Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 58

Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 58
ffi Minning Jón Oddsson Fæddur 27. sept. 1928 Dáinn 20. apríl 1993 Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) ' Mig dreymdi draum og þegar ég vaknaði leið mér hálf illa. Ég hafði orð á því við fjölskylduna að nú væri eitthvað að heima. Og eftir tvo tíma hringdi síminn. Jón Oddsson, fyrrverandi tengdafaðir og afi dætra minna, var dáinn. Hann dó á sama tíma og mig var að dreyma. Þetta kannski segir sína sögu um mannleg tengsl. Það var í maí fyrir 15 árum sem ég kynntist þeim ágætu hjónum, Jóni og Svölu, þegar sonur þeirra Georg bauð mér með sér í „bæ- inn“. Mér var vel tekið af þeim og ég man hvað ég átti góða samræðu- stund með þeim um sveitina og sveitastörf, hestatamningar og sitt- hvað fleira í þeim dúr, milli þess sem brandararnir flugu þeirra á milli. En það einkenndi þeirra heimili, brandarar og ákveðinn léttleiki. Þau Fædd 5. apríl 1912 Dáin 19. apríl 1993 Hún elsku amma Lilja er dáin, eða „amma nammi“ eins og við kölluðum hana, því að hún bauð okkur alltaf góðgæti og gos þegar við komum í heimsókn. En nú er hún elsku amma okkar komin til afa og vitum við að hún er hvíldinni fegin. Hún saknaði afa og vonum við að þeim líði vel sam- an hjá Guði. Amma Lilja var alltaf svo blíð og góð og tók alltaf svo vel á móti okkur. Hún var alltaf með opinn faðminn og var svo óeigingjörn. Þó að amma væri komin til ára sinna missti hún aldrei skopskynið og var alltaf mjög hláturmild. Jafn- vel þótt minninu færi hrakandi mundi hún alltaf eftir okkur og við munum alltaf muna eftir henni. Við söknum hennar mjög, en með þess- buðu mér að skoða sumarbústaðinn sinn sem þau áttu skammt frá höf- uðborginni. Þar áttu þau hesta og kindur sér til ánægju, sem öll fjöl- skyldan naut góðs af. Tíminn leið og þar kom að við Georg trúlofuðum okkur og áttum von á okkar fyrsta barni. Við höfð- um hug á að byija búskapinn í sveit- inni fyrir norðan, en til að það væri hægt þurfti margt að laga og bæta á bænum. Það voru margar ferðirnar milli höfuðborgarinnar og Hnausa, en það hét bærinn, er Jón og Svala komu okkur ti! hjálpar. I einni ferðinni höfðu þau meðferðis éldhúsinnréttingu og settu hana upp á einni helgi. Svona var driftin og hjálpsemin mikil. Á þessum tíma vann Jón á hjól- barðaverkstæði Heklu og var deild- arstjóri þar. Er þetta því lýsandi dæmi um vinnuhörku og ósérhlífni sem einkenndi Jón alla tíð. Alltaf var hann boðinn og búinn að hjálpa og styðja krakkana sína, sem öll voru á þessum árum að byija bú- skap. Jón og Svala eignuðust fimm börn á 7 árum. Má nærri geta hvort ekki hafi verið nóg að gera með svo mörg lítil böm. En þau eru: Jón Oddur, fæddur 1955, Georg Hans, fæddur 1957, Erla Bjarney, fædd um fáu orðum kveðjum við hana. Ó, Jesú bróðir besti og bamavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á bamæskuna mína. Barnabörnin. Mig langar að minnast ömmu minnar, Lilju Kristdórsdóttur, með nokkrum orðum. Þegar ég var lítil var ég alltaf hjá henni og afa á Laugaveginum. Þaðan koma marg- ar góðar minningar. Alltaf voru allir velkomnir til ömmu, hún gerði öllum vel. Síðustu árin bjuggu hún og afi á Hrafnistu í Hafnarfirði og þau urðu alltaf svo glöð þegar við barna- bömin komum í heimsókn. En þeg- ar afí dó varð það hennar heitasta ósk að fá að fara til hans og nú hefur henni orðið að ósk sinni. 