Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 34

Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993 34 Framsókn mælist nó stærsti flokkurinn Tæplega 100 millj. taprekstur kynntur á aðalfundi Granda hf. ferðamanna Aðalfundarstörf AÐALFUNDUR Granda hf. var haldinn í gær. F.v. á myndinni eru Jón Rúnar Kristjánsson fundarrit- ari, Brynjólfur Bjarnason framkvæmdasljóri Granda, Arni Vilhjálmsson stjórnarformaður félagsins og Grétar B. Kristjánsson fundarstjóri. SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun Gallups, sem ríkisútvarpið greindi frá í gærkvöldi, er Framsóknarflokkurinn nú stærsti flokkurinn og mælist í fyrsta sinn í sögu Gallups á Islandi stærri en Sjálfstæðisflokk- urinn. Hjá RÚV kom fram að fylgi Framsóknarflokks mælist nú 32% en fylgi Sjálfstæðisflokksins 28,5%. Ekki er talinn marktækur munur á fylgi þessara flokka. Stuðst var við 1.200 manna úrtak alls staðar að af landinu. Af öðrum flokkum bæta Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið lítilsháttar við sig en Kvennalistinn tapar fylgi. Fyigi ríkisstjómarinnar minnkar frá síð- ustu könnun og mælist stuðningur við hana nú rúmlega 30%. Heimir fær stuðning í könnuninni var spurt sérstak- lega um Hrafnsmálið og reyndust um 60% styðja þá ákvörðun Heimis Steinssonar að víkja Hrafni Gunn- laugssyni úr starfi. 26% voru andvíg- ir þeirri ákvörðun og 10% tóku ekki afstöðu. Hinsvegar reyndust um 80% andvígir þeirri ákvörðun Olafs G. Einarssonar menntamálaráðherra að ráða Hrafn aftur til starfa. 13% studdu þá ákvörðun en 5% tóku ekki afstöðu. ----♦ ♦ ♦-- Ferðakynning Heimsklúbbs Ing- ólfs og Prímu Nýr bækling- ur - handbók 154 millj. kr. gengistap á síðustu 3 mánuðum ársins ÁRNI Vilhjálmsson, stjórnarformaður Granda hf., lýsti miklum vonbrigðum með árangur félagsins á síðastliðnu ári í ræðu sinni á aðalfundi þess í gær og sagði að mikil umskipti til hins verra hefðu orðið á afkomunni síðustu þrjá mánuði ársins. Rekstrartap Granda nam 98 milljónum kr. og 156 millj. að tapi dótturfyrirtækja meðtöldu. Tekjur fyrirtækisins lækkuðu að raungildi um 3,3%, en rekstrar- gjöld án afskrifta og fjármagnsgjalda um 1,4%. Heildar- lækkun rekstrartekna á milli áranna 1992 og 1991 nam 7%. Vegna samsetningar erlendra skulda Granda varð misvægi milli verðlags og gengis 195 millj. kr. og á síðustu 3 mánuðum ársins nam gengistap félagsins 154 milljónum kr. Þar af stöfuðu 90 millj. kr. af gengisfellingu krónunnar í nóvember en 64 millj. stöfuðu af því, að Bandaríkjadalur og japanskt jen vega þyngra í skuldum Granda en í myntk- örfu Seðlabankans. „Vera má, að okkur hafi orðið á mistök í áætlanagerð í því, að hafa ekki hugað að eðlilegum væntingum í gengisþróun, og að dregist hafi úr hömlu að aðlaga skuldasamsetningu okkar að þeim breytingum, sem orðið hafa á síð- ustu misserum í samsetningu af- urðasölu okkar eftir myntum, en vægi þýskra marka hefur stórauk- ist á kostnað dollara," sagði Árni í ræðu sinni. I ræðu Brynjólfs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Granda, kom fram að af hálfu fyrirtækisins hefur verið lögð nokkur vinna í hvernig nota megi nútímatækni til að breyta