Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 13
mi » jís MiieaoTMim W€iAJ'ff?3j,í)MOM SI TOR(TDNBL7Œ5I01TMMTUI5SGUIl Z5rAPKÍET5¥3-------------------------------------------------------13 Séra Friðrik Friðriksson Friðrikskapella Byggiiig- Fríðrikskapellu eftir Gylfa Þ. Gíslason I. Hinn 25. maí næstkomandi verða liðin 125 ár frá fæðingu séra Friðriks Friðrikssonar. Þann dag verður vígð að Hlíðarenda í Reykjavík kapella, sem á undanfómum þremur árum hefur verið reist þar til minningar um séra Friðrik og til þess að þar geti farið fram starfsemi i anda hans. I nóvember 1990 voru stofnuð samtök um byggingu kapellunnar. Forgöngu um það höfðu einstakling- ar í félögum, sem eiga upphaf sitt að rekja til starfa séra Friðriks, KFUM og K í Reykjavík, Knatt- spyrnufélaginu Val, Skátasambandi Reykjavíkur og Karlakórnum Fóst- bræðrum, sem og ýmsir af fjölmörg- um vinum og aðdáendum. Byggingin hófst í maí 1991 og hefur verið kost- uð af frjálsum framlögum fjölda ein- staklinga og fyrirtækja og fjárveit- ingum frá Reykjavíkurborg og Al- þingi. Stjórn kapellunnar mun verða í höndum þeirra félaga, sem nefnd voru að framan, og sóknarpresta Hallgrímssóknar. II. Séra Friðrik er tvímælalaust í hópi þeirra manna, sem mest áhrif hafa haft á Islandi á þessari öld. Hvað var það, sem gerði hann að slíkum áhrifamanni? Annars vegar var það maðurinn sjálfur. Hins vegar var það sá boð- skapur, sem hann flutti. Séra Friðrik var heillandi maður. Hann þurfti ekkert að segja til þess að laða að sér börn, unglinga og fullorðið fólk. Frá honum stafaði góðvild og hlýja. En þegar hann tal- aði, komu töfrar í ljós. Röddin var djúp og seiðandi. Það, sem hann sagði, hvort sem það var frásögn eða saga, hvort sem það var leiðbeining eða áminning, bar vott um mann- þekkingu og mannvit, en jafnframt um gæzku og gleði. Orð hans höfðu djúp áhrif. Sá, sem á hlýddi, varð betri maður. Þetta gerði hann að óviðjafnanleg- um æskulýðsleiðtoga. Hann hafði „Hinn 25. maí næstkom- andi verða liðin 125 ár frá fæðingu séra Frið- riks Friðrikssonar. Þann dag verður vígð að Hlíðarenda í Reykja- vík kapella, sem á und- anförnum þremur árum hefur verið reist þar til minningar um séra Friðrik og til þess að þar geti farið fram starfsemi í anda hans.“ djúp áhrif á unglinga, meðal annars með söngvunum, sem hann samdi og gerðu samkomur, er hann stjórn- aði, að sannri gleðihátíð og fylltu hjörtu ungra drengja fögnuði, bjart- sýni og barnslegu trúnaðartrausti á fegurð Iífsins og algóðan guð. Séra Friðrik vissi, að drengir vilja takast á, sýna hugrekki og hreysti. Þess vegna voru ræður hans og söngvar oft eins konar heróp, hvatn- ing til dáða og drengskapar og fyrir- heit um sigurlaun að drýgðri dáð. Hann talaði og kvað um stríð og orustur, í þjónustu konungsins Krists. Stríðið var í þágu hins góða, baráttan gegn því, sem var illt. I ræðum hans var jafnframt boðskap- ur um bræðralag allra manna, frelsi, ættjarðarást og þjóðhollustu. Og boð- skapurinn bar ávallt gleðisvip. Hann var fagnaðarboðskapur. Þess vegna var hann jafn áhrifaríkur og raun bar vitni. Hann gerði alla að betri mönnum. Þeir eru margir, sem eiga mikils- verðar minningar um kynni sín af séra Friðrik. Það hefur komið fram í sambandi við öflun fjár til bygging- ar kapellunnar. III. Ég man eftir séra Friðrik jafn- lengi og ég man eftir sjálfum mér. Vegna vináttu föður míns og hans kynntist ég honum á barnsaldri. Fóstursonur hans, Adolf Guðmunds- son, var nánasti bernskuvinur minn. Sumar eftir sumar vorum við með honum í Kaldárseli og Vatnaskógi. Arin fyrir heimsstyijöldina var ég við nám