1959, Baldur Ingi, fæddur 1960, og Ásgeir, fæddur 1962. Barna- börnin eru 13. Margs er að minn- ast og margt ber að þakka. Þótt leiðir okkar Georgs skildu, slitnaði aldrei sambandið við Jón og Svölu. Þau litu stundum inn hjá okkur, alltaf færandi hendi eitthvað fyrir barnabörnin Svölu, Svövu og Svandísi. Eftir að við fluttumst til útlanda varð fjarlægðin meiri og sambandið öðmvísi, en síst verra. Mér er efst í huga síðasta skipt- ið sem við hittumst, en þá yomm við fjölskyldan í heimsókn á Islandi fyrir rúmum tveirhur ámm. Hringdi ég þá í Svölu og sagði þeim hvar við værum og með það sama birt- ust þau hjón með fangið fullt af Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á jarðneskt vor. (D. Stefánsson) Lilja nafna. fötum á öll bömin mín, þótt tvö af þeim ætti ég með mínum seinni manni. Þetta lýsir samheldni þeirra og hjartahlýju, sem ég ávallt fékk að njóta í blíðu og stríðu. Ég kveð Jón Oddsson með þakk- læti fyrir liðnu árin. Elsku Svala, þú stóðst eins og klettur við hlið hans í veikindunum. Ég og fjöl- skylda mín óskum þér, börnunum og fjölskyldum þeirra Guðs blessun- ar. Ásdís Svavarsdóttir, Staffanstorp, Svíþjóð. Mömmu dreymdi illa, og mér leið illa þennan morgun. Er ég kom heim úr skólanum, sagði mamma að amma hefði hringt, klukkan tíu á okkar tíma, og sagt að afí væri dáinn. Mig langar til að minnast Sigur- bjargar Þorleifsdóttur, eða Sibbu, eins og hún var kölluð. Ég á hlýjar og góðar minningar um hana. Ég bjó í húsi númer 10 við Túngötu, beint á móti henni, og urðum við því góðar vinkonur ég og dóttir hennar, Anna, sem nú er látin. Alltaf var mér tekið eins og ég væri eitt af bömunum. Sérstaklega man ég eftir að þegar við Anna vomm komnar í gagnfræðaskól- ann (sem var þá á kirkjuloftinu) fórum við alltaf heim til Önnu í löngu frímínútunum og var þá Sibba búin að baka vöfflur, pönnu- kökur eða lummur með mjólkinni handa okkur. Ekki var annað tekið í mál en að ég kæmi með henni heim og svona gekk þetta held ég bara allan veturinn. Alltaf var ég jafn .velkomin á heimili Sibbu og Óla. ’ Árið 1957 flyst ég frá Siglufirði til Akureyrar. Árið eftir fer ég til Siglufjarðar í heimsókn og bý þá hjá Sibbu og Óla og fæ þá enn að njóta hlýjunnar og notalegheitanna frá þeim hjónum. Síðan líða mörg ár þar til ég kem þangað aftur. Árið 1972 misstu þau dóttur sína, Önnu vinkonu mína. Hún er jörðuð í Fossvogskirkjugarði. Þeg- ar ég hringdi í Sibbu og Óla og sagðist koma suður í jarðarförina buðu þau mér að koma til sín þar sem þau bjuggu í Reykjavík og flaug ég frá Akureyri daginn fyrir jarðarförina. Fór ég síðan til þeirra um morguninn, jarðarfarardaginn. Stundin sem ég átti með þeim hjónum þar er mér ógleymanleg. Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom Ég vil þakka honum afa, fyrir allar fallegar og skemmtilegar stundir, sem ég upplifði með honum og ömmu. Hann er dáinn, það veit ég, en minningin um hann mun lifa með mér til æviloka. Og ég er líka stolt yfír, að ég ber hluta af nafni hans, því ég heitir Svandís Jóna Georgsdóttir. Svandís Jóna Georgsdóttir. