Morgunblaðið - 29.04.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1993
URSLIT
HM í knattspyrnu
Leikir í gær.
1. RIÐILL
Lissabon, Portúgal:
Portúgal - Skotland............5:0
Rui Barros 2 (5., 70.) Jorge Cadete (2 45.,
72.), Paulo Futre (67.). 28.000.
Staðan: Sviss 6 4 2 0 17 4 10
Ítalía 6 4 2 0 15 5 10
Portúgal 5 2 2 1 8 4 6
5 1 2 2 4 8 4
3 0 12 0 8 1
Malta 7 0 1 6 2 17 i
2. RIÐILL
Osló, Noregi:
Noregur - Tyrkland..................3:1
Kjetil Rekdal (14.), Jan Aage Fjörtoft (17.),
Jahn Ivar Jakobsen (55.) - Feyyaz Ucar
(57.). 21.530.
London, Englandi:
Engiand - Holland...................2:2
Bames (1.), Platt (23.) - Bergkamp (34.),
Van Vossen (85. - vítasp.). 73.163
Lodz, Póllandi:
Pólland - San Marinó................1:0
Jan Furtok (68.). 10.000.
Staðan:
Noregur..............5 4 1 0 18: 3 9
England..............5 3 2 0 15: 3 8
3 2
..3 2 10
..8 116
1 17: 8 8
4: 2 5
7:17 3
6 1:29 1
Holland..............6
Pólland...
Tyrkland....
SanMarínó............7 0 1
3. RIÐILL
Dublin, írlandi:
írland - Danmörk....................1:1
Quinn (75.) - Vilfort (27.). 33.000.
Sevilla, Sþáni:
Spánn - Norður-írland...............3:1
Julio Salinas 2 (21., 26.), Fernando Hierro
(41.) - Kevin Wilson (11.). 37.600.
Staðan:
Danmörk 7 3 4 0 5: 1 10
írland 6 3 3 0 10: 1 9
Litháen 7 2 3 2 8:11 7
N-írland 7 2 2 3 8:10 6
8 0 4 4 3:15 4
Albanía 7 1 i 5 4:14 3
4. RIÐILL
Ostrava, Tékkóslóvakíu:
Tékkóslóvakía - Wales .1:1
Latal (41.) - Hughes (31.). 16.000.
Staðan:
Belgía 7 6 0 1 12: 3 12
Rúmenía 6 4 1 1 19: 51 9
Wales 6 3 1 2 11: 8 7
Tékkóslóvakía 5 1 3 1 8: 5 5
Kýpur 8 2 1 5 8:13 5
Færeyjar 6 0 0 6 1:25 0
410
5 8
3 6
6 4
8 0
14 0
5. RIÐILL
JMoskvu, Rússlandi:
Rússland - Ungverjaland.............3:0
Andrei Kanchelskis (55.), Igor Kolyvanov
(60.), Sergei Yuran (86.). 30.000.
Staðan:
Grikkland............5 4 1 0 5: 0 9
Rússland.............4 4 0 0 107: 0 8
Ungveijaland........5 113 4: 6 3
ísland...............4 1 0 3 2: 4 2
Lúxemborg............4 0 0 4 0:11 0
6. RIÐILL
Sofíu, Búlgaríu:
Búlgaría - Finnland...............„.2:0
Khristo Stoichkov (14. - vítasp.), Zlatko
Yankov (43.). 35.000.
París, Frakklandi:
Frakkland - Svíþjóð.................2:1
Eric Cantona 2 (42. - vítasp., 82.) - Mart-
in Dahlin (14.). 43.000.
Staðan:
Frakkland.............6 5 0 1 11:
Búlgaría..............6 4 0 2 10
Svíþjóð...............4 3 0 1
Austurríki............4 2 0 2
Finnland........ .....4 0 0 4
ísrael................4 0 0 4
Snóker
Heimsmeistarakeppnin í snóker í Sheffield.
