Morgunblaðið - 29.04.1993, Síða 33

Morgunblaðið - 29.04.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1993 33 Guðrún Alda Sigmundsdóttir fæddist í Reykjavík 10. apríl 1916, dóttir hjónanna Magneu Sigríðar Sigurðardóttur (f. 5. apríl 1890, d. 18. ágúst 1951) og Sigmundar Sig- mundssonar skipstjóra (f. 1. júní 1890, d. 4. september 1979). Foreldr- ar Magneu Sigríðar voru Oddný Ei- ríksdóttir og Sigurður Friðriksson. Sigmundur var sonur hjónanna Guð- rúnar Bjarnadóttur og Sigmundar Jónssonar sjómanns. Foreldrar Öldu voru bæði úr Hafnarfirði. Alda ólst upp á heimili foreldra sinna, lengst af á Öldugötu 13, miklu myndar og menningarheimili, ásamt bróður sínum Sigurði, f. 19. nóvem- ber 1911, hann lést fyrir aldur fram 17. nóvember 1977. Alda lauk prófi úr Verslunarskóla íslands 1934 og frá Sorö-hússtjórn- arskóla í Danmörku 1938. Alda giftist Arngrími Sigurjóns- syni bókara árið 1941, hinum vænsta manni. Þau voru samhent í umönnun drengjanna sinna og síðar barna- barnanna. Arngrímur var fæddur 26. febrúar 1912, hann lést 12. mars síðastliðinn. Þau hverfa því héðan af heimi, hjónin á Hjallaveginum, með nokkurra vikna millibili. Þau Alda og Arngrímur eignuðust þijá syni. Elstur er Sigmundur Örn, fæddur 1941, leikari og dagskrár- stjóri Sjónvarps, kvæntur Vilborgu í Þórarinsdóttur, þjónustustjóra Is- landsbanka, og eiga þau tvö börn. Sigmundur hafði áður eignast tvær dætur. Þá er Baldur Már, tónlistar- maður og hljóðmaður í Borgarleik- húsinu, fæddur 1943, kvæntur Hrafnhildi Sigurðardóttur er starfar hjá Samvinnuferðum/Landsýn og eiga þau tvær dætur. Yngstur er Haraldur, fæddur 1948, matreiðslu- maður, en nú tannlæknanemi í Sví- þjóð. Hann er kvæntur Dóru Hall- dórsdóttur, hjúkrunarfræðingi og ljósmóður, þau eiga tvö börn, en Haraldur átti eina dóttur fyrir. Alda var greind kona, framkoman fáguð, hógværð og hiýja einkenndu þessa frænku mína. Samband okkar Öldu var mótað af skyldleika og vináttu. Ég fæddist í húsi foreldra henanr og var skírð ■ nafni móður henanr. Öldugata 13 í varð mitt annað heimili öll mín bernsku- og unglingsár. Foreldrar . okkar voru ekki bara systkini og tengdafólk, heldur líka miklir vinir. Fjóla hafði góða kímnigáfu, en var hins vegar prúð í framkomu og aldrei heyrðum við hana hnýta í náungann eða ætla öðrum illt. Þótt gleðin hafi að mestu ráðið ríkjum hjá okkur þessa samverustund, hjá Margréti, vorum við minnugar þess að sorgin er oft á næstaTeiti. Það var orðið áliðið kvölds og stutt til miðnættis þegar við Soffía kvödd- um og héldum heim. Nokkrum dögum seinna fréttum við lát Fjólu, sem kom reyndar ekki á óvart. Það varð að samkomulagi að ég setti á blað hugleiðingarnar um hana og samstarfið í Torginu, frá_ kvöldinu hjá Margréti. , í þeirri trú að hlýjar kveðjur okk- 1 ar berist Fjólu yfir landamærin, sendum við henni einnig þakkir fyr- , ir góðu minningarnar, sem hún lét okkur eftir. Blessuð sé minning hennar. Finnborgu systur hennar og öðr- um aðstandendum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Lóa Þorkelsdóttir. Með þessum fáu og fátæklegu lín- um langar mig að minnast Ejólu. Hún lést 21. apríl eftir áralanga baráttu við Parkinsons-sjúkdóm og hefur hvíldin verið henni kærkomin úr því sem komið var. Hún vann lengst af við afgreiðslu í fataverslun Sambandsins í Austur- stræti, þar ávann hún sér vinsældir bæði samstarfsfólks og viðskipta- vina fyrir glaðlega og hlýlega fram- komu, sem var einkennandi fyrir hana. Mikill söknuður ríkir nú hjá Finn- borgu systur hennar, en þær bjuggu saman alla tíð. Annaðist hún Fjólu í veikindum hennar af fágætri alúð og kærleika, en allir verða að lúta vilja meistarans, hann ræður bæði lífi og dauða. „Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum við ljós.