Morgunblaðið - 29.04.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 29.04.1993, Síða 10
10 MORGUNÖLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 29. ÁPRÍL 1993 Adrían Schiess Myndlist ' Eiríkur Þorláksson í sýningarsalnum Annarri hæð að Laugavegi 37 er nýlokið lítilli sýningu á nokkrum verkum ungs svissnesks listamanns, Adr- ians Schiess. Þessi ungi lista- maður (fæddur 1959) hefur ver- ið að vekja athygli manna á síð- ustu árum, en hann var m.a. fulltrúi síns lands á tvíæringnum í Feneyjum 1990, og var méðal þeirra listamanna sem var valinn til þátttöku í hinni frægu Docu- menta-sýningu í Kassel í Þýska- landi á síðasta sumri. Hann hef- ur dvalið hér á landi sem gesta- kennari við fjöltæknideild Mynd- lista- og handíðaskóla Islands. Sýning listamannsins er ein- föld að allri gerð; á henni getur að líta eitt gólfverk, litaða tré- plötu, og nokkrar óreglulega lag- aðar vatnslitamyndir á veggjum. Meira er það ekki. Því er strax ljóst, að hér skipta forsendurnar öllu máli, og nokkur umfjöllun (og umhugsun hvers sýningar- gests fyrir sig) um viðhorf lista- mannsins til verkefnisins er grundvöllur þess að sýningin hafí eitthvað fram að færa. Þetta er gert í ágætum fyrirlestri sem liggur frammi, og listamaðurinn hefur væntanlega flutt fyrir nemendur og aðra gesti í Mynd- listaskólanum. Listamaðurinn telur að hann sé ekki hallur undir naumhyggju eða minimalisma og þess hrein- leika formsins sem þar er boðað- ur; hann hafi meira áhuga á lit- um, og samspili þeirra við um- hverfi sitt. Hann lítur á málaral- ist „... sem það að hjúpa grunn- flöt með litum; að dreifa litum um gefið rými. Þetta snýst sem sagt um umsvif á yfirborðinu - um ákveðna yfirborðsmennsku. ... Yfirborðið er eins konar líf- himna sem hreyfir við mér. Það er húðin sem skilur á milli ytra og innra byrðis.“ Þetta viðhorf er ekki nýtt, en það er sett fram á skemmtilegan hátt hér, og því er síðan fylgt vel eftir í verkunum, einkum gólfverkinu, þar sem ljósið, um- hverfið og sýningargestir skapa flöktandi ímyndir í verkinu, sem þannig er sífelldum breytingum háð, einS og listamaðurinn bend- ir á: „Það er erfitt að henda reið- ur á litunum og formunum sem kvikna til lífsins á yfirborðinu, þau eru á sífelldu iði, skreppa iðulega úr sjónmáli áhorfandans. Þau eru aldrei kyrr. Sjálf máln- ingin er einnig stöðugum breyt- ingum undirorpin." Vegna þessa er eðlilegt, að liturinn sjálfur sé ekki mikilvæg- ur í augum listamannsins, þar sem hann er alltaf afleiddur, þ.e. háður umhverfi sínu, birtu og öðrum litum. Þessi óstöðugleiki, sem liturinn býður upp á vegna tengsla við umhverfið er eitt af því, sem Adrian Schiess hefur mest dálæti á, því eins og hann segir sjálfur, þá höfðar hið „brjóstumkennanlega rótleysi sem kemur fram í þessu“ sér- staklega til hans. Þessi viðhorf kunna að stuða þá, sem eru hallir undir hið hefð- bundna málverk, en listamaður- inn er sjálfum sér samkvæmur í orðum og í verki. Uppsetningin sjálf skiptir litlu máli (þó hún njóti rýmisins vel hér), og litaval- ið jafnvel ekki heldur; það sem skiptir máli er „síbreytileiki lit- anna, samruni þeirra, óendan- leikinn sem felst í því þegar einn litur