Morgunblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 59
Margrét Gísla-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 19. ágúst 1909
Dáin 6. apríl 1993
Öll þekkjum við af raun að allir
dagar eiga sér endi, sama hvort það
er dimmur og kaldur vetrardagur
eða bjartur og fagur sumardagur.
Margrét Gísladóttir frá Skógar-
gerði er látin. Hún var ein af dug-
mestu konum í Kvenfélaginu Blá-
klukku um áraraðir. Hún gekk í
félagið fljótlega eftir stofnun þess
og starfaði í því af miklum krafti
allt til dauðadags. Tvívegis gegndi
hún formennsku í félaginu eða í
alls 8 ár auk margra annarra trún-
aðarstarfa.
Á frumbýlingsárum félagsins
voru fundir haldnir til skiptis á heim-
ilum félagskvenna, en löngu eftir
að úr rættist með fundaraðstöðu var
heimili Margrétar ávallt opið fyrir
hvers kyns starfsemi, s.s. vinnu-
fundi, bakstur og fieira, og sérstaka
ánægju hafði Margrét af því að
hafa jólafundina heima hjá sér. Þá
spilaði hún gjarnan jólasáimana á
orgelið sitt og var þá sungið með
af mikilli gleði. Margrét var trúuð
kona og bar hag kirkjunnar mjög
fyrir brjósti. Þegar kom til uppbygg-
ingar eða annars góðgerðarstarfs
var kirkjan ávallt efst í huga henn-
ar. Má geta þess að fyrsta framlag-
ið í kirkjubyggingu á Egilsstöðum
kom frá kvenfélaginu Bláklukku
ekki síst fyrir hvatningu Margrétar
og síðar stuðlaði hún að því að kirkj-
unni voru færðar ýmsar gjafir.
Alls konar ræktun var Margréti
mjög hugleikin. Heimili hennar var
blómum prýtt og ófá voru potta-
blómin er hún jafnan gaf á árlegan
páskabasar kvenfélagsins. Ósínk
var hún á að gefa úr garðinum sín-
um afleggjara og hnausa, sem nú
eru orðnir að fallegum blómabreið-
um og prýða margan garðinn á
Egilsstöðum. Garðurinn hennar var
afar fallegur meðan hún hafði heilsu
til að annast hann.
Margrét var hugmyndarík kona
og hélt fast við sína skoðun, hvort
sem rætt var um trúmál eða stjórn-
mál, en virti þó alltaf skoðanir ann-
arra.
Margréti var lítið gefið um hrós
og heiður sér til handa, en á áttræð-
isafmæli hennar var hún gerð að
heiðursfélaga í Kvenfélaginu Blá-
klukku.
Með virðingu og þökk fyrir ötult
og fórnfúst starf er Margrét Gísla-
dóttir kvödd hinstu kveðju. Blessuð
sé minning hennar.
Ástvinum Margrétar sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Félagar í
Kvenfélaginu Bláklukku.
Hrafnhildur Jóns-
dóttir — Minning
Fædd 1. júní 1972
Dáin 18. apríl 1993
Ég mun aldrei gleyma þeim degi
þegar góður vinur minn hringdi i
mig og sagði mér lát Hrafnhildar.
Eg hef aldrei kynnst jafn fallegri
og góðri stelpu. Hún var svo björt
og lífsglöð. Ég á alltaf eftir að minn-
ast stundanna sem við áttum sam-
an. Við gátum alltaf talað saman
um allt milli himins og jarðar. Hún
kenndi mér svo margt um lífið. Það
var afar skemmtileg lífsreynsla að
vera með henni.
Mér þykir það svo sárt að hún
hafi skilið við okkur svona snemma.
Hún talaði svo oft um það sem hún
ætlaði að gera í framtíðinni. Það
er óskaplega erfitt að sætta sig við
þetta og geta aldrei framar sagt
henni hvað mér þótti vænt um hana.
En eitt er víst að hún mun alitaf
eiga sérstakan stað í hjarta mínu
og ég á aldrei eftir að gleyma henni.
Ég veit henni líður vel þar sem hún
er. Fjölskyldu Hrafnhildar, ættingj-
um og vinum votta ég mína dýpstu
samúð. Blessuð sé minning hennar.
Erik.
FLÍSAR
aptiss
Stórhöfða 17, við GuIUnbrú,
sími 67 48 44
Mörkinni 1 • Sími (91) 68 31 41
NÝ SENDING
FRÁ PAKIS1AN
glæsilegum mottum frá
Pakistan. 100% ull.
Frábært verð!
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opið ó laugardögum
kl. 11 - 16
Dragtir
Kjólar
Blússur
Pils
Ódýr nóttfatasett |
■JHW
i 12, simi 44433.
la pvairie
SWITZERLAND
Það tilkynnist hér með að þann 1. apríl 1993 urðu umboðsmannaskipti fyrir ta prairíe
á Islandi.
Heildverslunin ÍSFLEX HF., Sigtúni 1, 105 Reykjavík, tók þá við af heildv. Klassík hf.
Fyrst um sinn verða !a pmirie snyrtivörumar aðeins fáanlegar í eftirtöldum verslunum:
H Y G E A
dnyrtivöruverólun
Kringlunni, sími 689505
H Y G E A
vnyrtivöruvervlun
Austurstræti, sími 19866
Við þökkum viðskiptavinum okkar áralanga tryggð við ll» pralrie og vonumst til að
geta veitt enn betri þjónustu í ffamtíðinni.
LABORATOIRES L A PRAIRIE
SWITZERLAND
S A
(MySÍaMKEPPnÍ
,áöa skóna á teikningunni
:SSgi—
JvSu,Swse"ur
SSttóSíÞr6«a«sKur,
'Se6'a''eSk,0,1' toeocW®
í,unumuma»Uanci.
o O c
) O O o .
„ •-r,í 1993 verður síðan
tillögum a"s staö verölaun,
'SSS&'"
upphæð kr. 28.000.
KongaROOS, skómir með vosanum