Morgunblaðið - 29.04.1993, Side 32

Morgunblaðið - 29.04.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1993 Hjónaminning Guðrún A. Sigmunds dóttir ogAmgrímur Siguijónsson Guðrún Fædd 10. apríl 1916 Dáin 20. apríl 1993 Arngrímur Fæddur 26. febrúar 1912 Dáinn 12. mars 1993 Þegar ég frétti að hún amma væri dáin fylltist ég ólýsanlegri sorg. Það voru ekki liðnar sex vikur frá því að afi dó og allt í einu voru þau bæði farin. Ef til vill átti þetta að vera svona, að afi hafí kallað hana til sín. Þau tilheyra hvort öðru. Þó sakna ég þeirra alveg óskap- lega mikið. Heimili þeirra var mitt athvarf og ankeri í gegnum árin. Þegar ég var barn og foreldrar mín- ir voru að skilja var „Hjalló“ örugg- asti staður sem ég þekkti. Móðir mín var útivinnandi og var ég þá oftast hjá afa og ömmu á meðan; oft gisti ég. Á seinni árum þegar ég flakkaði víðs vegar um heiminn var það mér mikill styrkur að vita af þeim heima á Hjallaveginum. Þau kenndu mér svo margt gott og gáfu mér svo ómetanlega mikið. Heima hjá þeim var gott að vera, þar upplifði ég mikla gleði og ástúð. Andrúmsloftið á „Hjalló“ var skap- andi; þar teiknaði ég myndir, spilaði á hljóðfæri, pikkaði sögur og leikrit á eldgamla ritvél. Hún amma hafði alltaf tíma fyrir mig, hlustaði á allar mínar frásagnir með athygli og ræddi við mig um ýmis mál. Þegar ég lá lasin heima kom hún til mín á leiðinni úr vinnunni, færandi Andrés- blöð, kók, súkkulaði og rautt Ópal, allt sem mér þótti gott. Og svo sat hún hjá mér til að mér leiddist ekki. Amma var skemmtileg, glaðlynd og úmhyggjusöm. • Amma og afí höfðu svo mikla ánægju af því að gleðja mig. Ein- hvern tímann man ég eftir að mig langaði í kuldaskó, fallega rúskinns- skó sem ég hafði séð í búðarglugga þegar við amma vorum á ferðinni niðri í bæ. Þeir voru rándýrir. Eitt- hvað fór ég að nöldra á heimleiðinni að mig langaði í þá, en amma minnti mig spekingslega á að ekki væri allt- af hægt að fá allt sem maður vill. Ég afskrifaði'skóna. Nokkrum vikum seinna lágu þeir innpakkaðir undir jólatrénu. Það var líka ömmu og afa að þakka að ég fékk að læra á píanó og fara á hestanámskeið, svo að aðeins tvennt sé nefnt. Fallegustu minningar mínar af afa eru þegar við vorum saman úti í garði og ég var að „hjálpa“ honum. Hann átti mjög fallegan garð og hafði mikla ánægju af því að kenna mér allt um garðyrkju. Það var gott að dunda þama með honum. Hann „gaf“ mér mitt eigið blómabeð og tvo rifsbeijarunna sem ég var alveg rosalega stolt af. Síðast þegar ég talaði við ömmu í síma, á afmæli hennar 10. apríl, kom þessi aldurslausa lífsgleði sem hún bjó yfír ennþá sterkt í gegn, þrátt fyrir ástvinamissi og misjafna heilsu. Við spjölluðum saman lengi, alveg eins og gamlar vinkonur. Að lokum sagðist ég ætla að senda henni myndir af Aldísi dóttur minni, eina langömmubaminu, og hlakkaði hún til að fá þær. Sama dag og ég pant- aði þær dó hún amma. „Fólk deyr, en kærleikurinn varir að eilífu." Alda Sigmundsdóttir. Alla setti hljóða þegar fregnin um lát Öldu Sigmundsdóttur barst fjöl- skyldunni. Aðeins mánuður var liðinn frá andláti Arngríms Sigurjónssonar, eiginmanns Öldu, og líf aðstandenda rétt að falla í hefðbundnar skorður á ný. Það er sárt fyrir afkomendur þeirra hjóna að þurfa að horfast í augu við dauða og aðskilnað með svo stuttu millibili, en þó hvílir viss feg- urð yfir því að jafn samhent hjón kveðji þessa jarðvist svo samstiga. í myndaalbúmi mínu eru tvær myndir af foreldmm mínum og Öldu og Arngrími, föðurbróður mínum. Það er glatt á hjalla, enda öll í blóma lífsins. Alda situr í miðjunni og ósköp lík því sem hún var til dauðadags; grönn, spengileg