Morgunblaðið - 29.04.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1993
Borgarspítalinn hefur háþrýstiklefa að láni og nýtur leiðsagnar ftala
Háþrýstiklefi styttir með-
ferðartíma og bætir árangur
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Háþrýstingur í gámi
Háþrýstiklefinn á Borgarspitala er í gámi við húshliðina, en innangengt er inn í sjúkrahúsið. Á mynd-
inni eru þau Gréta B. Valdimarsdóttir, aðstoðarstúlka háþrýstilækna og túlkur, Enrico Generali, lækn-
ir frá Róm, Magni Jónsson, læknir, Renato Mancuso, tæknimaður frá Palermo á Sikiley og Álberto
Fiorito, herlæknir, við háþrýstiklefann.
Háþrýstilækningar eru
hafnar á Borgarspítala, en
þar hefur verið komið fyrir
háþrýstiklefa, sem kom hing-
að til Iands fyrir milligöngu
ítalsks læknis. Að sögn Magna
Jónssonar læknis kemur klef-
inn að góðum notum, til dæm-
is eftir kolmonoxíð eitranir.
Mest not eru þó fyrir klefann
til að meðhöndla sjúklinga
með lélegt blóðrennsli. Má þar
nefna sykursjúka, en æða-
þrengsli eru fylgikvilli sykur-
sýkinnar. Klefinn á Borgar-
spítala er í láni hér í átta
mánuði og á því tímabili sjá
ítalskir læknar um að þjálfa
íslenska kollega sína í störfum
við klefann.
Háþrýstiklefar þafa lengi verið
notaðir til meðferðar á köfunar-
veiki. Þegar kafarar fara of hratt
úr dýpi og þar með þrýstingi mynd-
ast loftbólur í blóðinu. Til þess að
eyða þeim fara kafarar í háþrýsti-
klefa, þrýstingur er aukinn upp í
sömu loftþyngd og var í djúpinu
og létt smám saman af að nýju.
Ný not fyrir klefann
Hollenskur æða- og hjartaskurð-
læknir, Ite Roema, fann ný not
fyrir háþrýstiklefa þegar hann upp-
götvaði, að hægt var að lengja
þann tíma, sem óhætt var að
klemma fyrir stórar slagæðar ef
aðgerðin var framkvæmd í há
þrýstiklefa, þar sem sjúklingurinn
andaði að sér hreinu súrefni undir
yfirþrýstingi. „Súrefnisflæði til
heilans má stöðvast í 4-5 mínútur
hið mesta, en ef súrefni er gefið
undir háþrýstingi leysist meira af
því upp í blóðvökvanum sjálfum en
ella,“ sagði Magni. „Þannig var
hægt að lengja þann tíma, sem
súrefnisflæðið mátti stöðvast, upp
í 20-25 mínútur. Notkun þessara
stóru háþrýstiklefa til aðgerða var
hins vegar hætt í kjölfar þess að
farið var að nota hjarta- og lungna-
vélar. Hins vegar nýtast kiefarnir
enn við að auka súrefnisflæði að
vefjum."
Italir aðstoða
Hingað er klefinn kominn fyrir
milligöngu ítalska læknisins Calce-
donio Gonzaies. Hann kynntist
Heimi Sindrasyni lækni á ráðstefnu
á Ítalíu og kom hingað til lands í
brúðkaupsferð skömmu síðar.
Hann er sérfræðingur í háþrýsti-
lækningum og hafði áhuga á að
kynna fagið á íslandi. Gonzales lét
ekki þar við sitja, heldur aflaði
stuðnings við hugmyndir sínar á
Italíu og fékk því framgengt, að
klefinn var lánaður hingað til lands.
Þá útvegaði hann styrki, sem gera
Itölum kleift að senda lækna til
starfa við klefann hér og til að
flytja erindi og fyrirlestra um há-
þrýstilækningar. Styrkurinn er til
fjögurra mánaða, en líklegt er að
hann verði framlengdur um aðra
fjóra mánuði. 5-6 íslenskir læknar
munu kynna sér notkun klefans
sérstaklega og einn Islendingur
verður þjálfaður til að vinna við
klefann frá júlí til október.