skuldasamsetningu > • Hagnaður af rekstri UA10 miliiónir í fyrra Nægar veiðiheim- ildir en minni afli fyrirtækisins. Hafist hafi verið handa um gerð samninga um gjaldeyrisskipti auk vaxtaskipta- samninga til- að ná meiri jöfnuði á milli samsetningar tekna og skulda og vinna gegn áhættu á gengistapi-. Einnig þyrfti að skoða samsetningu framleiðslunnar þannig að jöfnuður verði milli samsetningar erlendra skulda og útflutningstekna. Eiginfjárhlutfall lækkaði í 38% Eigið fé Granda var 1.467 millj. kr. í lok ársins og eiginfjárhlut- fall lækkaði úr tæplega 45% 1991 í 38%. Eigið fé jókst á árinu um 21 millj. kr. en hlutafjáraukning í nóvember og desember skilaði 126 milljónum kr. Skv. efnahags- reikningi var bókfært verð heild- areigna í árslok 3.834 millj. kr. og heildarskuldir námu 2.367 millj. kr. Heildarfjárfestingar á árinu námu 1.033 millj. kr. en þar af námu kaup á hlutafé í útgerðar- félaginu Pesquera Friosur í Chile 106 millj. kr. Ný langtímalán á árinu námu 726 millj. kr. Stjórn og varastjóm Granda hf. var endurkjörin á aðalfundinum í gær. MORGUNBLAÐINU hefur borist fréttatilkynning frá Heimsklúbbi Ingólfs og Prímu hf., en í dag klukkan 16 verður ferðakynning á vegum klúbbsins og Prímu hf. á Hótel Sögu. „Hjá Heimsklúbbi Ingólfs er kominn út bæklingur, sem sker sig úr og er ekki hefðbundinn sölubækl- ingur ferðaskrifstofu, heldur hand- bók, sem geymir fullt af upplýsing- um um eftirsótta staði erlendis, handbók ferðamanna. Við athugun verðs kemur í ljós að með sérsamn- ingum Heimsklúbbsins hefur tekist að fá gistingu á sumum þekktustu hótelum heimsins á verði, sem er sambærilegt eða lægra en á dreif- býlishótelum hér og annars staðar í Evrópu en eru án nokkurra þæg- inda að sögn Ingólfs Guðbrandsson- ar. Bæklingurinn er gefinn út sem ókeypis handbók ferðamanna, en honum fylgir auk þess happdrættis- miði með 100 þús. kr. aðalvinning, úttekt í heimsreisu, en 10 aðrir vinningar eru gistinætur á lúxus- hótelum fyrir tvo víðs vegar um heiminn. Dregið verður í því happ- drætti 15. júní næstkomandi. í lok ferðakynningar Heimsklúbbsins í dag verða einnig dregnir út ferða- vinningar úr „lukkumiðum" gest- anna, samtals að upphæð kr. 100 þúsund. Ferðirnar, sem kynntar verða í dag eru: Vínarborg, Budapest, Ungveijaland, Töfrar Ítalíu, lista- og óperuferð í ágúst, Heillandi heimur Kína, Hong Kong og Tæ- land í september, Malaysía og töfr- ar Tælands í október og loks Hnatt- reisa umhverfis jörðina í nóvember. Aðgangur að ferðakynningunni er ókeypis en veitingar verða seldar við inngang." Fréttatilkynning HAGNAÐUR af rekstri Útgerðarfélags Akureyringa í fyrra nam 10,4 milljónum króna, en árið 1991 var hann 86,7 milljón- ir króna. Heildarafli skipa félagsins var 21.604 tonn í fyrra, sem er minni afli en árið 1991, þegar hann var 23.675 tonn. Ástæða samdráttarins voru rýr aflabrögð, en ekki skortur á aflaheimildum. Háskólaráð um takmarkanír í læknadeild Ákveðið að fækka nemum niður í 30 HÁSKÓLARÁÐ hefur ákveðið að herða fjöldatakmarkanir þær sem gilt hafa i læknadeild skólans. Nú gefst aðeins 30 nemendum kostur á áframhaldandi námi við deildina eftir haustmisseri en undanfarin 10 ár