breytist í annan, þessi hljóða tónlist þeirra ..." Adrian Schiess kemur sértæk- um viðhorfum sínum til skila á skilmerkilegan og greinargóðan hátt, og hjá honum er fullt sam- ræmi á milli orða og verka. Það er frískandi tilbreyting á mynd- listarsviðinu, þar sem listamenn kynna sig oftar með þögninni einni saman eða þá slíkri skrúð- mælgi, að hismið hylur kjarnann vendilega. Þó aðeins væri fyrir það eitt er þessi sýning heim- sóknarinnar virði. Sýningu Adrians Schiess í sýningarsalnum Annarri hæð var ætlað að standa út aprílmánuð, • svo væntanlega er miðviku- dagurinn 28. apríl síðasta tæki- færi listunnenda til að kynna sér verk hans með eigin augum. Adrian Schiess: Flatt verk, 1990. Margrét Magnúsdóttir í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti er einnig nýlokið sýningu á innsetningu frá hendi ungrar listakonu, Margrét- ar Magnúsdóttur. Margrét stund- aði listnám við Myndlista- og handíðaskóla Islands á árunum 1984-87, en hélt 1988 til fram- haldsnáms við Hochschule der Kunste í Berlín, þar sem hún hefur dvalið lengst af síðan; þetta er væntanlega fyrsta einkasýn- ing hennar hér á Iandi eftir að námi lauk. Oft hefur verið á það minnst, að það rými sem Gerðuberg not- ar undir sýningar (gangur á neðstu hæð hússins) henti al- mennt illa til þessa; í þetta skipti hefur hins vegar tekist vel til, þar sem listakonan nýtir aðeins afmarkaðan hluta þessa rýmis, og gerir innsetninguna þannig heildstæðari og sterkari en ella. Hér er um að ræða sex hluti, sem segja má að hver fyrir sig og saman hafi til að bera ýmsar áhugaverðar tilvísanir varðandi samskipti mannsins við landið og náttúruna, ólíka stöðu kynjanna og ýmis borgaraleg eigindi eins og virðuleika og sýndarmennsku; hver og einn kann að túlka það sem fyrir augu ber á ítarlegri hátt, en helstu atriði eru kunnug- leg úr konseptlistinni frá liðnum árum. Á vegg eru hengdir tveir gaml- ir borðstofustólar, en á setur þeirra hafa verið málaðar lands- lagsmyndir; við lifum af gæðum landsins, og við nýtum það vissu- lega fyrst og fremst okkur til ánægju og hagsbóta. í einu horninu hangir blóma- kjóll, sem minnir á hina gullnu reglu stúlkna fyrri ára; þær áttu að vera fallegar, en halda sig afsíðis og ekki blanda sér í um- ræður um alvarlegri mál, sem menn voru ef til vill að ræða undir borðum við beinadúkinn, sem er mest áberandi verk sýn- ingarinnar. Þarna eru hvítþvegn- ir sviðakjammar saumaðir á reglulegan hátt í fallegan dúk, sem hylur borðstofuborð, sem væntanlega hefur borið uppi marga góða veisluna. Áhugaverðust eru þó tvö verk, sem eru sett fyrir framan borð- stofuborðið. Þetta eru gamlar opnar ferðatöskur, og heita sam- kvæmt myndverkaskrá Kven- kyns - karlkyns. Viðvaranir eru letraðar (á ensku) innan á tösk- urnar; karlmaðurinn ferðast með sæði, en konan með blóð. Inni- hald hvorrar tösku fyrir sig er tengt þessum áletrunum á ólíkan og óvæntan hátt, einkum hvað varðar hinn snyrtilega ferðabún- að karlmannsins. Það er vissu- lega sár broddur í verkum sem þessum, sem endurvarpast á heildarmyndina. Þetta er vönduð innsetning, sem er girt af, þannig að ákveð- inn safnasvipur er yfir henni; ef til vill er listakonan