Margvísleg not
Magni Jónsson sagði, að við
kolmonoxíð-eitranir, til dæmis
vegna útblásturs frá bílum eða
vegna reyks frá eldi, nýttist klefinn
vel. „Rauðu blóðkornin flytja yfir
90% af öllu súrefni. Kolmonoxíð
sest á þau og þá fæst aðeins súr-
efni úr blóðvökvanum. Það er auk-
ið me.ð því að gefa sjúklingnum
súrefni undir háþrýstingi. Klefinn
kemur hins vegar fyrst og fremst
að notum hér í þeim tilfellum, þar
sem sjúklingur á við lélegt blóð-
rennsli að stríða. Bjúgur og bólga
minnkar blóðrás og ýtir undir drep,
en súrefnisgjöf undir háþrýstingi
getur dregið verulega úr þessu og
bætt súrefnisflutning til vefja þar
sem súrefnisskortur er. í slíkum
tilfellum getur meðferð í háþrýsti-
klefa jafnvel komið í veg fyrir að
gjípa þurfi til aflimunar. Þá bætir
meðferðin einnig töku ágræddra
húðflipa. Loks er þessu einnig beitt
sem stuðningsmeðferð við aðgerð
og sýklalyf við slæmar beinígerðir
og slæm fótasár, sérstaklega hjá
sjúklingum með sykursýki. Notkun
háþrýstiklefans styttir oft meðferð-
artíma og bætir árangur."
Þijár meðferðir á dag
Magni sagði að háþrýstiklefinn
hefði nú verið í notkun á Borgar-
spítala í hálfan annan mánuð.
„Klefínn tekur einn liggjandi sjúkl-
ing eða 2 sitjandi og við getum
haft þijár meðferðir í honum á
dag,“ sagði hann. „Hver meðferð
tekur lVi klukkustund, en það þarf
að lofta út úr klefanum á milli. Þá
eru takmörk fyrir því hvað læknir,
sem er inni í klefanum hjá sjúkl-
ingnum, getur verið lengi á degi
hveijum undir þrýstingi, sem nem-
ur allt að þremur loftþyngdum."
Magni sagði að það væri ein-
staklingsbundið hvað sjúklingar
þyrftu að fara oft í klefann. „Flest-
ir fara 5-15 sinnum í klefann. Fólk
með köfunarveiki og kolmonoxíð-
eitranir þarf aðeins eina meðferð,
en þegar um þrálátar beinsýkingar
er að ræða þarf meðferð í um 20
skipti.“
Ekki er afráðið hvað tekur við
eftir 8 mánaða dvöl ítalanna hér
og eftir að lánstími klefans rennur
út. „Það er of snemmt að segja til
um árangur af notkun klefans, en
ef hann reynist vel þá munum við
fara fram á að hafa hann áfram.
Það má til dæmis benda á nauðsyn
þess að slíkur klefi sé til á Borgar-
spítala, því hingað koma bráðatil-
fellin," sagði Magni Jónsson, lækn-
ir.
Mexíkóskir réttir frá Matar- og vínklúbbi AB
ÚT ER komin matreiðslubókin Mexíkóskir réttir hjá Almenna bókafé-
laginu og er hún fyrsta bókin sem kemur út hjá nýstofnuðum Matar-
og vínklúbbi AB. Bókin er 120 síður, ríkulega myndskreytt og inniheld-
ur yfir 100 uppskriftir.
I fréttatilkynningu segir meðal
annars: „Nú þegar hafa rúmlega
5000 manns gerst áskrifendur að
Matar- og vínklúbbi AB og stöðugt
' bætist við. Markmið klúbbsins er
m.a. að kynna Islendingum nútíma-
lega matargerð. Mexíkósk matar-
gerð er ein sú vinsælasta í heiminum
í dag og því ekki að furða að Al-
menna bókafélagið velji að kynna
klúbbinn með þeirri tegund matseld-
ar. Á næstu mánuðum verða m.a.
gefnar út bækur um thailenska mat-
seld, spænska, gríska og kínverska.
Matar- og vínklúbbur AB mun
standa fyrir fjölmörgum uppákom-
um. Þann 20. maí verður farin Sæl-
keraferð til Amsterdam en far-
arstjóri verður Sigurður L. Hall. I
maí verður auk þess boðið upp á
sælkerakvöld, vínsmökkunarnám-
skeið og uppskriftasamkeppni. Sam-
starfsfyrirtæki Matar- og vínklúbbs-
ins í apríl/maí eru Pfaff, Jónatan
Livingston Mávur og Old E1 Paso og
munu þau bjóða félögum klúbbsins
sérkjör á ýmsum vörum.“
(Úr fréttatilkynningu)
Foreldrasamtökin
Fjölbreytt
hreyfinám
í uppeldinu
FYRIRLESTUR um fjölbreytt
hreyfinám í uppeldi barna verð-
ur á vegum Foreldrasamtakanna
í dag, fimmtudaginn 29. apríl, í
Hinu húsinu (áður Þórskaffi),
Brautarholti 20, 3. hæð, og hefst
hann kl. 20.30.