8-manna úrslit í gær:
1-Stephen Hendry - 9-Nigel Bond..13: 7
(121-11, 89-43, 118-8, 67-71, 88-0, 69-63,
71-23, 31-68, 74-59, 0-139, 129-0, 106-21,
73-28, 0-101, 45-73, 69-57, 48-63, 19-68,
67-52, 95-0).
3-Jimmy White - 11-Dennis Taylor.13: 8
(81-0, 0-75, 81-24, 31-67, 25-69, 65-63,
24-68, 18-76, 63-15, 88-1, 59-49, 55-69,
71-36, 100-6, 75-66, 62-21, 41-63, 109-17,
56- 80, 89-2, 62-55).
7-James Wattana - 2-John Parrott.13: 6
(60-43, 27-68, 59-39, 74-12, 7-122, 72-61,
41-44, 65-55, 19-101, 0-136, 67-25, 67-36,
66-17, 79-1, 77-63, 74-8, 32-102, 95-7,
57- 31).
13-Alan McManus - 5-Neil Foulds..13:11
(110-31, 40-65, 0-124(124 í stuði), 63-31,
37-66, 89-25, 59-68, 81-33, 28-81, 62-17
16-100(100), 83-36, 35-71, 72-44, 63-11,
75-7, 58-59, 71-20, 73-14, 91-39,
0-100(100), 45-62, 1-91, 90-42).
Íshokkí
HM í Þýskalandi, 8-liða úrslit:
Kanada - Finnland..................5:1
Tékkóslóvakía - Ítalía............ 8:1
■Kanada og Tékkóslóvakía eru komin í
undanúrslit
NHL-deildin
Leikir aðfaranótt miðvikudags:.
Toronto - Detroit..................5:4
■Eftir framlengingu. Torontó er yfir 3:2.
L.A. Kings — Calgary...............9:4
■Los Angeles er yfir 3:2. .
Winnipeg — Vancouver...............4:3
■ Eftir framlengingu. Vancouver er yfir
.3:2.
HANDKNATTLEIKUR
Besta dómaraparið
í fríi til hausts
Rögnváld Erlingsson og Stefán
Arnaldsson dæma ekki fleiri
leiki í úrslitakeppni íslandsmóts-
ins í handknattleik. Aðspurðir
sögðust þeir hafa fengið nóg af
svívirðingum og þar sem þeir vildu
íþróttinni vel, ætluðu þeir ekki
standa í vegi fyrir félögum, sem
teldu þá ekki valda dómarahlut-
verkinu.
Félagarnir dæmdu undanúr-
siitaleik þýska liðsins Massenheim
og spænska liðsins Barcelona í
Evrópukeppni meistaraliða s.l.
sunnudag og fengu góða dóma,
en voru gagnrýndir fyrir ieik Vals
og Selfoss kvöldið eftir. Þeir sögð-
ust oft hafa dæmt leiki erlendis
skömmu eftir komu og þar sem
það hefði gengið vel hefðu þeir
óskað eftir fyrrnefndum leik í
Laugardalshöll. Hagræðing hefði
líka haft sitt að segja, því með
þessu fyrirkomulagi hefði Stefán
getað nýtt nýtt sér veruna í
Reykjavík, en hann býr á Akur-
eyri. Þeir hefðu því ákveðið að
gera þetta svona, en eftir á að
hyggja hefði það ef til vill ekki
verið rétt.
Hins vegar hefði umræddur
leikur ekki ráðið úrslitum um
ákvörðun þeirra, heldur væra þeir
orðnir leiðir á almennu viðhorfi
til dómara. Þeir væru að dæma
fyrst og fremst vegna áhuga og
ánægju og því væri ábyrgðarhluti
að halda áfram, þegar þeir hefðu
ekki garaan af því sem þeir væru
að gera. Samt væru þeir ekki
hættir og kæmu vonandi til leiks
í haust, en nú legðu þeir áherslu
á að undirbúa sig fyrir tvo leiki
í Evrópukeppni landsliða á Spáni.
