Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 32
Söl>í 1AM .t M JOAaítAOUAI aiQ/uia'/ÍUOHOM MÖRGUNBtABIÐ iiA.UGARDAGXJR l; MAÍ1993 Bréf ráðuneytis til lögreglustjóra Lög hamla ekki sölu áfengis utan dyra Dómsmálaráðuneytið telur, að veitingalöggjöfin sé því ekki til fyrir- stöðu að veitingastarfsemi almennt, eða áfengisveitingar sérstaklega, geti farið fram utan veggja veitingastaðar, svo sem í húsagarði eða á svölum eða á stétt framan við veitingastað. Síðastliðið sumar stöðvaði lögregl- an áfengisveitingar í garði Hressó við Austurstræti og var vísað til þess, að áfengisveitingar utan dyra veit- ingastaða væru óheimilar. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að lögg- jöfín sé slíkri veitingasölu ekki til fyrirstöðu. í bréfí ráðuneytisins til lögreglustjórans í Reykjavík er vísað til veitingalöggjafar og þar segir m.a.: „Ráðuneytið telur því að hug- tökin húsakynni og húsnæði verði ekki túlkuð þannig að þau feli í sér takmörkun^ með þeim hætti að veit- ingastarfsemi megi eingöngu fara fram innan veggja þess húsnæðis, og undjr sama þaki, sem um er að ræða. A þetta einnig við um veiting- ar áfengis, enda þótt forsenda leyfis fyrir veitingastað til slíkrar starfsemi hljóti að vera húsakynni í hefðbundn- um skilningi.“ Eðlileg tengsl Tekið er fram, að séu veitingar í húsagarði, á svölum eða á stétt þurfi það svæði að vera í eðlilegum tengsl- um við hefðbundið húsnæði veitinga- staðarins og nánar afmarkað. Að því er áfengisveitingar varði þurfí að liggja fyrir umsögn matsnefndar áfengisveitingastaða, en einnig þurfí að hafa í huga að starfsemin teljist forsvaranleg frá sjónarhomi lög- gæslu. Stuðningur við Landgræðsluna AÐSTANDENDUR Gúmmívinnustofunnar hf. hafa ákveðið að styrkja Landgræðslu ríkisins næstu tvö árin með 10 kr. framlagi fyrir hvern Norðdekk hjólbarða sem seldur er. Á myndinni sést Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri t.h. taka við 435.750 Morgunblaðið/Sverrir kr. ávísun úr hendi Halldórs Björnssonar forstjóra, en það er framlag Gúmmívinnustofunnar hf. fyrir árið 1992. í baksýn sjást Viðar Halldórsson fram- kvæmdasljóri t.v. og Pétur Guðjónsson frá IMG stjómunarfræðslu. Reykingar bannaðar í háskólanum? Á FUNDI háskólaráðs fímmtu- daginn 29. apríl, reyklausa dag- inn, var Q'allað um tillögu Gísla Jónssonar, varaforseta verk- fræðideildar, um skipan nefndar til að kanna hvort reykingar í byggingum Háskólans séu í samræmi við lög og reglugerð um tóbaksvamir. Jafnframt að gera tillögur til úrbóta og athuga hvort til greina komi að banna alfarið reykingar í byggingum Háskólans. Könnun á viðhorfi fólks til Landgræðslu ríkisins 76% telja að auka eigi framlag til landgræðslu SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar fyrir Landgræðslu ríkis- ins telja 76% þeirra sem spurðir voru að auka eigi framlag sljómvalda til landgræðslu, en aðeins 1% vilja að dregið sé úr framlaginu. Þá telja 87% aðspurðra að þörf sé á meiri kynningu um uppgræðslu landsins, en 47% telja að gróðureyðing á íslandi fari almennt vaxandi. Könnun- in var unnin af IMG stjórnunarfræðslu, en gerð hennar var styrkt af Gúmmívinnustofunni hf., sem hefur ákveðið að láta tíu krónur af sölu hvers Norðdekk hjólbarða næstu tvö