Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.04.1993, Qupperneq 48
m HEWLETT PACKARD , r - UMBOÐIÐ HPÁ ÍSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika WMNMMHWIIIMMMMHaMMMaMHnMHMaí MORGIJNBLAÐID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Þrír menn björgnðust þegar Sæberg AK sökk á Faxaflóa Tveir skipverjar eru taldir af ÞRÍR menn björguðust um borð í Freyju GK eftir að Sæberg AK frá Akranesi sökk norðvestur af Garðskaga í fyrrinótt. Mikil leit var gerð að tveimur félögum þeirra, Grétari Lýðssyni og Grétari Sigurðssyni, en án árangurs og eru þeir nú taldir af. Sæbergið var á netaveiðum um 18 sjómílur norðvestur af Garð- skaga kl. 21.30 í fyrrakvöld og var verið að draga netið, þegar stór fylla kom inn um netalúguna. Þremur skipveija, Kristni Hjartar- syni, Sigurði Jónssyni og Sævari Sigurðssyni, skipstjóra, tókst að komast um borð í björgunarbát og var þeim bjargað um borð í Freyju GK tæpum fimm klukkustundum síðar. Árangurslaus leit var gerð að skipverjunum Grétari Lýðssyni og Grétari Sigurðssyni í fyrrinótt og gærmorgun. Ouppblásinn björgun- arbátur úr Sæbergi fannst við leit- ina, sem og bjarghringur. Þeir fórust Grétar Lýðsson var 29 ára, fæddur þann 11. mars árið 1964. Hann var til heimilis að Sóleyjar- götu 8 á Akranesi. Grétar lætur eftir sig sambýliskonu og þrjú börn. Grétar Sigurðsson var 31 árs gamall, fæddur 23. september árið 1961. Hann var til heimilis að Vallarbraut 3 á Akranesi. Grétar var ókvæntur og barnlaus. Hann var bróðir Sævars Sigurðssonar, skipstjóra, og föðurbróðir annars skipveija, Sigurðar Jónssonar. Sjá bls. 4: „Stór fylla. . .“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Björgunarbáturinn fundinn ÓUPPBLÁSINN björgunarbátur af Sæbergi AK fannst á leitar- svæðinu í fyrrinótt. Á myndinni sést eitt leitarskipanna, Arnþór EA, og gúmbáturinn rétt framan við stefni skipsins. Fjær á mynd- inni er bátur Slysavarnafélags íslands, Henry Hálfdánarson, sem fór með björgunarbátinn inn til Keflavíkur. Grétar Lýðsson VSÍ vill kanna gerð samn- ings sem gildi til áramóta VR óskar þegar eftir viðræðum - engar verkfallshótanir, segir formaður Dagsbrúnar VIÐRÆÐUM um langtíma- samning hefur verið endan- lega slitið af hálfu ASÍ þar sem ekki væri hægt að fallast á skilyrði VSÍ að öll stærstu verkalýðsfélögin væru í sam- floti. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segir að í þessari stöðu hafi VSÍ mestan áhuga á að gerður verði samningur sem gildi til áramóta og tryggi vinnufrið fram að þeim tíma. Jafnframt yrði launþegum tryggðar þær launauppbætur í maí og des- ember sem voru í síðasta samningi svo og orlofsupp- bætur. Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Dags- 'brúnar, segir félagið tilbúið í gerð skammtímasamnings sem gæti gilt til áramóta til að tryggja greiðslu láglauna- og orlofsbóta. „Við munum fara okkur mjög hægt. Við höfum ekki í hyggju neinar verkfallsaðgerðir eða hótan- ir,“ sagði hann. Stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur samþykkti einróma í gærkvöldi að óska þegar í stað eftir viðræðum við viðsemjendur félags- ins. Benedikt Davíðsson forseti ASÍ segir að verkalýðsfélögin þurfi að afla sér umboða til viðræðna um annað samningamynstur en rætt var um á grunni tilboðsins frá ríkis- stjórninni. Skilyrði það sem VSÍ setti var að öll stærstu verkalýðsfélögin stæðu saman að langatímasamningi og var Dagsbrún tilgreind sérstak- lega. Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði að komin væri upp ný staða og félagið þyrfti að endur- skoða alla kröfugerðina með tilliti til sérmála VR. „Ur því að vinnuveit- endur hafa brugðist svo harkalega við, og átti þó ekki að fórna meiru en að samþykkja óbreyttan samning, þá verður fólk nú að búa sig undir átök,“ sagði Magnús. Þórarinn V. Þórarinsson segir að það hafi ávallt verið forsenda fyrir samningi til langs tíma að öll stærstu verkalýðsfélögin væri með í sam- floti. VSÍ liti svo á að ekki hafði verið hægt að auka halla ríkissjóðs jafn mikið og ráð var fyrir gert nema tryggt væri að vinnufriður héldist um langan tíma til að byggja upp atvinnu- og efnahagslífið. Hvað framtíðina varðar segir Þór- arinn að VSÍ vilji ekki útiloka neina möguleika en að langtímasamning gengnum komi helst til álita af þess hálfu að semja um vinnufrið til ára- móta. „Með því að semja til áramóta mætti tryggja launþegum launaupp- bætur þær í maí og desember sem eru í núverandi samningi svo og orlofsuppbót," segir Þórarinn. Ávöxtunar- krafarflás- bréfa lækk- ar um 1% VERULEG lækkun varð á vöxt- um 6 mánaða ríkisbréfa í útboði sem lauk í gær, eða nálega 1%. Meðalávöxtun samþykktra til- boða var 11,5% en í útboðum það sem af er árinu hefur ávöxtun verið tæplega 12,5%. I útboði ríkisbréfanna skuldbatt ríkissjóður sig til að taka tilboðum á bilinu 100 til 600 milljónir kr. Alls bárust 63 tilboð, samtals að fjárhæð 688 milljónir og tók ríkis- sjóður tilboðum að fjárhæð 560 milljónir kr., þar af 120 milljónum kr. frá Seðlabanka íslands á meðal- verði samþykktra tilboða. Lægsta ávöxtun samþykkts tilboðs var 11,24% en hæsta 11,8%. Þrjá leiki þarf milli FH og ÍR HART VAR barist í leikjunum í undanúrslitum íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöldi. Valsmenn unnu Selfyssinga á Selfossi og eru komnir í úrslit. ÍR- ingar unnu FH-inga og þarf þriðja leik þessara liða. Ekkert var gefið eftir í leiknum í Breiðholtinu og á myndinni er hraustlega tekið á móti Róbert Rafnssyni, ÍR. Sjá íþróttir á bls. 47. Morgunblaðið/Sverrir Samskip tapaði hálfum milljarði TAP Samskips á síðasta ári nam 489 milljónum króna sam- kvæmt ársreikningi, en aðalfundur félagsins verður haldinn á morgun. Áætlanir þessa árs gera ráð fyrir hallalausum rekstri og var hann réttu megin við strikið á fyrsta ársfjórð- ungi eftir því sem forráðamenn fyrirtækisins segja. Á sama tíma í fyrra var rekstrarhalli á annað hundrað milljónir króna. Heildareignir drógust saaman um 169 milljónir kr. Gífurleg umskipti urðu í afkomu Samskips á síðasta ári, en árið 1991 varð tuttugu milljóna hagnaður af rekstri félagsins. I upphafi árs 1992 var gert ráð fyrir hagnaði upp á 125 milljónir króna og ber því 614 millj- ónir á milli endanlegrar útkomu og þeirrar sem vænst var í upphafi árs. Heildareignir Samskips voru 3.203 milljónir í árslok 1992 og drógust saman um 169 milljónir á árinu. Heildarskuldir jukust um 311 milljónir og námu 2.710 milljónum í árslok. Þannig lækkaði eigið fé um 480 milljónir og var í árslok 493 milljónir samanborið við 973 milljón- ir í ársbyrjun. Sjá nánar B-l.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.