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá, það yerður dásamleg dýrð handa mér. (Hðf. ókunnur.) Nú kveðjum við elsku afa okkar og biðjum góðan Guð að styrkja Svölu ömmu og alla fjölskylduna. Svala og Svava Georgsdætur. inn var Óli, sitjandi í stól, hann stóð upp úr stólnum með útbreidd- an faðminn á móti mér og tók þéttingsfast utan um mig og hélt mér lengi í faðminum og sagði: „Elsku Gréta mín, mér fínnst eins vænt um þig eins og ég ætti þig.“ Þessi orð hverfa mér aldrei úr minni meðan ég lifí. Við jarðarför Önnu sat ég með fjölskyldu hennar, annað var ekki tekið í mál, og sést þar best hvað þau voru mér indæl, Sigurbjörg og Óli. Ég var heppin að eignast Önnu fyrir vinkonu og eignast í leiðinni hennar foreldra sem vini. Oft átt- um við góðar stundir í eldhúsinu á Túngötu 9. Þegar við hjónin heimsóttum Sibbu á sjúkrahúsið á Siglufirði í sumar sem leið var hún svo hress í anda. Og minnið hjá henni, hún mundi mörg smáatriði sem við Anna vorum að bralla og hlógum við dátt að því. Það var alltaf jafn gaman að spjalla við hana. Ekki ætla ég að rekja ættir Sibbu, en eitt vil ég segja að lokum um þau hjónin, þau hafa gengið í gegnum margt um ævina. Þau misstu húsið sitt í bruna, áttu að- eins eftir fötin sem þau stóðu í. Síðan misstu þau eina drenginn sinn. Það var mikill og sár missir. Síðan missa þau dóttur sína sem áður segir. Svo missir Óli heilsuna. Mikið þurfa sumir að ganga í gegn- um. Ég vil þakka þér, Sibba mín, fyrir allt gamalt og gott. Vonandi ertu nú búin að hitta Óla þinn og bömin. Far þú í friði. Gréta Guðvarðardóttir. Lilja Kristdórs- dóttir — Minning Sigurbjörg' Þorleifs- dóttir — Minning Systkinaminning Jón Magnússon, Ragn- hildur Magnúsdóttir og Elín Magnúsdóttir frá Lónshúsum í Garði Jón Fæddur 12. mars 1895 Dáinn 23. október 1973 Ragnhildur Fædd 14. maí 1896 Dáin 21. apríl 1993 Elín Fædd 6. október 1897 Dáin 24. desember 1991 í friði látinn hvíli hér, nú heim frá leiði göngum vér. Ó, búum einnig oss af stað. Því óðum líður stundin að. Svo veri dauðinn velkominn, vér vitum, Jesús, dauði þinn frá dauðans valdi leysti lýð, þér lof og dýrð sé fyrr og síð. (V. Briem) Ég get ekki kvatt Rönku öðm- vísi en að minnast systkinanna á Njarðargötunni. Nonni, Ella og Ranka byggðu Njarðargötu 41 af litlum efnum og héldu því við af mestu kostgæfni. Ég leit á Njarðargötuna sem mitt annað heimili í langan tíma og það gerðu líka Sína amma, mamma, systkini mín og pabbi minn sálugi sem kom frá litlu þorpi utan af landi (Borg- arfírði eystri) til að ganga mennta- veginn, einnig bræður hans og margt annað fólk sem átti þar öruggt heimili. Ég get ekki annað en minnst sunnudaganna á Njarð- argötunni, það var engin skyldu- mæting, en maður lét sig ekki vanta í steikina, svo ég minnist ekki á pönnsurnar sem eru þær ljúffengustu sem ég hef fengið. Systumar voru það samrýndar að það var aldrei talað um þær öðruvísi en báðar í sömu setningu, það var ekki ósjaldan sem maður sagði „Ella og Ranka eru í síman- um“ svo samrýndar voru þær. Þótt systkinin væru barnlaus hafa fáir átt þátt í uppeldi eins margra og þau, ég hef ekki tölu á þeim fjölda, en ég veit að það var bæði gott og sannkristið uppeldi. Ég gæti skrifað heila bók um þessi samrýndu systkini og veit ég að nú er fagnaðarfundur á þeirri endastöð sem við eigum öll eftir að hittast á. Ég verð alltaf þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þessum hjartahlýju systkinum sem gáfu mér svo mikið. Blessuð sé minning þeirra. Jóliann Borg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.