“ (Úr 36. Davíðssálmi.) Sigríður Eyjólfsdóttir. Alda var ákaflega barngóð og naut ég þess. Fjórtán ár skildu okkur að í aldri, þannig að ég var ein um hit- una sem bam og ég var eini táningur- inn sem kom í „Húsið“, kenndi þeim mál unglinganna á þeim tíma, söng fyrir þau amerísku slagarana sem þá voru móðins og Alda söng sína þýsku slagara fyrir mig. Sigurður bróðir Öldu, uppáhaldsf- rændi minn, og Rakel Sigríður, mik- il mannkostakona, sem lést fyrir rúmu ári, byijuðu búskap sinn á Öldugötunni og seinna þau Alda og Arngrímur. Allt þetta fóik varð vinir mínir og umhyggja þess og tryggð mun ylja mér alla ævi. Það er margs að minnast frá þess- um árum. Ég man Öldu nýkomna frá Danmörku, glæsilega, unga stúlku. Ég sé þær vinkonurnar fyrir mér, Öldu, Göju og Stellu, í hvítum, felldum stuttbuxnapilsum og hál- ferma peysum á leið í badminton, en þær voru meðal frumheija í bad- minton í Reykjavík. Svo fóru þær í sumarfrí á hótelið á Laugarvatni. Það var stíll yfir því, dansleikir á kvöldin og Alda hafði lært Lambeth Walk í Danmörku. Síðar man ég hana klædda glæsilegum síðkjól á leið á fyrsta des.-ball með Arngrími, en þau héldu þeim sið í mörg ár. Eitt atvik stendur mér fyrir hug- skotssjónum. Við fórum saman niður að höfn á friðardaginn 8. maí 1945, þar sem að vonum ríkti mikil gleði. Alda gladdist á sinn hógværa hátt þetta kvöld. Heimsfriður þýddi minni hættu á höfunum, en Sigmundur faðir hennar var skipstjóri á Selfossi síðustu ófriðarárin. Samband Sig- mundar og einkadóttur hans var alla tíð mjög náið. Það var gott að gleðjast með þeim Öldu og Arngrími, þau voru ómiss- andi þar sem glatt frændfólk og vin- ir komu saman til að njóta samvista og taka lagið. Við sungum oft sam- an, við Alda og hvor fyrir aðra, end- uðum á amerískum og þýskum dæg- urlögum og hlógum hvor að annarri. Nú er hlátur hennar hljóðnaður og þetta sérstaka samband okkar heyrir sögunni til. Við úr „frænkuhópnum" munum sakna hennar og þá sérstak- lega á slíkum stundum. Synirnir og ijölskyldur þeirra sjá nú á bak föður og móður, sem báru umhyggju fyrir þeim og glöddust með þeim í velgengni þeirra. Ég vona að minningin um þau og allt sem þau voru þeim, hjálpa þeim í sorg þeirra. Sigríður Smith. HÓPFERÐIR VEGNA JARÐARFARA HÖFUM GÆÐA HÓI'BII UFIDAR FRÁ12 11165 FARÞEGA LEITIÐ UPPLÝSINGA HÓPFERÐ AMIÐSTÖÐIN Bíldshöfða 2a, sími 685055, Fax 674969 Dagskrá kemur út á fimmtudögum en þar er á einum stað öll dagskrá sjónvarps- og útvarpsstöðva í heila viku. í blaðinu er einnig fjallað um það áhugaverðasta sem í boöi er hverju sinni. Bíómyndir í kvikmyndahúsum borgarinnar eru kynntar, myndbandaumfjöllun, fréttir sagðar af fólki í sviðsljósinu og það tekið tali. Dagskrá er nauðsynlegt uppflettirit allra sjónvarps- og útvarpsnotenda og er best geymd nálægt sjónvarpinu. - kjartti málsins! Fylgstu meb á fimmtudögum!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.