Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 26
26
MQRGI.'NBLADIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 199,3
Kasparov og Short hafa fengið sáralítinn stuðning við ný-
stofnuð atvinnumannasamtök sín og sjálfstætt eingvígishald
FÁTT getur nú komið í veg fyrir það að
tvö heimsmeistaraeinvígi í skák fari fram
I haust. Annað á milli Gary Kasparovs og
Nigels Shorts á þeirra eigin vegum í Lond-
on en hitt á milli þeirra Anatólí Karpovs
og Jans Timmans í Belfort í Frakklandi
eða Amsterdam, skipulagt af Alþjóðaskák-
sambandinu FIDE. Þótt Kasparov sé al-
mennt viðurkenndur sem langsterkasti
skákmaður heims hafa þeir Short sáralítinn
stuðning fengið við nýstofnuð atvinnu-
mannasamtök sín og sjálfstætt einvígishald.
Campomanes, forseti FIDE, Gary Kasparov heimsmeistari og James
McKay, stjórnandi Intermark-samsteypunnar, skrifa undir einvígis-
samning í Moskvu snemma á síðasta ári. En eftir að Bobby Fischer
kom aftur á sjónarsviðið minnkaði áhugi Bandarikjamannanna, og
„samningurinn" reyndist aðeins hafa verið viljayfirlýsing.
Einangraðir
skáksnillingar
Anatólí Karpov. Verður hann aftur heimsmeistari
án þess að sigra þann besta?
Jan Timman. Short vann hann örugglega í janúar,
en „það verður að loka hringnum," segir Timman
og hann grípur tækifærið og teflir við Karpov um
„heimsmeistaratitilinn".
SKÁK
Margeir Pétursson
Meira að segja ensku og rúss-
nesku skáksamböndin styðja ekki
við bakið á þeim Short og Ka-
sparov en hafa lýst yfir trausti sínu
á FIDE. Vinir og kollegar Shorts
í enska landsliðinu hafa líka for-
dæmt athæfí hans. Enski stór-
meistarinn Murray Chandler segist
hafa heyrt skoðanir u.þ.b. 60 af
fremstu stórmeisturum í heimi og
allir séu þeir mjög ósáttir við þenn-
an klofning, nema þeir sem eigi
beinna eða óbeinna fjárhagslegra
hagsmuna að gæta.
Einvígi Kasparovs og Shorts í
London fer fram á vegum stór-
blaðsins Times og fyrirtækjanna
Polygram og Teleworld, sem er
hollenskt. FIDE virðist ekki í sér-
lega miklum vandræðum að finna
aðila til að reiða út þær 43 milljón-
ir ísl. króna sem eru lágmarksverð-
laun í „heimsmeistaraeinvígi“
þeirra Karpovs og Timmans.
Franska borgin Belfort hefur þegar
lýst áhuga sínum en hugsanlegt
er að helmingur einvígisins fari
fram í Amsterdam, heimaborg Tim-
mans.
FIDE hefur leitað til lögmanns-
stofu í London til að freista þess
að vemda rétt sinn yfír heimsmeist-
aratitlinum og má vænta að þess
verði freistað með lögbanni að
hindra að einvígi Kasparovs og
Shorts verði nefnt heimsmeistara-
einvígi.
Þeir Timman og Karpov hafa
ekki átt í neinum vandræðum með
að réttlæta það fyrir sjálfum sér
og öðrum að tefla um heimsmeist-
aratitilinn, þrátt fyrir að Nigel
Short hafi slegið þá báða út. „Það
verður að loka hringnum," sagði
Jan Timman í samtali við Morgun-
blaðið á dögunum. Sigri Karpov í
einvígi þeirra verður það í annað
skipið sem hann hreppir titilinn án
þess að leggja ríkjandi heimsmeist-
ara að velli. Árið 1975 vildi Fischer
ekki tefla við hann, skilyrði Banda-
ríkjamannsins um fyrirkomulag
einvígisins voru naumlega felld í
atkvæðagreiðslu hjá FIDE og hann
var síðan sviptur titlinum á sama
hátt og liggur fyrir Kasparov nú.
