Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
Reuter
Leikið á mannræningja
LÖGREGLU í Costa Rica tókst á fimmtudag að leika á hóp mannræn-
ingja er kallaði sig „Dauðasveitina" og hafði tekið 23 borgara í gísl-
ingu, þar af 18 hæstaréttardómara. Ræningjarnir fengu 200.000 Banda-
ríkjadollara lausnargjald, síðan fengu þeir að fara um borð í flugvél
eftir að hafa látið gíslana lausa. Er þeir voru að koma sér fyrir í
sætunum þustu velvopnaðir lögreglumenn áð og yfirbuguðu hópinn.
Ræningjarnir sögðust þurfa peningana til að greiða fyrir læknishjálp
handa foringjanum er mun þjást af skorpulifur. Á myndinni yfirgefur
einn gíslinn prísundina, með honum eru börn hans. Fyrir skömmu tóku
aðrir ræningjar í Costa Rica gísla og kröfðust lausnargjalds, stjórn-
völd létu undan og borguðu. Margir telja að seinni hópnum hafi litist
vel á niðurstöðuna og talið auðvelt að feta í fótsporin.
Eftirhreytur þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Sviss
Leiðtogi andstöðu við
EES úr bankastjórn
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
CHRISTOPH Blocher, harðasti andstæðingur evrópska efnahags-
svæðisins (EES) í Sviss, var ekki endurkjörinn í sljórn stærsta
banka landsins, Schweizerische Bankgesellschaft (SBG), á aðal-
fundi hans á fimmtudag. Harðar deilur Roberts Studers, aðal-
bankasljóra SBG, og Blochers á opinberum EES-kosningafundi í
haust vöktu mikla athygli og það varð ljóst að dagar þingmanns-
ins í stjórn bankans voru taldir.
Yfir 4.000 hluthafar sóttu aðal-
fundinn, um helmingi fleiri en í fyrra.
Nikolaus Senn, stjórnarformaður,
sagði náin tengsl Blochers við eig-
anda BZ-bankans í Sviss og afstaða
hans í vaxtamálum vera höfuðá-
stæðurnar fyrir því að stjórnin legði
til að hann yrði ekki endurkjörinn
en ekki andstaða hans gegn EES.
Fáir trúðu þessu og þeir sem tóku
til máls á fundinum gagnrýndu flest-
ir stjórnina fyrir að þola ekki skoða-
namun innan hennar.
Blocher skrifaði fundinum bréf en
mætti ekki sjálfur til að koma í veg
fyrir tilfinningahita á honum. En
talsmenn Blóehers voru baulaðir nið-
ur í lokin og Senn slökkti á hátalar-
anum í miðri ræðu eins hluthafans
þegar hann var búinn að fá nóg „af
þvælunni“ í honum um andúð banka-
stjórnarinnar á Blocher vegna af-.
stöðu hans til EES. Um 25% hlut-
hafa greiddu Blocher atkvæði í 24
manna stjórnina.
Christoph Blocher
Yangtse flytji velmeg-
nnina inn í sveitir Kína
Peking. Daily Telegraph.
Alvarleg ofveiði Rússa
KINVERSK sljórnvöld hafa kynnt stórfenglegar áætlanir um að
gera Yangtse-fljótið að því, sem þeir kalla „gullnu vatnaleiðina“,
og ætla að galopna Yangtse-dalinn allan fyrir erlendri fjárfest-
ingu. Er vonast til, að þannig muni vaxandi velmegun í strandhér-
uðunum færast inn í Iandið.
á þorski í Barentshafi
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
RÚSSNESK og færeysk fiskiskip veiddu í fyrra milli 90 og 120
þúsund tonn af þorski umfram þann kvóta sem þau höfðu í
Barentshafi í fyrra, samkvæmt gögnum sem Jan Henry T. 01-
sen sjávarútvegsráðherra Noregs lagði fram í Stórþinginu í
fyrradag.
Olsen sagði að stórefla þyrfti
eftirlit með veiðum í Barentshafi.
Það væri vanmáttugt, einungis þtjú
skip fylgdust með 291 skipi sem
þar væru að veiðum nú. Af þessum
skipum v,æru 47 norsk en 244 frá
Rússlandi og ríkjum Evrópubanda-
lagsins (EB). Hann sagði að rúss-
nesk stjórnvöld hefðu fallist á sam-
starf um aukið eftirlit með veiðun-
um til þess að reyna að koma í veg
fyrir að stofninn hryndi vegna of-
veiði.
Hrun blasir við
Samkvæmt útreikningum Norð-
manna veiddu Færeyingar 23.000
tonn fram yfir kvóta og Rússar
70-100 þúsund tonn. Fiskifræðing-
ar í Noregi hafa fullyrt að dragi
ekki úr ofveiðinni blasi ekkert ann-
að en hrun við þorskstofninum í
Barentshafi.
Reuter
Uppnám á þingi
TIL handalögmála kom í neðri deild ítalska þingsins í fyrradag
þegar ljóst varð, að meirihluti þingmanna hafði hafnað að svipta
Bettino Craxi þinghelgi svo unnt væri að rannsaka alvarlegar spill-
ingarákærur á hendur honum. Nú ætlar Ciampi forsætisráðherra
að krefjast þess, að þingmenn afsali sér þinghelgi allir sem einn.
aðgerðunum, en í gær virtist sem
gamla sagan væri að endurtaka sig,
enn ein stjórnin að falla og að þessu
'sinni aðeins eftir nokkrar klukku-
stundir.