þannig að vísa til horfmna daga. Sýningin er forvitnileg vegna þeirra tilvís- ana sem þar koma fram; vönduð framsetning bendir til þess að listakonan nálgist sín viðfangs- efni með þeirri virðingu og eftir- væntingu sem skapandi myndlist á skilið. Það ætti að vera metnaður þeirra sem sýna í menningarmið- stöðinni jafnt sem þeirra sem annast sýningar staðarins að sjá til þess að hverri sýningu fylgi sýningarskrá sem stendur undir nafni; upplýsingar um Iistamann- inn, verkin, og hugleiðingar um Iistina ættu að vera lágmarksefni í slíkri skrá. Oft vantar talsvert upp á að skrárnar í Gerðubergi standi undir nafni, og svo er því miður að þessu sinni; sýning af þessu tagi þarf einmitt gott með- lág, til að geta upplýst, frætt og hrifið hinn almenna áhorfanda. Til sölu Hef til sölu 2ja herb. íbúð á jarðhæð með sérgarði og bílskýli við Hverafold. íbúðin er nýleg og til afhendingar strax. Áhvílandi lán til lengri tíma 3,1 millj. Upplýsingar í símum 35070 og 676743. Nemendaleikhúsið : EIGNAMIÐLUMN H/i Sínii 6~-90é9Q - Síðiumila 21 Skildinganes Fallegt einlyft einbhús um 230 fm með innb. um 40 fm bílskúr. Húsið er allt hið vandaðasta m.a. innréttingar og gólfefni. Verð 19,5 millj. 3102. Pelíkaninn frumsýndur NÆSTKOMANDI laugardag, 1. maí, frumsýnir Nemenda- leikhúsið leikritið Pelíkanann eftir August Strindberg í leikstjórn finnska leikstjórans Kaisa Korhonen. Byggt er á áður ósýndri þýðingu Einars Braga. Leikritið Pelíkaninn er hið fjórða í röð kammerleikrita Strindbergs og var frum- sýnt í nóvember 1907. Leikritið fjallar í grófum dráttum um samband móður, sonar, dóttur og tengdasonar. Nafn leikritsins, Pelíkaninn, er táknrænt fyrir það flókna samband sem fjallað er um í verkinu. Þjóð- sagan segir að þegar Pelíkaninn eigi ekki til mat handa ungunum sínum höggvi hann í brjóst sér allt til hjartans svo ungarnir megi nærast á hjartablóði hans. Eða eins og ein persóna í verkinu segir: ENSKA ER OKKAR MAL A.LLIR. KENNARAR SKÓLANS ERU SÉRMENNTAÐIR f ENSKUKENNSLU INNRITUN STENDUR YFIR Enskuskólinn VINSÆLUSTU ENSKUNÁMSKEIÐ Á LANDINU • SÍMI 25900 „Börn eru vanþakklát að eðlis- fari...“ „... og tengdamæður sjaldn- ast vel séðar ..." Þó er óvíst að hjartablóð móðurinnar verði börn- um hennar efst í huga þegar að uppgjörinu við hana kemur, ekki síst þar sem grunur leikur á að hún standi í ástarsambandi við tengdasoninn. Barátta barnanna gegn foreldrunum er hatrömm þegar þau reyna að slíta sig burt frá þeim. Það má því segja að' verkið ijalli um sígildar tilfinningar, sam- skiptamynstur sem fylgt hefur mannkyninu frá upphafi og ekkert bendir til að sé á undanhaldi. Pinnski leikstjórinn Kaisa Kor- honen er í hópi virtustu leikstjóra á Norðurlöndum, auk þess sem hún hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstöð- um í finnsku leikhúsi og verið leik- listarkennari í mörg ár. Korhonen stýrir nú eigin leikflokki við Borgarleikhúsið í Helsinki. Með henni í för eru Esa Kyllönen, hljóð- og ljósahönnuður og Sari Salmela, leikmynda- og búningahönnuður. Pelíkaninn er lokaverkefni Nem- endaleikhússins. Hinrik Vigdís Björk Dorfi Jóna Guðrún Gunnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.