erlendis. Hann dvaldi í Dan- mörku stríðsárin. Hann var orðinn 77 ára, þegar hann kom aftur heim. í áratug höfðum við nær ekkert sézt. En tíminn hefði eins getað verið einn dagur. Við vorum sömu vinirnir. Og til hinztu stundar jókst virðing mín fyrir honum og kærleikur minn til hans. Séra Friðrik talaði aldrei einslega við mig um trúmál, hvorki sem barn, ungling né fullorðinn mann. En frá því ég kynntist honum á barnsaldri hef ég verið trúáður. Auðvitað var trúarboðskapur í öllu, sem séra Friðrik sagði og gerði. Hann var mikill gáfumaður og lær- dómsmaður. Hann var gæddur óræð- um persónutöfrum, sem gerðu hann að miklum æskulýðsleiðtoga. En fyrst og fremst var hann trúmaður, svo einlægur trúmaður og svo gagn- tekinn af trú sinni, að hún mótaði allt líf hans, öll orð hans og allar gerðir. Þannig vísaði hann vinum sínum upp á það eina bjarg, sem aldrei bifast. Höfundur er formaður Samtaka um byggingu Friðrikskapellu. Frá undirritun samnings um útgáfu geisladisksins, Sigurður Ágúst Sigurðsson og Kristján Jóhannsson. Krislján Jóhannsson og DAS Nýr geisladiskur í 80.000 eintökum HAPPDRÆTTI DAS og Kristjan Johannsson tenór skrifuðu nýlega undir samstarfssamning vegna útgáfu á safndiski með Kristjáni þar sem hann syngur einsöngslög og þekktar óperuaríur eftir helstu óperu- skáld sögunnar. Utlit er fyrir að upplag þessa geisladisks verði stærra en áður eru dæmi um hérlendis og muni skipta tugum þúsunda. Samt verður diskurinn ekki til sölu í verslunum, segir í frétt frá DAS. Ennfremur segir: „Þessi diskur verður í vinning í 1. flokki hjá Happ- drætti DAS sem dregið verður í- 7. maí nk. Og nú gerist það sem aldrei hefur gerst í happdrætti hérlendis og ef til vill víðar; það fá 'allir vinning sem á annað borð kaupa sér miða og það aðeins fyrir 600 krónur. Reyndar er heildarútgáfan 79.964 en í útdrættinum eru 80.000 miðar alls. Það verða því 36 aðilar sem verða þá svo „óheppnir" að fá ekki diskinn með Kristjáni en í „skaðabætur" verða dregnir út handa þeim 35 ferða- vinningar á 50 og 100 þúsund krónur og einn íbúðarvinningur fyrir þrjár milljónir. Skráð heildarverðmæti vinn- inga í þessum fyrsta flokki eru rúm- lega 164 milljónir króna. I ágúst fara miðar úr 1. flokki ásamt númerum endumýjuðum í 2., 3. og 4. flokki aftur og þá sjálfkrafa í „sumarpott" og er aðalvinningur þar er Toyota- skutbifreið ásamt tjaldvagni í aðal- vinning. Kristján Jóhannsson hefur sjálfur valið allt efni á diskinn af þremur eldri diskum, allt það fallegasta og vinsælasta. Þetta era ítölsk sönglög á borð við O Sole Mio, Ideale og Dicit- encello vuie og aríur úr óperum eftir Verdi, Lenoncavallo, Puccini, Mascagni, Donizetti og Gounod. Und- irleik annast Ungverska ríkishljóm- sveitin, London Symphony Orchestra og Sinfóníuhljómsveit íslands." Tilkynning um útboð á Sparibréfum Yeðdeildar Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1. flokkur1993 Utgáfudagur: Heildarfjárhæð: Gjalddagar: Sölutímabil: Grunnvísitala: Einingar bréfa: V erðtrygging og ávöxtun: Ávöxtun umfram verðtryggingu: Söluaðilar: Umsjónaraðili útboðs: 28. apríl 1993. 200.000.000,- 15.06.1996, 15.12.1996, 15.06.1997, 15.12.1997, 15.06.1998, 15.12.1998, 15.06.1999, 15.12.1999. 28.04.’93-28.04.’94. 3278. Lágmark kr. 50.000,- Ofangreind bréf eru verðtryggð miðað við hækkun lánskjaravísi- tölu og bera enga vexti. 7,45% á fyrsta söludegi. Sparisjóður Hafnarfjarðar, Kaupþing hf., Kringlunni 5, og Kaupþing Norðurlands hf. Kaupþing hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík - Sími 91-689080, telefax 91-812824.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.