Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 46
46
♦
MORGUjNBLAÐIÐ LAUGARIj)AqUR 1. MAI 1993
WT b
Bimbo
BARNAFATAVERSLUN
Háaleitisbraut 58-60, sími 38260
Gleðilegt sumartilboð!
Fötin hjá okkur eru á stórmarkaðsverði eða lægri
í stærðunum 50-176 (0-13 ára).
Góð aðkoma, næg bílastæði.
Aðeins gegn afhendingu þessa miða færð þú
15% staðgreiðsluafslátt, 7% gegn greiðslukortum.
Póst$endum um land allt.
Gildir til I. júní.
Þátttakendur í ráðstefnunni á Hótei Loftleiðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Kynningarfundur um
markaðseftirlit með
rafföngum
Fundurínn verður haldinn 5. maí og hefst
kl. 13:00, aó Hesthálsi 6-8 hjá
Bifreiðaskoðun íslands.
Hagsmunaaðilar eru hvattir til aö mæta
og kynna sér þróun og breytingar á
markaðseftirliti raffanga.
Þátttaka tilkynnist í s. 673700 fy. 4. maí.
RER - Markaóseftirlit Bl
NY KYNSLOÐ AF SMÁGRÖFUM
0,3 - 5,3 tonn
Við kynnum og sýnum nýja kynslóð af AMMAIMN
YANMAR smágröfum, hlaðnar nýjungum:
• Stimpildæla með breytilegum afköstum, sem þýðir
minni eldsneytiseyðslu.
• Sérstaklega hljóðlátar, snúningshraði vélar aðeins
2200 sn./mín.
• Vökvastjórntæki „J0YSTICK” gefa mjúkt og jafnt
átak.
• Nýtt, glæsilegt útlit og litir, stærra, bjartara og betur
einangrað hús.
AMMANN YANMAR gröfurnar hafa nú þegar sannað
ágæti sitt við fjölbreyttar aðstæður hérlendis. Komið
og skoðið þá nýjustu, gerð B22-2, þyngd 2.2 tonn.
Eigum einnig til á lager
og til afgreiðslu STRAX
YANMAR beltavagna
m/850 kg. burðarþoli.
Ráðgjöf - sala - þjónusta
M Mi IULailí tcú 1 IHll
Skútuvogur 12A - Reykjavík - s 812530
Ráðstefna um landnýtingu og almannarétt
Hver á landið og hver má?
RÁÐSTEFNA um landnýtingu og almannarétt var haldin á Hótel
Loftleiðum 24. apríl síðastliðinn undir einkunnarorðunum „Hver á?
- Hver má?“ og voru aðstandendur hennar Landvernd, Skotveiðifé-
lag Islands, Landsamband stangveiðifélaga, Ferðafélag íslands og
Stéttarsamband bænda. Morg athyglisverð erindi voru flutt á ráð-
stefnunni.
Finnur Torfi Hjörleifsson lög-
fræðingur flutti þar m.a. erindi um
veiðirétt, ákvæði og viðhorf fyrr og
nú. Hann rakti lagaákvæði Jónsbók-
ar um veiði og sagði að þau hafi í
aðalatriðum verið hin sömu og í
þjóðveldislögunum samkvæmt
Grágás. Landeigandi eða leiguliði
átti einkarétt til veiða fugla og fiska
á eigin jörð með umtalsverðum und-
antekningum þó. Hann átti og
einkarétt til að veiða fiska og sjáv-
arspendýr í netlögum, sem miðuðust
við 20 möskva djúpt selnet, (há-
marksdýpt 2,90 m). Almannaréttur
til veiða fugla og fiska gilti í almenn-
ingum og á afréttum og til fugla-
veiða í hafinu upp að ströndum.
Ákvæði Jónsbókar, sem lögtekin
voru 1281 um veiði, stóðu óbreytt
uns gildi tók tilskipun um veiði á
íslandi 1849.
Veiðitilskipunin frá 1849
í upphafí nefndarálits um frum-
varp til fyrrnefndrar veiðitilskipunar
1849 segir að frumvarpið sé „frá-
brugðið bæði ákvörðunum Jónsbók-
ar um veiðiréttinn ... og einkum
þeirri venju, sem fyrir löngu er kom-
in hér á og enn íoðir við, að veiði
landdýra og fugla allflestra, allvíða
átölulaust, er hér tíðkuð af hverjum
sem vill iðka hana, hvar sem er, og
hvort heldur á eigin lóð eða ann-
ara.“ Síðar í nefndarálitinu er venja
þessi kölluð „saklaus brúkunarrétt-
ur“. Rök má að því leiða að þessi
saklausi brúkunarréttur hafi í raun
gilt á íslandi eftir lögtöku Veiðitil-
skipunar 1849 og eitthvað fram eft-
ir öldinni okkar.
Evrópusameining og
almannaréttur
eignarréttar gilda sömu reglur um
EES-aðila og um íslenska aðila.
Taldi hann erfitt að sjá að aðrar eða
þrengri reglur geti gilt um EES-
aðila heldur en íslendinga að því
er tekur til almannaréttar og að
gera megi ráð fyrir að eftirspurn
eftir fasteignum hér á landi muni
aukast við gildistöku EES-samn-
ingsins, þ. á m. til landa og land-
svæða til hvers kyns útivistar.
Hálendið, ný réttarstaða
og nýr þjóðgarður
Gunnar G. Schram prófessor og
forseti lagadeildar Háskóla íslands
íjallaði í erindi sínu um hálendið,
nýja réttarstöðu og nýjan þjóðgarð.