Eins og Karpov er Jan Timman
nú mjög í nöp við Gary Kasparov,
sem hann telur hafa eyðilagt stór-
meistarasambandið. Um Short seg-
ir Timman: „Áskorandinn hefur
dregist inn í mikilmennskubijálæði
Kasparovs“
Maðurinn á bakvið
Times-tilboðið
Það er skákrithöfundurinn og
stórmeistarinn Raymond Keene í
London sem er á bakvið tilboð Tim-
es, Polygram og Teleworld. Keene
ritar einmitt um skák í Times.
Hann er kunnasti skákbóka-
höfundurinn sem ritar á enska
tungu. Keene hefur einnig verið
stórvirkur í mótahaldi, átti m.a.
mikinn þátt í að helmingur heims-
meistaraeinvígisins 1986 fór fram
í London. Keene var mikill stúð-
ingsmaður Kasparovs í baráttu
hans við við sovéska skáksam-
bandið og FIDE á árunum
1983-1985 og síðan hefur verið
mikill vinskapur þeirra í millum. Á
undanförnum árum hefur nokkuð
borið á þykkju milli Keene og ann-
arra enskra stórmeistara, líklega
fyrst og fremst vegna þess að á
meðan Keene héfur orðið flest að
féþúfu í bókaútgáfu og mótahaldi
lepja þeir dauðann úr skel og
mótum með góðum verðlaunum
fækkar stöðugt í Englandi. Þeir
óánægðustu halda því fram að
nægt fé sé að hafa til skákhreyf-
ingarinnar í Englandi, en Keene
og félagar sogi það allt til sín.
Keene hefur einnig verið gagn-
rýndur fyrir að semja skáksöguna
sjálfur jafnóðum og hagræða stað-
reyndum til hagsbóta fyrir Kasp-
arov og aðra vini sína. Upp á síð-
kastið hefur stórblaðið Times sleppt
því að minnast á tvennt í sinni
miklu umfjöllun um einvígishaldið.
Það er annars vegar sú staðreynd
að þeir Kasparov og Campomanes
voru orðnir bandamenn eftir að
Kasparov sneri baki við stórmeista-
rasambandinu og hins vegar þau
mistök Kasparovs að ganga til
samninga við bandaríska aðila sem
ekki reyndust nægilega traustir.
Félagsskapur sem nefnir sig
„The London Chess Group“ tók
einnig þátt í útboði Kasparovs og
Shorts og var með hærra boð en
Times, Polygram og Teleworld.
Samt fóru einvígismennirnir ekki í
viðræður við þá. Fulltrúar þessa
félagsskapar eru argir út í Keene
og hafa ásakað hann um að hafa
boðið Manchesterborg að fá einvíg-
ið aftur sín, gegn því að honum
yrðu greidd mjög há umboðsþókn-
un.
Afleit tímasetiiing
Það er skoðun flestra í skák-
heiminum að það séu eingöngu
fjárhagslegir hagsmunir Kasparovs
og Shorts sem ráði ferðinni í þessu
máli, allt tal um „sjálf
stæðisbaráttu", spillingu í FIDE
og einræðistilburði FIDE-forsetans
sé einungis -yfírklór.
Það var á þingi FIDE í Luzern
1982 sem Campomanes felldi Frið-
rik Ólafsson úr forsetastóli FIDE
og gerði þar gæfumuninn stuðning-
ur gömlu Sovétblokkarinnar.
Filippseyingurinn varð síðan ennþá
umdeildari þegar hann stöðvaði
HM-einvígi Karpovs og Kasparovs
í Moskvu 1985 og lenti síðan í
hatrömmum deilum við stórmeist-
arasambandið á fyrstu árunum eft-
ir stofnun þess árið 1986.
En síðan hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar. Hefðu heimsmeistarinn
og áskorandi hans viljað kljúfa sig
frá FIDE á þeim árum hefðu þeir
áreiðanlega notið víðtæks stuðn-
ings, en Campomanes hefur nú náð
sáttum við marga fyrrum andstæð-
inga sína. Þ. á m. voru þeir Kasp-
arov orðnir saupsáttir um tíma,
eftir að heimsmeistarinn sneri baki
'Alexander Aljekín heimsmeistari
á árunum 1927-1935 og 1937-
1946 átti titilinn sjálfur og tefidi
bara við þá sem honum þóknað-
ist.
við stórmeistarasambandinu.
