaskóla bar sig-
ur úr býtum í samkeppni um bestu
svart/hvítu ljósmyndina, sem
íþrótta- og tómstundaráð gekkst
fyrir meðal grunnskólanema í höf-
uðborgarsvæðinu. Rétt til þátttöku
áttu nemendur, sem höfðu valið
sér ljósmyndun í tómstundastarfi
skólanna í vetur. Ásdís Guðmunds-
dóttir úr Langholtsskóla átti hins
vegar myndirnar sem lentu í 2. og
3. sæti.
Helga Kjartansdóttir var að von-
um ánægð með bikarinn, sem að
vísu er farandbikar, og segist hún
ekki hafa áður unnið til verðlauna.
Verðlaunamyndin var frá Bláa lón-
inu og sagðist Helga hafa gert sér
ferð þangað ásamt vinkonum sín-
um til þess að ná góðum myndum.
Áhuginn á ljósmyndun kviknaði
ekki fyrr en í fyrra. „Ég sá auglýs-
ingu um Canon 1000, sem er mjög
góð vél, fyrir rúmi ári og varð
hreinlega bara ástfangin af henni,“
segir Helga. „Eftir það fór ég fyr-
ir alvöru að fá áhugann og skráði
mig í ljósmyndun í skólanum. Ég
tek eiginlega eingöngu svart/hvít-
ar myndir, því þá get ég framkall-
að filmurnar í skólanum. Þetta er
mjög dýrt áhugamál og mestur
hluti vasapeninganna fer í fdmur
og framköllunarpappír."
Þegar Helga er spurð hvort hún
ætli sér að gera ljósmyndun að
atvinnu segist hún ekki vera viss
um það. „Það er a.m.k. öruggt að
það heldur áfram að vera eitt af
áhugamálunum mínum.“
Ljósmyndasprettur
Samhliða fór fram annars konar
keppni, svokallaður Ljósmynda-
sprettur. Þátttakendur fengu í
hendurnar tólf mynda filmu og
fyrirmæli um að taka myndir af
tíu fyrirfram ákveðnum verkefn-
um. Dómnefnd valdi í fyrsta sæti
myndaröð Bergljótar Halldórsdótt-
ur og Halldóru Bragadóttur úr
Árbæjarskóla.
Verkefnin sem unglingarnir
fengu úthlutað voru ást, vatn, fugl,
hætta, gleði, að glápa, matur, Guð
minn góður! og Reykjavík. „Við
fengum filmuna klukkan 11 um
morguninn og áttum að skila
henni kl. 17,“
sagði Halldóra
í samtali við
Morgunblaðið.
Hún segir að
það hafi ekki
verið sér-
staklega erf-
itt að finna
mótíf, en
einna erf-
iðast hafi
verið að
finna eitt-
hvað fyrir
„Guð
góður!“ „Við fundum loksins garð,
þar sem allt var fullt af drasli og
létum það duga. Skemmtilegast
var að taka „Reykjavík". Við fór-
um upp á 5. hæð á Landakotsspít-
ala og tókum mynd í átt að Hall-
grímskirkju, þangað sem flestir
hinna krakkanna fóru til að taka
Reykj avíkurmynd. “
Þær Bergljót og Halldóra áttu
hvorug myndavél, þannig að þær
fengu að láni myndavél foreldra
Bergljótar og höfðu því enga
reynslu af notkun hennar. „Okkur
var kennt á hana kvöldið áður, en
það virðist bara hafa tekist bæri-
lega,“ sögðu þær stöllur. í kölfar
sigursins ættu þær að geta haldið
áfram að taka myndir af fullum
krafti, því þær hlutu hvor um sig
myndavél að launum frá Fuji-um-
á íslandi.
mmn
Helga Kjartansdóttir hampar
glaðbeitt bikarnum fyrir fyrsta
sæti í Ljósmyndakeppni Iþrótta-
og tómstundaráðs. Við hlið
hennar stendur Markús Orn
Antonsson borgarstjóri.
Fjöldi unglinga mætti við verð-
launaafhendinguna, sem fram
fór í Ráðhúsi Reylqavíkur.
Myndirnar eru til sýnis í ráðhús-
inu, en síðasti sýningardagur er
næstkomandi föstudagur.
r
áiMN
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SIMI 685090
Gömlu og nýju dansarnir
íkvöld kl. 22-03
Hliómsveit
Örvars Kristjánssonar leikur
Miúaverð kr. 800,-
'■ ■
L.„
Miða- og borðapantanir
í simum 685090 og 670051.
OPIÐ Á SUNNUDÖGUM FRÁ KL 13 -17
S-K-l-F-A-N
STÓRVERSLUN - LAUGAVEGi 26 - SÍMI: 600926
BRETLAND
Margrét
reykir enn
Þrátt fyrir að Margrét Bretaprins-
essa, sem gegnum tíðina hefur ver-
ið stórreykingamanneskja, hafi
gengist undir tvo lungnauppskurði
virðist hún ekki geta látið af þessum
ósið sínum. Á tímabili reykti hún
að minnsta kosti tvo pakka á dag,
en svo mikið er það víst ekki nú.
Hún hefur lést töluvert á undan-
fömum misserum eins og myndin
ber með sér, en hún var tekin eftir
að Margrét hafði gengist undir síð-
ari aðgerðina.
Margrét Bretaprinsessa.
COPPELIA
í uppsetningu Evu Evdokimovu
í Borgarleikhúsinu
Næstu sýningar:
í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 16.00.
Nicolette Salas og Mauro Tambone í aðalhlutverkum.
Sunnudaginn 25. apríl kl. 20.00.
Nicolette Salas og Mauro Tambone í aðalhlutverkum.
Sunnudaginn 2. maí kl. 20.00.
Lára Stefánsdóttir og Eldar Valiev í aðalhlutverkum.
Laugardaginn 8. maí kl. 14.00.
Lára Stefánsdóttir og Hany Hadaya í aðalhlutverkum.
Síðustu sýningar.
SmWVG SEMHEFER FEMGID EimÓMA LOF GAGARÍAEADA
„Heillandi Coppelía!
Hún (Eva Evdokimova) velur einlæga, létta og áferðarfal-
lega leið, þar sem allt látbragð er svo tært að það er
öllum skiljanlegt." „Galdurinn tekst, sýningin lifnar fyrir
augum leikhúsgesta og lifir með þeim lengi. Ævintýrið
um Coppelíu tendrast lífi á sviði Borgarleikhússins.“
Ólafur Ólafsson, Morgunblaðinu.
„Ég held að ekki sé djúpt í árinni tekið að segja að aldrei
hafi hópdansar í sígildu dansverki verið betur skipulagðir,
samræmdir, samstilltir á íslensku sviði....
Þessi sýning kemur sannarlega til móts við þær vonir sem
vöknuðu í brjóstum margra velunnara íslenska dansflokksins
eftir sýninguna „Uppreisn" í október sl. Meira af slíku takk.“
Aðalsteinn Ingólfsson DV.
Fyrir alla ffölskylduna! - ISI I ASkl h \ASI I Oklil KI\A