árin renna til Landgræðslunnar, en fyrirtækið framleiðir 60 þúsund hjólbarða á ári. Með fullan bíl af þýfi LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv- aði akstur 27 ára gamals síbrota- manns í Hlíðahverfi í fyrrinótt og fann í bílnum margs konar þýfi, þar á meðal 63 karton af sígarrettum. Um klukkan hálffjögur sáu lög- reglumenn þekktan innbrotsþjóf á bíl akandi eftir Lönguhlíð og stöðv- uðu hann. í bílnum fundu þeir 63 karton af sígarettum, 6 vindlapakka og ýmiss konar verkfæri svo og hljóm- flutningstæki. Það þótti eindregið benda til þess að um þýfi væri að ræða að um var að ræða nýja og ónotaða vöru með verðmiðum á. Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar er greinilegt að almenningur setur Landgræðsluna sterklega í sam- band við ræktun eða uppgræðslu lands en ekki eitthvað annað. Þá kom greinilega í ljós að margir fá vitn- eskju sina um uppgræðslu ekki af eigín raun heldur vegna þess að þeir sjá um þau mál fjallað í íjölmiðlum. Fræðsla er hornsteinn. landgræðslustarfsins Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann væri mjög ánægður og þakklátur vegna framlags og framtaks eigenda Gúmmívinnustof- unnar hf., og hann mæti það mjög mikils að fá þessa skoðanakönnun. Hann sagði Landgræðsluna reyndar hafa haft það á stefnuskrá sinni að kynnast og leita eftir viðhorfum fólksins í landinu til starfseminnar, en jafnvel þó að hann teldi að Land- græðslan hefði sinnt kynningu og fræðslumálum með dyggri aðstoð fjölmiðla þá kæmi það óneitanlega svolítið á óvart að fólki fyndist að ekki væri nóg að gert. „Við erum þó alls ekkert ósáttir við það, en við höfum oft sagt að fræðsla og kynningarstarf eigi að vera homsteinn landgræðslustarfs- ins. Hins vegar erum við auðvitað ánægðastir með það viðhorf almenn- ings að yfirgnæfandi meirihluti telji að auka beri framlagtil landgræðslu- mála. Ég vil reyndar gera að mínum þau orð Óla Kr. Sigurðssonar heitins í Olís þegar hann hratt af stað þeirra átaki, Græðum ísland með Olís, en þá sagði hann að hann væri með þessu að hvetja landsmenn, fyrirtæki og stofnanir til þess að fylgja for- dæmi sínu. Það hafa eigendur Gúmmívinnustofunnar hf. vissulega gert, og við vonum sannarlega að fleiri fylgi þeirra fordæmi því verk- efnin sem eru framundan eru það hrikalega stór að við náum aldrei settum markmiðum nema þjóðin öll sameinist til að takast á við þau,“ sagði Sveinn. Selásskóli Skrifað undir SAMNINGURINN um gerð þáttanna undirritaður. Það gerðu Heim- ir Steinsson útvarpsstjóri og Hrafn Gunnlaugsson framkvæmdastjóri fyrir hönd Sjónvarpsins en Þráinn Bertelsson, leikstjóri, framleið- andi og handritshöfundur, fyrir hönd Nýs lífs. Á myndinni er einnig sonur Þráins, Hrafn Þráinsson. Stærsta útboðsverk Sjónvarps til þessa Kona slasað- ist í bílveltu á Heiiisheiði Þættir framleiddir fyrir 43 milljónir ÞRÁINN Bertelsson hefur gert samning við Ríkissjónvarpið um gerð sjónvarpsþáttaraðar, sem ber heitið Sigla himinfley. Framleiðslukostnað- ur verður 42,9 milljónir króna. Fyrirtæki Þráins, Nýtt líf, mun fram- leiða þættina sem verktaki. „Þetta er langstærsta útboðsverkefni sem íslenskt fyrirtæki hefur tekið að sér fyrir sjónvarp og vonandi boðar það nýja