Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 64

Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 64
HEWLETT PACKARD . --------UMBOÐIÐ H P A ÍSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika MORCIJNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Ibúð í fjölbýlishúsi í Grafarvogi stórskemmd eftir eldsvoða Flúðu fá- klædd út úr brenn- andi blokk HJÓN um miðjan aldur voru flutt á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp i ibúð þeirra i fjölbýlis- húsi við Veghús 23 i Grafarvogi um klukkan hálfsjö í gærmorg- un. Nágrannar fólksins flúðu hálfklæddir út undan reykjar- kófi og hita. Ibúðin stór- skemmdist í eldinum og brann nær allt sem brunnið gat. Að sögn Kristjáns Ólafssonar, aðalvarðstjóra slökkviliðsins, sáu slökkviliðsmenn mikinn reyk stíga til himins á leið á brunastaðinn og var tiltæku liði stefnt á staðinn. Mikill eldur logaði þegar að var komið, rúður í íbúðinni, sem er á miðhæð, höfðu sprungið út og eld- tungur léku upp eftir húsinu, sem er ijölbýlishús á þremur hæðum. Reykur var um alla ganga húss- ins og mikill eldur í svefnherbergi og stofu íbúðarinnar. Slökkvistarfi var lokið á tæpri klukkustund. Sameign hússins skemmdist af völdum reyks. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá RLR. Morgunblaðið/Eyjólfur Jónsson Eldtungni’ út um gluggann Áður en slökkviliðið kom á staðinn stóðu eldtungur út um glugga á íbúðinni en rúður sprungu út vegna hita. Lögreglan kom fljótlega á staðinn en gat ekki fremur en íbúar hússins gert annað en að bíða eftir komu slökkviliðs. Sterk fjárhagsstaða Svínavatnshrepps Rafmagn greitt mð- ur um 50% IIREPPSNEFND Svínavatns- hrepps hefur ákveðið að greiða niður helming af raf- magnskostnaði ábúenda í hreppnum frá síðasta ári, alls um 30 aðila, til að styrkja búsetu í hreppnum. Sigurjón Lárusson oddviti Svínavatns- hrepps telur að hátt í 100 þúsund kr. komi að meðaltali í hlut hvers býlis. I ályktun sem gerð var á síðasta hreppsnefndarfundi segir: „Til styrktar búsetu í Svínavatnshreppi leggi sveitarsjóður fram fjármuni til að greiða niður almenna rafmagns- notkun á bújörðum í hreppnum. Nefndin samþykkir að fyrsta niður- greiðsla á rafmagni sé fyrir árið 1992. Greiðist þetta eftir framlögð- um rafmagnsreikningum, án virðis- aukaskatts og vaxta, og nemi 50% af reikningsupphæð hvers ábúanda." Tvær milljónir fyrir 1992 Siguijón kvaðst telja líklegt að sveitarsjóður þyrfti að reiða út um það bil tvær milljónir kr. vegna árs- ins 1992. „Staða sveitarsjóðs er sterk, en að hluta til hafa tekjuliðir hans verið í formi aðstöðugjalda af verktökum, fasteignagjöld og fleira sem kemur til vegna Blönduvirkjun- ar,“ sagði Siguijón. Hann sagði það ráðast af stöðu sveitarsjóðs hvort framhald yrði á þessum niðurgreiðslum. Hann sagði að sveitarsjóður ætti margar úti- standandi kröfur vegna aðstöðu- •gjalda gjaldþrota verktaka. Akvörðun stærstu lánardrottna Borgarkringlunnar Vilja leysa húsið til sín fyrir 900 millj. FJÓRIR stærstu lánardrottnar Borgarkringlunnar hafa ákveðið að óska eftir því að verslunarmiðstöðin verði boðin upp á nauðungaruppboði innan skamms. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins stefna stærstu lánardrottnar Borgar- kringlunnar, Landsbanki íslands, íslandsbanki, Iðnþróunar- sjóður og Iðnlánasjóður að því acl leysa eignina til sín fyrir áhvílandi veð. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru áhvílandi veð á Borgarkringlunni frá þessum fjórum lánar- drottnum nálægt 900 milljónum króna. Starfshópur Iðnlánasjóðs, Iðn- þróunarsjóðs, íslandsbanka og Landsbanka hefur haft umsjón með lánaviðskiptum sjóðanna og bank- anna við Borgarkringluna. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins ákváðu þessir fjórir aðilar nú fyrir skömmu að hefja lögfræðileg- ar innheimtuaðgerðir og beri þær ekki árangur munu þeir óska eftir því að Borgarkringlan fari á nauð- ungaruppboð. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær til þess kemur. Bankarnir tveir og sjóðirnir munu í sameiningu bjóða í eignina á nauðungaruppboðinu og stefna að því að kaupa Borgarkringluna í sameiningu fyrir þá upphæð sem á henni hvílir, en samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins er hér um upphæð að ræða sem nálgast 900 milljónir króna. Landsbanki íslands er viðskipta- banki Borgarkringlunnar, en sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins eiga Landsbankinn og Islands- banki nokkurn veginn jafnmikið í áhvílandi veðum í Borgarkringl- unni, eða um 150 til 170 milljónir Morgunblaðið/Sverrir Borgarkringlan Verslunarmiðstöðin Borgar- kringlan við Kringluna í Reykja- vík. hver, en sjóðirnir eiga meira hvor um sig, eða um 300 milljónir hvor sjóður. Eitt skilyrði óuppfyllt Að sögn Víglundar Þorsteinsson- ar, stjórnarformanns Borgarkringl- unnar, settu lánardrottnar Borgar- kringlunnar stjórn hennar ákveðin skilyrði til þess að skuldbreytingar gætu gengið fram, svo sem það að breyta lausaskuldum í hlutafé og þess háttar, þannig að skuldir Borgarkringlunnar í dag eru fyrst og fremst veðskuldir. Stjóm fyrir- tækisins telur sig hafa uppfyllt öll höfuðskilyrðin utan eitt, og enn er unnið að því máli, þannig að stjórn- in hefur að ^ögn Víglundar ekki gefið upp alla von um að nauðung- aruppboði verði forðað. „Það mun koma í ljós á næstunni hvort tekst að uppfylla öll skilyrði til þess að skuldbreyting nái að ganga fram,“ sagði Víglundur. Minkafjöld á heiði GÍFURLEGA mikið hefur verið um mink á Arnarvatnsheiði síðan í fyrrahaust og hefur Snorri Jóhannesson veiðivörður á heiðinni stað- ið í ströngu við veiðiskap síðan um páska. Snorri hefur veitt 28 dýr og bætast þau við 30 sem hann veiddi um haustið. 20 dýr veiddust við Reykjavatn í fyrrahaust og veiðimenn drápu slatta þar sem þeir gengu fram á dýrin hér og þar,“ sagði Snorri. Hann notar gildrur við veiðamar. „Það hefur verið mikið um mink- inn í vetur og þetta eru orðin tæp- lega 60 dýr sem ég hef veitt í vet- ur, aðallega við Ulfsvatn og Arnar- vatn stóra. Við það má bæta að Verð sjáv- arafurða lækkarenn VERÐ á sjávarafurðum á er- lendum mörkuðum hélt áfram að lækka milli mánað- anna mars og apríl og nam lækkunin 0,5% í mynteining- unni SDR ef litið er til sjávar- vöruútflutningsins í heild og 1% ef eingöngu er tekið mið af botnfisktegundum, sam- kvæmt upplýsingum Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar. Verð á sjávar- afurðum er þá 11,8% lægra en það var að meðaltali á síð- asta ári mælt í SDR og 15,3% lægra en það var að meðal- tali á árinu 1991. Þórður sagði að þetta væri fram- hald á þeirri verðþróun sem hefði verið að eiga sér stað á undanförn- um mánuðum, en frá síðustu ára- mótum hefur verð á sjávarafurðum lækkað um 6,7% í SDR. Hann sagði að það sem mestu réði um lækkun- ina milli mars og apríl væri nokkur lækkun á saltfiski, sem tengdist tollamáluhri og öðru slíku. Rækja hækkaði lítilega á milli mánaða og það vó að nokkru upp lækkun salt- fisksins. Heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða er í kringum 70 millj- arðar á ári í íslenskum krónum. Verðhækkun ekki í sjónmáli Þórður sagði að skiptar skoðanir væru um hver verðþróunin yrði næstu mánuði. Sumir teldu að verð- ið myndi halda áfram að lækka eitt- hvað, en aðrir bentu á að verðið nú væri orðið tiltölulega lágt í sam- anburði við samkeppnisvörur og það verð sem hefði verið ríkjandi síð- ustu sex til sjö ár. Þetta væri afar flókið álitaefni og erfitt að segja með vissu hvenær þróunin færi að snúast til hins betra. Hins vegar væri reynsla fyrir því að verðhækk- anir væru sjaldgæfar yfir sumarið og því væri ólíklegt að verð hækk- aði að marki fyrr en í fyrsta lagi með haustinu. Amfeta- niínimd- ir steini LEITARHUNDAR fíkni- efnalögreglunnar fundu í síðustu viku í Víðidal 100 grömm af amfetamíni falin undir steini. Enginn er enn sem komið er grunaður um að eiga efnin. Að sögn fíkniefnalögreglu fundu hundamir efnið fyrir hálfgerða tilviljun þegar verið var að láta þá leita á þessu opna svæði en slíkt er stundum gert á helstu svæðum í og við borgina. Um nokkurra daga skeið fylgdist Iögreglan með staðnum þar sem efnið var falið en þeg- ar enginn hafði vitjað þess í gær var lagt hald á það og verður því eytt. Sé gramm af amfetamíni selt fyrir fjögur þúsund krónur á markaði í Reykjavík hefur þetta efni verið um 400 þús. kr. virði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.