Hann kvað ný viðhorf hafa skapast
með auknum fjölda fólks í þéttbýli,
sem á síðari tímum leitaði í síaukn-
um mæli út í dreifbýli og á hálendi
landsins til þess að sækja sér úti-
veru og nánd við náttúruna. Breyt-
ing á lífsháttum og gildismati fólks
hefði varpað skýrara ljósi á þann
ágreining, sem uppi væri um skil-
greiningu réttarstöðu og nýtingu
stórra landshluta.
Gunnar kvað réttarstöðuna á af-
réttum og almenningum engan veg-
inn ótvíræða og þar væru uppi mörg
lögfræðileg álitamál er varða eign-
arheimildir einstakra manna,
hreppa og sveitarfélaga á þessum
svæðum hálendisins. Allnokkrum
sinnum hefði komið fram frumvarp
á Alþingi um að hálendið yrði gert
að þjóðareign, en slíkt frumvarp
hefði aldrei náð fram að ganga.
Þjóðgarður á hálendinu.
I öðru lagi nefndi Gunnar tillögu
um að allt miðhálendi landsins yrði
gert að þjóðgarði. Hann kvað þessa
hugmynd að mörgu leyti stórbrotna
og heillandi og hann kvað það helst
vera þá framtíðarsýn sem hann vildi
sjá verða að veruleika. í náttúru-
verndarlögum er það ákvæði að
Náttúruverndarráð getur lýst því
yfir að ákveðin svæði með sérstæðu
náttúrufari og landslagi, verði þjóð-
garður, en sá böggull fylgir þó
skammrifi að landið verður að vera
í ríkiseign. Hálendisþjóðgarður
myndir því hafa í för með sér all
verulegan kostnað vegna éign-
arnáms lands sem sannanlega er í
einstaklingseigu. Þó er mikill hluti
hálendisins án eignarréttarheimilda
í dag. Miðað við uppkveðna hæsta-
réttardóma kvað Gunnar ótvírætt
að ríkisvaldið geti í skjóli lagasetn-
ingarvalds lýst yfir eignarrétti ríkis-
ins á almenningum og afréttum og
því væri tímabært að Alþingi hugi
að lagasetningu, þar sem lýst er
yfir ótvíræðum eignarrétti þjóðar-
innar á þeim víðáttumiklum svæðum
hálendisins sem enginn eigandi
finnst að í dag. Hann taldi hálendis-
þjóðgarð jafnframt koma í veg fyrir
að erlendir ríkisborgarar geti fest
kaup á nokkrum hluta hálendisins
samkvæmt EES-samningnum.
Hálendið lýst friðland?
Síðasti kosturinn, sem Gunnar
G. Schram nefndi og hann taldi að
kæmi til greina, þegar rætt er um
nýja skipan á þessum málum, er sú
leið sem boðið er upp á í 24. grein
náttúruverndarlaga um stofnun
friðlanda. Sem dæmi um sh'ka frið-
lýsingu má nefna Hornstrandir,
Esjufjöll og Lónsöræfi. Þeir landeig-
endur eða aðrir rétthafar sem fyrir
fjártjóni verða vegna friðlýsingar
eiga rétt á skaðabótum úr ríkis-
sjóði. Ef samkomulag næst ekki um
bætur, skulu þær ákvarðaðar eftir
reglum laga um eignarnám. Gunnar
taldi hugsanlegt að menn verði þó
að þola takmarkanir vegna friðunar-
aðgerða bótalaust.
Sumarbúðir í Skál-
holti í júní og ágúst
Stefán Már Stefánsson prófessor
fjallaði um Evrópusameiningu, eign-
arrétt, afnotarétt og almannarétt.
Hann taldi að aukin samvinna Evr-
ópuþjóða, einkum á sviði efnahags-
og viðskiptamála, myndi leiða til
rýmkunar þeirra reglna sem gilda
um öflun fasteigna hér á landi.
Bein réttaráhrif EES-reglna þýðir
að þær verða lögfestar hér og að
EES-aðilar geti stutt rétt sinn við
þessar reglur, þ. á m. í þeim tilvikum
þegar reglurnar veita þeim rétt til
öflunar fasteigna hér. Ennfremur
að EES-aðili öðlist rétt yfír fylgirétt-
indum fasteignar með sama hætti
og íslenskir aðilar.
Stefán Már sagði m.a. að í dreif-
býli verði réttur til öflunar lands
sennilega einkum virkur með stofn-
setningarrétti, en hann felur í sér
beinan rétt fyrir EES-aðiIa til að
afla fasteigna hér á landi innan til-
tekinna marka. Unnt væri að tengja
saman búsetu og nýtingu lands, þó
aðeins innan eðlilegra marka. Um
lönd og landsvæði utan einstaklings-
í SKÁLHOLTI verða starf-
ræktar sumarbúðir 16.-22.
og 24.-30. júní, þar sem sér-
staklega verður reynt að
koma til móts við fatlaða.
16.-22. og 24.-30. ágúst
verður boðið upp á fjöl-
skyldubúðir fyrir börn og
fullorðna.
Dagskrá miðast bæði tímabilin
við að kynna og tengja saman tón-
list, myndlist, leiklist og sögu Skál-
holtsstaðar og kirkjunnar auk úti-
vistar og náttúruskoðunar.
Upplýsingar eru veittar hjá Mar-
íu Eiríksdótíur og hjá Fræðsludeild
kirkjunnar.
(Fréttatilkynning)
------» ♦ »
Ferming á
morgun
Ferming í Langholtskirkju
sunnudaginn 2. maí kl. 11. Fermd
verða:
Birta Bjömsdóttir,
Sólheimum 25.
Stefán Andrew Svenson,
Skeiðarvogi 61.