Morgunblaðið - 29.04.1993, Page 4

Morgunblaðið - 29.04.1993, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1993 Tveir menn taldir af eftir að Sæberg AK sökk norðvestur af Garðskaga í fyrrinótt Stór fylla inn umnetalúguna SÆBERG AK sem var á netaveiðum á Faxaflóa sökk um kl. 21.30 í fyrrakvöld 18 sjómílur norðvestur af Garðskaga þegar stór fylla kom inn um netalúguna þegar verið var að draga netið um borð. Sæberg, sem er tíu tonna netabátur, lagðist við þetta á hliðina og sökk skömmu síðar. Fimm menn voru um borð í bátnum. Tókst þremur þeirra að komast í björgunarbát og var þeim bjarg- að um borð í Freyju GK kl. 2.15 i fyrrinótt. Arangurslaus leit var gerð í fyrrinótt og gærmorgun að skipverjunum Grétari Lýðssyni og Grétari Sigurðssyni og eru þeir taldir af. Morgunblaðið/Snorri Snorrason Sökk á Faxaflóa SÆBERG AK sem sökk þegar fylla kom á bátinn á Faxaflóa í fyrra- kvöld. Báturinn hét áður Faxafell III. Sendingar frá neyðarsendi byrj- uðu að berast Slysavamafélaginu um gervihnött kl. 21.37. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavamafélaginu var farið varlega í byijun þar sem skeytin sem bámst vom ekki öll með sömu staðsetningu og menn vissu ekki nema þau kæmu jafnvel frá sendum í landi eins og átt hefur sér stað, jafnvel frá flugvélum í flug- skýli. Upp úr kl. 23 kom síðan í ljós að Sæberg AK svaraði ekki tilkynn- ingarskyldunni, en áður hafði þó verið byijað að gera klárt til leitar. Skömmu fyrir miðnætti var síðan óskað eftir því að nærstödd skip leit- uðu á svæðinu, og flugvél Flugmála- stjómar sem þá fór í loftið var kom- in yfír neyðarsendinn kl. 0.50, en úr henni sást ekki til sjávar þar sem mjög lágskýjað var á svæðinu. Leið- beindi hún bátum á staðinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ekki tiltæk í fyrrinótt og var óskað eftir aðstoð vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli kl. 1. Að sögn Friðþórs Eydal, blaða- fulltrúa varnarliðsins, vildi varnarlið- ið, vegna óvissu um hvað raunvem- lega var á seyði og hvort um líf eða dauða væri að tefla, auk slæms veð- urs á leitarsvæðinu, bíða um sinn og fá nánari fregnir af málinu áður en þyrla yrði send í loftið til leitar. Skipveijar á Freyju GK sáu neyð- arblys kl. 2.00 og kom skipið að gúmmíbátnum kl. 2.15 og tóks að bjarga mönnunum þremur úr honum. Freyja sigldi með mennina til Njarð- víkur og var skipið komið þangað klukkan rúmlega átta í gærmorgun. Landhelgisgæslan óskaði á ný eft- ir aðstoð varnarliðsins kl 2.25 til leit- ar að mönnunum tveimur, sem sakn- að var og fór ein þyrla varnarliðsins í loftið kl. 3.35 og leitaði til 7.40 í gærmorgun. Þrír bátar ásamt tveim björgunarskipum Slysavamafélags- ins, Hannesi Hafstein og Henry Hálf- dánarsyni, ieituðu á svæðinu ásamt flugvél Flugmálastjórnar sem fór aftur í loftið kl 9 um morguninn og leitaði hún til 11.45. Bátarnir héldu síðan til hafnar um hádegisbil og björgunarskipin um kl. 13 eftir ár- angurslausa leit. Henry Hálfdánar- son hélt til Akraness með björgunar- bát sem fundist hafði á svæðinu óuppblásinn í fyrrinótt ásamt bjarg- hring. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 29. APRIL YFIRLIT: Á Grænlandssundi er 993 mb lægðarsvæði sem hreyfist lítið. Milli Skotlands og Noregs er heldur minnkandi 103 mb hæð. SPÁ: Suðvestan stinningskaldi eða allhvasst suðvestanlands en kaldi eða stinningskaldi í öðrum landshlutum. Slydduél suðvestan til og aust- an með suðausturströndinni, él norðvestanlands, einkum á Vestfjörðum en þurrt og víða léttskýjað annars staðar. Hiti verður á bilinu 0-5 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og skúrir eða slydduél suðvestan- og vestanlands en annars hæg austan og suð- austanátt og dálítil rigning austanlands. Hiti 0 til 6 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg norðlæg átt og smáél norðanlands en þurrt og víða léttskýjað syðra. Fremur svalt í veðri. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30.Svarsi'mi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. q a m Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað V Ý / / / * / * / / * / / / / / * / Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Víðast á landinu er nú ágæt færð og er greiðfært um Suðurland til Austfjarða og þar eru flestir vegir færir. Vel fært er um Vesturland og í Reykhólasveit og fært er milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar og Bíldu- dals. Þá er fært norður um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur en Steingríms- fjarðarheiði er ófær. Fært er um Norður- og Norðausturland og Möðru- dalsöræfi eru fær en fara þarf þar með aðgát vegna bleytu. Víða hefur öxulþungi verið takmarkaður vegna aurbleytu og þaö merkt við viðkom- andi vegi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HBM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 12 úrkoma Reykjavlk e þokumóöa Bergen 15 hálfskýjað Helslnki 19 léttskýjað Kaupmannahöfn 24 hálfskýjað Narssarssuaq +4 snjókoma Nuuk +7 snjókoma Ósló 18 léttskýjað Stokkhólmur 16 léttskýjað Þórshöfn 8 léttskýjað Algarve 16 léttskýjað Amsterdam 24 léttskýjað Barcelona 17 skýjað Berlín 26 léttskýjað Chicago 14 alskýjað Feneyjar 22 hálfskýjað Frankfurt 25 léttskýjað Glasgow 14 léttskýjað Hamborg 25 skýjað London 13 léttskýjað LosAngeles 14 léttskýjað Lúxemborg 23 heiðsklrt Madríd 12 skýjað Malaga 14 aiskýjað Mallorca 18 léttskýjað Montreal 6 léttskýjað NewYork 8 heíðskírt Orlando 17 skýjað París 24 heíðskírt Madelra 18 skýjað Róm 20 alskýjað Vín 24 léttskýjað Washington 8 léttskýjað Winnipeg 3 súld Heímild: Veflurstofa islands (Byggt a veflurspá kl. 16.15 i gœr) v /'DAG kl. 12.00 Giftusamleg björgun HALLDÓR Þórðarson skipstjóri á Freyju GK og áhöfn hans bjarg- aði skipveijunum þremur af Sæbergi frá Akranesi í fyrrinótt. Blautir og1 kaldir en ótrulega hressir „MENN höfðu snör handtök við að taka mennina um borð þegar við höfðum fundið bátinn, en þrátt fyrir að þeir væru blautir og kaldir þá voru þeir ótrúlega hressir þegar við komum að þeim. Mjög greið- lega gekk að koma þeim um borð og aðstoðuðu þeir dyggilega við það,“ segir Halldór Þórðarson skipstjóri á Freyju GK frá Garði, en hann, ásamt áhöfn, bjargaði þremur skipbrotsmönnum af Sæbergi. Freyja hafði verið við net á Sel- vogsbanka og að sögn Halldórs var ákveðið að taka netin upp vegna lélegs fískirís á þeim slóðum og færa þau norður fyrir Garðskaga. Þar var síðan byijað að leggja netin um kl. 22.30 og lauk því um mið- nætti. Um það bil sem Freyja var að halda til lands hafði tilkynninga- skyldan samband við skipið og spurði um stáðsetningu þess og sagði að boð hefðu komið frá neyðarsendi. Freyja var þá stödd átta sjómílur frá þeim stað sem sendirinn var þá tal- inn vera og óskaði tilkynningaskyld- an eftir að þeir færu á staðinn. Halldór sagðist fljótlega hafa gert sér grein fyrir að alvara væri á ferð- um og hélt þegar á staðinn, en tvo tíma tók að sigla þangað vegna dimmviðris og lélegs skyggnis. „Við vorum búnir að fá gefnar upp fjórar staðsetningar á neyðar- sendinum og þegar við vorum komn- ir á staðinn þar sem síðasta staðsetn- ingin var gefin upp fór ég að reyna átta mig á því í hvaða átt bátinn hafði rekið. Við sigldum tvo hringi á staðnum en þurftum að fara mjög hægt vegna dimmviðris. Eftir 10-15 mínútna siglingu birtist skyndilega neyðarblys fyrir framan okkur og skömmu síðar fundum við mennina í gúmbátnum. Allt hafði verið gert klárt um borð til að taka á móti þeim og með aðstoð þeirra gekk bæði fljótt og vel að ná þeim um borð,“ sagði Halldór. B.B. Björg’unarbáturinn HEIÐRÚN Sigurðardóttir og Arngrímur Guðmundsson lögreglu- menn í Keflavík við gúmmíbjörgunarbátinn sem mennirnir voru í þegar áhöfnin á Freyju bjargaði þeim. i i I I I I > í I I i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.