og dálítið kímin á svip. í þá daga bjuggu foreldrar mínir í kjallara hússins sem Arngrím- ur og Alda byggðu við Hjallaveginn. Skömmu eftir að þessi mynd var tekin lést faðir minn og eftir stóð móðir mín, og ég, ófædd. Þau hjón tóku mér strax eins og einu af sínum börnum og ekki síst Alda. Það kom í hennar hlut að annast mig í veikind- um móður minnar og við það mynduðust sérstök bönd sem ekki slitnuðu. Það kom að því að við mæðgur fluttum úr húsi þeirra hjóna en við tóku heimsóknir sem stóðu um lengri og skemmri tíma. Móðir mín giftist aftur og eignaðist tvær dætur til við- bótar. Það tíðkaðist ekki að fjölyrða um orsök og afleiðingu hjá þessum konum, en þær hafa báðar skilið merkinguna sem lá að baki því að sú eldri fékk nafnið Alda, þótt óskyld væri. Upp frá því var Alda Sigmunds- dóttir alltaf kölluð Alda „•stóra“ á okkar heimili. Það var alltaf sérstakt ævintýri fyrir mig að dvelja á Hjallaveginum. Við Alda sýsluðum ýmislegt saman allan daginn og allt var svo áreynslu- laust þegar hún átti í hlut. Hún var nefnilega sérstaklega róleg í fasi, en samt snör í snúningum þegar á þurfti að halda. Ég man eftir dögum sem við eyddum úti í garði án þess að hugsa mikið um líðandi stund. Allt í einu vaknaði Alda upp við að búðirn- ar væru að loka og eftir að kaupa í kvöldmatinn. Og þá var handagang- ur í öskjunni þegar við hlupum við fót niður heimreiðina, yfir götuna og í gegnum gegnum garða nágrann- anna til þess að ná sem fyrst í físki- búðina á Langholtsveginum. Við náð- um alltaf fyrir lokun og gátum tekið lífínu með ró á ný. Og það var ekki bara ég sem átti sérstakt athvarf hjá Öldu og Arn- grími. Þessi umhyggja náði líka til yngri stystra minna sem áttu líka sínar stundir á Hjallaveginum. Þeirri yngstu þótti mest um vert að þau áttu þijá stóra stráka sem hentu okkur á miili sín svo að við skræktum af kátínu. Alltaf var það Alda sem mundi eftir afmælisdögunum okkar og að hennar undirlagi fegum við jólagjafír sem báru af öðrum slíkum. Eftir á að hyggja hefur heimili Öldu og Amgríms verið miðstöð barna sem fengu að vera þau sjálf. Þegar við systur komumst af barns- aldri tóku bamabömin við. Þegar ég heimsótti Öldu hin síðari ár dró hún alltaf upp myndir af barnabörnunum sem hún var ákaflega stolt af. Henni þótti mikilvægt að „liðið hennar" — eins og hún kallaði afkomendurna, — mætti reglulega á hveijum sunnu- degi í kaffi og pönnukökur. Þegar ég lít yfír farinn veg sé ég Öldu sem konu sem með eiginleika sem fáum eru gefnir. Það var ræktar- semi hennar við mannfólkið sem hélt böndum tryggðar innan ijöl- skyldunnar. Sú ræktarsemi náði langt út fyrir hennar eigin afkomend- ur og teygði anga sína víða. Af sömu rótum var sprottin trúmennska henn- ar og virðing fyrir Arngrími, en sam- an deildu þau súm og sætu í rúm fímmtíu ár. Hann átti það til að missa taktinn í lífsins dansi og þá reyndi á seiglu Öldu að ná honum á réttan kjöl. Þegar heilsu hans hrakaði reyndi enn frekar á þessa einstöku eiginleika sem Alda virtist hafa nóg af. Hennar síðasta verk var að gera útför eiginmanns síns á þann hátt sem hæfði minningu hans og aðeins mánuði síðar var hún öll. Síðustu daga hefur mér verið hugsað til þeirra beggja. Mér finnst núna að ég hefði getað gefíð þeim meira til baka af þeirri umhyggju sem þau sýndu mér og mínum alla tíð. Að svo stöddu get ég aðeins flutt þeim þakkir mínar og systra minna fyrir það sem þau lögðu okkur til á lífsleiðinni. Um leið votta ég sonum, tengdadætrum og barnabörnum samúð með þeirri ósk að liðið hennar Öldu verið jafn samheldið og fyrr þótt kjölfestuna vantaði. Nanný. Alda frænka mín er látin. Andlát