Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 29
smiðjum en að upplýsa stjórnvöld
viðkomandi lands nákvæmlega um
innihald drykkjarins. Þeir láta það
eitt uppi að hráefnin séu úr jurtarík-
inu.
íslenska kókið er best
Slagorðið „ALLTAF" á meðal
annars að vísa til þess að Coke sé
alltaf og alls staðar eins. Vissulega
nota framleiðendur sama bragðefn-
ið, sama magn af sykri og vatni,
en samt þykjast ýmsir finna gæða-
mun eftir því hvar varan er fram-
leidd. Kókunnendur halda því stað-
fastlega fram að íslenska kókið sé
betra en útlent. Pétur forstjóri seg-
ist ekki vilja bera á móti því að ís-
lenska kókið sé góð vara í saman-
burði við framleiðslu annarra landa,
enda hefur framleiðsla Vífilfells
fengið góða dóma í höfuðstöðvun-
um í Atlanta. „Við eigum svo gott
vatn og það kemur fram í bragð-
gæðunum," segir Pétur. „Margir
aðrir framleiðendur verða að notast
við marghreinsað vatn, jafnvel end-
urunnið skolp. Sums staðar er notað
vatn sem hefur verið hreinsað með
efnafræðilegum aðferðum og það
er ákveðinn keimur af því vatni, sem
sumir greina. Við fáum okkar vatn
úr brunni hjá Vatnsveitu Reykjavík-
ur og til þessa hefur það reynst
afbragðs gott. Maður veit reyndar
ekki hvað gerist í framtíðinni, hvort
mengun af völdum áburðar eða
annarra efna á eftir að hafa áhrif
þar á, en ég vona að gæði vatnsins
haldist.“ Tilraunir hafa verið gerðar
á ýmsum tímum með innflutning á
tilbúnu Coca-Cola frá útlöndum, en
þær hafa orðið skammlífar. „Þegar
dósavæðingin var að hefjast hér á
landi ákváðum við að hefja innflutn-
ing á Coca-Cola í dósum til að
mæta samkeppni," segir Pétur.
„Þessi vara fékk dræmar viðtökur
hjá neytendum, en þegar við hófum
að setja eigin framleiðslu á dósir
þá var allt annað upp á teningnum.
Staðreyndin er sú að innflutningur
á tilbúnum gosdrykkjum er ekkert
annað en innflutningur á vatni, sem
að mínu mati er ekki jafn gott og
það sem við höfum aðgang að hér
á landi.“ Pétur segir fjarlægðina
hafa lengi verndað íslenska mark-
aðinn en með nýjum viðskiptahátt-
um á alþjóðavettvangi verði ísland
í æ ríkari mæli hluti af alþjóðlegu
markaðssvæði. „Ég óttast ekki
samkeppni erlendis frá, við erum
með góða vöru og hún stenst fylli-
lega samanburð og meira en það.“
Hús vatnsins
í fyrra fagnaði Vífilfell hf. 50
ára afmæli. Lagt var kapp á að öll
starfsemi fyrirtækisins kæmist
undir eitt þak á afmælisárinu. Vífil-
fell hf. sleit barnsskónum í Haga
við Nesveg í Reykjavík. Um 1970
var ný framleiðslulína tekin í notk-
un og þá var fyrsta verksmiðjuhús-
ið byggt á framtíðarstað fyrirtæk-
isins í iðnaðarhverfinu við Stuðla-
háls. Nú standa þar fjögur verk-
smiðjuhús og nýja skrifstofubygg-
ingin sem vekur verðskuldaða at-
hygli vegfarenda. „Við létum þekkt-
an listamann og arkitekt í Toronto
hanna húsið,“ segir Pétur. „Grunn-
hugmyndin að húsinu tengist ein-
mitt íslenska vatninu og húsið end-
urspeglar í orðsins fýllstu merkingu
tærleika þess, hreinleika og gæði.“
í anddyri byggingarinnar er foss.
Venjulega seytlar um hann vatn,
en þegar fullt rennsli er sett á fyll-
ir niðurinn húsið og kraftur vatns-
ins fer um viðstadda. Litir hússins
eru sóttir í umhverfi vatnsins og
brotnir upp með rauðum einkenni-
slit Coca-Cola. Húsið og reyndar
byggingarnar allar eru sniðnar til
að taka við fjölda gesta sem koma
á hveiju ári til að sjá „hvar kókið
verður til“. Það er stanslaus
straumur af skólafólki, kaupmönn-
um og öðrum hópum sem koma til
að skoða fyrirtækið. Milli skrif-
stofuhússins og verksmiðjubygg-
inganna er göngubrú, en af henni
geta gestir skoðað allar deildir verk-
smiðjunnar. „Coca-Cola varð sann-
kallaður þjóðardrykkur íslendinga,"
segir Pétur. „Lengi framan af gat
fyrirtækið ekki annað eftirspurn-
inni, en í dag er enginn hörgull á
Coca-Cola. Fólk getur treyst því að
Coca-Cola verði alltaf til staðar og
alltaf jafn gott!“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAI 1993
29
Myndasýning af
fyrstu kröfugöngunni
LJÓSMYNDASAFN Reykjavíkurborgar gengst nú fyrir sýningn á
ljósmyndum sem teknar voru af fyrstu kröfugöngunni á leið um
götur Reykjavíkur og útifundi sem haldinn var að göngu lokinni
í grjóturð við Hverfisgötu og Ingólfsstræti, þar sem reisa átti Al-
þýðuhús Reykjavíkur. Gísli Ólafsson bakari hafði nýlega eignast
myndavél og fylgdi göngunni eftir. Kristinn Einarsson kaupmaður
var einnig á vettvangi. Flestar eru myndirnar úr safni þeirra og
hafa ættingjar Gísla og Kristins góðfúslega léð myndirnar til birt-
ingar. Sýningin verður í Geysishúsinu við Aðalstræti og Vestur-
götu og verður opnuð í dag 1. maí og stendur til 17. maí.
Reynt hefur verið að nafngreina
göngumenn og þá sem fýlgdust
með göngunni og sjást á götum
og stéttum. Þeim tilmælum er beint
til sýningargesta að þeir veiti upp-
lýsingar ef þeir telja sig þekkja
einhvern sem þeir kunna að sjá á
myndunum.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur-
borgar kappkostar að varðveita
myndir úr lífi og starfi borgarbúa,
sýna athafnir þeirra og umsvif í
annríki virkra daga og fjölþætt
félagsstarf, tómstundir og
skemmtanir.
Að sýningu þessari hafa unnið
Frá fyrstu kröfugöngu um götu Reykjavíkur.
starfsmenn Ljósmyndasafnsins,
Guðrún S. Haraldsdóttir hönnuður
og Pétur Pétursson þulur, sem
safnað hefur upplýsingum og látið
í té gögn er varða gönguna.
(FréttatUkynnmg)
MEIRI
LÆKKUN
SÍMGJALDA
TIL ÚTLANDA
FÆRIR OKKUR
NÆR HVERT
ÖÐRU
I dag lækkum
við enn frekar
verð á
símtölum til
útlanda.
Á aðeins
einu ári
hefur verðið
lækkað
um 15-33%.
ÞAÐ MUNAR
UM MINNA.
PÓSTUR
OG SÍMI