framleiðslumöguleika,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson fram- Sextán tilbod í frá- gang skólalóðar BILVELTA varð á Hellisheiði kl. 19 í gærkvöldi þegar jeppabif- reið rann út af veginum í hálku og valt. Fimm Bandaríkjamenn voru í bílnum og voru allir fluttir á slysa- deild Borgarspítalans. Kona sem var meðal farþega slasaðist nokkuð og var undir eftirliti á sjúkrahúsinu í nótt en aðrir sem í bílnum voru reyndust með minni háttar meisl og fengu að fara heim að skoðun lokinni. Bifreiðin er talin ónýt eftir veltuna. Að sögn lögreglu var mik- il hálka á Hellisheiði í gærkvöldi og gekk á með éljum. Þá var víðar mikil hálka á vegum suðvestanlands síðdegis í gær og í gærkvöldi vegna éljagangs og fóru fjórir bílar út af veginum í Kerlingaskarði með skömmu millibili síðdegis en engin slys urðu þó á fólki. kvæmdastjóri Sjónvarpsins. Vestmannaeyjar verða aðalsögu- svið þáttanna, sem gerast í nútíma og fjaila um lífíð við sjávarsfðuna. Þráinn sagði gert væri ráð fyrir að hann skilaði af sér verkinu í apríl á næsta ári en um verður að ræða íjóra 50 mínútna þætti, sem áætlað er að sýna næsta vor. Upphaflega var ráðgert að þættir þessir yrðu gerðir í fyrrasumar og að sögn Þráins Bertelssonar hafði tals- verður undirbúningur farið fram áður en málinu var frestað þar sem samn- ingar náðust þá ekki. Þráinn er höfund- ur handrits jafnframt því að leikstýra þáttunum. Að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Sjónvarpinu verða þættimir fjármagnaðir með framlögum úr Nor- ræna sjónvarpssjóðnum en jafnframt munu sjónvarpsstöðvar hinna Norður- landanna taka þátt í framleiðslunni. SEXTÁN tilboð bárust í frágang lóðar við Selásskóla og reyndist munur milli tveggja lægstu til- boða vera 0,17% prósentustig. Þá voru ellefu tilboð á bilinu 80 til 90% af kostnaðaráætlun. Borgarráð hefur samþykkt, að taka tilboði lægstbjóðanda, Garð- yrkjuþjónustunnar hf., sem bauð 15,7 millj. eða 79,55% af kostnaðar- áætlun en hún er rúmar 19,7 millj. Næst lægsta boð áttu Jarðvélar sf., sem bauð 79,72% af kostnaðar- áætlun. Þá bauð Böðvar Sigurðsson hf., 81,45%. af kostnaðaráætlun, Garpar hf., buðu 81,52% af kostn- aðaráætlun, Garðaval hf., bauð 82,37% af kostnaðaráætlun, Neisti hf., bauð 83,08% af kostnaðaráæti- un og Jóhann Helgi Hlöðversson bauð 83,26% af kostnaðaráætlun. Þór Snorrason bauð 85,70% af kostnaðaráætlun, Jón og Tryggvi hf. buðu 85,74% af kostnaðaráætl- un, Snorri Þórsson bauð 86,84% af kostnaðaráætlun, Garðaprýði hf., bauð 87,42% af kostnaðaráætlun, BJ. Verktakar hf., buðu 87,83% af kostnaðaráætlun, Björn og Gylfí sf., buðu 88,68% af kostnaðaráætl- un en þar vantaði á einingarverð að hluta. Þá bauð Völur hf., 98,78% af kostnaðaráætlun, GAP. sf. bauð 104,42% af kostnaðaráætlun og Gunnar og Guðmundur sf., buðu 125,10% af kostnaðaráætlun. --------------♦ » »------- Bókasafn Kópavogs Ráðgjöf um garðyrkju Garðyrkjufræðingur verður staddur þriðjudaginn 4. mai kl. 18-20 í Bókasafni Kópavogs og veitir ókeypis ráðleggingar um allt sem viðkemur garðvinnu og ræktun hvers konar. Kópavogsbúar og aðrir garð- yrkjuáhugamenn eru hvattir til að notfæra sér þessa þjónustu og fá leiðbeiningar áður en hafist er handa við garðvinnu. (Prcttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.