hennar kom á óvart og minnir okkur á hve stutt er á milli lífs og dauða, . að fresta ekki að vitja þeirra sem I eru manni kærir, en gleðjast í dag með glöðum. Á morgun kann það að verða of seint. I Fjóla Krisijáns- dóttir — Minning Kynslóðir koma, kynslóðir fara allar sína æfígöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. Þannig kvað Mattías Jochumsson um aldamótin síðustu. Er við horfum á eftir ættingjum og vinum yfir landamærin miklu, verður okkur æ ljósari sú staðreynd að kynslóðir stoppa stundum ótrúlega stutt við. Séra Mattíasi var oft tíðrætt um kynslóðir, taldi allt kynslóðabil hjóm eitt. Þær voru honum samt hugstæð- ar í mörgum hans sálmum. Fjóla Kristjánsdóttir sem við kveðjum núna var af okkar kynslóð. Hún var eitt af tíu bömum Kristjáns Kjartanssonar skipstjóra og Þóru Björnsdóttur, þeirra ágætis hjóna sem bjuggu lengst af í Bjömshúsi á Grímsstaðaholti. Mikil sorg var, er móðirin í Bjömshúsi varð bráðkvödd á jólum 1948, langt um aldur fram, frá börnunum sex sem þá lifðu. Reyndi þá mikið á systurnar sem tóku við hlutverki móður. Þær systur Fjóla og Finnborg bjuggu í Bjömshúsi allt þar til byggð hóf að reisa á Grímsstaðaholtinu og þær systur fluttust í íbúð að Tómas- arhaga 28, þar rétt hjá. Fjóla lést 21. apríl síðastliðinn. Hún var alla tíð afgreiðslustúlka, lengst af í versluninni Gefjun Iðunn í Austurstræti. Sumu fólki er það einkanlega lag- ið að komast í gegnum lífíð á sinn hljóðláta hátt, en með elskulegri framkomu svo að eftir er munað. Þannig var líf Fjólu, hæglátt, ljúf framkoma, en kát ef aðstæður leyfðu. Fjóla gekk í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Þar komu fram ein- stakir hæfileikar hennar við alls konar hannyrðir sem hún hafði alla tíð svo gaman af. Fj'óla hafði yndi af ferðalögum, bæði innanlands og erlendis og ferðaðist mikið. Mér er minnisstætt er við systurnar heim- sóttum frænku okkar, þá ungar að árum, og lékum okkur saman, og vorum þá heimagangar á heimili Þóru móðursystur okkar, sem reynd- ist okkur sem besta móðir. Fj'óla lést að Hátúni lOb, eftir iöng og erfið veikindi, en hún hafði lengi þjáðst af Parkinsons-veikinni. Finnborg systir hennar annaðist hana af einstakri hlýju í hennar erf- iða stríði. Góður Guð blessi minningu Fjólu Kristjánsdóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. /V-E.) Ingibjörg Eyþórsdóttir. Mig langar að minnast frænku minnar Fjólu Kristjánsdóttur í örfá- um orðum, en hún lést 21. apríl eft- ir löng og erfið veikindi. Hún og faðir minn, Kjartan Jónsson, voru bræðrabörn og er ég heitinn eftir föður hennar. Mikil vinátta var milli föður míns og bræðra Fjólu, þeirra Sveins og Kristjáns, sem báðir eru látnir. Fjóla Kristjánsdóttir fæddist í Reykjavík 20. júní 1926. Foreldrar hennar voru Þóra Björnsdóttir frá Þormóðsstöðum í Reykjavík og Kristján Kjartansson frá Efri Húsum í Önundarfirði, skipstjóri og útvegs- bóndi. Þau bjuggu lengst af í Björns- húsi á Grímsstaðaholti. Þeim varð tíu barna auðið, en þijú dóu ung. Þóra lést 1948 og þá tóku þær syst- ur Fj'óla "og Finnborg við umsjón heimilisins með föður sínum og þeim bræðrum Sveini og Kristjáni. Fjóla starfaði lengst af við versl- unarstörf hér í bænum, í mörg ár hjá Andrési Andréssyni klæðskera sem jafnframt rak verslun við Laugaveg og síðar í versluninni Torginu í Austurstræti um tíu ára skeið. Hún naut alls staðar í störfum sínum virðingar og vinsælda vegna mannkosta sinna og prúðmennsku. Fjóla ferðaðist mikið og hafði gaman af að koma á fjarlæga staði. Hún vandaði val vina sinna og var í allri framgöngu fáguð og smekkvís svo að af bar. Þau systkinin voru mjög