Janus Guðlaugsson, námsstjóri í
íþróttum, fjallar um hreyfinám í
skólum og hjá íþróttafélögum.
Umræðan um áhrif hreyfifærni á
aðra þroskaþætti barnsins hefur
aukist, hvort sem um er að ræða
líffræðilegan, sálfræðilegan eða fé-
lagslegan þroska. í fyrirlestri sínum
mun Janus fræða foreldra og annað
áhugafólk um jákvæð áhrif fjöl-
breytts hreyfináms á þessa þroska-
þætti.
Foreldrasamtökin vilja stuðla að
því að foreldrar hvetji börn sín til
hreyfileikja og því munu sumarbolt-
ar ásamt leiðbeiningabæklingi með
gömlu góðu boltaleikjunum eins og
brennó, kýló, yfir og fleira, fást á
staðnum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn á
meðan húsrúm leyfir. Sú nýbreytni
hefur verið tekin upp að handhafar
félagsskírteinis Foreldrasamtak-
anna (Gommu) fá ókeypis aðgang
en aðrir gestir greiða lágmarks-
gjald.
(Fréttatilkynning)
------» ♦ ♦-----
Menntun
í dreifbýli
FÉLAG kvenna í fræðslustörf-
um, „The Delta Kappa Gamma
Society International“, heldur
landssambandsþing sitt á Hótel
KEA, Akureyri, dagana 30. april
- 2. maí nk. Meginefni þingsins
er menntun í dreifbýli.
Fimm fyrirlesarar, flestir úr röð-
um félagskvenna, munu fjalla um
ýmsar hliðar menntunar í dreifbýli,
m.a. dreift og sveigjanlegt fóstru-
nám og kennaranám.
Til þingsins koma um 40 erlend-
ar konur, flestar frá Evrópu, sem
allar starfa að fræðslumálum. Jean
Gray, svæðisstjóri norðaustursvæð-
is The Delta Kappa Gamma Society
International kemur sem fulltrúi
stjórnar alþjóðsamtakanna. í
tengslum við þingið verður haldinn
svæðisfundur fyrir Evrópu.
Félag kvenna í fræðslustörfum
starfar í 6 deildum á íslandi og eru
félagskonur um 130. Markmið sam-
takanna er m.a. að láta ýmsa þætti
fræðslumála til sín taka.
(Fréttatilkynning)
------♦ ♦ ♦-----
■ HLJÓMS VEITIN KANDÍS
leikur á veitingahúsinu L.A. Café
í kvöld. Hljómsveitin Kandís hefur
undanfarið átt lagið „Another Sat-
urday Night“ á vinsældalistum hér
á landi.
(Fréttatilkynning)
RAÐ/\ UGL YSINGAR
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til söfu
Iðnaðarhúsnæði 280 fm. 4 m lofthæð. Skrif-
stofa, kaffistofa, milliloft. Upphitað bílaplan.
Upplýsingar í símum 72700 og 77602.
Til leigu í miðbæ
Reykjavíkur
Tvö samliggjandi skrifstofuherbergi til leigu
á besta stað í miðbæ. Hugsánlegt að semja
um sameiginlegan aðgang að kaffistofu og
fundarherbergi. Tilvalið fyrir bókhald eða
endurskoðunarþjónustu.
Aðeins traustir aðilar koma til greina.
Áhugasamir leggi inn nafn, heimili og síma
til auglýsingadeildar Mbl., merktan:
„R - 10492“, fyrir 6. maí.
INTERNATIONAL
ÍBÚÐIRÁSPÁNI
Ath.: Næsta skoðunarferð 5.-9. maf nk.
Dvalið á eigin hóteli MASA.
íbúðir - raðhús - einbýlishús af öllum stærð-
um á verði frá ísl. kr. 1,5 millj.
Lejtið upplýsinga.
Masa-umboðið á íslandi,
sími 91-44365, fax 91-46375.