Rögnvald og Stefán eru besta
par landsins, en Hákon Siguijóns-
son og Guðjón L. Sigurðsson, par
nr. tvö, tilkynntu að þeir dænú
ekki fleiri leiki í úrslitakeppninni.
Ákvörðun þeirra breytti engu, því
þar sem þeir dæma fyrir Val er
ljóst að þeir hefðu ekki fengið
leik í úrslitunum um íslandsmeist-
aratitilinn.
KNATTSPYRNA / HM-KEPPNIN
Reuter
Eric Cantona var heldur betur í sviðshósinu í París í gærkvöldi - hann skoraði bæði mörk Frakka í sigurleik, 2:1,
gegn Svíum. Hér leikur hann fram hjá Ingesson, varnarmanni Svía.
Heppnin ekki með
Englendingum
„ÉG er ekki ánægður með
þessi úrslit. Það er grátlegt að
missa niður tveggja marka for-
skot því að við lékum mjög
vel,“ sagði Graham Taylor,
þjálfari Englendinga, eftir að
þeir máttu sætta sig við jafn-
tefli við Hollendinga, 2:2, á
Wembley.
Englendingar voru betri og sóttu
grimmt að okkur. Ég er mjög
ánægður með úrslitin - heppnin var
með okkur,“ sagði Dick Ádvocaat,
þjálfari Hollendinga. Ruud Gullit
var á sama máli, en hann sagði að
Hollendingar hefðu komið á réttum
tíma inn í leikinn.
Peter van Vossen, sem kom inná
sem varamaður hjá Hollendingum
- fyrir Gullit, skoraði jöfnunarmark
þeirra þegar fimm mín. voru til
leiksloka. Vítaspyrnan var dæmd á
Des Walker, sem felldi Marc
Overmars.
Englendingar fengu óskabyijun
þegar að John Bames skoraði mark
eftir aðeins 60 sek. og síðan bætti
David Platt öðra marki við á 23.
mín. - hans sjöunda mark í fimm
landsleikjum, eftir undirbúning
Barnes. Paul Gascoigne lék ekki
með í seinni hálfleik, en hann fékk
olnbogaskot frá Jan Wouters, leik-
manni með Bayern Miinchen.
Dennis Bergkamp minnkaði
muninn fyrir Holland fyrir leikhklé
- með glæsilegu marki. Hann fékk
knöttinn inn fyrir vörn Englandinga
og vippaði honum yfir Chris Wood,
markvörð, sem var kominn of langt
útúr markinu.
Norðmenn, Englandingar, Hol-
lendingar og Pólveijar beijast um
tvo farseðla til Bandaríkjanná 1994.
Liðin sem léku á Wembley í gær-
kvöldi, voru þannig skipuð.
Englandi: Chris Woods - Lee Dixon, Des
Walker, Tony Adams, Martin Keown - Paul
Ince, Carlton Palmer, Paul Gascoigne (Paul
Merson 46.), John Barnes - David Platt, Les
Ferdinand.
Holland: Ed de Goey - Danny Blind, Frank
de Boer, Jan Wouters, Rob Witschge - Aaron
Winter, Frank Rijkaard, Dennis Bergkamp -
Johnny Bosman (John de Wolf 46.), Ruud
Gullit (Peter van Vossen 70.), Marc Overmars.
KNATTSPYRNA
KR vann Fram
KR-ingar unnu Framara, 2:1, í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Ómar Bendtsen
og Sigurður R. Eyjólfsson skoruðu
mörk KR, en Brynjar Jóhannesson
mark Fram.
KR-ingar mæta Valsmönnum í
undanúrslitum á mánudaginn, en
Framarar mæta Fylkismönnum í
hinum undanúrslitaleiknum á
þriðjudaginn. Fylkir skellti ÍR, 6:0,
á þriðiudaginn. Finnur Kolbeinsson
3, Kristinn Tómasson 2 og Þórhall-
ur Dan Jóhannsson skoruðu mörk
Fylkis.