samrýnd og mikill samgangur þeirra á milli. Sérstaklega var sam- band þeirra Finnbogar náið og minn- ist ég sem þetta skrifa að oft voru þær nefndar í sömu andrá. Fjóla átti í mörg ár við erfið veik- indi að stríða. Hún sýndi bæði hetju- lund og æðruleysi af sér í þeirri baráttu. Finnborg systir hennar reyndist henni bæði stoð og stytta allan þann tíma. Ég sendi henni inni- legar samúðarkveðjur mínar og fjöl- skyldu minnar og bið henni og öðrum vandamönnum Fjólu Kristjánsdóttur Guðs blessunar. Góð kona er gengin. Fari hún í friði. Kristján Kjartansson. Nokkrum dögum fyrir sumarmál hittumst við þijár gamlar vinkonur, sem starfað höfðum saman í versl- uninni Torginu, Austurstræti 10. Þeirri verslun var lokað 1. apríl 1987 og var hennar saknað af mörgum, bæði viðskiptavinum og starfsfólki, en að stórum hluta vann þar sama fólkið svo árum skipti. Einhver innri þörf til að endur- vekja brot af löngu liðnum stundum í Torginu þrýsti okkur Soffíu Ás- geirsdóttur, fyrrverandi starfsfé- laga, til að láta verða af margráð- gerðri heimsókn til Margrétar Ing- ólfsdóttur svo við þijár gætum sam- eiginlega svalað andlegum þorsta og átt kvöldstund með minningum gömlu góðu daganna, sem tvinnuð- ust saman í síbreytileg ár og runnu með ótrúlegum hraða í aldanna skaut. Loks varð af þessu og fyrr en varði vorum við í stofu Margrét- ar, sátum yfír kaffi og kökum, fleygðum af okkur nokkrum árum og vorum aftur með hugann í hring- iðu Torgsins. í fyrstu barst talið að vinnufélög- unum í heild og hve gott samstarf ríkti í húsinu, því samhjálp virtist öllum vera eðlislæg og t.d. þótti sjálf- sagður hlutur að lána fólk á milli hæða ef svo bar undir og enginn hafði á móti því að taka slík hliðar- spor. Og þótt gott væri að hverfa heim að kvöldi, eftir hita og þunga dagsins, gat gleðin að morgni yfir að hittast aftur orðið til þess að upp hófst samsöngur meðan farið var úr yfirhöfnunum. Ungur maður, sem eitt sinn var að heija störf í Torg- inu, kvaðst aldrei hafa kynnst slíkum starfsanda, að fólk gæti jafnvel far- ið að syngja saman að morgni dags. Myndir frá minnisverðum atvikum voru síðan teknar fram og farið yfir hvað gerðist í hveiju tilviki. Og alls staðar birtust kunnugleg andlit, sem hvert og eitt tilheyrðu Torginu á sínum tíma. Við bárum saman bækur okkar um störf og verustaði hinna, fyrrver- andi vinnufélaga okkar, og glödd- umst yfir að vita þeim vegna vel, í ( flestum tilfellum. Suma höfðum við ' kvatt með söknuði á bökkum hinnar miklu móðu. I Og hér bar enn skugga á. Ein af okkar gömlu, góðu félögum, Fjóla Kristjánsdóttir, hafði átt við alvarleg veikindi að stríða síðastliðin þijú ár, lá máttvana á sjúkradeild og henni ekki talin nein batavon. Allar höfð- um við unnið með Fjólu á annan áratug, í Torginu. Þar áður störfuðu þær saman, hún og Margrét, í nokk- ur ár hjá Andrési Andréssyni klæð- skera. Við riljuðum upp eitt og annað frá samveruárunum með Fjólu og vorum sammála um að gott hefði verið að njóta nærveru hennar. Hún var sérlega vönduð í allri umgengni, vel greind og ávann, sér traust og virðingu þeirra, sem kynntust henni. Oft áttum við ánægjulegar frið- arstundir í kaffitímum inni í sauma- herberginu, þar sem Soffía vann við ( fatabreytingar og frágang. Stundum vorum við þar aðeins þijár, stundum kom Margrét líka og jafnvel fleiri ( ef svo stóð á með verkaskiptingu. Fjóla var mjög dul, en ég held að , hún hafi notið sín vel í þessum fá- mennu, rólegu kaffitímum með okk- ur þeim eldri. Þá var spjallað um lífið og tilveruna, enda var stundin ævinlega liðin fyrr en okkur varði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.