Þingið upp við vegg
Sagt er, að Ciampi hafi brugðist
mjög reiður við þegar hann heyrði
um samþykkt þingsins í máli Craxis
en hann sat ekki lengi auðum hönd-
um. Hefur hann ákveðið að kreijast
þess, að þingheimur allur, báðar
deildirnar, afsali sér þeim rétti, sem
kveðið er á um í 68. grein stjórnar-
skrárinnar, það er að segja þinghelg-
inni. „Atkvæðagreiðslan í gær sýnir,
að 68. greinin er úrelt,“ sagði Ger-
ardo Bianco, þingflokksformaður
kristilegra demókrata, eftir fund
með Ciampi og kvaðst mundu leggja
til, að málið yrði tekið fyrir fljótt.
Með þessu hefur Ciampi sett þing-
ið upp við vegg. Nú yerður ekki
spurt um afstöðu þess til rannsóknar
á máli einstakra manna, heldur hvort
þingmenn vilji sjálfir afsala sér þing-
helgi. Eða með öðrum orðum hvort
þeir telji sig hafa hreinan skjöld. Það
verður því vel fylgst með afgreiðslu
tillögunnar á þingi.
ítalir skammast sín
Spillingin á Ítalíu er mikið áfall
fyrir þjóðina en augljóst er, að hún
nær út í hvern krók og kima samfé-
lagsins. Auðvitað vissu allir meira
eða minna um ástandið en nú þegar
flett hefur verið ofan af því skamm-
ast ítalir sín gagnvart umheiminum,
einkum gagnvart öðrum Evrópu-
þjóðum. „Mútuþægnin er runnin
okkur í merg og bein,“ segir kvik-
myndaleikstjórinn Federico Fellini
en það er ekki alveg ljóst hvers
vegna þessi mál komu upp allt í einu
núna.
Sumir rekja það til falls Berlín-
armúrsins og þeirra breytinga, sem
orðið hafa í alþjóðastjórnmálum, og
segja sem svo, að baráttan gegn
kommúnismanum hafi áður réttlætt
óbrejAt ástand og allt, sem því
fylgdi. Aðrir benda á nærtækari
skýringar: Gífurlega skuldasöfnun
ríkisins, kröfur Evrópubandalagsins
um að ítalir herði sultarólina vilji
þeir á annað borð eiga samstarf við
önnur Evrópuríki og loks vaxandi
skilning á, að stjórnmálaflokkarnir
væru komnir úr öllum tengslum við
almenning í landinu.
Komið að skuldadögunum
Itölum finnst nú sem komið sé
að skuldadögunum, jafnt í efnahags-
sem stjórnmálum landsins, og það
er orðið áberandi hvað efnafólk er
orðið feimið við að flagga auðæfun-
um. Fyrir skömmu var enginn mað-
ur með mönnum nema hann væri
með farsímann á lofti í tíma og ótíma
en nú ber miklu minna á því og
aðsókn að fínustu og dýrustu veit-
ingastöðunum í Róm hefur minnkað
um 40% á nokkrum mánuðum. Hjá
almenningi birtist óttinn við erfiða
tíma framundan til dæmis í því, að
páskaeggjasalan hrundi að þessu
sinni og pöntunum á sumarleyfi er-
lendis hefur fækkað um 30%.
(Heimildir: The Economist, The
Daily Teiegraph o. fl.)
Þetta nýja efnahagssvæði á að ná
frá Shanghai til borgarinnar
Chungking í vestri en dalsvæðið milli
borganna er samtals 200.000 fermíl-
ur. Er það mjög fijósamt og Jjöl-
byggt og þaðan kemur fimmtungur
þjóðarframleiðslunnar. Lífskjörin eru
þó miklu lakari þar en á uppgangs-
svæðunum við ströndina.
Embætti§maður í kínversku rík-
isáætlananefndinni sagði, að þessi
nýja áætlun myndi hafa „gífurleg
áhrif á kínverskt efnahagslíf", gefa
erlendum fjáfestum einstakt tæki-
færi auk þess að mynda risastóran
markað fyrir erlenda vöru. Á þessu
svæði er stefnt að 100 stórum verk-
efnum, meðal annars að hinu risa-
vaxna „Þriggja-gilja-raforkuveri“,
og sagði embættismaðurinn, að hug-
myndin væri, að útlendingar fengju
að fjármagna þau og reka í tiltekinn
tíma, eða þar til þeir hefðu hagnast
vel á framkvæmdinni.
Einkavæða
600 fyrirtæki
Varsjá. Reuter.
PÓLSKA þingið samþykkti í
gær lög um einkavæðingu sem
verið hafa til meðferðar i
þinginu í tvö ár. Er litið á
samþykktina sem mikinn sig-
ur fyrir stjórnina og einka-
væðingaráform hennar.
Lögin gera stjóminni kleift
að einkavæða um 600 ríkisfyrir-
tæki á einu bretti og deila hluta-
bréfum til almennings. Meðan á
einkavæðingu fyrirtækjanna
stendur verður forsjá þeirra falin
ljárfestingasjóðum sem eru í
umsjá vestrænna ráðgjafa.