hafa 36 nemendur getað haldið áfram eftir samkeppnispróf I lok misserisins. Að sögn Sveinbjarnar Björnssonar háskólarektors er þessi ákvörðun fyrst og fremst vegna þess að átta þjálfunarpláss fyrir læknanema á Landakoti hafa verið lögð niður í kjölfar niður- skurðar á spítalanum. Þetta kemur fram í ársskýrslu ÚA, en aðalfundur félagsins var haldinn í gær. í ræðu stjórnarfor- manns, Sverris Leóssonar, sagði hann m.a., að það hefði verið stefna félagsins að bregðast við skerðingu aflaheimilda og minnk- andi afla með því að afla nýrra heimilda og auka sóknina, þannig að halda mætti út sömu og helst meiri starfsemi en verið hefði á undanfömum árum. „Þegar litið er á tölur um heildarafla má sjá að þetta hefur tekist að nokkru leyti, þar sem afli hefur verið á bilinu 21-23 þúsund tonn á ári. Á síðastliðnu ári var aflinn 21.600 tonn og var hann rúmlega 2.000 tonnum minni en árið áður, enda hafði afli á úthaldsdag dregist saman, var aðeins 11,3 tonn en hafði verið 12,9 tonn árið áður,“ sagði Sverrir. Sverrir sagði að það væri veru- legt áhyggjuefni hversu afli hefði rýrnað, en árið 1988 hefði afli á úthaldsdag hjá skipum félagsins verið um 15,5 tonn. Hefði hann dregist saman um 27% á sl. fímm árum, sem aftur hefði leitt til þess, að sífellt hefði orðið kostnaðar- meira að ná í hvert tonn af fiski. Félagið hefði auk þess ráðist í mikinn kostnað við að afla viðbót- arveiðiheimilda, sem bæði hefðu verið varanlegar og óvaranlegar, en það hefði verið forsenda þess að afli og hráefni til vinnslunnar hefði haldist þannig að starfsemin hefði gengið snurðulaust allt árið. Framleiðsla ÚA á freðfiski var tæplega 6.400 tonn í landi, en auk þess framleiddu frystitogarar fé- lagsins, Sléttbakur og Sólbakur, 3.950 tonn af afurðum. Heildar- framleiðslan var því 10.347 tonn, sem er rúmlega 200 tonnum meira en árið áður og er það mesta fram- leiðsla félagsins sem verið hefur, bæði miðað við magn og verð- mæti. Samið var við aðrar útgerð- ir um öflun hráefnis, til að halda stöðugri framleiðslu. Nýtt hlutafé í máli Sverris Leóssonar kom fram, að á aðalfundi félagsins á síðasta ári fékk stjórn þess heimild til að efna til útgáfu nýs hlutafjár að nafnverði 50 milljónir kr. Sú heimild hefur ekki verið nýtt enn, en áhugi er á því að kanna mögu- leika á slíku á næstunni. „Er það mjög æskilegt, til þess að búa sig enn undir frekari sókn til þess að auka umsvif félagsins auk þess sem nýtt fjármagn er æskilegt til þess að fjármagna kaup á hlutafé í hinu þýska dótturfélagi sem fest hefur verið kaup á,“ sagði Sverrir Leósson, stjómarformaður Útgerð- arfélags Akureyringa. Sveinbjörn Björnsson segir að á fundi Háskólaráðs í vikunni, þar sem málið var til umræðu og ákvörðun- ar, voru lögð fram gögn og röksemd- ir frá læknadeild skólans sem gerðu ráð fyrir fækkun úr 36 nemendum niður í 30. „Ástæðan er sú að ekki er Iengur hægt að koma átta nem- endum í þjálfun á Landakoti, en gert er ráð fyrir að þau tvö pláss sem standa eftir skiptist jafnt milli Borgarspítala og Landspítala," segir Sveinbjörn. „Félag læknanema hefur lýst sig samþykkt þessari ákvörðun."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.