Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. AÍ>RÍL 1993 3 Orlando, Flórída Tökum að okkur að annast hús og íbúðir fyrir liúseigendur i Orlandó og nágrenni. Akstur til og frá flugvelli. Utvegum leigjendur frá Islandi, Kanada og USA, miða á körfuboltaleiki, í leikhús, skemmtisiglingar, skemmtigarða eða það sem þér hentar, nefndu það bara. Kynnið ykkur okkar frábæru þjónustu. Frekari upplýsingar í síma 91-43266 eða 92-11175. X Lovísa og Bob, sími 90 I 407 6716855, fax. 90 I 407 6795983. • Breytmg í benetton veruleg verðlækkun Nýr ítalskur á betra verc gæðafatnaður ii en áður. 1 \ K r i n g 1 u n n i y [&\ \ Denc 'líon Síðustu dagar vorútsölunnar Sömu mark- miðin I síðasta tölublaði mál- gagns Félags ísl. iðnrek- enda er birt ritstjómar- grein þar sem segir: „Hin eilífa efnahags- umræða heldur áfram. Möndull þeirrar umræðu er sem fyrr afkoma sjáv- arútvegsins. Um þann möndul snúast efnahags- aðgerðir sem jafnan em á döfinni. Þeirra er beðið með eftirvæntingu en niðurstaðan veldur jafn- an vonbrigðum. Þessar aðgerðir tengjast oftar en ekki kjarasanmingum og aðilar vinnumarkað- arins koma þar æ meira við sögu. Takmarkið er ávallt hið saman: Að bæta afkomu sjávarút- vegsins. í þessu sam- bandi virðist gleymast að þorskaflinn hefur minnk- að um allt að helming á hvert skip. Markmiðin í efnahagsmálum hafa ekkert breyst. Við ætlum okkur sýnilega að byggja útflutning okkar áfram á sjávarútvegi þótt afli minnki ár frá ári. Afleið- ingin er sú að tekjur okk- ar minnka stöðugt. Enn er taprekstur í sjávarútvegi ef miðað er við meðaltal. Eins og venjulega hafa menn ekki séð hann svartari. Eins og venjulega er kall- að eftir gengisfellingu og sértækum aðgerðum. Að þessu sinni er rætt um að fella niður trygginga- gjald af launum, lækka hafnargjöld og að út- gerðinni verði afhentur kvóti Hagræðingarsjóðs án endurgjalds. Eins og venjulega dugir þetta hvergi nærri til. Varla er unnt að finna fleiri' opinber gjöld sem hægt væri að fella niður. Fer þá ekki að styttast í að næstu aðgerðir verði Sami vandi - sömu viðbrögð Möndull efnahagsumræðunnar er afkoma sjávarútvegsins. Við ætlum að byggja útflutning áfram á sjávarútvegi þrátt fyrir minnkandi afla. Afleiðihgin eru stöðugt minnkandi tekjur. Þetta segir m.a. í málgagni iðnrekenda, Á döfinni. beinar styrkveitingar? Raunar var á liðnu hausti rætt um að senda þeim útgerðarmönnum tékka í póstinum sem urðu fyrir mestri skerðingu á sínum kvóta. Enn hefiu’ það þó ekki orðið hvað sem síðar verður. Sama mismun- unin Enginn hefur nefnt þann möguleika að senda þeim iðnrekendum tékka í pósti sem orðið hafa fyr- ir mestum samdrætti. Engum hefur dottið í hug að iðnaðurinn þyrfti ókeypis hráefni eða sér- stakar skattaívilnanir. Þegar iðnaðurinn á í hlut, er allt annað uppi á ten- ingnum. Nýjasta dæmið er fyrirhuguð hækkun á hinu fáránlega 25% vöru- gjaldi á sælgætis- og drykkjarvöruframleið- endur. Með þessu er at- vinnu nær sexhundruð starfsmanna stofnað í hættu. Eru þeir annars flokks íslendingar? Þetta er ótrúleg tímaskekkja og alger kúvending frá þeirri stefnu að jafna starfsskil- yrðin. Menn hafa oft velt vöngum yfir því livers vegna iðnaðurinn hefur ekki vaxið meira en raun ber vitni frá inngöngunni í EFTA fyrir rúmum 20 árum. Hvers vegna er iðn- aðurinn ekki betur undir það búinn að auka hlut- deild sína í gjaldeyrisöfl- uninni, nú þegar hriktir í þeirri undirstöðu sem mest hvflir á. Skýringin er sú að við breyttum ekki lun stefnu í verki við inn- gönguna í EFTA. Nær all- an þennan tíma höfum við búið við óðaverðbólgu. Öll starfsskilyrði, gengis- skráning, skattlagning og aðgangur að lánsfé hefur tekið mið af þörfum sjáv- arútvegs. Er að undra þótt hægt hafi miðað að byggja upp iðnað í fullri og óheftri samkeppni við nágrannalönd okkar í Evrópu við þessi skilyrði? Leitað nýrra leiða Nú um stundir höfum við af veikum mætti reynt að feta okkur inn á aðra braut. Braut stöðugleika. Við höfum reynt að hæta samkeppnisstöðuna með því að halda verðlagi stöð- ugu, skera niður kostnað og hagræða í rekstri. Efnahagsaðgerðirnar sl. haust voru í þessum anda. Þar var um að ræða skref í þá átt að jafna starfsskil- yrði atvinnuveganna og færa skattkerfi okkar í takt við það sem gerist lyá samkeppnislöndum okkar. Við höfum verið að reyna að ná áttiun eft- ir að gemingaveðri verð- bólgunnar slotaði. Eina leiðin út úr efnahags- vanda okkar er að skapa atvinnulífinu eðlileg og jöfn rekstrarskilyrði um leið og dregið er úr ríkis- afskiptum og umsvifum. Lausnin er ekki sú að flokka atvinnugreinamar í mismikilvæga flokka og auka skattlagningu á hin- um óæðri fiokkum. Slik mismunun mun einungis drepa niður iðnað og þjón- ustu og auka á atvinnu- leysið. Einhvem tima var sagt að það bæri vott um geð- veiki að bregaðst alltaf eins við sama vandanum en vonast um leið stöðugt eftir að fá nýja og betri niðurstöðu. Við höfum þegar reynt leið gengis- fellinga, óðaverðbólgu, rikisafskipta og sértækra styrktaraðgerða í áratugi. Við megum ekki hverfa aftur inn á þá braut.“ d sturtuklefum, baökarshuröum, hreinlœtistœkjum og innihuröum. 20 - 50% afsláttur Raðgreiðslur allt upp í 18 mánuði. BYGGINGAVÖRUR SKEIFUNNI 11B- SÍMI 681570. * SUMIR HAFA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ. EN ÞU? Ef þú lendir í árekstri jiar sem ekið er í veg fyrir þig á aðalbraut, en sannanlegt er að þú bafir ekið of hratt, er alls óvíst að þú fáir fullar bætur. Samkvæmt 89. grein um- ferðarlaga skal skipta tjóni sem verður af árekstri í hlut- falli við sök. í 37. grein umferðarlag- anna er fjallað um almennar hraðatakmarkanir. í þétttbýli má hraðinn ekki vera meiri en en 50 km á klst. Utan þéttbýlis má ökuhraðinn ekki vera meiri en 80 km á klst. á malarvegum en 90 km á klst. á bundnu slitlagi. v | Liggur þér örugglega 2 lífið á? 1 ■SIOVAfHlrTAI MENNAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.