Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 21
V estmannaeyjar
Ljósmyndir
fréttaritara
í flugstöðinni
LÍFIÐ í landinu, sýning á
verðlaunamyndum úr ljós-
myndasamkeppni fréttarit-
ara Morgunblaðsins, hefur
verið sett upp í flugstöðinni
í Vestmannaeyjum. Myndirn-
ar verða þar fram eftir næstu
viku.
Okkar menn, félag fréttarit-
ara Morgunblaðsins, efndi ný-
lega til samkeppni um bestu
myndir fréttaritara frá árunum
1991 og 1992. Veittar voru
viðurkenningar fyrir 28 myndir
og myndraðir og eru þessar
myndir á sýningunni sem nú
fer um landið.
1.000 á Selfossi
Ljósmyndirnar voru fyrst
hengdar upp í anddyri nýja
Morgunblaðshússins í Kringl-
unni 1 og síðan voru þær sýnd-
ar í Hótel Selfossi. ’Aætlað er
að um 1.000 manns hafi séð
myndirnar þar.
Eldhafið, mynd Sigurgeirs Jón-
assonar ljósmyndara í Vest-
mannaeyjum frá upphafi
Heklugossins í janúar 1991, var
valin besta mynd samkeppninn-
ar. Sigurgeir átti einnig fjölda
annarra verðlaunamynda og
eru þær allar á sýningunni í
flugstöðinni í Eyjum.
Smábátaeigendur
funda í Ólafsvík
Dauðadómur
yfir smábáta-
útgerðinni
SMÁBÁTAEIGENDUR í Ólafs-
vík funduðu í gær og var fundar-
efnið málamiðlunartillaga sjáv-
arútvegsráðherra, sem smábáta-
eigendur telja algjöran dauða-
dóm yfir smábátaútgerð og fund-
urinn lýsti yfir furðu sinni yfir
því að sjávarútvegsráðherra
leggi fram þessa tillögu og vill
fundurinn skora á þingmenn
Vesturlandskjördæmis að sam-
þykkja aldrei þessar tillögur.
Einnig telur smábátafélag Ólafs-
víkur að efni tillögunnar leiði til
stóraukinnar hættu fyrir sjósókn
smábáta vegna kapps sem skapast
hjá mönnum við að ná sem mestum
afla á sem skemmstum tíma.
Fundurinn telur tillöguna harka-
lega aðför að smábátaúgerð vegna
misjafnra sóknarskilyrða milli
landshluta hverju sinni, og hve
mikla hættu það getur skapað þeg-
ar smábátar ferðast milli landshluta
til að ná sem mestum afla og einn-
ig mótmælir smábátafélag Ólafs-
víkur afnámi línutvöföldunar. Og
að lokum lýsti fundurinn yfir fullum
stuðningi við tillögu síðasta físki-
þings um veiðar smábáta.
— Alfons.
secr iam ,i HUOAaflAoyAj GigAjaMuaHOM
—MOfiOUNB LAmiU-IiAUGARPAGU R-1 --MAI 1998-
Akureyri 6.230
Akureyri 6.230
Egilsstaðir 8.200
Hornafjörður 7.2 70
Húsavík 7.010
ísafjörður 5.830
Patreksfjörður 5.660
Sauðárkrókur 5.630
Þingeyri 5.600
Vestmannaeyjar 4.160
/ /
Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram
Fokker 50flytur þig og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að
áfljúgandiferð miííi Reykjavtkur dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt
og níu áfangastada að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er inni-
á íslandi á ótrúlegu APEX verði falinn og sætaframboð er takmarkað.
Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands.
FLUGLEIDIR
þjóðbraut innanlands
0PNUM NYJA EFNALAUG17 MAI!
AFGREIÐSLA OPIN FRÁ KL. 07:30
NÝ EFNALAUG í ALFARALEIÐ!
SÍMI: 812220
SKEIFAN 11