Strákarnir töpuðu
Islenska landsliðið, skipað leik-
mönnum 16 ára og yngri, náði
sér ekki á strik gegn Pólveijum í
EM í Tyrklandi í gær. Pólveijar,
sem voru mun sterkari, unnu 2:0.
N-írara og Svisslendingar gerðu
jafntefli, 1:1, þannig að íslenska
liðið nægir jafntefli gegn Sviss á
morgun til að komast í 8-liða úrslit.
■ EINNAR mín. þögn var fyrir
leiki í HM-keppninni í gærkvöldi,
til að minnast sautján lándsliðs-
manna Zambíu, sem létust í flug-
slysi í gærmorgun.
■ ÍRAR og Danir fengu á sig sín
fyrstu mörk í HM, þegar þeir gerðu
jafntefli, 1:1, í Dublin. Irar náðu
sér aldrei verulega á strik og það
var Niall Quinn sem tryggði þeim
jafntefli með fallegu skallamarki.
■ ÚKRANÍUMAÐ URINN An-
drei Kanchelskis, leikmaður Man.
Utd., kom Rússum á bragðið gegn
Ungverjum. Hann skoraði fallegt
mark eftir mikinn einleik á 55 mín.
og eftir það skoruðu Rússar tvö
önnur glæsimörk.
■ RÚSSAR léku sinn fyrsta leik
í Moskvu frá því í október, en þá
fengu þeir Islendinga í heimsókn.
■ ERIC Cantona var hetja
Frakka, sem lögðu Svía, 2:1, í
París í gærkvöldi. Svíar skoruðu
fyrst ódýrt mark, en Cantona jafn-
aði og skoraði sigurmarkið átta
mín. fyrir leikslok.
■ CANTONA tók heldur betur
við hlutverki Papins, sem er meidd-
ur. Hann hefur skorað 17 mörk í
31 landsleik fyrir Frakkland.
I N-IRAR komust yfir gegn
Spánveijum í Sevilla, en miðheij-
inn Saiinas kom Spánverjum yfir,
2:1, með tveimur mörkum á fimm
mín. og Fernando Hierro gull-
tryggði sigur Spánveija, 3:1.
■ VAN Vossen, sem skoraði jöfn-
unarmark Hollands, skoraði sitt
sjötta mark í sex landsleikjum.
■ JOHN Barnes, sóknarleikmað-
ur Liverpool, skoraði sitt ellefta
mark fyrir England í 70 landsleikj-
um. Markið var hans fyrsta í lands-
leik í þijú ár.
■ DENNIS Bergkamp skoraði
sitt þrettánda mark fyrir Holland
í 22 landsleikjum. Mark hans á
Wembley var afar glæsilegt.
KORFUBOLTI / EM DRENGJALANDSLIÐA
Stórsigur gegn Búlgaríu
Íslendingar sigruðu Búlgari, 98:70,
í fyrsta leik undanúrslitariðils Evr-
ópumóts drengjalandsliða í körfu-
knattleik í Litháen í gær. Staðan í
leikhléi var 47:42.
Islenska liðið náði forystu strax í
byijun og var yfir allan leikinn. Liðið
gerði m.a. þrettán fyrstu stigin í scinni
hálfleik.
Helgi Guðfinnsson var stigahæstur
með 39 stig, Ólafur Ormsson gerði
22, Arnþór Birgisson 20, Gunnar Ein-
arsson 9, Ómar Sigmarsson 7 og Frið-
rik Stefánsson 1. Friðrik tók einnig
5 fráköst og varði 5 skot. Páll Krist-
insson tók 9 fráköst.
Skotnýting íslenska liðsins í 2ja og
3ja stiga skotum var 40% og 75% í
vítaskotum. Liðið gerði alls níu 3ja
stiga körfur í leiknum. Að sögn Björns
Björgvinssonar fararstjóra lék Helgi
Guðfinnsson frábærlega og þeir Páll
og Friðrik hefðu verið mjög sterkir í
fráköstunum.
íslenska liðið mætir Pólveijum í
dag.