Campomanes hlaut glæsilegt end-
urkjör sem forseti FIDE árið 1990
og í fyrra stóð hann fyrir afar vel
skipulögðu Ólympíuskákmóti.
Nú er næsta hrina í heimsmeist-
arakeppni FIDE komin í fullan
gang. Ekki hefur þess orðið vart
að nokkur stórmeistari hyggist
fórna sæti sínu á millisvæðamóti
FIDE í sumar vegna óljósra yfírlýs-
inga Kasparovs og Shorts.
Útför stórmeistara-
sambandsins
Síðan á árinu 1986 hafa belg-
ískir aðilar haldið stórmeistara-
sambandinu gangandi með rausn-
arlegum fjárstuðningi, þótt reyndar
hafí verið hljótt um samtökin eftir
Raymond Keene. Ekki fórnfús
skákfrömuður, heldur harðsvírað-
ur peningamaður sem hefur mak-
að krókinn á kostnað okkar, segja
margir enskir skákmenn.
að Kasparov sneri við þeim baki.
Belgarnir hafa nú fengið nóg,
starfandi framkvæmdastjóri,
lögfræðingurinn Pierrette Brodt-
haers, hefur nú boðað til aðalfund-
ar 1. júní næstkomandi, og þar er
aðeins eitt mál á dagskrá; að leggja
samtökin niður. Frú Brodthaers
gefur þá skýringu að sumir félagar
hugsi aðeins um að þjóna sínum
þröngu sérhagsmunum, jafnvel
þótt þau gangi í berhögg við tilgang
og reglur samtakanna. Þarna beinir
hún skeytum sínum fyrst og fremst
til Nigels Shorts, síðasta forseta
þeirra. Ferill stór-
meistarasambandsins var glæsi-
legur fyrstu árin, en nú er hætt
við að ekki verði reynt að koma
fremstu skákmönnum heims aftur
í samtök fyrr en eitthvað verður
liðið á næstu öld.
Fordæmi Laskers og Aljekíns
skelfir
Það óar marga stórmeistara og
skákfrömuði við því að heims-
meistaratitillinn verði nokkurs
konar einkaeign heimsmeistarans
eins og á árunum fyrir síðari
heimsstytjöld. Þeir Lasker og Alj-
ekín fengu á sig rökstuddar ásak-
anir um að vilja einungis tefla við
þá andstæðinga sem þeir hefðu í
öllum höndum við en gætu samt
útvegað háar verðlaunafúlgur.
Engin skipulögð áskorendakeppni
var þá í gangi. Mest sláandi var
að eftir að Aljekín vann heims-
meistaratitilinn óvænt af Capa-
blanca á árinu 1927 gaf hann
Kúbumanninum aldrei færi á sér
aftur. Þótti það mikil réttarbót fyrir
stórmeistarana þegar FIDE eignaði
sér heimsmeistaratitilinn eftir lát
Aljekíns árið 1946.
Verðlaun í HM-einvígjum
Það er orðið arðvænlegra að tefla
skák nú en fyrir 20 árum þegar
þeir Bobby Fischer og Borís
Spasskí háðu einvígi aldarinnar í
Laugardalshöllinni fyrir 125 þús-
und Bandaríkjadala verðlaunasjóð
Skáksambandsins, sem enski
auðkýfíngurinn Slater tvöfaldaði
síðan. Reiknuð til ísl. króna miðað
við gengi nú hafa verðlaunin síðan
verið þannig:
1978 Baguio Karpov-Kortsnoj 44 millj.
1981 Merano Karpov-Kortsnoj 35 millj.
1984 Moskva Karpov-Kasparov 43 millj-
1985 Moskva Karpov-Kasparov 59 millj-
1986 Lon,Len Karpov-Kasparov 68 millj.
1987 Sevilla Karpov-Kasparov 112 millj.
1990 NY,Lyon Karpov-Kasparovl76 millj-
Árið 1983 var ákveðið á þingi